Skessuhorn


Skessuhorn - 15.09.2004, Blaðsíða 4

Skessuhorn - 15.09.2004, Blaðsíða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 15. SEPTEMBER 2004 Bjarnarbraut 8 - Borgarnesi Sími: 433 5500 Kirkjubraut 54-56 - Akranesi Fax: 433 5501 SKRIFSTOFUR BLAÐSINS ERU OPNAR KL. 9-14 ALLA VIRKA DAGA Útgefandi: Skessuhorn ehf 433 5500 Framkv.stj. og blm. Magnús Magnússon 894 8998 Ritstjóri og óbm: Gisli Einarsson 899 4098 Augl. og dreifing: íris Arthúrsdóttir 696 7139 Umbrot: Guðrún Björk Friðriksdóttir 437 1677 Prentun: Prentmet ehf. skessuhorn@skessuhorn.is mognus@skessuhorn.is ritstjori@skessuhorn.is iris@skessuhorn.is gudrun@skessuhorn.is Skessuhorn kemur út alla miðvi þriðjudögum. Auglýsendum er Skilafrestur smúauglýsinga er ti rudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14:00 á tent a að panta auglýsingaplass tímanlega. 112:00 á priðjudöqum. Blaðið er gefið út i 4.000 eintökum og selt til áskrifenda oa i lausasölu. Áskriftarverð er 850 krónur með vsk. á mánuði en krónur/50 sé greitt meö greiðslukorti. Verð í lausasölu er 300 kr. 433 5500 Virkjana- kostir Það er nokkuð merkilegt í allri um- ræðu um hvað skuli virkja og hver skuli virkja, hvenær og hvers- vegna eða alls ekki, þá skuli aldrei hafa verið minnst á ónýtta eða vannýtta orku sem býr í íbúum þessa lands. Þar fara ótilgreind megavött til spillis á degi hverjum án þess að Vinstri grænir eða aðrir litir öðru megin geri nokkra athugasemd við það. Að undanförnu hafa heilsuspekúlantar slegist um að tjá á- hyggjur sínar af því að æska landsins sé að tútna út það mikið vegna offitu og hreyfingarleysis að af henni stafi sprengihætta. Vissulega hefur verið reynt að koma henni á hreyfingu og ekki skortir ffamboðið af líkams-, og heilsuræktarstöðvum þar sem ungum sem öldnum stendur til boða að hlaupa af sér spikið á þar til gerðum hlaupabrettum eða teygja sig og reigja í alls konar tól- um og tækjum með tilheyrandi slysahættu. Vissulega eru þessi tól til þess gerð að bæta heilsuna en það ber líka að hafa í huga að þau geta valdið líkamstjóni og þar er ég ekki að blaðra eitt- hvað út í bláinn, enda er mér það ekki tamt, heldur þekki ég dæmi um að menn hafi lent í hálfgerðri ef ekki algjörri lífshættu við notkun líkamsræktartækja. Einn góður kunningi minn varð t.d. fyrir því ekki alls fyrir löngu að festast í slíku tæki og var hann í sjálfheldu hluta úr degi matarlaus og vatnslaus. Það vildi honum hinsvegar til happs að hann er ffekar vinsæll maður í sinni heimasveit og því komu nærstaddir honum til bjargar. Hefði þetta hinsvegar verið einhver leiðindabelgur er óvíst að nokkur hefði hirt um að grípa skrúflykilinn og losa hann úr prís- undinni og gæti hann því allt eins verið þar enn. Tvískinnungshátturinn í þessu öllu saman er síðan sá að á meðan þúsundir manna greiða stórfé fyrir að fá að svitna og jafh- vel misbjóða útlimum sínum þá eru í það minnsta þónokkrir sem fá greitt fýrir að hreyfa sig. Þar fara ffemstir í flokki fótboltagutt- ar, handboltakjánar og körfuboltaspírur sem djöflast á affnörk- uðu svæði í 60 til 90 mínútur á viku fyrir offjár. Þess ber líka að geta að í ffamleiðslu á öllu því ógrynni af lík- amsræktartækjum og tólum sem notuð eru til að ná spikinu af landsmönnum hefur farið ofboð af orku. Hinsvegar hefði mátt slá tvær flugur eða fleiri í einu vindhöggi með því að nýta alla þessa orku sem fer til ónýtis á líkamsræktarstöðvum landi og þjóð til gangs. Því ekki að tengja þessa skokkara og spriklfígúrur við rafal og láta þá hamast sem óðast og nýta orkuna um leið. Þess heldur mættd nota þetta lið í smalamennskur, til að grafa skurði eða grafir fyrir þá sem hafa offeynt sig á líkamsræktar- stöðvum landsins. Gtsli Einarsson, beilbrigð sdl í hraustum líkama. Gísli Einarsson, Virkasta samgöngunefhdin Frá fundi Samgöngunefndar Vesturlands í Hyrnunni í Borgarnesi. Síðastliðinn fimmtudag hélt samgöngunefnd Samtaka sveitar- félaga á Vesturlandi, undir for- ystu Davíðs Péturssonar á Grund í Skorradal, fund með þing- mönnum Norðvesturkjördæmis og fulltrúum Vegagerðarinnar. Samkvæmt upplýsingum Skessu- horns mun það vera einstakt á landsvísu að sveitarfélög eða landshlutasamtök þeirra skuli hafa svo öfluga samgöngunefnd sem fundar reglulega með þing- mönnum. A fundinum sem haldinn var í Borgarnesi, kom fram að sveitar- stjórnarmenn á Vesmrlandi hafa Undirbúningsfundur að stofnun félags til stuðnings Heiðarskóla í Borgarfirði var haldinn þriðjudaginn 7. septem- ber síðasdiðinn. Alls sóttu 42 velunnarar skólans fundinn en á