Skessuhorn


Skessuhorn - 30.06.2004, Blaðsíða 4

Skessuhorn - 30.06.2004, Blaðsíða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 30.JUNI2004 SSS2SSUHÖEI WWW.SKESSUHORN.IS Bjarnarbraut 8 - Borgarnesi Kirkjubraut 54-56 - Akrunesi Simi: 433 5500 Fox: 433 5501 SkRIFSTOFUR BLAÐSINS ERU OPNAR KL. 9-14 ALLA VIRKA DAGA Útgefandi: Skessuhorn ehf Frnmkv.stj. og blm. Magnús Magnússon Ritstjóri og óbm: Gísli Einorsson 899 4098 Augl. og dreifing: íris Arthúrsdóttir 696 7139 Umbrot: Guðrún Björk Friðriksdóttir 437 1677 Prentun: Prenlmet ehf. 433 5500 skessuhorn@skessuhorn.is 894 8998 mognus@skessuhorn.is ritstjori@skessuhorn.is iris@skessuhorn.is gudrun@skessuhorn.is Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14:00 á eudögum. Auglýsendum er bent a að panta auglýsingaplass tímanlega. ifrestur smáauglýsinga er ti 12:00 á priojudögum. Blaðið er gefið út i 4.000 eintökum og selt til áskrifenda oa í lausasölu. Askriftarverð er 850 krónur með vsk. á mánuði en krónur/50 sé greitt með greiðslukorti. Verð í lausasölu er 300 kr. 433 5500 s A hestbald Framundan er sæluvika á Vestur- landi líkt og í flestum öðrum lands- hlutum að Suðurlandi undanskildu. Astæðan er einföld og að sama skapi ánægjuleg en í vikunni er Landsmót hestamanna haldið ein- hverstaðar í nágrenni við Hellu eða jafhvel þar fyrir neðan, þær allar þ.e.a.s. Hestamenn eru sem kunnugt er mestir ófriðar- menn hér á landi og þó mun víðar væri leitað og má því telja það allgóða hugmynd að safna þeim öllum saman á einn stað í vikutíma þó ekki sé nema á tveggja ára ffesti. Það eykur mjög á friðsæld á öðrum landssvæðum rétt á meðan. Sjálfur hef ég reyndar ekkert á móti hestamannamótum og einmitt af þeirri ástæðu sem fyrr greinir því ófriðarmenn geta verið manna skemmtilegastir og því alveg forsvaranlegt að um- gangast þá ef það er gert með varfærni. Gallinn við mót af þessu tagi er hinsvegar sá að þar er gjarnan haugur af hestum. Eg segi samt ekki að mér sé illa við hross. Það er full djúpt í árinni tekið. Eg ber hinsvegar mjög hóflegt traust til þessara fjórhófhadriftiu farartækja. Það kann reyndar að vera að sú af- staða mótist að nokkur leyti af því að þegar ég var á tíunda vetri lenti ég í smávægilegum útistöðum við alsparigæðing þáver- andi nágranna mín. Þer eru reyndar báðir horfnir í önnur hagalönd og því óviðurkvæmilegt að blanda þeim ffekar í mál- ið. Þó verður að geta um málavöxtu í stórum dráttum en í stuttu máli voru atvik með þeim hætti að ég tók einhliða á- kvörðun um að fara í stuttan reiðtúr. Það varð upphafið að á- greiningi milli mín og gæðingsins sem ágerðist síðan eftir því sem leið á ferðina og varð að lokum það djúpstæður að klárinn ákvað að lokum að beita aðskilnaðarstefnu með mjög afgerandi hætti. Segir þá ekki meira af ferðum mínum fyrr en á Sjúkra- húsi Akraness en þar lauk þessum reiðtúr mínum og varð hann því nokkuð lengri en ég hafði ætlað. Ég er svosem ekki að kvarta enda hef ég uppgötvað þægilegri og hraðskreiðari ferðamáta en að hengslast klofvega á húðar- klár. Eini kosturinn sem ég sé við hross sem samgöngutæki er að lítil hætta er á að það hrúgist upp hraðasektir ef þau eru nýtt einvörðungu. Það á í það minnsta við þau hross sem ég hef brúkað. Þrátt fyrir mína reynslu get ég að sumu leyti skilið fólk sem hefur gaman af því að ríða um landið. Eg get afturámóti ekki skilið hestamennsku eins og hún er stunduð í dag en hún bygg- ist fyrst og fremst á því að keyra með hrossin landshlutanna á milli í þar til gerðum vögnum. Gísli Einarsson, afbaki dottinn Hluti hópsins á uppleið. Jónsmessuganga á Akrafjall Góð þátttaka var í Jóns- messugöngu á Akrafjall sl. föstudag en 109 göngumenn skráðu sig í gestabókina á Háa- hnjúki. Lagt var upp ffá Vatns- veitu Akraness og tók gangan um tvær klukkustundir. Að henni lokinni skelltu sér margir í sundlaugina sem var opin fram eftir nóttu af þessu tilefni. Það er óhætt að segja að fjallið hafi skartað sínu fegursta og þeir sem lögðu á sig erfiðið við að kh'fa fjallið fengu það ríku- lega launað með seiðandi sólar- laginu og