Skessuhorn - 03.07.2002, Side 6
6
MIÐVIKUDAGUR 3. JÚLÍ 2002
Páll S. Brynjarsson, nýráðinn bæjarstjóri
Borgarbyggðar tíl næstu íjögurra ára,
kemur ferskur inn í skráargat vikunnar
sem og í nýtt starf sitt en hann mun hefja
störf á allra næstu dögum. Páll er með BA
próf í stjórnmálaffæði ffá Háskóla Islands
og hefur lokið framhaldsnámi í sömu
grein frá háskólanum í Arósum. A dögun-
um lauk hann svo framhaldsnámi í stefnu-
mótun og stjómsýslu frá háskólanum í
Volda í Noregi.
Nafn: Páll S. Brynjarsson.
Fæðingardagur og ár: 1. mars 1965.
Hæð: 185 cm á sokkaleistunum.
Starf: Bajarstjóri.
Fjölskylduhagir: Er í sambúð með Ingu Dóru Halldórsdóttur og á tvö
böm; Astdísi 9 ára og Brynjar Snæ 7 mánaða.
Uppáhalds matur: Hangikjöt með ORA grænum baunum.
Uppáhalds drykkur: Kóka kóla.
Uppáhalds sjónvarpsefni: Fréttir og íþróttir.
Uppáhalds leikari innlendur: Sigurður Sigurjónsson.
Uppáhalds leikari erlendur: Paul Newman.
Besta híómyndin: Italiansk for begyndere.
Uppáhalds íþróttamaður: Eyjólfur Sverrisson.
Uppáhalds íþróttafélag: Skallagrímur (og Tindastóll).
Uppáhalds stjómmálamaður: Geir H. Haarde.
Uppáhalds tónlistarmaður innlendur: Geirmundur Valtýsson.
Uppáhalds tónlistarmaður erlendur: Kim Larsen.
Hvað meturðu mest ífari annarra: (Fær ráðleggingu frá jrúnni.)
Heiðarleika og lífsgleði.
Þinn helsti kostur: Sjálfum mér samkvæmur.
Þinn helsti ókostur: Drekk of mikið gos.
Mottó: Að rækta sjálfan mig og aðra.
Hvað finnst þér um Borgarbyggð? Mér líst mög vel á Borgarbyggð,
fallegur staður.
Hlakkarðu til að vinna sem bæjarstjóri? Já, mjög svo.
Eitthvað að lokum: Eg vil þakka Skessuhomi jýrir skemmtilegar
spumingar sem erfitt var að glíma við.
Bill - _
Sumarlax
Egill Kristjánsson, kokkur í
veiðihúsinu við Grímsá, er um-
sjónarmaður eldhúskróksins að
þessu sinni. Egill, sem er mat-
reiðslumeistari að mennt, hefur
starfað víða. Þetta er hans fyrsta
sumar sem kokkur í veiðihúsinu
við Grímsá en áður hefur hann
eldað í öðmm veiðihúsum, á ýms-
um veitíngahúsum, fyrir fólk og
fyrirtæki, auglýsingastofur og æv-
intýrafólk, auk þess sem hann hef-
ur kokkað bæði uppi á Græn-
landsjökli og jöklum hérlendis í
miklum mæli. Það er því enginn
nýgræðingur sem kynnir mariner-
aðan lax fyrir lesendum Skessu-
horns í þessari viku.
Egill segir réttinn henta vel sem
léttan rétt fyrir fjóra en sé hann
ætlaður sem aðalréttur verði að
bæta við uppskriftina. Hann útbjó
þennan rétt í fyrsta skipti í vik-
unni en segist hafa prófað sig
áfram um hríð. Sumarlaxinn er
því hans eigin uppfinning en Egill
segist spila eldamennskuna af
fingram fram og ekki notast mik-
ið við matreiðslubækur. Réttinn
segir hann bæði einfaldan, fljót-
legan og góðan. „Eg prófaði þetta
á gestunum hér í gær og þeim
fannst þetta svakalega spennandi
og gott. Rétturinn er ekki eldað-
ur, en hann er mjög ferskur og
minnir um margt á sushi,“ segir
Egill-
500 g lax
4 stk sítrónur
3 msk ólívuolía
1 dl hvítvín
1/2 tsk malaður svartur pipar
2 tsk soyasósa
Sítrónurnar era pressaðar og
safanum blandað saman við ólívu-
olíuna, hvítvínið, svarta piparinn
og soyasósuna. Laxinn er svo
skorinn í þunnar sneiðar og látinn
liggja í þessum legi í 4 klukku-
stundir.
Laxinn er svo hægt að bera
fram einn og sér eða með salati og
góðu brauði. Auk þess er hægt að
nota hann í sumarsalat. Ekki er
nauðsynlegt að nota lax því einnig
er hægt að notast við lúðu.
