Skessuhorn - 03.07.2002, Blaðsíða 4
4
MIÐVIKUDAGUR 3. JÚLÍ 2002
-miiH.,. ■
WWW.SKESSUHORN.IS
Borgarnesi: Borgarbraut 23 Sími: 431 5040
Fax: 431 5041
Akronesi: Kirkjubraut 3 Sími: 431 4222
Skrifstofur blaðsins eru OPNAR KL. 9- 16 ALLA VIRKA DAGA
Útgefandi: Tíðindamenn ehf 431 5040 skessuhorn@skessuhorn.is
Ritstjóri og óbm: Gísli Einorsson 892 4098 ritstjori@skessuharn.is
Blaðamenn: Sigrún Ósk Kristjónsdóttir 862 1310 sigrun@skessuhorn.is
Sigurður Mór Harðarson 865 9589 smh@skessuhorn.is
Auglýsingar: Hjörtur J. Hjartarson 864 3228 hjortur@skessuhorn.is
Prófarkalestur: Sigrún Ósk Kristjúnsdóttir
Umbrot: Guðrún Björk Friðriksdóttir augl@skessuhorn.is
Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins
Skessuhorn kemur út allo fimmtudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14:00 á þriðjudögum.
Auglýsendum er bent ó að panta auglýsingaplóss tímanlega.
Blaðið er gefið út í 4.000 eintökum og selt til úskrifenda oa í lausasölu.
Askriftarverð er 850 krónur með vsk. ó mónuði en krónur /50 sé greitt með greiðslukorli. Veið
í lausasölu er 250 kr.
431 5040
Áferð
Þótt það lýsi óumdeilanlega miklum hroka að vitna í sjálfan
sig þá ætla ég samt sem áður að geta þess að það rifjaðist upp
fyrir mér í vikunni að fyrir margt löngu mun ég hafa þusað um
það á þessum stað hversu lítil afþreying væri í boði á Vestur-
landi yfir sinnartímann, akkúrat á þeim tíma sem ferðamenn
eru helst á ferðinni. Því þótt margir aki þvers og kruss um
landið til að sjá þúfur og grjót þá eru þeir einnig margir sem
ekki láta sér það nægja að dást að fegurð landsins heldur vilja
hafa eitthvað fyrir stafni. Landslag breytist aukinheldur lítið á
milli ára, sem betur fer, og ekki víst að allir séu tilbúnir til að
fara aftur og aftur á sama blettinn til að horfa á sama fjallið.
Hinsvegar er afþreying af ýmsu tagi og hverskyns viðburðir
og uppákomur um margt líklegri til að fá ferðamenn í áskrift
ef þannig má að orði komast.
Þessu virðast ferðaþjónustuaðilar og stjórnendur sveitarfé-
laga á Vesturlandi í auknum mæli vera að átta sig á og er það
vel. Eg tek það fram að þrátt fyrir fyrrnefhdan hroka þá er
hann þó ekki það takmarkalaus að ég reyni að halda því fram
að umræddir aðilar hafi tekið mark á því sem ég setti niður á
blað fyrir einhverjum árum síðan. Það er aftur á móti eðlilegt
og sjálfsagt að geta þess sem vel er gert og það má líta á þess-
ar línur sem tilraun til þess.
Afþreyingarmöguleikum fýrir ferðamenn á Vesturlandi hef-
ur fjölgað til muna á stuttum tíma og óvíða á landinu er að
finna meiri ljölbreytni á því sviði. Þar má nefna jöklaferðir,
gönguferðir fyrir þá sem á annað borð finna hjá sér löngun til
að þramma upp um fjöll og firnindi, sjóferðir af öllu mögu-
legu tagi og hestaferðir. Söfnum hefur fjölgað til muna og þau
vaxið að umfangi auk þess sem sýningar þar eru orðnar að-
gengilegri og líflegri. Sundlaugar af öllum stærðum og gerð-
um er að finna vítt og breitt um Vesturland og önnur aðstaða
til íþróttaiðkunar og útivistar er á stöðugri uppleið. Margt
fleira mætti nefna bæði stórt og smátt en ekki má gleyma þeim
fjölmörgu viðburðum sem eru á dagskrá allt sumarið. Flestar
helgar er boðið upp á ýmiskonar hátíðir sem eru allt ff á því að
vera fyrir einstaka sérvitringa eða fyrir alla fjölskylduna. Hæst
ber þar hátíðir sem einstök sveitarfélög standa fyrir í sam-
vinnu við fyrirtæki og félagasamtök. Hólmarar eru brautryðj-
endur á því sviði með sínum Dönsku dögum síðla sumars.
Nýafstaðin er Borgfirðingahátíð sem heppnaðist vel og
ffamundan eru Færeyskir dagar í Olafsvík og Irskir dagar á
Akranesi. Síðar í mánuðinum er síðan hátíð Leifs heppna í
Dölunum, Sandaragleði á Hellissandi og góðir dagar í
Grundarfirði.
