Skessuhorn - 23.06.2004, Blaðsíða 6
6
MIÐVIKUDAGUR 23. JXJNÍ 2004
jatasutlu...
Pétur Geirsson kaupir Hótel Stykkishólm
Annað skipti sem bæjarstjórinn og Pétur gera sambærileg viðskipti
Pétur Geirssor skrifar tékkann, sem var útborgun hans í Hótel Skykk-
ishólmi. Óli Jón formaður stjórnar Hóteiféiagsins Þórs og bæjarstjóri
fylgist með.
Eins og fram kemur á forsíðu
blaðsins keyptu feðgarnir Pétur
Geirsson og Jón Pétursson í
Borgarnesi allar eignir Hótel
Stykkishólms sl. föstudag. Kaup-
in áttu sér skamman aðdraganda,
en alls liðu einungis 45 tímar ff á
því þeim feðgum var boðin eign-
in til kaups og þar til búið var að
skrifa undir kaupsamning og
þeir tekið við rekstrinum. Að
sögn Ola Jóns Gunnarssonar
bæjarstjóra var lögð mikil á-
hersla á að flýta söluferlinu eins
og kostur var efrir að ljóst var að
Hótelfélagið Þór ehf., sem alfar-
ið er í eigu Stykkishólmsbæjar,
þurfti að leysa til sín rekstur hót-
elsins í samráði við fyrrum
rekstraraðila. „Við vildum flýta
sölunni eins og kostur er þar sem
ffamundan er mikill álagstími í
ferðaþjónustu og því brýnt að fá
fagaðila að rekstrinum hið allra
fýrsta," sagði Óli Jón í samtali
við Skessuhorn. Til gamans má
('(/'({/UUU'
geta þess að þetta er ekki í fyrsta
skipti sem þeir félagar Óli Jón
Gunnarsson og Pétur Geirsson
gera slíka samninga, en Óli Jón
BB
ppf=
Hótel Stykkishólmur.
var einmitt bæjarstjóri í Borgar-
nesi þegar Pétur keypti Hótel
Borgarnes fyrir um 12 árum síð-
Munum skoða
stækkun
Kaupverð hótelsins var 110
milljónir króna. Að sögn bæði
fulltrúa seljenda og kaupenda
hótelsins er verðið vel viðtmd-
andi og eðlilegt miðað við ástand
eignarinnar, staðsetningu og
rekstur. Agætar pantanir eru á
hótelið í sumar og er um nokkra
aukningu á nýtingu að ræða
miðað við síðari ár. Pétur kveðst
bjartsýnn á reksturinn í sumar en
segir hinsvegar að rekstur slíkra
hótela á landsbyggðinni sé mun
erfiðari yfir vetrartímann og vís-
ar þar til nýtingarhlutfallsins.
„Við munum skoða í haust
hvernig við háttum rekstrinum í
vetur, hvort við förum í mark-
aðssókn eða drögum úr rekstri
yfir háveturinn þegar lítið er að
gera.“ Pétur dregur þó ekki dul á
að hann hefur mikla trú á hótel-
rekstri í Stykkishólmi. „Við
munum á haustdögum kanna
möguleika þess að tvö-
falda gistirými hótelsins
með því að byggja ofan á
það tvær hæðir til viðbót-
ar, en fyrir liggur bygg-
ingarréttur til slíks,“ segir
Pétur. Um yrði að ræða
tvöföldun á gistirými ffá
því sem nú er en það tek-
ur 64 í gistingu í 33 her-
bergjum.
Nesið er vannýtt
auðlind
Sambyggt hótelinu er sam-
komuhúsið og gera bæði fulltrú-
ar kaupenda og seljenda ráð fýr-
ir því að samið verði um að hót-
elið haldi áffam rekstri þess.
Pétur Geirsson er tvímæla-
laust enginn nýgræðingur í
ferðaþjónustu því hann rak
Umsjón: Irís Arthúrsdóttir.
Spínatdýfa í brauðkollu
Eg smakkaði þennan fallega
smárétt úti á Florida og féll al-
veg fýrir honum. Eg trúði því
varla þegar mér var sagt að það
væri spínat í honum því þetta
er svo gott að maður getur
ekki hætt að borða. I þessari
uppskrift er dýfan sett í
kringlótt brauð en það má líka
bera hana fram með
ritzkexi, eða sprauta
fýllingunni inn í litl-
ar vatnsdeigsbollur
ef maður er með
kokteilboð.
