Skessuhorn - 05.05.2004, Qupperneq 1
VIKUBLAÐ Á VESTURLANDI -18. tbl. 7. árg. 5. maí 2004 Kr. 250 í lausasölu
Opinber
rannsókn
Á aðalfundi Verkalýðsfé-
lags Akraness sl. fimmtudag
var samþykkt að fara fram á
opinbera rannsókn á f)ár-
reiðum félagsins og óút-
skýrða reikninga frá tíð for-
mannsins fýrrverandi, Her-
vars Gunnarssonar.
Hervar sagðist í samtali
við Skessuhorn fagna þess-
um málalyktum.
Sjá bls. 5
s
Islands-
meistarar
ídansi
Tæplega helmingur nem-
enda Kleppjárnsreykjaskóla í
Borgarfirði tók þátt í Is-
landsmeistaramótinu í sam-
kvæinisdönsum í Laugar-
dalshöllinni í Reykjavík um
síðustu helgi. Krakkarnir
komu heim hlaðnir verð-
launum en alls komust tólf
borgfirsk pör á verðlaunapall
og þar af komu fjögur pör
heim með Islandsmeistara-
titil í farteskinu.
Sjá bls. 6
Ný
kvennadeild
Síðastliðinn föstudag var
tekin í notkun ný kvenna-
deild við Sjúkrahús Akra-
ness. Deildin er bæði fæð-
inga- og kvensjúkdómadeild
og þar er öll aðstaða með
því besta sem gerist hér á
landi.
Sjá bls. 7
Rausnarleg kveðju-
gjöf til starfsmanna
Norðuráls
Starfsmenn Norðuráls á
Grundartanga rak í rogastans
þegar þeir opnuðu launa-
umslögin sín síðasliðinn föstu-
dag. Þá fengu þeir í síðasta
sinn útborgað frá fráfarandi
eiganda fyrirtækisins, Kenneth
Peterson, stofnanda Norður-
áls, en hann hefur sem kunn-
ugt er selt allt hlutafé til Cent-
ury Aluminium Company.
I launaumslaginu var vænn
kaupauki til starfsmanna og
samkvæmt upplýsingum
Skessuhorns nam hann allt að
þrettán vikna grunnkaupi til
þeirra sem lengst hafa starfað
hjá fýrirtækinu en Norðurál
hóf rekstur fyrir rúmum fimm
árum. Þannig munu hafa verið
dæmi um að einstaklingar hafi
fengið allt að hálfri milljón út-
borgað að þessu sinni.
Eins og gefur að skilja var
ekki mikið kvartað yfir laun-
unum þennan daginn og hefur
Skessuhorn það eftir einum
starfsmannanna að blikað hafi
á tár á hvörmum yfir stórhug
eigandans fýrrverandi.
I fréttabréfi fýrirtækisins til
starfsmanna var síðan kveðja
frá Peterson þar sem hann
þakkaði starfsmönnum fýrir
samfylgdina og aðstoð við
uppbyggingu fyrirtækisins.
Um 200 starfsmenn eru hjá
Norðuráli og má gera ráð fýr-
ir að þessi kveðjugjöf Peterson
hlaupi á tugum milljóna
króna.
GE
Atvinnuleysi á
undanhaldi
Skráðir einstaklingar án at-
vinnu í þessari viku voru 206 á
Vesturlandi. Þórunn Kolbeins
Matthíasdóttir hjá Svæðis-
vinnumiðlun Vesturlands sagði
í samtali við Skessuhorn að
mjög mikil hreyfing væri á
fólki inn og út af skrá um þess-
ar mundir. „Fyrirtæki eru í
auknum mæli farin að leita
beint til okkar um útvegun
starfsfólks og er talsvert um
nýráðningar hjá þeim,“ sagði
Þórunn. Hún segir að nú sé
skólafólk að byrja að melda sig
atvinnulaust og vegur það að
nokkru leyti upp hinn mikla
fjölda nýráðninga í fýrirtækin.
Á sama tíma fýrir ári síðan
voru 260 manns án vinnu og
sama má segja um mánuðina
nú síðla vetrar en fjöldi at-
vinnulausra hefur verið tals-
vert hærri en hann er í augna-
blikinu. Þórunn segir jákvætt
að heimild Svæðisvinnumiðl-
unarinnar til að ráða viðbótar-
starfskraft á skrifstofuna hafi
gefið þeim bætt svigrúm til að
sinna atvinnuleit með fólki og
þannig sé skrifstofan að virka
betur en ella. „Við höfum náð
að mynda mjög jákvætt sam-
band við ýmsa atvinnurekend-
ur og stofnanir á Vesturlandi
en árangur okkar byggir í
mörgum tilfellum á því að við
þekkjum þarfir þessara fýrir-
tækja,“ sagði Þórunn Kolbeins.
MM
Vorsmellir í KB og Grundavaii vejjluij
Tilboðin gilda frá 6. maí til 11. mai eða meðan birgðir endast. «• r/7 þ j y •* «
Góö Kaup! Verö áöur: Góö Kaup! Verö áöur:
Lambalærissneiðar -þurrkr. 1148 kg. 1793 kg. Epli-gul 99 kg. 199 kg.
Franskar Grillpylsur 636 kg. 777 kg. Vatnsmelónur 119 kg. 219 kg.
Hamborgarar 10 stk. m.brauði 989,- 1164,- Fetaostur m.kryddi 289,- 348,-
Bayonneskinka 599 kg. 898 kg. Hvítlaukssmjör m.steinselju 199,- 238,-
Lambaframhr.sneiðar-frosnar 899 kg. 1298 kg. Fanta Appelsín 11tr. 99,- 169,-
Kartöflusalat Bautab. 500 gr. 249,- 288,- Sprite 11tr. 99,- 169,-
Gmndavá/
Hyrnutorgi
Borgarnesi