Skessuhorn


Skessuhorn - 30.06.2004, Side 5

Skessuhorn - 30.06.2004, Side 5
^kUSUIU/i. MIÐVIKUDAGUR 30. JUNI 2004 5 Hrun í gestafjölda á Húsafelli Magakveisan sem gerði vart við sig í Húsafelli fyrr í sumar hefur haft merkjanleg áhrif á aðsókn gesta að Húsafelli sem og að öðrum ferðaþjónustu- stöðum í uppsveitum Borgar- fjarðar það sem liðið er af sumri. Allir stærstu ljósvaka- og prentmiðlar hafa hver í kapp við annan flutt fréttir af þessari magakveisu sem talin er rakin til svokallaðrar Noro-veirusýk- ingar sem er bráðsmitandi veira sem smitast á milli manna með saurmenguðum neysluvörum og vatni auk þess að smitast milli manna sem þurfa þó ekki að koma nær hver öðrum en 9 metra. Noro veiran er algeng- asta orsök fyrir magakveisu t.d. í Bandaríkjunum en þar í landi fá 23 milljónir manna kveisuna árlega. Veikin kom m.a. upp í Húsafelli í vor en auk þess hef- ur hún greinst á fjölda vinnu- stað, dvalarheimila víða um land án þess að slíkt vekti sér- staka athygli fjölmiðla. Því hafa menn rætt að umfjöllun fjöl- miðla hafi verið nokkuð einsleit og vilja sumir meina að nánast sé hægt tala um aðför að þeim ferðaþjónustuaðilum sem eiga mikilla hagsmuna að gæta. Benda má á mikilvægi þess að fjallað sé um viðkvæm mál af þessu tagi af hlutleysi og virð- ingu fyrir þeim sem lífsafkomu sína eiga undir þjónustu. Ómengað vatn Kastljós fréttamiðla hefur einkum beinst að því að neyslu- vatn í Húsafelli sé mengað af Noro-veirunni og því haldið fram að beinlínis sé hættulegt að sækja staðinn heim af þeim sökum. Því hefur víðtæk sýna- taka farið fram á vatninu og þau send til rannsóknar í Finnlandi þar sem veirusýni af þessu tagi eru ekki rannsökuð hér á landi. Send voru 9 sýni m.a. úr vatns- bólum staðarins og nú hafa borist niðurstöður úr 5 þeirra og sýna þær allar að vatnið í Húsafelli er allsendis ómengað. Ekk- ert hefur því fundist sem bendir til að neysluvatnið í Húsafelli sé sýkt, en frekari rannsóknir eru í gangi, að sögn heima- manna. Engu að síður er það staðreynd að fólk sem dvaldi í Húsafelli veiktist fyrr í sumar, en margt sem bendir til að smitleiðir séu aðrar en með vatni, eða svipaðar og aðrar bráðsmitandi pestir dreifa sér þar sem margt fólk kemur saman. Vamið í Húsafelli hefur fram til þessa verið róm- uð fyrir gæði, enda um kaldavernsl að ræða, vatn sem sýast í gegnum hraun frá Langjökli, er alltaf 4 gráðu kalt og gott til drykkjar. Eftir að sýkingin kom upp í Húsafelli og grunur beindist að því að vatns- ból Húsafells væri hugsanlega mengað var strax ráðist í borun á nýrri neysluvatnsholu og vatnið úr henni tengd inná neysluvamskerfi staðarins. Stórtjón Aðspurður um áhrif af veik- inni og umfjöllunar um hana segir Bergþór Kristleifsson landeigandi í Húsafelli að sum- arið hafi lofað mjög góðu í vor því þar hafi allt verið fullt um Hvítasunnuhelgina þegar veik- in kom fyrst upp. „Næstu helgi á eftir var einnig þokkaleg en fólk veiktist og farið var að kanna orsakir magakveisunnar. I kjölfar þess fóru fjölmiðlar af stað með nokkuð einsleita um- fjöllun um málið, eins og fólk þekkir, og gestafjöldi í kjölfarið eða allan júnímánuð hefur nær alveg dottið niður,“ segir Berg- þór. I venjulegum