Skessuhorn - 03.07.2002, Side 11
SBgssIiBiei2Kj
MIÐVIKUDAGUR 3. JÚLÍ 2002
11
ÍÞRÓTTIR - ÍÞRÓTTIR - ÍÞRÓTTIR - ÍÞRÓTTIR - ÍÞRÓTTIR - ÍÞRÓTTIR - ÍÞRÓTTIR - ÍÞRÓTTIR - ÍÞRÓTTIR -
Skagamenn komnir í 8 liða úrslit
Góður bikarsigur í
bragðdaufum leik
Jón Þór Hauksson
Ellert Jón Björnsson
færi litu dagsins Ijós hjá Skaga-
mönnum í seinni hálfleik. Hjörtur
Hjartarson fékk tvö þeirra en
brást bogalistin í bæði skiptin.
Varamaðurinn Jón Þór Hauksson
lét mikið að sér kveða þær 15
mínútur sem hann var inná. Jón
fékk tvö ákjósanleg færi, í fyrra
skiptið varði markvörðurinn skot-
ið frá honum en í það síðara
þrumaði Jón boltanum yfir mark-
ið.
Síðasta korterið í leiknum sóttu
Grindvíkingar stíft án þess þó að
skapa sér nokkurt umtalsvert
færi.
islandsmeistarar iA tryggðu sér
farseðilinn í 8 liða úrslit bikar-
keppni KSÍ með góðum 1 -0 sigri
á Grindvíkingum á Akranesvelli í
gærkvöld. Það var Ellert Jón
Björnsson sem skoraði markið
um miðjan fyrri hálfleikinn.
Leikurinn fór rólega af stað og
bar þess merki að liðin hugsuðu
fyrst og fremst um það að halda
markinu hreinu án þess þó að
leggjast algjörlega í vörn. Grind-
víkingar voru heldur meira með
boltann en það voru Skagamenn
sem fengu færin. Það fyrsta fékk
Hjörtur Hjartarson þegar hann
vippaði yfir markið úr sannkölluðu
dauðafæri. Skömmu seinna varði
Ólafur Þór naumlega hörkuskot í
þverslána og í kjölfarið bjargaði
Reynir Leósson á marklínu.
Á 26. mínútu skoraði Ellert
markið sem skildi liðin að þegar
að upp var staðið. Líkt og í flest-
um mörkum hjá Skagamönnum
undanfarið átti Bjarki Gunnlaugs-
son stóran þátt í því. Bjarki gaf
glæsilega sendingu milli tveggja
varnarmanna innfyrir vörn Grind-
víkinga þar sem Ellert afgreiddi
boltann glæsilega 1 fyrstu snert-
ingu í fjærhornið.
Þær mínútur sem eftir voru af
hálfleiknum voru tíðindalausar.
Seinni hálfleikur spilaðist líkt og
sá fyrri, Grindvíkingar voru með
boltann en Skagamenn fengu
færin. Eigi færri en fjögur dauða-
Þó að Skagamenn hafi ekki
verið að spila eins vel og gegn
ÍBV um daginn þá náðist það
markmið sem lagt var upp með
fyrir leikinn, það er að komast í
næstu umferð. Ánægjulegt er að
sjá að sterkasti hluti liðsins frá því
í fyrra, vörnin, virðist loks vera bú-
inn að finna taktinn. Gunnlaugur
og Reynir stigu vart feilspor í
leiknum og hleyptu engu í gegn.
Fyrir aftan þá félaga stóð Ólafur í
markinu og varði það sem á
markið kom. Ellert og Bjarki áttu
einnig góðan dag og voru arki-
tektarnir að flestum upphlaupum
Skagamanna. Þá var Jón Þór
sprækur þær mínútur sem hann
spilaði.
AMÍ 2002
ÍA í þriðja
sæti
Þrír íslandsmeistarar
Aldursflokkameistaramót ís-
lands í sundi (AMÍ 2002) fór fram
á Laugarvatni um síðastliðna
helgi. SH sigraði í stigakeppni fé-
laga með 1379 stig eftir 76 grein-
ar. í öðru sæti varð íþróttabanda-
lag Reykjanesbæjar með 1145 og
Sundfélag Akraness hafnaði í
þriðja sæti með 657 stig. Lið SA
hefur tvöfaldað stigatölu sína á
tveimur árum og er þetta besti ár-
angur sem liðið hefur náð á AMÍ
frá árinu 1993.
Þrír einstaklingar urðu íslands-
meistarar í sínum aldursflokki og
ein boðsundsveit. Aþena Ragna
Júlíusdóttir náði einna bestum ár-
angri en hún varð stigahæsta
meyjan á mótinu með 1566 stig
og íslandsmeistari í meyjaflokki í
100 m skriðsundi auk þess sem
hún setti Akranesmet í 100 m fjór-
sundi og 200 m skriðsundi.
