Skessuhorn


Skessuhorn - 18.02.2004, Síða 9

Skessuhorn - 18.02.2004, Síða 9
^ntssunu... MIÐVIKUDAGUR 18. FEBRUAR 2004 9 Hitaveita lögð í 90 hús í vetur Oll orlofshús BSRB í Munaðarnesi með heitum pottum fyrir vorið Starísmenn Verktaka Klöpp ehf. á Akranesi, þeir Bergþór Páll Pétursson og Ingimundur Barðason, voru síðastliðinn laugardag að vinna við niðurlagningu stofnæðar heita vatnsins frá Munaðarnesi að Stóru-Skógum. Sögðu þeir framkvæmdir ganga vel og gerí væri ráð fyrir að þeirra þætti lyki fyrír lok aprít. Miklar framkvæmdir hafa staðið yfir í Mun- aðarnesi í Borgarfirði frá því í haust. Verið er að leggja hitaveitu frá borholu í Kerlingargili í landi Munaðarness að öllum sumarbústöðum á orlofssvæði BSRB í Munaðarnesi og Stóru- Skógum eða alls um 90 hús. Það er Orkuveita Reykjavíkur sem boraði holuna og stendur að framkvæmdum í sam- ráði við BSRB, en þrjú verktakafyrirtæki sjá um framkvæmdir auk 8 manna vinnuhóps starfsmanna BSRB á svæðinu. I framkvæmdunum felst að byggt er dælu- hús við borholuna auk miðlunartanks við Stóru-Skóga. Það er verktakafyrirtækið Spöng ehf. úr Garðabæ sem sér uin þann þátt framkvæmd- anna. Verktakafyrirtækið Klöpp ehf. á Akranesi sér um að Ieggja stofnæðar og heim- taugar að húsum, Jón pípari ehf úr Hafnarfirði leggur ofna- lagnir og tengingar að heitum pottum en auk þess kernur vinnuhópur BSRB að lagningu frárennslislagna og breytinga á sólpöllum og nýsmíði. Kristján Tryggvason er stað- arhaldari BSRB í Munaðar- nesi. Hann segir að stefnt sé að því að ljúka öllum þessum framkvæmdum í vor. „Félögin á svæðinu eiga að geta byrjað að leigja húsin út í síðasta lagi um miðjan júní, eða mánuði síðar en venjulega. Þá verður komin hitaveita í öll hús á fé- lagssvæði BSRB og öll verða þau þá með nýjum heitum pottum og einkar góðum að- búnaði“, segir Kristján. Hann segir Orkuveituna standa í samningaviðræðum við félag orlofshúsaeigenda í Munaðar- nesi um lagningu hitaveitu í önnur hús í landi Munaðar- ness, en þau sem eru í eigu BSRB. Það vatn sem fannst við borunina er nægjanlegt til upphitunar helmingi fleiri húsa heldur en eru á svæðinu í dag. Því má gera ráð fyrir að sumarhúsum fjölgi enn frekar í Munaðarnesi á næstu árum, enda fer þar saman rnikil nátt- úrufegurð, nálægð við þjón- ustu, nægt heitt vatn og gott veðurfar. MM Auglýsing um breytingu á abalskipulagi Grundarfjarbar 2003-2015, vegna breytinga á deiliskipulagi framhaldsskólalóbar vib Grundargötu í samræmi við 18. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 er hér með auglýst eftir athugasemdum við breytingu á aðalskipulagi Grundarfjarðar 2003-2015. Breytingin felst í eftirfarandi; Gert er ráð fyrir stækkun miðsvæðis sem náði yfir 6.265 fm svæði milli lóða nr. 42 og 50 við Grundargötu. Þar var gert ráð fyrir 5.890 fm lóð fyrir framhaldsskóla og tengda starfsemi. í nýrri tillögu er gert ráð fyrir stækkun lóðar fyrir framhaldsskóla og tengda starfsemi þ.e. að svæðið stækki til norðurs að Sæbóli. Reitur fyrir íbúðarsvæði við Sæból, sem er 2.950 fm að stærð, breytist þá í miðsvæði. Vegtenging þaðan verður felld út. Svæðið er nú 9.216 fm og lóðin stækkar jafnframt í 8.722 fm. Göngustígur austan lóðarinnar helst óbreyttur en græna svæðið vestan megin nær nú að Sæbóli. Teikningar ásamt frekari upplýsingum, liggja frammi á bæjarskrifstofu Grundarfjarðar, Grundargötu 30, á skrifstofutíma, frá og með 25. febrúar til 24. mars 2004. Athugasemdir ef einhverjar eru skulu vera skriflegar og berast á bæjarskrifstofu Grundarfjarðar, Grundargötu 30, eigi síðar en 7. aprfl 2004. Þeir sem ekki gera athugasemd innan tilskilins frests, teljast samþykkir tillögunni. Skipulags- og byggingarfulltrúinn Grundarfirði. Snœfellsbcer -þar sem Jökulinn ber við loft Aðstoðarskólastjóri óskast við Grunnskóla Snæfellsbæjar Grunnskóli Snæfellsbæjar er nýsameinaður skóli með um 300 nemendur og tekur til starfa haustið 2004. Skólinn er aldursskiptur, með tvær starfsstöðvar. Annars vegar yngri deild á Hellissandi með 1 .-4. bekk og hins vegar eldri deild í Ólafsvík með 5.-10. bekk. Starfið er nýtt og felst í því að aðstoða nýráðinn skólastjóra við að móta skólastarfið í nýju umhverfi og er því spennandi tækifæri fyrir metnaðarfullan einstakling. Gerð er krafa um kennaramenntun. Menntun og reynsla á sviði stjórnunar er æskileg. Æskilegt er að nýr aðstoðarskólastjóri geti hafið störf sem íyrst, en þó eigi síðar en 1. júní 2004. Nánari upplýsingar fást hjá Óskari H. Óskarssyni, formanni skólanefndar, í símum 436-1107 eða 868-2547. Óskað er eftir því að umsækjendur geri skriflega grein fyrir menntun sinni og öðru því, sem þeir óska eftir að taka fram. Umsóknarfrestur rennur út 11. mars 2004. Skriflegum umsóknum ber að skila til Óskars H. Óskarssonar, formanns skólanefndar, Lindarholti 8, 355 Ólafsvík. Snœfellsbœr er ungt sveitarfélag sem vefursig utan um Sncefellsjökid: Staðarsveit, Búðir, Breiðuvík, Arnarstapi, Hellnar, Hellissandur, Rif Ólafsvík og Fróðárbreppur. Ipóðu veðri eru péttbýliskjarnarnir Hellissandur og Olafsvík í aðeins tveggja tíma akstursfjarlœgð frá Reykjavík -og veðrið er að sjálfsögðu alltaf gott undir Jökli! Hér býrgott fólk sem er alltaf tilbúið til að bjóða nýja Snœfellsbœinga velkomna. í Sncefellsbœ er sérstaklega fallegt umhverfi, parsem Snœfellsjökul berhcest, enda býður bœjarfélagið upp á alla flóru landsinsþegar kemur að landslagi, fugla- og dýralífi. Utivist og íþróttir er hcegt að stunda hvencer sem er ársins, skíði og snjóbretti, gönguferðir, golf hestamennska, sund og margtjleira. Nýtt, glcesilegt íþróttahús er í Olafsvík. Öflugt tónlistarlíf er í sveitarfélaginu ogfélagastarfsemi með miklum blóma. Glæsilegir konu- dagsblómvendir bíða þín handa henni Ollum tilbúnum vöndum fylgir konfektpoki MODEL STILLHOLTI 18 © 431 3333

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.