Skessuhorn - 26.06.2002, Side 6
6
MIÐVIKUDAGUR 26. JUNI 2002
SSESSSÍH©BK(
Marteinn Njálsson, bóndi og hesta-
maður á Vestri-Leirárgörðum, er gestur í
skráargati vikunnar en hann var á dögun-
um kjörinn oddviti Leirár- og Mela-
hrepps.
Marteinn Njálsson
Nafit: Marteinn Njálsson.
Fteðingardagur ogár: 4. október 1949.
H<eð: Eg er nú ábyggilega farinn að ganga eitthvað saman en þegar e'g
var upp á mitt besta held ég að ég hafi náð 169 cm.
Starf: Bóndi og umsjónarmaður ígrunnskólanum Heiðarskóla. Svo er ég
nýorðinn oddviti líka.
Fjölskylduhagir: Maki minn er Dóra Líndal Hjartardóttir. Við eigum
þrjú böm.
Uppáhalds matur: Lambainnlœrisvöðvi, rétt matreiddur.
Uppáhalds drykkur: Islenskt vatn.
Uppáhalds sjónvarpsefni: Það eru fréttimar, það er helst að ég horfi á
þær og svo einhverja hestaþætti.
Uppáhalds leikari innlendur: Hilmir Snær.
Uppáhalds leikari erlendur: Kevin Costner.
Besta bíómyndin: Eg lifi.
Uppáhalds íþróttamaður: Um þessar mundir erþað líklega Om Am-
arson, sundkappi.
Uppáhalds íjrróttafélag: FH.
Uppáhalds stjómmálamaður: Það er Ingibjörg Sólrún Gísladóttir.
Uppáhalds tónlistarmaður innlendur: Sigrún Eðvaldsdóttir.
Uppáhalds tónlistarmaður erlendur: Luciano Pavarotti.
Hvað meturðu mest í fari annarra: Eg met nú mest hreinskilni og
heiðarleika.
Hvaðfer mest í taugamar á þér ífari annarra: Grobb ogfals.
Þinn helsti kostur: Eg vil nú meina að ég sé heiðarlegur og hreinskil-
inn. Eg held ég geti haldið þvífram að það séu mínir kostir.
Þinn helsti ókostur: Ostundvísi.
Mottó: Léttleiki og að halda mér frtskum.
Eitthvað að lokum: Eg vil hvetjafólk tilþess að horfa björtum augum
tilframtíðarinnar!
Kjúklingaréttur
Katla Guðlaugsdóttir, af-
greiðslukona í versluninni Ozone
á Akranesi, er þekkt fyrir flest
annað en eldamennsku en þrátt
fyrir það lumar hún á ýmsum
góðum uppskriftum. Þennan
kjúklingarétt segist hún hafa
fengið hjá tengdamóður sinni á
Isafirði en sjálf hefur hún aðeins
eldað hann einu sinni. Hún segir
hann bæði auðveldan og bragð-
góðan auk þess sem hann sé bráð-
hollur.
Katla Gwílaugsdóttir
Kj úklingaréttur
1 stór kjúklingur eða tveir litlir
Karrý
2 súputeningar
6 bollar soðin hrísgrjón
1/2 dós sveppa- eða kjúklingasúpa
1/2 dós sveppir
1/2 dós aspas
6 matskeiðar majrnes
Gott er að bera með snittu-
brauð, maísbaunir og ferskt salat.
Kjúklingurinn er kryddaður
með kjúkhnga- og paprikukryddi
og steiktur í 1 - 1 1/2 klst, við
170-200°C. Aspassoðið hrært í
majonesið, kryddað með karrý og
súputeningarnir leystir upp.
Sveppir og aspas hrært saman í
skál með kjúklingnum og hrís-
grjónunum. Allt hrært saman og
sett í eldfast mót með rifnum osti
yfir. Hitað við 200°C í 20 mínút-
ur.
Verði ykkur að góðu!
Fréttavefur Vesturlands
www.skessuhom.is
Verið velkomin
Fólkið þreytt og þráir frið
segir Sr. Þorbjörn Hlynur Arnason sem nýkominn er
frá átakasvæðunum í Israel
Að loknumjúndi með Yasser Arafat.
Átökin sem geysað hafa milli
Israelsmanna og Palestínumanna á
undanfömum misserum og ámm
hafa varla farið framhjá mörgum Is-
lendingum enda hefur varla liðið sá
fréttatími í nokkmm fjölmiðli í
langan tíma að ekki sé minnst á þær
hörmungar sem þar eiga sér stað.
Þeir em hinsvegar færri sem kynnst
hafa þessu ástandi af eigin raun en
einn þeirra er Þorbjörn Hlynur
Amason sóknarprestur á Borg á
Mýram og prófastur í Borgarfjarð-
arprórfastdæmi. Þorbjörn Hlynur
fór í þessum mánuði í viku ferðalag
til Israel á vegum Lútherska heims-
sambandsins en hann á sæti í ffam-
kvæmdastjórn þess.
Tilgangur ferðarinnar var að
ræða við stjómvöld í Israel um mál-
efni sjúkrahúss sem Lútherska
heimssambandið rekur í Ausmr
Jerúsalem og einnig að heimsækja
Lúthersku kirkjuna í Palestínu.