Gunnar Smári Jónbjörnsson varð
íslandsmeistari í piltaflokki þegar
hann sigraði í 1500 m skriðsundi
og Leifur Guðni Grétarsson varð
íslandsmeistari í sveinaflokki þeg-
ar hann sigraði í 100 m bringu-
sundi. Auk þessa varð A-sveina-
sveit (A íslandsmeistari í 4x50 m
skriðsundi og A-meyjasveit liðs-
ins lék sama leikinn.
Mótið þótti heppnast í alla staði
mjög vel þrátt fyrir að veðurguð-
irnir hafi ekki verið sundfólkinu
mjög hliðhollir. SÓK
Skagamenn sýndu sínar bestu hliðar
fslandsmeistarar ÍA sýndu loks
hvers þeir eru megnugir þegar
þeir tóku Vestmannaeyinga í
bakaríið, 4-1 á Akranesvelli í
8.umferð Símadeildarinnar.
Skagamenn léku við hvurn
sinn fingur og hefði sigurinn get-
að orðið mun stærri.
Ólafur Þórðarson breytti leik-
skipulagi liðsins frá undanförn-
um leikjum á þann hátt að nú
pressaði liðið andstæðinginn
hátt uppi á vellinum í stað þess
að liggja til baka og notast við
skyndisóknir. Þetta herbragð Ó-
lafs sannaði tilverurétt sinn strax
á annarri mínútu.
Leikurinn var ekki nema rétt
rúmlega 90 sekúndna gamall
þegar Bjarki Gunnlaugsson skor-
aði fyrsta markið, sitt fjórða í
þremur leikjum. Hjörtur Hjartar-
son gaf sendingu inn fyrir vörn
ÍBV þar sem Ellert Jón Björnsson
var fyrstur á boltann. Ellert gaf
boltann fyrir markið þar sem
Bjarki var á réttum stað og kom
knettinum yfir línuna af stuttu
færi.
í kjölfar marksins drógu
Skagamenn sig heldur aftarlega
á völlinn án þess að gestirnir
sköpuðu sér nokkur færi, þau
fengu íslandsmeistararnir. Á 27.
mínútu kom fallegasta mark
leiksins. Hjörtur og Bjarki léku
laglegt þríhyrningaspil út við
hliðarlínu áður en Bjarki sendi
glæsilega stungusendingu á
Hjört sem lék að marki ÍBV og
þrumaði boltanum upp í þaknet-
ið úr þröngu færi.
Síðasta færi hálfleiksins fékk
Kári Steinn Reynisson en Birkir,
markvörður ÍBV, varði skot hans
frá vítapunkti. Staðan í leikhléi
var því 2-0.
Skagamenn hófu síðari hálf-
leikinn á sama hátt og þann fyrri,
með marki. Á annarri mínútu
hálfleiksins sendi Ellert boltann
fyrir markið þar sem Kári Steinn
vann skallaeinvígi við varnar-
mann, boltinn datt fyrir fætur
Hjartar sem var einn á auðum sjó
og skaut knettinum framhjá
markverðinum í netið.
Við markið róaðist leikurinn
nokkuð enda úrslitin nánast ráð-
in. Skagamenn héldu þó áfram
frumkvæðinu í leiknum þó að
marktækifærin létu á sér standa.
Tólf mínútum fyrir leikslok
skoraði varamaðurinn Hermann
Geir Þórsson laglegt mark með
hnitmiðuðu skoti úr vítateignum
eftir góða sendingu Andra Kar-
velssonar.
Það eina sem skyggði á ágæt-
an dag fslandsmeistaranna var
klaufalegt mark sem þeir fengu á
sig þegar fjórar mínútur voru
komnar fram yfir venjulegan leik-
tíma. Þeim tókst því ekki að
halda hreinu í annað skipti í sum-
ar en í 18 leikjum í fyrra tókst
andstæðingum Skagamanna að-
eins að skora í 9 þeirra.
í fyrsta skiptið í sumar má
segja að Skagaliðið hafi spilað af
fullum krafti í 90 mínútur. Allir
leikmenn lögðust á eitt og minnti
spilamennskan og kraftur leik-
manna á frammistöðu liðsins
síðasta sumar.
Eftir slæm úrslit í leiknum á
undan rifu íslandsmeistararnir
sig upp úr meðalmennskunni og
sýndu og sönnuðu að þegar
hugarfarið er rétt og viljinn fyrir
hendi eru fá lið í deildinni sem
standast þeim snúning.
Koma Bjarka Gunnlaugssonar
gerir mikið fyrir liðið og er óhætt
að segja að sóknarleikurinn hafi
tekið stakkaskiptum. Bjarki á-
samt Hirti voru bestu menn leiks-
ins auk þess sem Pálmi Haralds-
son lék nánast óaðfinnanlega all-
an leikinn.
