Skessuhorn - 10.01.2002, Page 12
i
TOYOTA salurinn Borgarnesi
PÓSTURINN
WKHttKT* jSKSKMEKPM www.postur.is
Þú pantar,
Pósturinn afhendir. Heimsending um allt land
Engjaási 2, 310 Borgames, síml 437 2300, fax 437 2310
*
*
Þúsund málum fleira
hjá Borgameslögreglu
Þyrfti að fjölga lögreglumönnum
um þrjá segir sýslumaður
Heildar málafiöldi hjá
lögreglunni í Borgamesi
var um 2700 mál á síð-
asta ári sem er fjölgun
sem nemur um þúsund
málum milli ára. "Það
hefur fjölgað í öllum
málaflokkum hjá okkur
en mesta fjölgunin er í
umferðarlagabrotum og
þá sérstaklega hrað-
akstri," segir Stefán
Skarphéðinsson sýslu-
maður í Borgamesi. Hann segir að
skýringin á þessari geysilegu fjölgun
mála sé þó líklega ekki sú að glæpa-
hneigð Borgfirðinga hafi aukist
skyndilega. "Umferðarefdrht hefur
verið gert skilvirkara og samvinna
lögregluembættanna á Vesturlandi
hefur skilað góðum árangri. Aukn-
ingin er mest yfir sumarið enda hef-
ur umferð verið að aukast ár ffá ári,"
segir Stefan.
Þarf fleiri menn
Þrátt fýrir mikla aukningu mála
hefur lögreglumönnum ekki fjölgað
og fjárffamlög til embættisins hafa
heldur ekki hækkað. Atta lögreglu-
þjónar em starfandi við embættið,
þar af era lögreglustjóri og einn
maður sem sinnir toll-
gæslu en sex lögreglu-
þjónar em á þrískipmm
vökmm. Stefán segir
íjarri því að það sé nóg.
"Við höfum gagnrýnt að
fjöldi lögregluþjóna
stjórnist eingöngu af
fólksfjölda en kannanir
hafa sýnt að fólksfjöldi í
Borgarfjarðarhéraði
margfaldast yfir sumar-
tímann en það er vitað að
hér em allt að mtmgu þúsund
manns sumar helgar með sumar-
húsagestum. Þá er ótalin öll umferð-
in í gegnum héraðið. Ef vel á að vera
þá þyrftu að vera hér níu lögreglu-
þjónar á vöktum í stað sex. Það er
ekkert sem bendir til að þeim verði
fjölgað á næstunni en við fylgjumst
vel með hvað gerist á Selfossi en þar
má segja að verið sé að kljást við
sömu vandamál og hér. Við höfum
hinsvegar von um að staða tollgæslu-
manns verði tekin út úr og hann ekki
skilgreindur sem lögregluþjónn við
embættið sem er óeðlilegt þar sem
hans starfssvið tengist fyrst og ff emst
höfninni á Grundartanga. Það mun
vonandi breytast þegar Grundar-
tangahöfn verður aðaltollhöfn," seg-
ir Stefan. GE
Stefán Skarpbéðinsson
sýslumaður
Skagamenn í basli í körfunni
Erlendur og Brynjar í Skaflagrím
Á ýmsu hefur gengið f leikmanna-
málum Skagamanna í 1. deildinni í
körfuknatdeik á yfirstandandi leik-
tíð. Síðusm tíðindi em þau að Er-
lendur Ottesen og Brynjar Sigurðs-
son skiptu yfir í úrvalsdeildarlið
SkaOagríms nú strax effir áramót, en
þeir hafa verið byrjunarliðsmenn hjá
Skagamönnum í allan vemr. Að
sögn Sævaldar Bjamasonar, þjálfara
Skagamanna, hefiir Brynjar spilað
með Skagamönnum í fjölda ára og
verið nokkuð farsæll. Hann segir
Erlend Ottesen mjög efnilegan leik-
mann og að hann hafi verið einn
besti maður Skagamanna á tímabil-
inu. Sævaldur segir að hann hafi ekki
vitað um ástæður félagaskipta þeirra
félaga fýrr en þau hafi verið afstaðin,
en þá hafi sagst vilja reyna sig aftur í
úrvalsdeild og Erlendur vildi færa
sig yfir í eitthvað stærra umhverfi
þar sem áskorunin væri meiri, en
þetta hafi komið mikið á óvart. Áður
hafði Svanur Svansson hætt snemma
tímabils, Ægir Hrafh Jónsson skipt í
Val og Brynjar Karl Sigurðsson
hættd bæði að leika og þjálfa með
Skagamönnum vegna ógreiddra
launa. Hann þjálfár þó enn yngri
flokka félagsins.
Sævaldur tekur undir að vænting-
ar til liðsins hafi verið nokkrar í upp-
hafi tímabilsins og miðað við þann
mannskap sem var til staðar í upp-
hafi hefði mátt gera eitthvað meira
en raun ber vitni. Hann aftekur þó
að það sé einhver uppgjafarandi í
herbúðum Skagamanna því það séu
þrátt fyrir allt 8 leikir efidr og skástd
leikur liðsins (þar sem einungis náð-
ist í sjö manna lið) hafi verið sl.
sunnudag gegn toppliði Snæfellinga.
„Staðan er sú að hugsanlega verður
sameinað a-lið Skagamanna og svo
c-Mð (1. flokkur) eða þá að einhverj-
ir leikmenn koma til með- að spila
með a- liðinu. Við skulum því bara
bíða og sjá en ég er ekki hættur og
þeir sem eftir era æda vissulega að
gera allt í sínu valdi til að halda
þessu liði uppi," segir Sævaldur að
lokum.
smh
Fyrsta bam ársins
Fyrsta barn ársins á Vestur-
landi lét' bíða eftir sér og kom
ekki í heiminn fyrr en á sjötta
degi ársins. Það reyndist vera
drengur úr Árdal í Borgarfjarð-
arsveit en hann fæddist á Sjúkra-
húsi Akraness kl. 4.15 þann 6.
janúar. Vóg hann rúm 4200
grömm og var 54 cm á lengd við
fæðingu. Foreldrar drengsins era
þau Anna Sigríður Hauksdóttir
og Kristján Ingi Pétursson. Á
myndinni situr stóra systir, Svava
Sjöfh, undir snáðanum.
Erlendur Ottesen
*
Núna þarft þú ekki aöfara lengra!
Ný þjónusta gleraugnaverslunarinnar Sjón
í Borgarfirð.
Gleraugnaverslunin Sjón verður hjá fasteignasölunni
Eign.is, Egilsgötu 2, fimmtudag, 17. janúar og
föstudaginn 18. janúar frá kl. 10:00 - 18:00.
Hringdu í síma 511 6699 fyrir nánari upplýsingar.
Gleraugnaverslunin Sjón veitir öllum
viðskiptavinum núna 30% afslátt af nýjum
gleraugum. Verðum meöyfir 500 umgjörðr á
staðium, eingöngu það allra nýjasta. 2002
línan er komin! Spennandi úrval.
Lesgleraugu « göngugieraugu • margskípt gleraugu (Varílux gier) • línsur • sölgleraugu meðstyrkieika
SlBEjEEBEBBOE
Sjón - alltaf betri þjónusta.
Laugavegi 62 101 Reykjavik sími 511 6699 fax 511 6699 markus@sjon.is