Skessuhorn - 18.02.2004, Page 4
4
MIÐVIKUDAGUR 18. FEBRUAR 2004
^niliíauiiu^
WWW.SKESSUHORN.TS
Bjarnarbraut 8 - Borgarnesi Sími: 433 5500
Kirkjubraut 54-56 - Akranesi
Fax: 433 5501
SkRIFSTOFUR BLAÐSINS ERU OPNAR KL. 9-14 ALLA VIRKA DAGA
Útgefandi:
Ritstjóri og óbm:
Blaðamaður:
Auglýsingar:
Umbrot:
Fromkvæmdostjóri:
Prenlun:
Skessuhorn ehf
433 5500 skessuhorn@skessuhorn.is
Gísli Einorsson 899 4098
Hrofnkell Proppé 892 2698
íris Arthúrsdóttir 696 7139
Guðrún Björk Friðriksdóttir 437 1677
Mognús Mognússon 894 8998
Prentmet ehf.
ritstjori@skessuhorn.is
hrofnkell@skessuhorn.is
iris@skessuhorn.is
gudrun@skessuhorn.is
mognus@skessuhorn.is
Skessuhorn kemur út alla miðvi
eudögum. Auglýsendum er
ifrestur smóauglýsinga er t
cudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14:00 á
lent a að panta auglýsingaplass tímanlega.
12:00 á priðjudögum.
Blaðið er gefið út í 4.000 eintökum og selt til úskrifenda oa í lausosölu.
Áskriftarverð er 850 krónur með vsk. ó múnuði en krónur/50 sé greitt með
greiðslukorti. Verð i lausasölu er 250 kr.
433 5500
Barist í
bönkum
t},*•,* , • ... ,, Gísli Einarsson,
Eg heyrði það um dagmn, hja nokk- ritstjóri
uð áræðanlegum heimildamanni, að
það væri vísindalega sannað að opinberir starfsmenn væru al-
mennt betri elskhugar en aðrir þar sem þeir gerðu allt svo hægt
og yfirleitt sama hlutinn tvisvar.
Ekki hef ég í hyggju að gera ástarlíf bankastjóra að umtalsefni
hér, enda ekki kynnt mér það sérstaklega, en allavega er ljóst að
þeir hljóta að hafa breytt sínum starfsaðferðum nokkuð eftir að
þeir hættu að vera opinberir starfsmenn. Hvort sem það er því að
þakka að þeir séu hættir að gera alla hluti tvisvar og farnir að gera
þá hraðar eða út af einhverju allt öðru þá er allavega ljóst að dag-
inn eftir að ákveðnar bankastofnanir urðu að einkafyrirtækjum þá
urðu þær allt í einu að hinum arðbærustu fyrirtækjum. Allir stóru
fyrrverandi ríkisbankamir skiluðu allavega hagnaði á síðasta ári
sem nam upphæðum sem em stærri en svo að ég treysti mér til
að nefna þær hjálparlaust. Eg man ekki betur en að þessar sömu
stofnanir hafi verið nálægt því að berjast í bökkum (eða bönkum)
nokkmm dögum áður en þær urðu að einkafyrirtækjum.
Nú tek ég það vissulega fram að ég er ekki að gefa það í skyn
að neitt sé vafasamt við það þótt bankastofinanir skili einhverjum
bílförmum af hagnaði og það þarf svosem ekki að pirra mig neitt
sérstaklega, enda er þessi hagnaður ekki tekinn úr mínum vasa.