Upphaflega stóð til að senda alla
stjómina í þessa ferð en hún telur
48 manns. Auk þess áttu að vera
með í för starfsmenn sambandsins
og fréttamenn eða alls um 100
manna hópur. I ljósi ástandsins eins
og það hefur verið að undanförnu
var ekki talið ráðlegt að fara með
svo stóran flokk manna inn á svæð-
ið og því var niðurstaðan að ein-
ungis framkvæmdanefndin og
nokkrir embættismenn fóm til Isr-
ael, eða 12 manna hópur.
„Mitt hlutverk í framkvæmda-
nefnd Lútherska heimssambands-
ins er að vera formaður Mannrétt-
inda- og alþjóðanefndar og sem
slíkur fékk ég það hlutverk að fara á
undan hópnum, ásamt Peter Prove
forstjóra mannréttindaskrifstofu
sambandsins, og taka út ástandið.
Við fóram þremur dögum á undan
hinum og hitmm meðal annars
fulltrúa ýmissa mannréttindasam-
taka, ekki aðeins palestínskra held-
ur einnig ísraelskra því margir Isra-
elsmenn láta sig varða þau mann-
réttindabrot sem þama era framin
og það ófremdarástand sem þama
ríkir.“
Hjartahlýtt fólk
I vettvangskönnun sinni fóru
Þorbjörn Hlynur og Peter meðal
annars með með lækni og hjúkrun-
arfólki frá sjúkrahúsi Lútherska
heimssambandsins í lítið þorp utan
við Ramallah og þar kynnmst þeir
af eigin raun þeirri heftingu á
ferðafrelsi sem Palestínumenn
mega búa við. „Sjúkrahúsið veitir
þessa þjónustu í nokkram þorpum
og sendir þangað lækni og hjúkran-
arfólk einu sinni í viku en það er
eina læknisþjónustan sem þetta fólk
á kost á í dag. Það tók okkur tvo
tíma að komast til þorpsins en
þangað era ekki nema örfáir kíló-
metrar. Mesti tíminn fór í eftdrlit á
varðstöðvum Israelsmanna sem era
út um allt. Á einni varðstöðinni
þurftum við að bíða í hálftíma á
meðan verið var að fara í gegnum
okkar pappíra og þaulspyrja um
okkar erindi. Við slíkar aðstæður
verður að sýna þolinmæði en ef
menn verða pirraðir eða reiðir, get-
ur farið illa. Þegar við komum til
þorpsins sá læknirinn til þess að við
færam þar um í fylgd heimamanna
þar sem hann taldi að annars væri
hætta á að við yrðum teknir fyrir
Israelsmenn og að skotið yrði á
okkur. Okkur var hinsvegar tekið
eins og þjóðhöfðingjum þrátt fyrir
að fólkið væri blásnautt. Þetta er
gestrisið og hjartahlýtt fólk sem á
lítið en er tdlbúið að gefa allt. Fólk-
ið í þessum þorpum skrimtir á eig-
in sjálfsþurftarbúskap, matjurtum
sem það ræktar í sínum garðholum
og fáeinum húsdýram. Um áttatíu
prósent karlmanna í þessu þorpi
sem við heimsóttum höfðu starfað í
Jerúsalem en í dag fá engir karl-
menn yfir 15 ára aldri að fara í
gegnum varðstöðvarnar utan við
þorpið, sérstaklega ekki ef þeir era
á leið til Jerúsalem. Skorturinn
þama er mikill og verður æ meiri
eftir því sem lengra líður.“
I rústum
höfuðstöðva Arafats
Liður í formlegri heimsókn
framkvæmdastjórnar Lútherska
heimssambandsins var fundur með
palestínskum og ísraelskum stjóm-
völdum. Fyrst hittu nefndarmenn
Yasser Arafat og ráðherra úr heima-
stjórn Palestínu. Þegar fram-
kvæmdanefndin kom til Israels var
nýafstaðin árás Israelsmanna á höf-
uðstöðvar Arafats í Ramallah sem
var hefhdaraðgerð vegna sjálfs-
morðsárásar Palestínumanna í
norður Israel. Aðeins ein bygging
var uppistandandi af höfuðstöðvum
Arafats og þar fór fundurinn ffam.
Það má segja að þessi fundur hafi
verið haldinn við nokkuð einkenni-
legar aðstæður, allavega ffá okkar
sjónarhóli sem þekkjum ekki stríðs-
átök af eigin raun. Þarna var allt á
tjá og tundri, sandpokar og vopn-
aðir hermenn um allt. Þetta var
engu að síður góður fundur þar
sem við hlýddum á sjónarmið
Arafats og komum okkar skilaboð-
um á framfæri. Arafat sagði á þess-
um fundi að ef heimsbyggðin æd-
aði að horfa aðgerðarlaus á Israels-
menn, með aðstoð Bandaríkja-
manna, búta í sundur Vesturbakk-
ann og koma þar fyrir landnema-
byggðum þá byði það heim þeirri
hættu að ófriður breiddist út víðar
um miðausturlönd. Almenningur í
Sr. Þorbjöm Hlynur með hópi palestínskra skólabai