Skessuhorn


Skessuhorn - 31.01.2002, Síða 2

Skessuhorn - 31.01.2002, Síða 2
2 FIMMTUDAGUR 31. JANÚAR 2002 saissiMöÉSi Hvanneyri lög- heimili bles- gæsarinnar Fyrirhugað er að umhverfis- ráðuneytið friðlýsi formlega jörðina Hvanneyri sem búsvæði blesgæsarinnar. Gæsin hefur um áratuga skeið átt griðland á Hvanneyri og þar hafa verið stundaðar rannsóknir á atferli hennar. Friðlýsing jarðarinnar er gerð með samþykki Landbúnað- arháskólans á Hvanneyri og Borgarfjarðarsveitar en að tillögu Náttúrvemdar nkisins. GE Bervík SH-143 staðin að ólög- legum veiðum Miðvikudaginn 22. janúar sl. stóð þyxla Landhelgisgæslunnar, TF-Sif, Bervík SH-143 að ólög- legum dragnótarveiðum í mynni Arnarfjarðar. Fiskistofa hafði mánudaginn 21. janúar svipt skip- ið veiðileyfi vegna umfram afla. Slfk brot munu varða sektum á bilinu frá 600 þúsund krónum til sex milljóna króna auk upptöku á afla og veiðarferum samkvæmt lögum um stjóm fiskveiða. Lögreglan á Isafirði hefur unn- ið að rannsókn málsins í sam- vinnu við Landhelgisgæsluna en lögreglan tók á móti skipinu á Þingeyri á miðvikudaginn og Iagði hald á skipsgögn og innsigl- aði lestar og veiðarferi. smh Flugdiskurinn flýgur út Flugdiskur Landmælinga, þar sem hægt er að skoða Island úr lofti í þrívídd í tölvu, hefúr nú selst í yfir 5.000 eintökum. Þetta teldist gullplötusala ef um tón- listardisk væri að ræða. Flugdiskurinn kom út í sept- ember síðastliðnum og var fýrst um sinn aðeins fáanlegur á vef- síðu Landmælinga. Hann kom í verslanir fýrir jól og vom við- tökur vonum framar segir í fréttatilkynningu frá Landmæl- ingum. Um þriðjungur af heild- arsölunni fór í gegnum vefsíðu Landmælinga, www.lmi.is. Verkalýðsfélag Akraness Stjómin situr áfiram þrátt fyrir vantraust Málinu vísað til miðstjórnar ASI Hervar sitnr áfram Stjóm Verkalýðsfélags Akraness hyggst ekki segja af sér þrátt fýrir að vantrauststillaga á hana hafi ver- ið samþykkt á ffamhaldsaðalfúndi félagsins 13. desember síðastliðinn. Engin lög eða reglugerðir skylda stjórnina til að segja af sér þrátt fýr- ir samþykktina. Hervar Gunnarsson, formaður VLFA, sagði í samtali við Skessu- horn að Vílhjálmur Birgisson hefði vísað málinu til miðstjórnar ASI sem ætti eftir að gefa álit sitt á mál- inu og eftir því væri beðið. „ASÍ hefur hinsvegar enga lögsögu í þessu máli og snertir álit hennar því líkast til lítið endanlega ákvörðun stjórnarmanna VLFA. Það hefur í sjálfu sér engin ákvörðun verið tek- in innan stjórnarinnar varðandi þetta mál en það er alveg Ijóst að stjórnin segir ekki af sér í heilu lagi.