honum spunnust talsverðar um- ræður um stöðu skólans og gildi hans í samfélaginu sunnan Skarðsheiðar. Fundarmenn voru sammála um að standa þurfi vörð um skólann og framtíð hans. Fram kom hjá mörgum fund- armanna að sameining hrepp- anna fjögurra sem standa að rekstri skólans væri nauðsynleg til að hægt væri að tryggja ffam- tíð Heiðarskóla. Skólinn sinni mikilvægu hlutverki innan sam- félagsins og veiti góða þjónustu sem íbúar hreppanna vilji ekki vera án. Fram kom einnig að búseta fjölmargra íbúa hrepp- anna væri háð því að skólinn starfaði áfram og því væri viðbú- Á síðasta fundi Heilbrigðis- nefndar Vesmrlands sem haldinn var í Borgarnesi síðasdiðinn mið- vikudag var meðal annars rætt um sýkingu sem kom upp í Húsa- felli í sumar og olli miklu fjöl- miðlafári með umtalsverðum af- leiðingum fyrir ferðaþjónusmna í Borgarfjarðarhéraði. Fram- kvæmdastjóri heilbrigðisnefndar- innar greindi ffá því að sambæri- leg mál hefðu komið fram víða um land en ekki fengið sömu meðhöndlun. A fundinum var rætt um hver ætti að bera kostn- aðinn við sýnatökur og rann- miklar áhyggj- ur af því að vegafé verði skorið niður og að það bitni mest á Vestur- landi. I öllu Norðvestur- kjördæmi eru ekki fýrirhug- aðar neinar stórffamkvæmdir á næstu árum, ef ffá er talin stækkun álversins á Grundartanga. Því er engin spenna í hagkerfinu á þessu svæði sem þarf að mæta með samdrætti af hálfu hins opinbera. Sveitar- ið að fólk flyttist í burm ef skól- ans nyti ekki lengur við sem hefði í för með sér tilheyrandi kostnað og lækkun fasteigna- verðs. Margir fundarmenn benm loks á að það öryggi sem nemendur búa við og sú um- hyggja sem þeim er sýnd í Heið- arskóla verði seint metin til fjár. A fundinum var skipuð undir- búningsnefnd að stofhun félags til smðnings Heiðarskóla og í lok fundarins var eftirfarandi á- lykmn samþykkt: „Fundur um stofnun félags til stuðnings Heiðarskóla haldinn þann 7. september 2004 gerir þá kröfu til sveitarstjórna Hval- fjarðarstrandarhrepps, Innri- Akraneshrepps, Leirár- og Melahrepps og Skilmanna- hrepps að ffamtíð Heiðarskóla verði tryggð. Jafnffamt að mót- uð verði skýr framtíðarstefna um áframhaldandi reksmr skól- ans.“ MM sóknir sem fóm fram vegna þessa máls. Fundarmenn vom sammála um að heilbrigðisnefndin ætti ekki að bera allan kosmað þar sem ákvörðun um frekari sýna- tökur hefði verið tekin á sameig- inlegum fundi heilbrigðisnefnd- ar, Landlæknisembættisins, Um- hverfisstofnunar og fleiri aðila. Fundurinn samþykkti að senda bréf til Umhverfisstofnunar þar sem því væri hafnað að heilbrigð- isnefnd Vesmrlands bæri allan kosmað við rannsóknirnar og um leið farið ffam á að slík mál væm samræmd yfir landið. GE stjórnarmenn brýndu því þing- menn í að beita sér fýrir því að ekki verði skorið niður ffamlag til vegamála í Norðvesturkjör- dæmi. _________________GE Vinmibúðir kannaðar Bæjarráð Borgarbyggðar hefur farið fram á að bæjar- verkfræðingur, heilbrigðis- fulltrúi og slökkviliðsstjóri geri úttekt á vinnubúðum á athafnasvæðum verktaka í Borgarbyggð. Að sögn Páls Brynjarssonar bæjarstjóra er samþykktin gerð í ffamhaldi af ábendingu umhverfis- og skipulagsnefndar en talið er að íbúum í vinnubúðum á svæðinu hafi fjölgað töluvert að undanförnu og er að rniklu leyti um erlenda verka- menn að ræða. „Það hefur engin kæra borist vegna þessa og við höfum enga sér- staka ástæðu til að ætla að að- búnaður sé í ólagi en mönn- um þótti rétt að láta kanna þessi mál til að hafa allt á hreinu,“ segir Páll. GE Skátahúsið flutt Bæjarverkfræðingi Borgar- byggðar hefúr verið falið að undirbúa flutning Skátahúss- ins í Borgarnesi sem nú stendur við Borgarbraut. Að sögn Páls S Brynjarssonar bæjarstjóra liggur fýrir að byggt verður tíu íbúða hús á lóð VlS-hússins svokallaða sem eitt sinn hýsti útibú Kaupfélags Borgfirðinga. „Það gæti orðið seint á þessu ári og það er ljóst að þá þrengir vemlega að skátahús- inu og óhjákvæmilegt að finna því annan stað.“ Páll segir að málið hafi komið upp fýrir tveimur ámm og þá var rætt um að flytja húsið að Kjartansgötu. Því mótmæltu íbúar götunnar og því var fallið frá þeim fýrirætlunum. Osk Skátafélags Borgarness er að húsið verði staðsett sem næst skóla og íþróttamiðstöð en mögulegt er að það verði sett niður í jaðri Skallagríms- garðs, gegnt Iþróttamiðstöð- inni. GE Foreldrar og velunnarar skólans fjölmenntu á fundinn. Velunnarar Heiðarskóla Heilbrigðiseftirlit Vesturlands: Neitar að greiða kostnað vegna Húsafellsmáls

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.