Skessuhorn


Skessuhorn - 04.12.2002, Side 8

Skessuhorn - 04.12.2002, Side 8
MIÐVIKUDAGUR 4. DESEMBER 2002 jxvtsaunw... Peningunum er kastað Eftir japl og jaml og fuður varð niðurstaðan sem sagt sú að menn skyldu kjósa aftur. Af hverju og hvers vegna verður eflaust alltaf hægt að þræta um en ekki til mikils úr því sem komið er. Vonandi verða þessar svokölluðu uppkosningar þó til þess að menn setji sér skýrari vinnureglur um það hvernig bregðast skuli við ef mönnum líkar ekki framkvæmd kosninga og telja lýðræði og mannrétt- indi fótum troðið. En nóg um það. Því er ekki að neita að í miðri gerð fjárhagsáætlunar er það ekki óskastaða að heyja kosn- ingabaráttu. Það er engu að síður afar mikilvægt að vel tak- ist til við þá vinnu sem nú stendur yfir, þar sem reynt er að draga úr kostnaði við rekstur sveitarfélagsins þannig að sem minnst verði dregið úr þjónustu við íbúana. Samhliða markmið- inu um að ná rekstri sveitarfé- lagsins niður í 85 % af tekjum þess er nauðsynlegt að auka tekjurnar og greiða niður skuld- ir. Til þess að ná þessu marki hefur núverandi meirihluti sett sér að; * selja eignir. * bæta kynningar og markaðs- mál í því augnamiði að laða hingað fyrirtæki, annað hvort ný eða fyrirtæki sem þegar eru í rekstri. * gera fyrirtækjum auðveldara að byggja með því að gefa kost á að greiða gatnagerð- argjöld á tveimur árum. * leggja áherslu á að leikskól- ar, grunnskólar og Tónlista- skólinn í Borgarbyggð verði áffam meðal þeirra bestu í landinu. * tryggja að veðrið verði enn með því besta sem gerist hér á landi. Það kann að orka tvímælis að ætla sér að setja síðasta punkt- inn á stefnuskrá núverandi meirihluta svo ég tek þann lið út og geri að eigin baráttumáli. Og meira í gamni en alvöru. Hugmyndin kviknaði hins veg- ar við að lesa dreifibréf sem framsóknarmenn í Borgar- byggð dreifðu í tilefni kosning- anna. Þar benda þeir á að at- vinnuleysi hafi vaxið í Borgar- byggð síðasta ár. Ekki veit ég hvort þar er einungis verið að nota tækifærið til að upplýsa lesendur pistilsins um stöðu at- vinnumála á Islandi í stjórnartíð núverandi ríkisstjórnar þar sem framsóknarmenn fara með ráðuneyti í ýmsum málum en ó- neitanlega spyr maður sig hvort ekki sé verið að gefa í skyn að það ástand væri annað ef fram- sóknarmenn sætu í meirihluta í bæjarstjórn. Það freistar margra sem hafa afskipti af stjórnmálum að nota sér félagsleg og þjóðfélagsleg mein eins og fíkniefnavandann og atvinnuleysi sér til fram- dráttar. I kosningunum á laug- ardaginn kemur held ég hins vegar að menn ættu að halda sig við málefni sem raunhæft er að glíma við í bæjarstjórninni. Og atvinnuleysi í Borgarbyggð hef- ur ekki vaxið á síðasta ári um- fram það sem verið hefur á landsvísu þannig að framsókn- armenn í Borgarbyggð sem vilja bæta ástand atvinnumála í land- inu ættu að snúa sér til lands- stjórnarinnar. Auk ofantalinna punkta er nauðsynlegt að sveitarstjórnar- menn vinni að því á vettvangi Sambands íslenskra sveitarfé- laga að stjórnvöld bæti tekju- stofna sveitarfélaga. Við núver- andi ástand verður ekki unað til frambúðar. Og þetta ættu menn að hafa í huga þegar gengið verður til alþingiskosn- inga á komandi vori. I síðustu kosningum, fyrir hálfu ári, fékk Borgarbyggðar- listinn tvo menn kjörna í sveit- arstjórn Borgarbyggðar. Meiri- hlutasamstarf við sjálfstæðis- menn gengur vel og því von- umst við eftir því að fá umboð kjósenda til að halda því áfram. Það væri afleitt ef ný sveitar- stjórn yrði kosin af minnihluta V Finnbogi Rögnvaldsson kjósenda. Ég vil því enda þess- ar hugleiðingar á að hvetja alla kosningabæra menn til að kjósa, enda segir í vísunni: 1 kosningum á að krossa við rétt og kosningalögin virða. Þó hendirþað stundum hefi ég frétt að kjósa þmfi að njju. Finnbogi Rögnvaldsson Höfundur skipar 1. sæti Borgarbyggðarlista Ospilltri ég engri næ Meðan einhver yrkir brag og Islendingar skrifa, þetta gamla þjóðarlag það skal alltaf lifa. Eru skáldum amfleygum æðri leiðir kunnar en ég vel mér veginn um veldi ferskeytlunnar. Svo kvað Jón Bergmann