Skessuhorn - 26.06.2002, Page 7
MIÐVIKUDAGUR 26. JÚNÍ 2002
7
löndunum í kring verður æ her-
skárri og spurningin er hvað leið-
togar þeirra þjóða halda lengi út
gagnvart pressu frá sínu fólki. Það
er enginn að mæla bót sjálfs-
morðsárásum Palestmumanna. Þær
eru viðurstyggilegar og skaða mál-
staðinn. Rót vandans er hinsvegar
að Palestínumenn fá ekki að stofha
eigið ríki. Landnemabyggðir Isra-
ela taka um 40% af Vesturbakkan-
um en slíkt landnám er gjörsamlega
ólöglegt á hemumdu landi.
Annað sem kom fram hjá ráð-
hermm Arafats var að ef ísraelar
fæm inn á Gazasvæðið yrði þar alls-
herjar blóðbað. Gazasvæðið er eitt
þéttbýlasta svæði í heimi. Það er að
flatarmáli álíka og Borgarpresta-
kall, svo dæmi sé tekið, en þama
búa um 800 þúsund manns.“
Þorbjörn Hlynur segir að það
hafi í raun komið sér á óvart að
hann hafi ekki fundið fyrir því hatri
sem ætla mætti að einkenndi átök á
borð við þau sem geysað hafa í ísr-
ael og Palestínu.
„Maður skynjaði ekki hatur og
reiði hjá þeim Palestínumönnum
sem við töluðum við, hvort sem var
hjá ráðamönnum eða almenningi,
heldur fyrst og fremst harm, skelf-
ingu og ótta. Það er í raun ótrúlegt
hvemig þetta fólk hefur komist af
miðað við þær þrengingar sem það
hefur mátt búa við. Eg er hræddur
um að ef slíkar hörmungar væra
leiddar yfir okkar fólk væram við
búin að gefast upp en það er krafta-
verk hvernig Palestínumönnum
hefur tekist að komast af og lifa líf-
inu við þessar ömurlegu aðstæður."
íslendingar að störfum
Eftir fúndinn með Arafat heim-
sótti framkvæmdanefndin systur-
kirkjur Lúthersku kirkjunnar í Beit
Jala og í Betlehem. Þar fengu gest-
irnir meðal annars að sjá þær
skemmdir sem unnar vora í árásum
Israelshers í mars og apríl. Þor-
bjöm Hlynur segir það hafa verið
átakanlega sjón en aðeins helgi-
dómurinn sjálfur fékk að vera í
friði. Safnaðarheimili og munaðar-
leysingjahæli kirkjunnar vora mikð
skemmd og brotnar og svmdur-
skotnar hurðir blöstu við augum
gestanna.
I ferðinni hitti Þorbjöm Hlynur
tvö íslensk ungmenni sem verið
hafa á mannréttindavakt á vegum
Lútherska heimssambandsins og
Hjálparstarfs kirkjunnar, þau Svölu
Jónsdóttur og Aðalstein Þorvalds-
son. Þess má geta að hinn síðar-
nefndi er Borgfirðingur, ættaður
frá Ambjargarlæk í Þverárhlíð. „Eg
er mjög stoltur af þessu unga fólki
sem þarna er að vinna mjög þýð-
ingarmikið starf. Það er mjög mik-
ilvægt að þarna sé fólk sem fylgist
með og lætur finna fyrir sér.“
Fundað með Perez
A síðasta degi heimsóknarinnar
fengu nefndarmenn loks fund með
Shimon Perez, utanríkisráðherra
Israels en á tímabili óttuðust þeir að
ekkert yrði af fúndinum þar sem
fundartíma hafði verið breytt fram
og til baka, margoft, á meðan á
heimsókninni stóð. „Tilgangurinn
með því að hitta Perez var að ræða
alvarlega stöðu sjúkrahúss Lúth-
erska heimssambandsins, Augusta
Viktoria, sem stendur á Olífuhæð-
inni í Jerúsalem. ísraelsk stjórnvöld
hafa gert þá kröfu að við greiðum
12% launaskatt aftur í tímann en
upphæðin væri um 4 milljónir doll-
ara miðað við stöðu dagsins í dag,
og síðan 300 þúsund dollara á ári.
