Skessuhorn


Skessuhorn - 05.05.2004, Blaðsíða 10

Skessuhorn - 05.05.2004, Blaðsíða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 5. MAI 2004 jntaðunui.. Fjöliðjufólk heldur Guðrún Elsa Erlendsdóttir er ein af þeim sem eiga myndir á sýning- unni. sýningu ingarstaðar. Þar gefur að líta perlusaum, málaðar trévörur, keramik og fleira. Munirnir eru unnir í hópvinnu þar sem allir hjálpast að. Perlusaum- urinn er þó eingöngu verk Kristjönu Björnsdóttur, en hún hefur náð mjög góðum tökum á listinni. Sýningin er unnin í samvinnu við starfs- menn Fjöliðunnar, sem völdu munina. Sýningin er sett upp í tilefni þess að nýlokið er Evr- I anddyri Bókasafns Akra- handavinnu skjólstæðinga ópuári fatlaðra. ness stendur nú yfir sýning á Fjöliðjunnar, vinnu- og hæf- MM fegurðardísum var í síðustu viku færð gjöf frá Guð- mundi B Hannah úrsmiði á Akra- nesi. Guðmundur er umboðsaðili fyrir D&G, Fossil og DKNY úr og fengu stúlkurnar hver sína gerðina af úrum að gjöf frá umboðunum og verslun GB Hannah. MM Frá vinstri: Guðmundur B Hannah úrsmiður, Hrafnhildur Harðardóttir, sem lenti í 3. sæti, Ftagnheiður Björnsdóttir, fegurðardrottning Vesturiands og Sjöfn Sæmundsdóttir sem lenti í 2. sæti í keppninni. „Gráttu ekki góða mamma“ Kynning á verkum og lífs- hlaupi Jóhanns Jónssonar skálds verður haldin í Ólafvík 8. maí næstkomandi kl. 15:00 í Félags- heimilinu Klifi. Dagskráin ber yfirskriftina „Gráttu ekki góða mamma“ sem tekin er úr einu ljóða Jóhanns sem hann orti á barnsaldri eftir lát yngri systur sinnar. Erindi urn skáldið flytja Egill Þórðarson frá Olafsvík, Eysteinn Þorvaldsson prófessor og Óskar Guðmundsson rithöf- undur. Einnig verða flutt lög eftir Jón Leifs við ljóð Jóhanns. Tónlistaratriði verða í höndum Veronicu Osterhammer mezzosóprans og Arnar Magn- ússonar píanóleikara sem m.a. hefur flutt og gefið út tónlist Jóns Leifs. Jóhann Jónsson var fæddur að Staðarstað á Snæfellsnesi 1896 en ólst upp í Ólafsvík. Hann barðist við berkla lungann úr ævinni og lést árið 1932, aðeins 35 ára gamall, fjarri ættlandinu. Jóhann þótti strax á barnsaldri óvenju skynugur og skáldmælt- ur. Hann lét þó ekki eftir sig mörg fullunnin Ijóð eða ritsmíð- ar en helgaði líf sitt samt sem áður ritstörfum. Töluverðar heimildir hafa varðveist um líf Jóhanns og verk því hann var öflugur bréfritari og skrifaðist reglulega á við marga. Má þar sem dæmi nefna Jón Leifs, Kristin E. Andrésson, Gunnar Gunnarsson, Friðrik Friðriks- son og Arnfinn Jónsson. Við sögu Jóhanns koma einnig fleiri framámenn í íslensku menning- ar- og listalífi þessa tíma. Þar má fyrst nefna velgjörðarmenn hans þá Bjarna Jónasson, skáld frá Vogi, Einar Jónsson, mynd- höggvara og Ludvig Kaaber, bankastjóra og konsúl að ó- gleymdum Halldóri Laxness sem var góðvinur skáldsins. Af verkum Jóhanns er Söknuður e.t.v. þekktast en upphafslína ljóðsins er blandin harmi eins og saga hans sjálfs: „Hvar hafa dagar lífs þíns lit sínum glatað“. Dagskrána þann 8. maí ætti enginn áhugasamur um liðinn tíma og bókmenntasöguna að láta ffam hjá sér fara. Kynning í heimabyggð á ævi og verkum Jóhanns Jónssonar skálds er enda löngu tímabær. (jréttatilkynning) Vita hvað klukkan slær Vestlenskum l/íuióht'aút) Astin þjónar eðli manns. Það er líkt og ylur í ómi sumra brnga. Mér hefur hlýnað mest á því marga kalda daga. Sagði Þorsteinn Erlingsson fýrir margt löngu en mörgum árum síðar kvað allt annar sóma maður en ekki síður kulsækinn: Mér hefur hlýnað mest á því margar kaldar nœtur að vera að fœra úr og í ungar heimasœtur. vissulega skylt að hafa það sem sannara reynist. Ymsir hafa spreytt sig á að yrkja um trúmálin, bæði sálma og alþýðlegri útleggingar text- ans. Káinn orti einhverntíma: Oss það herma helgar skrár heim með burði lasna, fátœkur og fótasár frelsarinn teið asna Löngu síðar var Akureyringur nokkur rétt orðinn fyrir bíl og kvað þá með