Skessuhorn - 26.06.2002, Side 4
4
MIÐVIKUDAGUR 26. JÚNÍ 2002
SfiaeSSlöSÖE!?!
WWW.SKESSUHORN.IS
Borgarnesi: Borgarbraut 23 Sími: 431 5040
Fax: 431 5041
Akranesi: Kirkjubraut 3 Sími: 431 4222
SKRIFSTOFUR BLAÐSINS ERU OPNAR KL. 9-16 ALLA VIRKA DAGA
Freyjukórinn í Borgarfirði
Vel heppnað ferðalag
til Austurríkis og Ungverjalands
Útgefandi: Tíðindamenn ehf
Ritstjóri og óbm: Gisli Einarsson
Bloóomenn: Sigrún Ósk Kristjónsdóttir
Sigurður Mór Harðarson
Auglýsingar: Hjörtur J. Hjartarson
Prófarkalestur: Sigrún Ósk Kristjónsdóttir
Umbrot: Guðrún Björk Friðriksdóttir
Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins
HM
431 5040 skessuhorn@skessuhorn.is
892 4098 ritstjori@skessuhorn.is
862 1310 sigrun@skessuhorn.is
865 9589 smh@skessuhorn.is
864 3228 hjortur@skessuhorn.is
augl@skessuhorn.is
Gísli Einarsson,
ritstjóri.
Freyjukórinn í Borgarfirði lagði
land undir fót 14. júní sl. er kórinn
ásamt fylgifiskum hélt til Ung-
verjalands í kórferðalag.
Kórinn hélt þrenna tónleika,
eina í Vínarborg og tvenna í Ung-
verjalandi.
I Vínarborg voru ættjarðarlög
sungin undir berum himni á 17.
júní skemmtun Islendingafélagsins
i Austurríki. Einnig var tíminn í
Vín notaður til að skoða fallegar
byggingar og fræðast um sögu
Austurríkis.
Þegar komið var til Ungverja-
lands var haldið til í Búdapest en
þaðan fór kórinn í stuttar ferðir,
bæði til skemmtunar sjálfum sér og
öðrum. Sungið var í Sissýarhöllinni
í Gödöllö og í borginni Zseget,
sem er heimaborg Zsuzsönnu Bu-
dai kórstjóra.
Félagar úr danshópnum Sporinu dsamt Elínu
trúa Snœfellsbœjar.
Söngur, kvæði, dans og þjóðleg
skemmmn var yfirskrift Pakkhús-
dags sem haldinn var í Ólafsvík
laugardaginn 15. júní. Dagskráin
hófst með lestri sagna og kvæða fyr-
ir yngsm kynslóðina, kirkjukór Ó-
lafsvíkur söng nokkur íslensk lög og
lifandi harmonikkuleikur og ilmur
af nýbökuðum vöfflum laðaði inn
gesti og gangandi. Þjóðdansar voru
hápunktur dagsins enda áttu þeir vel
við í þessu gamla húsi. Það var
danshópurinn Sporið úr Borgarfirði
Freyjukórinn var með þessu
ferðalagi sínu að stíga sín fyrstu
spor á erlendri grundu en hann er
skipaður um 40 konum sem koma
víðsvegar að úr Borgarfirði. Hann
var stofnaður af Bjarna Guðráðs-
syni, Nesi, Reykholtsdal sem
stjómaði kómum þangað til 1998
er Zsuzsanna Budai tók við.
Hápunktur góðrar ferðar var
heimboð í lítið þorp, Pillizanto, þar
sem lúðrasveit bæjarins og kvenna-
kór tóku vel á móti ferðalöngum,
með söng og dansi og fengu kórfé-
lagar að gæða sér á nýslátraðu svíni
sem hafði lagt sitt af mörkum fyrr
um daginn til að gera hann sem
skemmtilegastan.