Ekki allur í það minnsta. Eg efast heldur ekki um það að það sé
æðsta takmark stjómenda þessar ágætu bankastofnana að þjón-
usta sína viðskiptavini sem mest og sem best. Eg neita því þó ekki
að það kom mér eilítið spánskt fyrir sjónir þegar ég fékk kynn-
ingarrit frá einum bankanna nú fyrir skömmu. Þar var starfsemi
bankans kynnt ítarlega og vandlega tekið fram hversu vel og
dyggilega þessi banki inni að því að gæta minna hagsmuna, ekki
bara hér á landi heldur ekki síður erlendis. Miklu heldur er mér
reyndar nær að segja því ef ég man rétt þá var heilli síðu varið til
að kynna þjónustu bankans á landsbyggðinni og gott ef ekki voru
heilar tvær eða jafinvel þrjár línur notaðar á hvert útibú. Síðan
voru einhverjar tuttugu eða þrjátíu síður sem fjölluðu um umsvif
bankans á erlendri grund. Sjálfsagt hafa þau skilaboð sem þar
voru sett fram verið gríðarlega mikilvæg og vel getur verið að ég
sé eini viðskiptavinur bankans sem ekki er með umfangsmikil
viðsldpti erlendis.
Hvað sem því líður þá er það bara gott að bankarnir græði, ein-
hver verður líka að taka það að sér. Það er samt ekki laust við að
ég kvíði því, sem viðskiptavinur blóðbankans, ef að því kemur að
hann verður einkavæddur. Þá gæti verið að maður kæmi svolítið
skorpinn þaðan út.
Gísli Einarsson, óopinber starfsmaður.
Miðbæjarhugmyndum
mótmælt harðlega
Skipulags og umhverfisnefnd
Akraness boðaði til opins kynn-
ingarfundar um deiliskipulag á
Miðbæjarreit í síðustu viku.
Olöf Guðný Valdimarsdóttir
skipulagsfulltrúi og Magnús
Guðmundsson formaður
nefndarinnar kynntu skipulag-
ið. Um 60 manns sátu fundinn
og báru fram ýmsar spurningar
varðandi tillöguna. A fundin-
um voru afhent mótmæli u.þ.b.
90% íbúa við Dalbraut og Esju-
velli. Ibúum finnst hæð bygg-
inganna óásættanleg og vilja að
hluti svæðisins verð grænt
svæði. Ibúar í nágrenninu telja
að fyrirhuguð háhýsi næst Dal-
brautinni sem er fjögurra hæða
verslunarháhýsi 17 metrar að
hæð, muni gera það að verkum
að ekki mun sjást til sólar við
Dalbraut 15 -21 nánast allt
sumarið. Þá telja íbúar þá
ákvörðun um að reisa tvö 10
hæða háhýsi nær Stillholti skapi
ákveðið öngþveiti varðandi
bílastæði og umferð. Ibúar
benda einnig á að við gerð nú-
gildandi deiliskipulags sem
samþykkt var fyrir 5 árum hafi
verið fallist á kröfur íbúa að
lækka byggingar næst Dal-
brautinni niður í tvær hæðir og
telja því það háttarlag bæjar-
stjórnar að samþykkja 4 hæða
hús nokkrum árum síðar vera
virðingarleysi við þá.
A fundinum kom fram að
verkfræðistofan Línuhönnun
hafi gert úttekt á umferð með
tilliti til skipulagshugmynda
sem ekki hafi bent til annars en
að umferðarmál væru í ágætu
lagi. Hins vegar var skuggavarp
af þjónustubyggingunni umtal-
Ekki með
Bæjarstjórn Grundar-
fjarðar hafnaði á síðasta
fundi sínum þátttöku í gerð
aðalskipulags á Breiðafirði. I
bókun bæjarstjórnar segir: „I
Ijósi þess að sveitarfélagið er
sjálft að vinna aðalskipulag
fyrir dreifbýlið verði þátt-
töku í verkefninu hafnað.“
aðri ekki gert né heldur könnun
að myndun vindsveipa.
Frestur til að gera athuga-
semdir við deiliskipulagstillög-
una er til 12. mars en þá fer
málið aftur fyrir bæjaryfirvöld
sem vega og meta hvort athuga-
semdirnar séu þess eðlis að
breyta þurfi deiliskipulagstil-
lögunni. Fram kom í máli Guð-
mundar Páls Jónssonar for-
manni bæjarráðs að við mat á
athugasemdunum vægju rök
þyngra en fjöldi þeirra sem at-
hugasemdir gerðu.