á sinni tíð og virðast þau orð hans ætla að rætast ótrú- lega vel því furðu hress er ferskeytlan ennþá þrátt fyrir hrakspár sjálfskipaðra menningarfrömuða á tímabili. Fyrir unnendur ferskeytlunnar eru fá form að- gengilegri til róa hugann þegar eitthvað bjátar á og séra Einar Friðgeirsson orti einhverntíma þegar ekki lá of vel á hon- um: Braga oft ég bið um lið brenndur harmi sárum, bara til að banda við bölsýni og tárum Þó ég hafi elst um ár ei vill skapið kyira. Ennþá ber ég sömu sár sem mér blæddu ífyrra Ég man ekki betur en það væri Jón Thor Haraldsson sem heyrði kveðskap eftir þekktan mann og fannst sem gæðin væru undir lágmarksstöðlum EES: Þú hrepptir lítinn skammt af skáldamiði. Þeim skapadómi verður ekki breytt. En góði láttu ferskeytluna ífriði, formið hefiur ekki gert þér neitt. Einstöku manni verður stakan svo töm í munni að orðin verða nánast ósjálfrátt að vísu, jafinvel í óþökk þess sem þó á að nefnast höfundur vísunnar og herra munns og tungu. Þessu vandamáli lýsir Kristján frá Djúpalæk á eftirfarandi hátt: Þegar við hugsjónir leita ég lags og langar að punkta þær hjá mér, þá hyrjar helvítis hringhendan strax að hrónglast í kjaftinum á mér Menn hafa löngum deilt um hið hefð- bundna ljóðform og fundið rök bæði með því og móti. Jón úr Vör orti, líklega sem svar við blaðagrein: Ekki þarf að gylla gull, gullið verður ætíð bjart og alltaf verður bidlið bull þó biiið sé í rímað skart. Steinn Steinarr sá ekki fremur en endranær ástæðu til að vera á sama máli og aðrir og orti í framhaldi af vísu Jóns (að ég held): Gull er gull og bull er bull, bilið alltaf nokkurt var. fón erjón ogflón erflón en fjarlægðin er minni þar. Alþekkt er þessi vísa Andrésar Björns- sonar: Ferskeytlan erfrónbúans fyrsta barnaglingur en verður seinna í höndum hans hvöss sem byssustingur. Ég hygg að það hafi verið Stefán Jóns- son fféttamaður sem sneri þessari vísu lítillega: Ferskeytlan er frónbúans fyrsta bamadundur en verður seinna í höndum hans hræringur og glundur. Hvað sem líður öllum útúrsnúningum hefur vísan dugað mörgum furðu vel í ýmiss konar áföllum á lífsleiðinni og þó menn kannske yrki ekki beinlínis til sín peninga getur bætt hugarástand haft mikið að segja en eftir Þormóð Pálsson er þessi ágæta vísa: Þó ég hafi brotið bát brims í lendingunni, ekki er víst ég verði mát varinn hendingunni Þó margt hafi verið ort og skrafað á Is- landi sem ekki var ætlað til birtingar heldur aðeins sálinni til heilsubótar hef- ur sem betur fer margt geymst enda væri að öðrum kosti erfitt að halda úti vísna- þætti. Aftan á ljóðakver sitt skrifaði Benjamín Sigvaldason: Mér til gamansyrki óð aura og vinasnauður en það kann enginn þessi Ijóð þegar ég er dauður. Teitur Hartmann var afburðasnjall hagyrðingur og hefur vafalítið haft gam- an af góðum vísum eins og títt er um slíka menn enda bendir þessi vísa ein- dregið í þá átt: Gömul vísa verður ný við að haf 'ana yfir, maðurfinnur andann í öllu sem að lifir. Hermann Guðmundsson frá Bæ á Sel- strönd hafði þetta að segja um vísuna: Má sá gnmda er mælir Ijóð, margt orðfundið vega, þú hefiir stundir stakan góð stytt mér undarlega. Mörgum hag- yrðingum verður það fyrir þegar þeir geta ekki sof- ið að fara að setja saman vísur, nú eða kannske koma vísurnar bara sjálfar án nokk- urrar hvatningar samanber Pál Olafsson en eftir Guðmund Straumland er eftirfarandi hugleiðing: Fyrst að allt er orðið hljótt eins og lús á maga og ég verð að vaka í nótt vendi ég mér til Braga. Teitur Hartmann virðist einnig hafa orðið andvaka stundum: Ekkert heftir andansflug e?ida skal það lofa, mamii dettur margt í hug meðan aðrir sofa. Hitt er svo annað hvað menn dreymir ef þeir ná að festa blund. Björn S. Blön- dal virðist ekki hafa verið alltof ánægður eftir að hann flutti úr Vatnsdalnum niður á Blönduós: Draumar inn í dalinn ná, dýrð er í minningunni, Blönduós vinnur ekki á auknii kynningunni Með þökkfyrir lesturinn Dagbjartur Dagbjartsson Refsstöðum 320 Reykholt S 435 1367

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.