“ Aðspurður um hvort hann ædaði að láta af formennsku sagði Hervar að hann ætti ekki von á því. „Eg var kosinn formaður með 328 atkvæð- um en vantrauststillagan var sam- þykkt af 30 manns. Mér finndist ég vera að bregðast þeim er kusu mig ef ég segði af mér. Að auki greiddi Vilhjálmur hefur vísai málinu til ASI helmingur fundarmanna ekki at- kvæði með tillögunni þannig að mér finnst ég ekki siðferðislega bundinn af þessari samþykkt," sagði Hervar Gunnarsson. HJH Grundaríj arðarkirkj a arfleidd að eigum Óskars Sæmundssonar Ljósakróna helguð minningu um mann Þegar Óskar Sæmundsson, á Staðarhóli í Grundarfirði, lést á síð- asta ári effirlét hann Grundarfjarð- arkirkju allar eigur sínar. Auk húss- ins Staðarhóls, sem er lida húsið á hæðinni við skólann, eftirlét hann kirkjtmni verulega peningafjárhæð. Er þar um stóra upphæð að ræða ekki síst ef litið er til þess að Óskar var alla sína ævi fátækur verkamaður, en hann var fæddur þann 22. janúar 1908. Sóknamefnd Grundarfjarðar- kirkju ákvað að láta þessa fjárhæð liggja óskerta áfram á bankareikn- ingi en nota vextina til þess að bæta árlega við takmarkað viðhaldsfé kirkjunnar. Jafúffamt ákvað sóknar- nefúd að láta minningu Óskars lifa í ljósakrónu sem yrði sömu gerðar og sú sem Þorkell Sigurðsson fýrrver- andi kaupfélagsstjóri gaf til minn- ingar um eiginkonu sína. Ljósakrónan er nú komin til Grundarfjarðar og er nú unnið að uppsemingu hennar. Verður hún helguð Grundarfjarðarkirkju í guðsþjónustu klukkan 11:00 nk. sunnudag. smh Umferðin mæld undir Hamarfialli Nýverið vora settir nemar í veg- inn undir Hafnarfjalli sem eiga að mæla fjölda bifreiða, aksturstefnu, bíllengd og hraða þeirra sem eiga leið þar um. Það er Vegagerðin sem stendur að þessum mælingum og samkvæmt Einari Pálssyni hjá Vegagerðinni í Borgarnesi er til- gangurinn að greina umferðina út úr þéttbýliskjörnum og finna þannig út gerð umferðarinnar á viðkomandi stöðum með tilliti til ýmissa þátta. Má öruggt telja að Lögreglan í Borgarnesi muni hagnýta sér upp- lýsingarnar um gerð umferðarinn- ar undir Hafnarfjalli og grípa inn í þegar hár hraði og þétt umferð fer saman, en allir aðrir áhugasamir um gerð umferðar geta nálgast þessar upplýsingar í gegnum vef Vegagerðarinnar. smh Bílskúrshurðir Eigum fyrirliggjandi Héðins hurðir í öllum stöðluðum stærðum = HÉÐINN = Stórás 6 • 210 Garðabæ Sími: 569 2100 • Fax: 569 2101 Prófkjör hjá Sjálfstæðis- mönnum á Akranesi Sjálfstæðismenn á Akranesi hafa ákveðið að efna til prófkjörs til að raða á framboðslista sinn fýrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Frestur til að skila inn þáttökutil- kynningum rann út um þar síðustu helgi og hefur kjörnefnd flokksins sent frá sér lista með ellefu nöfnum sem valið stendur um en fýrirhugað er að prófkjörið verði um miðjan nóvember. Þeir sem gefa kost á sér era: Guðmundur Egill Ragnarsson, veitingamaður, Guðrún Elsa Gunnarsdóttir, iðnrekstrarfræðing- ur, Gunnar Sigurðsson, fram- kvæmdastjóri, Hallveig Skúladóttir, hjúkrunarfræðingur, Ingþór Þór- hallson, pípulagningamaður, Jón Gunnlaugsson, umdæmisstjóri, Kristjana Guðjónsdóttir, nemi, Láras Ársælsson, verkfræðingur, Sæmundur Víglundsson, bygginga- tæknifræðingur, Sævar Haukdal, framkvæmdastjóri og Þórður Þ. Þórðarson, bifreiðastjóri. Fram- bjóðendurnir eiga síðan eftir að gefa út í hvaða sæti listans þeir gefa kost á sér. Gunnar Sigurðsson er sá eini sem gefur kost á sér nú af þeim þremur sem tóku sæti