ægifögru útsýni af tindinum. ALS Dauðans alvara Skagaleikflokkurinn mun taka virkjan þátt í hátíðahöld- um Irskra daga á Akranesi 9. - 11. júlí. Hópur unglinga er að æfa fyrir götuleikhúsið og einnig verður flutt örleikrit eftir írska Nóbelsskáldið Samuel Beckett. En hæst ber fyrsta frumsýning á 30 ára af- mælisári Skagaleikflokksins en hún verður á Breiðinni þriðju- daginn 6. júlí. Frumfluttur verður gamanþáttur eftir Gunnar Sturlu Hervarsson sem heitir „Dauðans alvara“. Gunnar Sturla hefur starfað með Skagaleikflokknum í nokkrum leikritum en stærsta verkefni hans er söngleikurinn „Frelsi“ sem hann ásamt Flosa Einarssyni sömdu og stjórn- uðu með nemendum Grunda- skóla. Gunnar Sturla leikur sjálfur í þættinum sem er eintal og inní eru fléttuð tónlistarat- riði. Fyrsta sýning verður eins og áður sagði 6. júlí kl. 20.00 en síðan verða sýningar 8. 9. og 10. júlí. Allar sýningarnar eru á Breiðinni og hefjast kl. Mesta fylgi forsetans Eins og margir tóku eftir fóru fram forsetakosningar hér á landi sl. laugardag. Niður- stöður þessara kosninga voru um margt athyglisverðar og er ekki ýkt þegar fullyrt er að þetta hafi verið litlausustu kosningar hér á landi um langt skeið. Kjörsókn var enda með eindæmum lítil auk þess sem fimmtungur þeirra sem þó mundu eftir að fara á kjörstað, gleymdi að kjósa, eða gerði það ekki. Niðurstaðan varð engu að síður sú að Ólafur Ragnar Grímsson forseti fékk um 85% gildra atkvæða og er því rétt kjörinn forseti til næstu fjögurra ára. Talningu atkvæða í Norð- vesturkjördæmi lauk um klukkan 6:30 í Borgarnesi á sunnudagsmorgun en atkvæði greiddu 13.496 manns af 21.145 sem á kjörskrá voru í kjördæminu, eða 63,8%. Ólaf- ur Ragnar hlaut 10.143 at- kvæði eða 75,5%, sem jafn- framt var besta kosning hans miðað við önnur kjördæmi landsins. Baldur Agústsson fékk 1.241 eða 9,2% ogÁstþór Magnússon fékk heil 134 at- kvæði eða nákvæmlega heilt prósent. Auðir seðlar voru 1.902 eða 14,2% og ógildir seðlar voru 76. MM Eftir einn... Sex ökumenn voru stöðvað- ir, grunaðir um ölvun við akst- ur, í Ólafsvík um helgina. Sjá sjöundi var svo stoppaður á sömu forsendum á mánudag. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglumii á Snæfellsnesi er þetta óvenjustór vikuskammtur af ölvunarakstri á svæðinu. GE s Arekstur við Munaðames Sjö voru fluttir á heilsu- gæslustöðina í Borgarnesi og sjúkrahús í Reykjavík til að- hlynningar eftir árekstur tveggja bifreiða við Munaðar- nes í Borgarfirði á fimmtu- dagskvöld. Samkvæmt upplýs- ingum frá lögreglu reyndust meiðsli fólksins ekki alvarleg. Nýtt útilistaverk Sýning á tillögum að nýju útihstaverki á lóð Sjúkrahúss- ins og heilsugæslustöðvarinn- ar á Akranesi hangir nú uppi í anddyri SFIA. Aðdragandi þessara þriggja tillagna var að þrjár listakonur höfðu verið valdar til að fullgera útfærslu að listaverki sem endanlega yrði valið. Það voru þær Inga S Ragnarsdóttir, Ólöf Nordal og Steinunn Þórarinsdóttir. Við stutta athöfn sem fram fór í anddyri SHA í gær var upplýst að tillaga Ingu S Ragnarsdóttur hefði verið vahn. Verkið heitir Hringrás og verður það unnið úr graníti en um það rennur læk- ur og myndar foss í verkinu, en í lýsingu Ingu á verkinu segir einmitt m.a. að verkið byggi á þeirri staðreynd að vatn er uppspretta lífs. I dóm- nefnd um val á verkinu voru Sigurður Ólafsson (form) og Helgi Hjálmarsson f.h. SHA og Kristín Reynisdóttir sem tilnefhd var af SIM til að sitja í nefndinni. MM Nýr áskríftar- leikur Skessuhorn heldur áfram með áskriftarleikinn. En hann felst í að mánaðarlega er dreg- ið út nafh SKULDLAUSS á- skrifanda og fær viðkomandi vinning í boði fyrirtækis á Vesturlandi. Vinningshafi síð- asta mánaðar var Hugrún Reynisdóttir Kjarláksvöllum í Saurbæ og fékk hún 20 þús- und króna gjafabréf í Verslun- inni Bjargi á Akranesi. 20. júlí verður næst dregið í leiknum. Vinningur mánaðar- ins kitlar sannarlega bragð- laukana, því þá fær heppinn á- skrifandi hátíðarmálsverð fyrir tvo á Veitingahúsinu Narfeyr- arstofu í Stykkishólmi. MM

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.