Skessuhorn


Skessuhorn - 27.02.2003, Side 11

Skessuhorn - 27.02.2003, Side 11
L>nl,33UHu... FIMMTUDAGUR 27. FEBRUAR 2003 11 Molar Skallagrímur lék annan æf- ingaleik sinn í vetur um síð- ustu helgi. Að þessu sinni mættu þeir HK mönnum og máttu þola tap 4-1, eftir að staðan hafði verið 4-0 í hálf- leik. Mark Borgnesinga skor- aði ungur og efnilegur leik- maður, Guðmundur Lúther Hallgrfmsson. Þess má geta að sá hinn sami hefur aðeins leikið þrjá leiki með meistara- flokki, þar af einn f 2. deild- inni í fyrra þá 15 ára gamall. Hann hefur hinsvegar skorað í öllum leikjunum. Dregið hefur verið í töfluröð hjá körlunum f 3.deild en mótið hjá þeim hefst sunnu- daginn 25.maí. Tvö lið af Vesturlandi leika í þriðju deildinni í sumar, Skallagrim- ur og Víkingur. I fyrstu um- ferð fá Víkingar Deigluna úr Reykjavfk í heimsókn en á sama tfma spila Skallagrims- menn á útivelli gegn Drangi. Mfl. ÍA leikur sinn þriðja leik f deildarbikarnum þegar þeir mæta Keflvfkingum á laugar- daginn. Leikið verður í Fff- unni í Kópavogi og hefst leik- urinn kl. 15. Ólafur Þórðarson, þjálfari Skagamanna, spilaði leiki númer 372 og 373 þegar hann kom inná i leikjunum gegn KA og Þór. Er þetta 21. árið sem Ólafur leikur í meistaraflokki. Ólafur á þó enn töluvert í land til að ná leikjahæsta leikmanni ÍA, Al- exander Högnasyni, sem lék yfir 450 leiki fyrir ÍA. Gunnlaugur Jónsson meiddist lítillega í leiknum gegn Þór á laugardaginn og þurfti að fara af velli eftir um hálftfma leik. Óvfst er hvort Gunnlaugur verður með í leiknum á laugardaginn. Hinsvegar má búast við að Stefán Þórðarson leiki sinn fyrsta leik fyrir ÍA á þessu tímabili en hann hefur æft af krafti undanfarið. Ekki er reiknað með að Stefán byrji leikinn heldur komi inná sem varamaður spili hann eitthvað. Rúta Skagamanna varð fyr- ir barðinu á biræfnum þjófum á Akureyri um síðustu helgi. Rútan, sem er frá Hóþferða- miðstöðinni, ber einkanúm- erið Hóþó og þótti þjófunum númeraplöturnar það girni- legar að þeir tóku þau bæði af bílnum. Bjarki Guðjónsson og Heimir Einarsson, leikmenn í þriðja flokki ÍA, hafa verið valdir í úrtaksæfingar hjá U- 17 ára landsliði Islands sem fram fara um næstu helgi. Þá hefur Ágúst Örlaugur Magn- ússon verið valinn í U-19 ára landsliðið af sama tilefni. Hjá stúlkunum eiga Skaga- menn sömuleiðis þrjá full- trúa. í 17 ára landsliðinu var Hallbera Gísladóttir valin og í 19 ára liðið voru þær Birgitta D. Þrastardóttir og Helga S. Jóhannsdóttir valdar til úr- taksæfinganna. HJH Bridgefréttir Að loknum 12 umferðum í Akranesmótinu í Sveitakeppni 2003 er sveit Hársnyrtingar Vildísar efst með 222 stig, þar á eftir kemur sveit Öldung- anna með 221 stig þá Sveit Árna Bragasonar með 218 stig, í 4 sæti er Sveit Tryggva Bjarnasonar 201 stig. Borgnesingar Ijúka sinni Sveitakeppni n.k. miðvikudag en þar líkt og á Akranesi eru spilaðar 2 umferðir á kvöldi. Á toppnum trónir sveit Rúnars Ragnarssonar með 226 stig, á hæla þeirra kemur sveit Jóns H. Einarssonar með 214 stig, þar á eftir koma sveit Elínar Þórisdóttur með 186 stig og sveit Flemming Jessen með 183 stig. Góður árangur Borgfirðinga á MÍ15-22 ára Meistaramót íslands 15-22 Stelpurnar í tíunda flokki kvenna hjá Skallagrími gerðu sér lítið fyrir og unnu alla sína leiki á síðasta fjölliðamóti vetr- arins og komust með því í A riðil og tryggðu sér sæti í úr- slitakeppni fimm liða. Þess má hinsvegar geta að þetta sama lið vann ekki einn einasta sigur á síðasta keppnistímabili þannig að það er óhætt að segja að framfarirnar séu mikl- ar. Leikir Skallagríms fóru þannig: Skallagrímur - Hörður: 34 - 26 KR-Skallagrímur: 38-46 Skallagrímur- Hamar: 48-39 Breiðablik - Skallagrímur: 28- 38. Það var Guðrún Ámunda- dóttir sem var langstigahæst Skallagrímsstelpnanna en hún skoraði samtals 75 stig eða tæplega 19 stig í leik að með- altali. Næststigahæst var syst- ir hennar, Sigrún, með 34 stig og þá