í bæjarstjórn fýrir hönd Sjálfstæðismanna eftir síðustu kosningar en síðan hefur Jón Gunnlaugsson komið inn sem varamaður. Pétur Ottesen sem skipaði annað sæti listans 1998 hætti í bæjarstjórn á síðasta ári þar sem hann flutti úr sveitarfélaginu og Elínbjörg Magnúsdóttir sem var í þriðja sæti gefúr ekki kost á sér að þessu sinni. QE Slápverji á Höfrungim slasaðist Skipverji á Höfrungi III, Elías Olafsson hlaut áverka í andliti og á feti s.l. miðvikudag þegar togvír slimaði með þeim afleiðingum að hann slóst í skipverjann. Skipið var að veiðum 50 sjómflur austur af Eskifirði þegar óhappið átti sér stað. Skipið tók þegar stefnuna á Neskaupsstað þar sem hugað var að meiðslum Elíasar. Elías var síðar um daginn sendur með flugi til Reykjavíkur þar sem hann var lagður inn á sjúkrahús, hann fekk að fara heim tveimur dögum síðar Hjörleifiir sviptur bygg- ingastjóm á Stillholti 23 - en ekki bygginga- stjóranafnbót A bæjarráðsfundi þann 17. jan- úar sl. voru málefni Hjörleifs Jónssonar, byggingarstjóra, enn til umfjöllunar. Var þar staðfest samþykkt byggingamefndar frá 4. desember sl. að því leyti að beitt skuli ákvæðum greinar 212.2 í byggingarreglugerð þar sem við- komandi aðili, Hjörleifúr Jóns- son, verði sviptur byggingarstjóm á fasteigninni Stillholti 23. Bygg- ingamefnd og byggingarfulltrúa er fáhð að framfýlgja máhnu í samræmi við þá ákvörðun. Tildrög málsins eru þau að með bókun byggingarnefndar þann 20. nóvember sl. var Hjör- leifi veitt áminning sem bygging- arstjóri Stillhoits 23, Akranesi, fýrir brot á ákvæðum byggingar- reglugerðar varðandi ófrillnægj- andi skil á gögnum varðandi Still- holt 23. Jafnframt var honum veittur frestur til 26. nóvember til að skila þeún inn. Á byggingar- nefndariúndi þann 27. nóvember var ffesturinn framlengdur til 4. desember og ítrekað hvaða gögn- um ætti að skila til byggingarfúll- trúa, en Hjörleiftir varð ekki við þeim tilmælum. í bókun bygging- amefndar þann 4. desember kem- ur ffarn að þar sem Hjörleifur hafi ekki orðið við fýrirmælum bygg- ingamefitdar telji byggútgamefiid óhjákvæmilegt annað en að leggja til hann verði tekinn af verkinu sem byggingarstjóri og sviptur viðurkenningu sem byggingar- stjóri í lögsagnaramdæmi nefnd- arinnar. í samtah við Skessuhorn eftir bókun byggingamefndarinnar ffá 4. desember sagðist Hjörleifúr telja að þessi bókun væri til marks um persónulegar ofsóknir á hend- ur sér. Sagði hann að vinnubrögð eins og byggingamefnd beitti í þessu máli hefðu ekki viðgengist áður. Taldi hann þá vafasamt að þessi samþykkt byggingarnefúd- arinnar næði ffam að ganga. Síðan gerðist það í málinu að ofangreind bókun var staðfest í bæjarráði þann 13. desember sl. en síðan virðist hún hafa að nokkru verið dregúi til baka þann 17. janúar og Hjörleifúr einungis sviptur byggingarstjórn á Stiil- holti 23 en ekki byggingarstjóra- nafnbót. Bæjarstjórn samþykkti svo afgreiðslu bæjarráðs á fúndi þann 22. janúar sl. ^

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.