Næg loðna
Ingunn AK 150 og VíkingurAK 100 komu bæði
inn til iöndunar á Akranesi undir kvöld síðastlið-
inn fimmtudag. Ingunn landaði 2034 tonnum en
Víkingur landaði 1307 tonnum. Meðfylgjandi
mynd var tekin um kvöldmatarleitið á fimmtu-
daginn þegar Víkingur var að leggja að bryggju,
fulllestaður. Skipin áttu að fara aftur til veiða í
þessari viku. Fram kemur á vef HB að gengið
hafi á kvóta skipanna og nú sé beðið eftir því að
hrognafylling loðnunnar verði orðin nægjanlega
mikil til þess að hægt verði að hefja vinnslu og
frystingu loðnu fyrir Japansmarkað. Gott útlit sé
á þeim markaði á þessari vertíð bæði í magni
og verði. MM
Leikskólagjöld lægri á Vesturlandi
Leikskólamál hafa verið í
brennidepli víða á Vesturlandi
að undanförnu. Eins og getið
hefur verið um í Skessuhorni
voru Skagamenn að byggja við
leikskólabyggingu. Um síð-
ustu áramót hækkaða gjald-
skráin á Akranesi um 4% en
sveitafélög víða um land hafa
almennt verið að endurskoða
gjaldskrár leikskóla. Akranes-
kaupstaður gerði könnun á
leikskólagjöldum á 9 öðrum
sveitarfélögum á suðvestur-
horni landsins auk Akureyrar.
Borin voru saman mánaðar-
gjöld fyrir 8 klst. vistun og fullt
fæði. Akraneskaupstaður kom
best út úr þeirri könnun en þar
var gjaldið lægst eða kr. 23.951
en dýrust var þjónustan í
Reykjavík kr. 27.900.
Skessuhorn leitaði eftir
samskonar upplýsingum frá
sveitarfélögum á Vesturlandi
sem má sjá á meðfylgjandi
töflu. Niðurstaðan var sú
að langódýrast var að
vista börnin á leikskólan-
um Skýjaborg á Hagamel
eða kr. 18.160 miðað við
8 klst. vistun og fullt fæði
á mánuði, Akraneskaup-
staður kemur næstur á
eftir en dýrust er þjónust-
an í Stykkishólmi kr.
27.900 eða Reykjavíkur-
verð. Meðaltalsgjald á
Vesturlandi er kr. 24.383 sem
er öllu lægra en meðaltal sveit-
arfélaganna 10 sem Akranes-
kaupstaðar bar sig saman við.
Þar hljóðaði meðalmánaðar-
verð uppá kr. 26.765.
hdp
Sveitarfélag Kr.
Sunnan Skarðsheiðar
(Hagamelur)...........18.160
Akranes..................23.951
Meðaltal.................24.383
Snæfellsbær..............24.525
Borgarbyggð..............24.626
Grundarfjörður...........24.75 3
Búðardalur...............2 5.764
Borgarfjarðarsveit.......25.786
Stykkishólmur............2 7.5 00
Ur starfi Leikfélags
Akraness
í anddyri Bókasafns Akraness
hefur verið sett upp sýning á
ljósmyndum og leikskrám úr
starfi Leikfélags Akraness.
Leikfélag Akraness var stofnað
á fjórða tug síðustu aldar og
sýndi fyrst í Báruhúsinu og síð-
ar að jafnaði í Bíóhöllinni eftir
að hún var risin. Fyrir utan ár
síðari heimsstyrjaldar var starf-
semin mjög blómleg eða allar
götur fram á sjöunda áratuginn
en síðasta uppfærsla félagsins
var árið 1963.
A vef Ljósmyndasafhs Akra-
ness www.akranes.is/ljos-
myndasafh er síðan að finna
fjölbreytt úrval af myndum úr
hinum fjölmörgu uppfærslum
félagsins.
Sýningin er opin á af-
greiðslutíma bókasafhsins alla
virka daga frá kl. 13:00 til 20:00
nema á föstudögum en þá er
opið til kl. 18:00. Frá 1. okt. til
30. apríl er safnið opið á laugar-
dögum frá kl. 11:00 til 14:00.