júnímánuði er Bergþór Kristleifsson í Húsafelli. ekki óalgengt að 8-10 þúsund gestir heimsæki Húsafell. Því er tjón ferðaþjónustuaðila þar sem og annarsstaðar í héraðinu nú þegar orðið umtalsvert og hleypur á mörgum milljónum króna. Vonir eru þó bundnar við að ferðasumarið eigi eftir að skána og gestir eigi eftir að gera sér glaðan dag á svæðinu, enda um rómaða náttúruparadís að ræða. Bergþór segir að heima- menn í Húsa- felli hafi tekið á- kveðið á málun- um til að lág- marka þann skaða sem pest- in og umfjöllun um hana hefur valdið. „í kjölfar varúðarráðstaf- ana sem við höf- um gert og þess að veikin er greinilega yfir- staðin, vonast ég til að ferða- fólk víli ekki fyrir sér að h e i m s æ k j a Húsafell og aðra staði í Borgar- firði, enda hafa allar varúðarráðstafanir verið gerðar og verður haldið áffam. Þó er rétt að hvetja gesti okkar sem og ferðamenn almennt til að gæta ítrasta hreinlætis og að vanda handþvott á ferðamanna- stöðum, hvar sem það er statt á ferðum sínum,“ segir Bergþór að lokum. MM Þ&E til sölu Ingólfur Árnason stærsti eig- andinn í Skaganum hf. hefur tekið við framkvæmdastjórn hjá fyrirtækinu eins og fram hefur komið í Skessuhorni. Sigurður Guðni Sigurðsson, sem gegnt hefur starfinu und- anfarin ár, hefur sagt upp störf- um og er nú að ljúka nokkrum verkefnum fyrir fyrirtækið, að eigin sögn. Sigurður Guðni er enn starfandi framkvæmda- stjóri Þ&E, eða fram til hausts- ins, en hann hefur verið fram- kvæmdastjóri beggja fyrirtækj- anna undanfarin ár. „Eg hef 6 mánaða uppsagnarfrest og mun hætta alveg í síðasta lagi í haust þar sem ég mun taka út frí í lok uppsagnarfrestsins,“ segir hann aðspurður um hvenær starfslok hans eru fyrir- huguð. Aðspurður segist Sig- urður Guðni vera að skoða í kringum sig með nýtt starf, en vill ekkert gefa nánar upp um slíkt að svo stöddu. Aðalfundur Þ&E var haldinn sl. mánudag en fyrir fundinn var lögð tillaga um að heimila stjórn að selja rekstur fyrirtæk- isins fyndust kaupendur að honum. Aðspurður sagði Sig- urður Guðni að þessi heimild væri lögð fyrir aðalfund til að auðvelda hugsanlegar skipu- lagsbreytingar hjá fyrirtækinu. MM Auglýsing um samkeppni um gerð byggðamerkis fyrir Skorradalshrepp Bergarfjarðarsýslu Hreppsnefnd Skorradalshrepps samþykkti á fundi sínum að óska eftir tillögum að byggðamerki fyrir sveitarfélagið. Skráning byggðamerkja á sér stoð í 5. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998 og um þau gildir reglugerð nr. 112/1999. Nánari upplýsingar um kröfur sem gerðar eru til byggðamerkis er að finna á vef Einkaleyfisstofnunar, www.els.is Tillögum skal skilað inn fyrir 31. ágúst n.k. til Oddvita Skorradalshrepps, Grund, 311 Borgarnes. Verðlaun fyrir vinningstillöguna eru kr. 50.000,- Oddviti Skorrdalshrepps Ágætu Vestlendingar Hef hafið störf að nýju eftir 3ja ára sémám við University of North Carolina í Bandaríkjunum. Hlakka til að sjá gömul og ný andlit Jónas Geirsson tannlœknir,MS Sérmenntun: Tannfyllingar, 5annsjúkdómar og tannlýtalækningar. Tannlœknastofa J.G. Akranesi. Ti'mapantanir í síma 431-2355 Heilsugæslustöðin Búðardal. Tímapantanir í síma 434-1445

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.