Verði ykkur að góðu!
www.skessuhom.is/sma
Stækkun kirkjugarðsins í Ólafsvík
Steftit að gerð nrnmingarreits á næsta ári
Fyrir skömmu hófust fram-
kvæmdir við stækkun kirkjugarðs-
ins í Olafsvík en skipulagsvinna við
verkið var unnin í vetur. Séra Osk-
ar Hafsteinn Oskarsson, sóknar-
prestur, segir stækkunina hafa ver-
ið bráðnauðsynlega. „Við geram
ráð fyrir að stækkunin sem nú er
unnið að verði tekin í notkun eftir
tvö ár og við vonumst til þess að
hún dugi okkur næstu 15-20 árin
því þarna eru yfir hundrað
legstæði. Það era sennilega um 15
ár síðan síðasta stækkun var tekin í
notkun og hún er nærri orðin
full.“ Stækkunin snýr í norður en
landslagsarkitekt var fenginn til
þess að hanna hana. „Við teljum
vera vel við hæfi að þetta snúi
svona út fjörðinn. Auk stækkunar-
innar hefur verið teiknaður minn-
ingarreitur við stækkunina en það
er verk sem stefnt er að því að
hefja í haust og vetur. Fram-
kvæmdir myndu þá hefjast næsta
vor. Við enda stækkunarinnar hef-
ur verið byggð upp grasmön og
búið er að laga bakkann sem snýr
að sjónum svo þessar framkvæmd-
ir era til mikillar prýði fyrir bæinn.
Með tilkomu minningarreitsins
viljum við líta svo á að garðurinn
verði aðlaðandi fyrir ferðamenn.
Að þeir geti komið að fallegum
kirkjugarði og minningarreit, sest
við sjávarsíðuna og átt notalega
stund. Grunnurinn að gömlu
kirkjunni í Olafsvík sem var rifin
þegar sú nýja var byggð er þarna
skammt frá og við ætlum að reyna
að setja hann í samhengi við þetta
svæði með því að setja þar sögu-
skilti.
Kirkjugarðsböll
til fjáröflunar?
Það er margt merkilegt við
kirkjugarðinn f Olafsvík og stein-
steypti kirkjugarðsveggurinn sem
stendur í kringum garðinn nálgast
nú hundrað ára afmæli sitt óð-
fluga. „Þessi veggur á sér mjög
merka sögu,“ segir Oskar. „Hann
var unninn í sjálfboðavinnu og á
sínum tíma vora haldin sérstök
kirkjugarðsböll til að fjármagna
framkvæmdirnar. Við þurfum að
brjóta örlítið af honum vegna
stækkunarinnar núna en ætlum að
vernda framhlutann og það sem
eftir stendur því þarna er aldeilis
að finna minningu um djörfung
fyrri kynslóðar." Oskar segist að-
spurður efast um að farið verði út í
að halda kirkjugarðsböll dl að fjár-
magna framkvæmdirnar sem nú
standa yfir í garðinum en þó sé
Síðbúið svar vegna
pokasjóðs
í 15. tölublaði Skessuhorns
birtíst grein þar sem segir að KB
Borgamesi hafi sagt sig úr Poka-
sjóði verslunarinnar vegna þess að
ffamlög úr sjóðnum hafi ekki skil-
að sér sem skyldi í verkefni á
þeirra svæði og því hafi þeir
ákveðið að stýra þessu sjálfir. Jafn-
framt segir að í þessum nýja sjóði
verði um ein milljón króna á ári til
úthlutunar.
Þessi grein vakti upp hjá mér
nokkrar spurningar sem vert er að
íhuga og leita svara við. Hvað er
svæði KB? Er það bara Borgarnes
eða er það öll Borgarfjarðar- og
Mýrasýsla? Eg er formaður í
Landgræðslufélagi við Skarðs-
heiði sem nær yfir 16 jarðir í Leir-
ár- og Melahreppi og Borgar-
fjarðarsveit. Við teljum okkur vera
í Borgarfirði og þar með á svæði
KB ef það er víðara en Borgarnes.
Við höfum síðustu 4 árin fengið
25 milljónir króna í styrk frá
Pokasjóði verslunarinnar tíl upp-
græðslu og annarra verkefna t.d.
skógræktar en eitt af markmiðum
verkefnisins er að stækka Hafinar-
skóg og vemda en þetta er einn
síðasti ef ekki síðastí birkiskógur
landsins sem vex við sjó. Auk þess
er verið í skjólbeltaræktun með
því markmiði að auka umferðar-
öryggi þeirra sem um svæðið fara.
Mér finnast þetta því kaldar
kveðjur frá forsvarsmönnum KB
til okkar og Pokasjóðs verslunar-
innar þegar þeir segjast hafa eina
milljón á ári og ætla að nota hana
í verkefni sem era á einhvern hátt
héraðinu til hagsbóta.
Baldvin Bjómsson, Skorholti,
Leirár- og Melahrepp
hugsanlegt að sóknarnefndin í
Olafsvík vilji endurvekja þessa
hugmynd. Snæfellsbær sér um að
fjármagna stækkun garðsins en
gerð minningarreitsins snýr að
kirkjunni sjálfri. Þar era á ferðinni
kosmaðarsamar framkvæmdir og
ljóst að kirkjan verður að leita eftir
utanaðkomandi fjárstuðningi til
framkvæmdanna. SOK
Síðastliðinn laugardag vora haldnir
svokallaðir bátadagar á Akranesi í
fyrsta skipti. Dagskráin fór ffarn á
hafnarsvæðinu og Langasandi og fjöl-
menntu Skagamenn og aðrir á dagana
sem ætlunin er að gera að árlegum
viðburði. Gám viðstaddir meðal ann-
ars fylgst með keppni um hraðskreið-
asta bátínn, farið í útsýnisflug með
þyrlu, leigt sér sæsleða eða skellt
sér á banana svo eitthvað sé
nefnt.
Bátadagarnir heppn-
uðust einstaklega vel
enda veðrið með
eindæmum gott og
er vonandi að þær
áætlanir um að
gera þá að árleg-
um viðburði
standist.
SÓK