Uppákomur af þessu tagi eru góð auglýsing fyrir viðkom-
andi sveitarfélög og til þess fallin að styrkja ímynd þeirra útá-
við og ekki síður upplyffing fyrir heimafólk. Þótt endalaust
megi gera betur á öllum sviðum þá er enginn vafi á því að
ferðaþjónusta á Vesturlandi er á réttri leið.
Gísli Einarsson, ferðamaður
Gísli Einarsson,
ritstjóri.
Rannsóknarverkefiii hjá Náttúrustofu Vesturlands
Hagamýs og dýrasvif
Þrír stúdentar við Háskóla Islands
hlutu nýverið styrki úr sjóðnum
„Þekking stúdenta í þágu þjóðar“ til
rannsókna við Náttúmstofú Vestur-
lands í Stykkishólmi. Sjóðurinn var
stofnaður að frumkvæði Stúdenta-
ráðs Háskóla Islands til eflingar
rannsókna á landsbyggðinni en
Byggðastofhun og valin sveitarfélög
lögðu fjármagn til sjóðsins.
Verkefnin þrjú hlutu samtals
styrki að upphæð kr. 500.000, sem
varið verður til að rannsaka haga-
mýs á eyjum og dýrasvif í stöðu-
vötoum. Verkefinin verða unnin í
sumar og næsta vetur.
Margrét Ösp Stefánsdóttir hlaut
styrk vegna verkeffdsins „Hagamýs í
eyjum á Breiðafirði" en markmið
þess er að afla ffumupplýsinga um
útbreiðslu og þéttleika hagamúsa,
auk þess sem könnuð verða áhrif
stærðar eyju og búsetusögu á út-
breiðsluna. Verkefnið verður unnið
í samvinnu við Líffræðistofnun Há-
skólans. Bryndís Stefánsdóttir hlaut
styrk vegna verkefnisins „Erfða-
ffæðilegur samanburður hagamúsa-
stofha við Breiðafjörð“ en markmið
verkefnisins er að kanna hvort
hagamúsastofn úr eyju sé erfða-
fræðilega frábrugðinn hagamúsa-
stofhi á meginlandinu. Verkefnið
verður unnið í samvinnu við Til-
raxmastöð Háskóla Islands í meina-
ffæðum að Keldum. Vegna verkefh-
anna verða mýs veiddar í lífgildrur á
völdum eyjum í ágúst, þær merktar
og sýni tekin úr þeim.
Davíð Tómas Davíðsson hlaut
styrk vegna verkefnisins „Ahrif
bleikju á samsetningu dýrasvifs í
stöðuvötoum á Snæfellsnesi.“ Dýra-
líf Baulárvallavams á Snæfellsnesi er
óvenjulegt að því leyti að í því finnst
urriði en ekki bleikja. Bleikja lifir að
mesto á dýrasvifi en urriði frekar á
homsílum og botndýrum. Kannað
verður hvaða áhrif þetta hefur á
samsetoingu dýrasvifs í vatninu með
því að bera það saman við nálægt
vato, Selvallavatn. Verkefnið verður
unnið í samvinnu við Lífffæðistofn-
tm Háskólans og Náttúmfræðistofu
Kópavogs.
Stúdentamir og vinna þeirra er
velkomin viðbót við starfsemi Nátt-
úmstofunnar og eykur fjölbreytni
þeirra rannsókna sem þar era stund-
aðar. Talið er líklegt að þetta til-
raunaverkefhi Stúdentaráðs verði
endurtekið á næsta ári.
Hinir norrœnu gestir renndu m.a. fyrir
Norrænt vinabæjamót
Yfir hundrað marnis í
heimsókn á Akranesi
Síðastliðið miðvikudagskvöld
var norrænt vinabæjamót sett á
Akranesi í fjórða sinn en yfir
hundrað gestir frá sex vina- og
frændþjóðum sóttu Skagamenn
heim. Gestirnir komu frá bæjun-
um Tönder í Danmörku,
Vastervik í Svíþjóð, Narpes í
Finnlandi, Bamble í Noregi,
Sörvági í Færeyjum og Qaqortoq á
Grænlandi og dvöldust á sextíu
heimilum í eina fimm daga. Um
25 gestir era frá hverjum vinabæj-
anna, en þó aðeins tveir frá Græn-
landi og fjórir frá Færeyjum.
Liðin era 40 ár síðan bæjar-
stjórn Akraness og Norrænafélag-
ið á Akranesi ákváðu að gerast
þátttakendur í Norrænni vina-
bæjakeðju og eignaðist bærinn
þannig vinabæina Tönder,
Vástervik, Nárpes og Bamble. Síð-
ar tók Akranes upp vinabæjatengsl
við Qaqortoq og enn síðar Sörvág.
Tveir síðastnefndu bæirnir eru
ekki hluti af vinabæjakeðjunni sem
stendur fyrir vinabæjamótunum,
en sjálfsagt þótti að bjóða fulltrú-
um þeirra að vera viðstaddir mót-
ið á Akranesi.