Staðan í 2. deild karla í knattspyrnu
Félag LU J T Mörk Stig
1 HK 7 6 1 0 15:6 19
2 Njarðvík 7 4 2 1 17:4 14
3 Víðir 7 4 0 3 10:11 12
4 KS 7 3 2 2 13:11 11
5 Selfoss 7 3 1 3 17:16 10
6 Völsungur 7 2 3 2 15:12 9
7 Tindastóll 7 3 0 4 15:14 9
8 Léttir 7 3 0 4 10:16 9
9 Leiknir R. 7 2 1 4 15:18 7
10 Skallagr. 700 7 6:25 0
Molar
Hermann Geir Pórsson skoraöi
sitt fyrsta mark í efstu deild þegar
hann skoraði fjórða mark Skaga-
manna gegn ÍBV. Þá skoraði
Hjörtur Hjartarson 100. mark ÍA
gegn ÍBV í efstu deild þegar hann
kom boltanum framhjá Birki í
markinu í annað sinn í leiknum.
Bjarki Gunnlaugsson skoraði sitt
27. mark í efstu deild og er hann
þar með orðinn markahæstur í
efstu deild af þeim leikmönnum ÍA
sem nú spila með liðinu. Ellefu
mörk af þessum 27 skoraði hann
fyrir KR.
Liðsmenn Bruna gerðu góða ferð
til Vestmannaeyja á mánudag
þegar þeir heimsóttu heimamenn í
KFS. Bruni tapaði nýverið fyrir
þessu liði á heimavelli 1-5 og því
ekki líklegt að hagstæð úrslit
myndu nást úti í Eyjum. Bruna-
menn byrjuðu leikinn vel og
komust yfir með marki Sveinbjörns
Hlöðverssonar strax á 10. mínútu.
Heimamenn svöruðu hinsvegar
með þremur mörkum á næstu 40
mínútum og útlitið orðið dökkt hjá
gestunum. Brunamenn gáfust
hinsvegar ekki upp og tókst að
jafna leikinn. Ágúst Hrannar Vals-
son minnkaði muninn úr víta-
spyrnu tólf mínútum fyrir leikslok
og tíu mínútum síðar skoraði einn
leikmaður KFS sjálfsmark og þar
við sat. Lokatölur því 3-3, úrslit
sem Brunamenn mega vera sáttir
við eftir að hafa verið tveimur
mörkum undir um tíma.
Siguröi Halldórssyni gengur vel
með flokkana sína tvo hjá ÍA, en
hann þjálfar 2. og 3. flokk karla.
Báðir flokkarnir sigruðu örugglega
íleikjum sínum um helgina og sitja
þeir báðir í efsta sæti í sinni deild.
2. flokkur er með fullt hús stiga eft-
ir fimm umferðir og 3. flokkur er
með 19 stig af 22 mögulegum.
Skallagrímur mætti Selfyssingum
á heimavelli þeirra síðarnefndu
síðastliðinn föstudag í annarri
deild karla í knattspyrnu. Heima-
menn sigruðu þar með sjö mörk-
um gegn fjórum og sitja Skalla-
grímsmenn því enn á botni deild-
arinnar með 0 stig eftir 7 umferðir.
Næsti leikur Skallanna er gegn
Völsungi á Skallagrímsvelli á laug-
ardag, 6. júlí.
íslandsmeistarar ÍA hafa sótt um
undanþágu til UEFA um að fá að
spila heimaleikinn í forkeppni
meistaradeildarinnar á Akranes-
velli. fíeglur UEFA kveða á um að
þeir vellir sem eru notaðir í keppn-
inni skuli minnst hafa sæti fyrir
1000 manns en einungis 670 sæti
eru í stúkunni á Jaðarsbökkum.
Vallarstarfsmenn Akranesvallar
bættu nýverið við um hundrað
sætum og tekur stúkan því nú um
800 manns. Völlurinn sem leikið
verður á í Bosníu er stærsti leik-
vangur landsins og tekur 37 þús-
und manns, alla í sæti.
Staðan í úrvaldsdeild
karla í knattspyrnu
Félag LU J T Mörk Stig
1 Fylkir 8 4 3 1 16:10 15
2 KR 8 4 2 2 10:8 14
3 KA 8 3 3 2 9:7 12
4 Grindavík 8 3 2 3 14:15 11
5 Fram 7 2 3 2 12:11 9
6 ÞórA. 8 2 3 3 14:16 9
7 FH 7 2 3 2 9:11 9
8 Keflavík 8 2 3 3 11:15 9
9 ÍA 8 2 2 4 14:14 8
10 ÍBV 8 2 2 4 11:13 8
Staðan íA-riðli 3. d.
karla í knattspyrnu
Félag LU J T Mörk Stig
1 KFS 7 6 1 0 23:7 19
2 Fjölnir 75 1 1 18:13 16
3 Bruni 7 2 3 2 13:16 9
4 Árborg 6 1 2 3 11:16 5
5 HSH 6 0 4 2 5:8 4
6 Ægir 7 0 1 6 6:16 1