Það er ljóst að ef því verður haldið
til streitu höfum við ekki bolmagn
til að reka þennan spítala áfram.
Þetta er stofúun sem fyrst og fremst
þjónar fátæku fólki og sem dæmi
um mikilvægi hans má nefna að þar
er eina nýmavélin sem Palestínu-
menn hafa aðgang að og þetta er
eini staðurinn þar sem þeir eiga
kost á meðferð við krabbameini.
Það var fullyrt í okkar eyra að
þessar aðgerðir væra liður í að úti-
loka Palestínumenn frá allri þjón-
ustu en við höfum engar sannanir
fyrir því að þarna sé verið að beita
vísvitandi mannvonsku. Hinsvegar
er það þekkt að í stríði nota menn
öll tiltæk ráð, lögleg eða ólögleg.
Við fengum engin svör við okkar
erindi á þessum fundi önnur en þau
að Perez lofaði að koma á fót samn-
ingaviðræðum um lausn á vanda
sjúkrahússins. Málið er komið fyrir
dómstóla en við viljum ffekar ljúka
því með samkomulagi og vonandi
tekst það.“
Okkar vandamál
smávægileg
Þorbjöm Hlynur segir það hafa
verið mikla lífsreynslu að vera
staddur á miðju stríðsátakasvæði.
„Þetta var undarleg tilfinning fyrir
mann sem kemur frá friðsælu landi
og þá hugsaði maður um hvað okk-
ar vandamál era smávægileg í raun.
Við búum í hreinni paradís saman-
borið við það fólk sem lifir í stöð-
ugum ótta og býr við skort líkt og
þarna er.
Við urðum að vísu ekki vör við
vopnuð átök þar sem við fóram um
en spennan í loftinu var mikil. Við
voram eilíflega að sýna skilríki og
lentum hvað eftir annað í yfir-
heyrslum. A flugvellinum í Tel Aviv
á leiðinni heim vakti það tortryggni
öryggisvarðanna að þeir fundu í
farangri mínum kort, skýrslur og
fleira sem tengdust palestínskum
mannréttindaskrifstofum. Það
kostaði þriggja kortera yfirheyrslu
þar sem orðbragðið var orðið held-
ur ógeðfellt í lokin. Eg var spurður
aftur og aftur sömu spurninganna
og ég þurfti aftur og aftur að end-
urtaka sömu svörin.“
Fólkið þráir frið
Flestir Islendingar hafa fýlgst
með fréttum af átökum Israels-
manna og Palestínumanna í fjöl-
miðlum en óneitanlega hlýtur það
að vera önnur upplifun að sjá á-
standið með eigin augum. Að-
spurður um hvort eitthvað hafi
komið honum á óvart segir Þor-
björn Hlynur: „Maður vissi að
sjálfsögðu hvernig ástandið var og
þekkti allar tölur og staðreyndir.
Það sem kom mest á óvart var að sjá
hvað Palestíúumenn á Vesturbakk-
anum era innilokaðir í sínum þorp-
um eins og ég gat um áðan. A inn-
an við hundrað kílómetra leið getur
fólk þurft að fara í gegnum 4 -5
varðstöðvar og þar er eintóm bið.
Það skiptir engu máli þótt þú eigir
deyjandi föður eða móður hinum
megin við hliðið. Þú gætir verið lát-
inn bíða tímunum saman eða verið
vísað til baka. Það lýsir kannski á-
standinu best að stór hluti palest-
ínskra barna fæðist við þessar varð-
stöðvar því sængurkonur á leið á
sjúkrahús fá engu skárri meðferð en
aðrir.