Vill Freyjukórinn koma þakklæti
til allra þeirra sem lögðu hönd á
plóg og hjálpuðu til við að gera
þessa ferð mögulega. GBF
sem dansaði við mikla hrifningu
Pakkhúsgesta. Pakkhúsið er gamalt
versltmarhús, byggt árið 1844, og
hýsir Byggðasafn Snæfellsbæjar. í
húsinu er einnig rekin öflug upplýs-
ingamiðstöð fyrir ferðamenn,
byggðasafn, krambúð og hand-
verksverslun. Listasýningin Sam-
bönd Islands sem samanstendur af
verkum erlendra listamanna sem
túlka tilfinningar sínar og tengsl við
Island, er nú til sýnis í Pakkhúsinu
og verður ffam til 4. júlí.
Framkvæmdir
við SHA
Samningar
loks unclir-
ritaðir
Næstkomandi föstudag verða
undirritaðir verksamningar í lista-
setrinu Kirkjuhvoli um endurbæt-
ur á hluta fyrstu og annarrar hæð-
ar Sjúkrahúss og heilsugæslu-
stöðvarinnar á Akranesi að við-
stöddum tveimur ráðherrum og
bæjaryfirvöldum. Sem kunnugt er
var undirritun samninganna
ffestað um miðjan maí síðastliðinn
með skömmum fýrirvara vegna
samþykktar sem gerð var á ríkis-
stjómarfúndi um að öllum undir-
skriftum skyldi ffestað ffam yfir
kosningar.
Samningurinn tekur til við-
gerða og málunar á norð-austur-
álmu sjúkrahússins, innréttingar á
feðinga- og kvensjúkdómadeild á
annarri hæð, innréttingar fyrir
sótthreinsun í kjallara og endur-
bóta í eldhúsi og aðliggjandi rým-
um á fyrstu hæð. Utanhússffam-
kvæmdir era þegar hafiiar en að
sögn Guðjóns S. Brjánssonar,
ffamkvæmdastjóra SHA, hefjast
aðrar framkvæmdir af þunga í
haust.
Áætlaður heildarkostnaður er
um 167 milljónir króna, en ríkið
greiðir 85% af þeírri upphæð á
móti 15% ffá Akraneskaupstað.
Samkvæmt samningunum er áæd-
að að verklok verði á árinu 2005.
SÓK
Bar sigurorð
afErki Nool
Eins og greint var frá í síðasta
tölublaði Skessuhoms var Sigur-
karl Gústavsson úr UMSB í hópi
þeirra sem valdir vora til þess að
keppa fyrir íslands hönd á Evr-
ópubikarmótinu í frjálsum íþrótt-
um sem haldið var í Tallin í Eist-
landi.
Lokastaðan varð sú að Island
hafnaði í 6. sæti í bæði karla- og
kvennaflokki með 74 og 75 stig.
Irland sigraði í kvennaflokki en
Hvíta-Rússland í karlaflokki.
Sigurkarl keppti í 4x100 m
boðhlaupi þar sem hann náði
góðum árangri, varð þriðji af átta
keppendum í mark og náði að
bera sigurorð af frjálsíþrótta-
kappanum Erki Nool. „Það var
gríðarleg stemmning innan hóps-
ins á mótinu og þetta var mjög
gaman. Við fengum ágætis ffí-
tíma til að skoða okkur um en á
mánudag var að vísu einhvers
konar frídagur í Eistlandi og allt
lokað af þeim sökum. En við gát-
um að sjálfsögðu skoðað bæði
bæinn og húsin." SÓK
Elliði með
síld til Noregs
Elliði GK fyllti sig af norsk-ís-
lenskri síld um helgina og fór með
rúm 800 tonn til löndunar í Bodö
í Noregi. Aflann fékk skipið í nót.
Góð veiði hefur verið undanfama
daga um 150 sjómflur NV af
Bjamarey og er fjöldi íslenskra
skipa að veiðum á svæðinu. Sfldin
er nú komin mjög langt norður
eða um 750 sjómflur ffá Aust-
fjarðahöfnum og tekur siglingin
þangað tæpa þrjá sólarhringa að
því er kemur ffam í ffétt á hb.is.