Brúnt kringlótt
branð
1 pakkifrosið spínat
1 lítill rauðlauknr
saxaður
1 dás sýrður rjómi
2 msk majones
1 pakki púrru/ostasúpa (líka
gott að nota kremaða græn-
metissúpu)
2 bréf hunangsskinka frá SS
1 dós vatnskastaníur (Water
Chestnuts, spyrjið um þær í
búðinni, þær eru ómissandi)
Þýðið upp spínatið og
kreistið úr því vatnið. Setjið
spínatið, súpuna, majonesið og
sýrða rjómann í matvinnsluvél
og maukið það vel. Skerið
skinkuna í litla bita og saxið
vatnskastaníurnar niður og
hrærið þessu út í dýfuna. Gott
að láta þetta taka sig í nokkra
tíma i ísskáp til að súpan nái að
samlagast. Takið brauðið,
sneiðið af því kollinn og tætið
innan úr því í bitum. Hellið
dýfunni í brauðið, setjið á stór-
an disk og raðið brauðbitunum
í kring.
HUSRAÐ
Haldið steinselju ferskri lengur
með því að geyma hana í glerkrukku
með þéttu loki.
Hreðavatnsskála í áratugi og nú
síðustu 12 árin hefur hann átt og
rekið Hótel Borgarnes. „Eg hef
ágæta trú á ferðaþjónustu í
Guðni Halldórsson nýr hótel-
stjóri í Stykkishólmi.
Stykkishólmi og tel að hér séu
margar vannýttar auðlindir. Hér
er mikið fugla- og dýralíf, eyj-
amar og síðast en ekki síst Snæ-
fellsnesið sjálft. Hér í nágrenn-
inu er ýmis nauðsynleg þjónusta
á borð við sundlaug og golfvöll
og hér hefur byggst upp öflug
matarmenning síðari árin og
rótgróið fýrirtæki í fugla- og
náttúmskoðunarferðum. Það er
því engin ástæða til annars en að
líta björtum augum til ffamtíð-
arinnar í ferðaþjónustu hér í
Hólminum,“ sagði Pétur Geirs-
son að lokum.
MM
Aðsókn á hátíðardagskrána á Akratorgi var góð, enda veður með
besta móti.
17. júní á Akranesi
Hátíðarahöld á 17. júní á
Akranesi fóm fram með pomp
og prakt í sólríku en nokkuð
vindasömu veðri. Þátttaka í há-
tíðardagskrá sem hófst með
fánahyllingu á Akratorgi var
góð og settu litríkar blöðrar,
fánar og prúðbúnir gestir há-
tíðlegan svip á torgið. Þegar
fjallkonan, Jónína Víglundsótt-
ir, hafði stigið á stokk gekk
Helga Viðarsdóttir í pontu og
flutti hátíðarræðu sem gerður
var góður rómur að. í ræðu
sinni benti Helga m.a. á að það
væri fólkið í bænum sem skap-
aði bæjarbraginn og að 17. júní
væri kjörinn til þess að staldra
Þeir sem hafa áhuga á að láta birta uppáhalds uppskriftina
sína geta sent hana inn ásamt ljósmynd af sjálfum sér eða réttinum (500 kb eða
stærri), fullu nafni, heimilisfangi og síma á netfangið iris@skessuhorn.is
Það er ekki oft nú á dögum
sem gefst tilefni til þess að
spóka sig í faldbúningi. Hjónin
Guðjón Sólmundarson og
Sigríður Karen Samúelsdóttir,
en hún saumar búninginn sjálf.
Ávarp fjallkonunnar á Akra-
torgi. Að þessu sinni var það
Jónína Víglundsdóttir sem var
í hlutverki hennar.
Myndir: Hilmar S og ALS
við og velta því fýrir sér hvers
konar samfélagi við í samein-
ingu viljum byggja upp. Að því
loknu var við hæfi að syngja
þjóðsönginn og finna þjóð-
arstoltið hríslast um kroppinn,
en það var Kirkjukór Akraness
sem leiddi sönginn.
Að lokinn dagskrá á Akra-
torgi hélt skrúðganga, sem var
allvegleg í ár, að íþróttahúsinu
við Vesturgötu þar sem boðið
var upp á skemmtiatriði ffam
eftir degi. Fjöldi manns sótti
einnig kaffilhlaðborð í Vina-
minni, fékk sér vöflu og kaffi í
Hvíta húsinu, sótti myndlista-
sýningu í Kirkjuhvoli eða
sprellaði í Garðalundi.
Um kvöldið skellti yngri
kynslóðin sér á Skagarokk en
hinir eldri dilluðu sér við
harmónikkuspil fram eftir
kvöldi. Að sögn lögreglu gengu
hátíðarhöldin vel og árekstrar-
laust fýrir sig. ALS