Ánægðir gestir og vel
heppnuð dagskrá
Gísli Gíslason, bæjarsq'óri, segir
alla hafa verið afskaplega ánægða
með hvernig til tókst. „Dagskráin var
mjög viðamikil og gestirnir snera á-
nægðir til síns heima. A fimmtudag
var farin ferð xim Vesturland og á
föstudag funduðu ýmsir hópar m.a.
um sveitarstjórnarmál, umhverfis-
mál, skólamál og málefhi Norrænu-
félaganna á stöðunum. Þá var einnig
boðið upp á gönguferðir um bæinn
og á Akrafiall, sagt ffá sögu bæjarins,
landið kynnt, rennt fyrir fisk og
skroppið á hestbak. A laugardag var
kv'öldverður fyrir gesti og gestgjafa
og á sunnudag var mótinu slitið í
Akraneskirkju. Gestirnir dvöldu á
heimiltim Akxmiesinga sem keyrðu
fólkið auk alls þessa vítt og breitt um
landið, t.d. að Gullfossi og Geysi, í
Bláa lónið og á Þingvelli.“
Gísli segir samskipti bæjanna hafa
verið með ýmsu móti í gegnum tíð-
ina. „Skagamenn hafa verið nokkuð
iðnir við að sinna þessu samstarfi og
Skagaleikflokkurinn er til að mynda
að fara í heimsókn til Færeyja í stun-
ar þar sem hann sýnir Þrymskviðu.“
Skorar á
sjúkrahúss-
stjóm að ráða
félagsráðgjafa
Stjóm Krabbameinsfélags
Akraness og nágrennis hefur
sent stjórn Sjúkrahúss og
heilsugæslustöðvarinnar á
Akranesi bréf þar sem skorað
er á sjúkrahússtjóm að ráðinn
verði félagsráðgjafi sem fyrst til
starfa við SHA.
Samkvæmt upplýsingum frá
Guðjóni S. Brjánssyni, ffam-
kvæmdastjóra SHA, hafa
stjórnendur sjúkrahússins ósk-
að eftir fjárheimild til að ráða
megi félagsráðgjafa í mörg ár.
„Þetta hefur verið á döfinni í
nokkurn tíma,“ segir Guðjón.
„Hér hefur aldrei verið starf-
andi félagsráðgjafi en hugsað er
til þess að hann myndi starfa
bæði á sjúkrahúsinu og heilsu-
gæslxinni. Menn hafa leitað til
félagsráðgjafa í bænum varð-
andi þau atriði sem upp hafa
komið en þeir hafe sjálfir nóg
að gera.“ Guðjón segir að-
spurður um hvort félagsráð-
gjafer séu starfandi á sjúkrahús-
um af svipaðrí stærðargráðu og
SHA að þeir séu starfendi á Ak-
xu-eyri og í Reykjavík. „Þetta er
nauðsynlegur þáttur í nútíma
samfélagi þar sem reglugerðar-
frumskógurinn er alltaf að
þéttast og fólk veit ekki alltaf
rétt sinn og þá hvernig á að ná
til réttra aðila. Félagsráðgjafi
tekur á ýmsum vandmeðföm-
um persónulegum máleínum
en megininntakið er að þeir
hjálpi fólki til sjálfshjálpar. Á
heilsugæslustöðinni gæti fé-
lagsráðgjafi tekið á málefhum
sem varða vemd barna og ung-
linga, áfengis- og vímuvamir,
atvínnuleysi og kynferðislegt,
andlegt og líkamlegt ofbeldi og
veitt aðra almenna ráðgjöf,
m.a. ýmis atriði sem lúta að
tryggingamálum. Á sjúkrahús-
inu hafe hjúkrunarfræðingar og
Iæknar verið að vinna í ýmsum
málefnum tengdum útskrift-
um, persónulegum atriðum
sjúklinga og fjölskylduvanda-
málum ýmiss konar. Þetta eru
atriði sem fagfólkið okkar á
deildunum hefúr mikið þurft
að taka að sér en félagsráðgjafi
myndi annars geta sinnt í sam-
starfi við starfsfólk deildanna."
Guðjón segist ekki geta sagt
til um hvenær og hvort félags-
ráðgjafi komi til starfe við
SHÁ. „Þetta hefur verið tekið
fyrir í fjárlagabeiðnum og sent
ráðuneyti í 2-3 ár. Við gerð
rekstraráætlunar fyrir árið
2003 munxun við reyna eins og
við getum að finna leiðir til að
kosta þessa stöðu, en við reikn-
um með hálfu stöðugildi fyrst
um sinn.“
SÓK
Leiðréttíng
í frétt um veitinga- og
skemmtistaðinn Skessubrunn í
Tungu í Svínadal í síðasta blaði
var ranglega hermt að staðurinn
væri opinn frá 23.00 - 03.00 um
helgar. Hið rétta er að staðurinn
er opinn um helgar frá 11.00 á
morgnana til 03.00 að nóttu.
Við biðjumt velvirðingar á þess-
um mistökum.