Guðrún Selma Steinars- dóttir með 17 stig. BorgarnescJömurnar bestar Tryggðu sér sæti í A riðli með miklum yfirburðum Tíundi flokkur Skallagríms ásamt þjálfara sínum Finni Jónssyni. Mynd: GE ára var haldið í nýju Egilshöll- inni um síðustu helgi. Borg- firðingar náðu góðum árangri á mótinu. Sigurkarl Gústafs- son varð íslandsmeistari í 60 m hlaupi og langstökki þar sem hann setti Borgarfjarðar- met í drengjaflokki með 6.46 m stökki. Hann fékk silfur- verðlaun í langstökki án at- rennu og þrístökki þa sem hann setti einnig Borgarfjarð- armet í drengjaflokki stökk 12.98 m. Kristín Þórhallsdóttir varð íslandsmeistar í 60 m hlaupi á nýju Borgarfjarðarmeti 8.03 sek. Kristín stökk 5.18 m í langstökki og hafnaði í öðru sæti. Ekki öll von úti Skallagrímur - UMFN 89 - 87 Það var mikil spenna og dramatík á lokamínútunum í leik Skallagríms og Njarðvíkur í Borgarnesi á föstudagskvöld og reyndar ekki í fyrsta skipti í vetur sem úrslitin ráðast þar á lokasekúndunum. Það var Ijóst fyrir leikinn að nú var að duga eða drepast fyrir Skallana, því fjögur stig skildu þá frá fallsæt- Góður sigur Snæfell-Hamar: 82-80 Borgnesingar hafa eflaust hugsað hlýtt til Snæfellinga á fimmtudagskvöldið eftir að hinir síðar- nefndu höfðu lagt Hamarsmenn í Hólm- inum, en það eykur líkurnar á því að Skallagrímur haldi sér í deildinni á kostnað Hamars. Það sem væntan- lega hefur þó skipt Snæfell- inga meira máli er að með sigrinum jók Snæfell til muna möguleika sína á sæti í úrslita- keppninni. G e s t i r n i r byrjuðu samt sem áður betur og höfðu frum- kvæðið nánast allan tímann þrátt fyrir góða baráttu og ekki Hlynur Bæringss. síst góða vörn heimamanna. Það var ekki fyrr en í síð- asta leikhluta sem Snæfellingar spýttu í lófana og gerðu það sem gera þurfti og nældu í tvö dýrmæt stig. Helgi R. Guð- mundsson var best- ur í liði Snæfellinga að þessu sinni en þeir Hlynur Bærings- son og Clifton Bush voru einnig sterkir að vanda. Nr Tölurnar - Nafn Snæfell Mín HF STO STIG 4 Baldur Þorleifsson 2 0 0 0 5 Andrés M. Heiðarsson 14 0 0 2 6 Atli R. Sigurþórsson 15 1 1 5 7 Jón Ó. Ólafsson 21 3 i 9 8 Helgi R. Guðmundss. 36 5 4 12 10 Sigurbjörn Þórðarson 34 1 1 7 11 Clifton Bush 40 58 2 26 14 Hlynur E. Bæringsson 38 20 3 21 inu og aðeins fjórir leikir eftir. Með sigri gátu þeir minnkað bilið milli sín og Hamars- manna um tvö stig, þar sem þeir voru þeg- ar búnir að tapa sínum leik í umferð- inni. Njarðvík- ingar eru hins- vegar ekki auðveldasta bráðin og fara þeir langt á reynslunni og hefðinni. Mestu munaði samt í þessum leik um Teit Ör- lygsson sem var allt í öllu hjá Njarðvíkingum og hélt þeim á floti allt fram á síðustu sekúnd- ur leiksins. Njarðvíkingar höfðu frum- kvæðið lengst af en náðu aldrei að sigla fram úr seigum Borgnesingum sem börðust vel allan tímann. Taugaóstyrk- ur einkenndi hinsvegar leik Skallanna og oft fóru þeir framúr sjálfum sér í sóknartil- raunum sínum, auk þess sem þeir nýttu víta- skotin afar illa. Það var ekki fyrr en í blálokin sem Borgnes- ingar náðu að merja sigur með körfu á síðustu sek- úndunum. Það var ekki síst góð innkoma Hafþórs Gunn- arssonar í síðasta leikhlutan- um. Hann hafði ekki sést mikið (leiknum en hrökk í gír á réttu augnabliki og skoraði mikil- vægar körfur. JoVann Johnson var einnig drjúgur, en gerði mörg slæm mistök þegar hann ætlaði að gera allt upp á eigin spýtur. Pétur Sigurðsson átti einnig ágætan leik en besti maður Skallanna að þessu sinni var Júgóslavinn Darco Ristic sem átti stórleik. Tölurnar - Skallagrímur Nr Nafn Mín HF STO STIG 4 Finnur Jónsson 10 2 2 0 5 Hafþór 1. Gunnarsson 26 5 1 14 6 Ari Gunnarsson 6 0 0 0 7 Fálmi Þ. Sævarsson 14 5 0 0 8 Egill Ö. Egilsson 7 0 1 0 9 JoVann Johnson 34 5 6 33 10 Þétur M. Sigurðsson 25 1 2 11 11 Valur Ingimundarson 23 5 2 7 14 Darko Ristic 33 11 1 20 15 Miosh Ristic 22 1 2 4

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.