Það sem orkaði hvað sterkast á
mann var að sjá hvað almenningur
beggja vegna, jafút Palestínumenn
sem Israelsmenn er orðinn lang-
þreyttur á ástandinu og þráir bara
fxið. Hræðslan og óttinn er það sem
einkennir þeirra líf dag frá degi.“
Kraftaverkin gerast
Þorbjörn Hlynur telur að heim-
sókn fulltrúa Lútherska heimssam-
bandsins hafi skilað ágætum ár-
angri. „Hún skilaði allavega þeim
árangri að við komum okkar sjón-
armiðum á framfæri við palestínsk
og ísraelsk yfirvöld. Við náðum að
sýna samhug og samstöðu með
systurkirkjum okkar sem búa við
miklar þrengingar og lögðum okk-
ar lóð á vogarskálarnar hvað varðar
hina pólitísku hlið málsins. Við sem
þarna voram komum úr öllum
heimshlutum og við munum fjalla
um þetta ástand hver á sínum vett-
vangi. Hin pólitíska lausn liggur í
því að Evrópuríkin taki sig saman
og krefjist réttlátrar niðurstöðu,
sérstaklega gagnvart Bandaríkja-
mönnum. Israelar era algjörlega
háðir Bandaríkjamönnum og ef
skrúfað væri fyrir fjárstuðning það-
an myndi þetta ríki hrynja á einni
nóttu.
Það var svolítið einkennileg til-
finning að fara þarna á milli stríð-
andi fylkinga og skynja þá hyldýpis-
gjá sem þar er á milli. Það eykur
vissulega ekki von um frið á þessu
svæði en kristnir menn geta hins-
vegar leyft sér að trúa á kraftaverk
því þau gerast,“ segir Þorbjörn
Hlynur að lokum.
f imnjjMy
ILBBLBLEI
Borgarbraut 61
310 Borgarnes
Simi: 437-1700
Fax: 437-1017
INGI TRYGG VASON hdl.
lögg. fasteigna- og skipasali
NÝTTÁ SÖLUSKRÁ
EGILSGATA19
íbúð á 2. hæð, 71 ferm. Nýlega innréttuð og hús tekið í
gegn að utan. Stofa parketlögð, 1 herb. dúklagt, eldhús
parketlagt, viðarinnr. Baðherb. og þvottahús flísalagt.
Geymslur.
Verð: kr. 8.700.000.
HÖFÐAHOLT 4
Einbýlishús á 2 hæðum 209 ferm. og bflskúr 55 ferm. Á
neðri hæð er forstofa, stofa parketlögð, 4 herb. 3 dúklögð
en 1 parketlagt. Eldhús dúklagt, viðaiinnr. Baðherb. flísalagt.
Þvottahús og geymsla. Á efri hæð (risi) em 2 herb. dúklögð,
hol og snyrting. Skipti á minni eign koma til greina.
Verð: kr. 17.000.000.
ÞORSTEINSGATA 4
Einbýlishús á 2 hæðum 103 ferm. og bflskúr 39 ferm. Á
neðri hæð er dúklögð forstofa, flísalagt hol, baðherb. flísalagt,
sturta. Tvö svefnherb., annað dúklagt og hitt parketlagt.
Á efri hæð er parketlögð stofa, dúklagt eldhús og geymsla.
Verð: kr. 10.700.000.
ÞÓRUNNARGATA 9
Einbýlishús 118,7 ferm. og bflskúr 36 ferm. Flísalögð
forstofa, hol og gangur með korkflísum, stofa teppalögð,
baðherb. flísalagt. Eldhús dúklagt, viðarinnr. Þvottahús og
búr. Gottútsýni.
Verð: kr. 13.500.000.
Óskum eftir að ráða bifreiðastjóra
í vöruflutninga
Mikil vinna
VÖRURJUTNMGARi
iVESTURLANDS e*
Sími 437 2030
Norska húsið
í Stykkishólmi
170 ára afmæli í sumar
í tilefni af því erum við í afmælisskapi og
laugardaginn 29. júní n.k. kl. 14.30
bjóðum við upp á skemmtun í og
við Norska húsið með sönghópnum "Sex í
sveit" frá Grundarfiröi, leikurum úr
leikfélaginu Grímni í Stykkishólmi,
danshópnum "Sporinu" frá Hvanneyri o.fl.
í gráa salnum opnar Guðfinna Hjálmarsdóttir
myndlistarkona sýningu sem hún vann út frá
Norska húsinu og fyrstu íbúum þess
og í eldhúsinu sýna Snjólaug Guömundsdóttir
vefnað og flókamyndir
og Ólöf Sigríður Davíðsdóttir glerverk.
Við bjóðum alla velkomna að fagna með
okkur afmælinu
Norska húsib
GE