SÓK
Þótt það liggi máske ekki alveg í augum uppi þá vill
svo skemmtilega til að undirritaður er afburðamaður á
sviði knattspyrnuíþróttarinnar. Einhverjir kunna hugs-
anlega að véfengja þau orð en þeir hinir sömu hafa þá
væntanlega fallið í þá gryfju að láta blekkjast af mínum
knattspyrnuferli sem kann á yfirborðinu að virðast ífá-
hrindandi. A það skal þó bent að þrátt fyrir að ég hafi
að mestu gefið upp von um landsliðssæti hef ég ekki
látið deigan síga og mæti ótrauður á árlegar knatt-
spyrnuæfingar. Eg hef ekki einu sinni látið síendurtek-
in hnjösk knýja mig til að leggja skóna á hilluna. Fyrir
þá sem ekki hafa fylgst með íþróttafréttum síðustu
misseri má rifja það upp að á 2001 æfingunni var ég rif-
beinsbrotinn með skipulögðu áhlaupi og á æfingu þessa
árs varð ég fyrir alvarlegum hnjámeiðslum þegar ég
æfði fögn. Til viðbótar má neína fjölmörg fingurbrot
ffá fyrri árum, axlartognun, hælsæri, harðsperrur og
margt fleira sem orðið hefði til að eyðileggja feril minni
íþróttamanna.
Þrátt fyrir allt þetta hef ég aldrei efast um mína yfir-
burði á knattspyrnusviðinu enda felast þeir ekki í minni
fótafimi heldur ótrúlegu innsæi og yfirgengilegri þekk-
ingu á þessari göfugu íþrótt. Þrátt fyrir það hef ég mátt
þola háð og spott allt ffá fæðingu ffá þeim sem skortir
skilning og innsýn í heim knattspyrnunnar. Líkt og Jó-
hanna Sigurðardóttir hef ég samt trúað því, sama
hversu fáránlega það hefur hljómað, að minn tími muni
koma. Það sem skilur okkur aftur á móti að er að minn
tími kom.
Minn tími kom á yfirstandandi heimsmeistaramóti
sparkenda fyrir austan. Þótt atburðir þar eystra hafi
verið túlkaðir á misjafhan hátt er það sem hæst ber tví-
mælalaust sigur þeirrar stefnu sem ég hef verið tals-
maður fyrir. Það er svokölluð aumingjadýrkun. Hún
felst í því að fylgja þeim að málum sem líklegastir eru
til að verða sjálfum sér og öðrum til skammar og að
berjast gegn því að betra liðið vinni. Nautnin sem í því
felst er hinsvegar ekki sú að gleðjast yfir sigri heldur að
hlakka yfir óförum þeirra sem töldu sig eiga sigurinn
vísan og yfir það hafna að vinna fyrir honum.
Það sem upp úr stendur í umræddri heimsmeistara-
keppni er að pínulitlir og verðlausir knattspyrnukallar
hafa gert flottustu fótboltastjörnurnar að fíflum.
Gísli Einarsson, knattspymukappi.
Styrlár ffá kvenfélaginu
19. júní
Á fondi í Kvenfélaginu 19.
júní í Borgarfirði, þann 11.
júní s.l. vora afhentir styrkir
til Björgunarsveitarinnar
Oks og Bæjarkirkju. Björg-
unarsveitin fékk kr. 60.000,-
tdl endurnýjunar á búnaði
sínum og sóknamefnd Bæj-
arkirkju kr. 40.000,- til að
fegra kirkjugarðinn. Styrk-
fjárhæðin er ágóðinn af hinu
árlega bingó kvenfélagsins
sem fram fer á Hvanneyri, í
byrjun desember ár hvert.
A myndinni eru fidltrúar styrkþega, Bjami Guö-
mundsson, gjaldkeri Björgunarsveitarinnar Oks og
Sigríður Blöndal, formaður sóknamefndar Bœjar-
kirkju ásamt formanni kvenfélagsins Jóhönnu
Guðjónsdóttur og ritara þess Svövu Kristjánsdóttur.
Skessuhorn kemur út alla fimmtudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14:00 á þriðjudögum.
Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímaniega.
fllaðið er gefið út í 4.000 eintökum og selt til áskrifenda oa í lausasölu.
Askriftarverð er 850 krónur með vsk. á mánuði en krónur 750 sé greitt með greiðslukorti. Vefð
í lausasölu er 250 kr.
431 5040
Pakkhúsdagar í Olafsvík
Unu Jónsdóttur.; lista- og menningarfull-