tilvís- un í vísu Káins: Það er semsagt ýmislegt sem menn gera til að halda á sér hita en óvíst hvort það dugar. Káinn orti á köldu hausti: Aftur hljómar ástar þýða raustin, unga fólkið giftir sig á haustin, margur sveinn í meyjararma flýr meðan kolm eru svona dýr. Effir Stefán Sveinsson er þessi ágæta vísa um ágæti ástarinnar sem vissulega hefur stundum dugað vel til upphitunar: Einn ég lóna lífs í dans laus við fjón og hatur, ástin þjónar eðli manns eins og spónamatur. Venjulega er í þessari vísu talað um „tjón og hatur“ en fyrir ekki löngu hafði samband við mig maður sem hafði þekkt höfundinn persónulega og fullyrti að hér ætti að standa „fjón“ sem mun vera nokk- urnvegin sömu merkingar og hatur og er Eftir nítján alda stjá okkar breytt er högum. Bílum ríða allir á asnar nú á dögum. Ekki veit ég hvort þarna var stjórnunar- aðili bifreiðar Heiðrekur Guðmundsson ffá Sandi sem var orðinn nokkuð fullorð- inn þegar hann tók bílpróf og þótti ekki sem öruggastur ökumaður fyrst í stað. Fyrsta biffeið hans var af Saab gerð og um aksturslag hans í byrjun orti Rósberg Snæ- dal: Heiðrekur á sínwn Saab suður úr boenum oeddi. Sutna meiddi, suma drap, suma bara hroeddi. Heiðrekur var lengi matvörukaupmað- ur á Akureyri og eitt sinn er hann var að vigta upp kornvöru varð honum að orði: Mun ég þannig þindarlaust þó að holdið rotni vetur sumar vor og haust vega korn hjá drottni. Að nýafstöðnum fyrsta maí er ekki úr vegi að taka til athugunar fjármál heimil- anna sem hafa svo lengi sem ég man og vafalaust miklu lengur alltaf verið á heljar- þröm. Einhver ágætur og skítblankur fað- ir orti við barn sitt fýrir margt löngu: Aur fýrir gotti upp íþig átti ég fyrr í lommen. Nú hefég ekki ofan í mig annað en fattigdommen. Að rnorgni fyrsta maí vöknuðu nokkrar milljónir Evrópubúa upp við það að þeir væru farnir að draga niður meðaltekjur á evrópska efnahagssvæðinu og er slíkt meira en lítil óskammfeilni. Meðan Jón Baldvin var utanríkisráðherra boðaði hann mjög nýja tíma og fagnaðarerindi evr- ópska efnahagssvæðisins. Mig grunar að það hafi verið fýrrverandi Skagamaðurinn Björn heitinn Þórleifsson sem orti þá upp aldamótaljóð Hannesar Hafstein: Flýgur með hatt og frakkalöfúm þöndum fagnaðarboði meðfram Islands ströndum. „Frelsist þú þjóð úr fomeskjunnar böndum, fríverslun shinda skal með öðnim löndum". ísletiska þjóð sem Framsókn réð til foma; farsœld og manndáð vek oss endurboma. Forgefins er gegtt frjálshyggjunni að sporna forrœðishyggjulindir eru að þoma. Sé ég í anda opnast lendur víðar, evrópskar borgir, skóga fjöll og hlíðar. Hugsa sér, íslattds fjánnagnslindir fríðar flœðandi lit í anda ttýrrar tíðar. Hingað til veiða sé ég brœður boðna, bátanna dekk af karfahaugum roðna. Lattdstnentt þó síst á keppni þeirri koðna, kemur í staðinn Grœnlandsmiðaloðna. Sú kemur tíð er sárin foldar gróa, sveitirnar tæmast, breytast tún í móa. Matvœlin skaffar tnarkaðsaflið frjóa tnenningin deyr, - við látum hatta róa. í markaðsaðild möguleiki er faiinn tnagnaður gróði í viðskiphmum talinn, andmœlunt hreyfir einkum kotntni galinn er evrópskir vinir kattpa Hörgárdalinn. Viðskiptin eflist víst er okkar krafa vellur inn meira úrval jólagjafa. Fraktskipin afhir flytja út án vafa fáránleg býstt af appelsíttusafa. Sé ég í Bmssel fjölda tölvutniða tiplandi um í tnöppudýraskníða og vítt um löndin velgreidda og prúða viðskiptaflœði stjórna - milli búða. Sé ég í Strassburg tnarga þjóð á þingi, þar er frá okkur mœttur Tómas Ingi, messar á frönsku yfir almenningi ákaft setn fagnar tnœlskum ttorðlettdingi. Dagur er liðinn, öld aföld er borin efhahagssvœðið er sól er skapar vorin. eimreiðitt „Framtíð" áfratn rennur sporin alla sem hana tnissa fellir horinn. Með þökk fyrir leshirittn Dagbjarhir Dagbjartsson Refsstöðum 320 Reykholt S 435 1367 dd@hvippitm.is

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.