Skessuhorn


Skessuhorn - 15.09.2004, Blaðsíða 8

Skessuhorn - 15.09.2004, Blaðsíða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 15. SEPTEMBER 2004 Eftir afburða heitt sumar er sjórinn við strendur landsins nokkrum gráðum heitari en í meðatári. Þessi ungu, hraustu menn nýttu sér það og æfðu dýfingar í höfninni á Akranesi fyrir skömmu. Ljósm. MM Lögheimili í bústöðum Bæjarstjórn Borgarbyggðar hefur heimilað að nemendur Viðskiptaháskólans á Bifröst geti skráð aðsetur sitt í sumar- bústöðum í nágrenni Bifrastar. Sækja þarf sérstaklega um imd- anþágu til sveitarfélagsins til að skrá lögheimili í bústöðunum. Vegna mikillar aðsóknar að skólanum undanfarin ár hafa nemendur orðið að taka sumar- bústaði á leigu en þótt nem- endagarðar hafi risið hratt á síðustu misserum hefur það engan veginn dugað tíl að anna eftírspurn. Að sögn Páls S Brynjarssonar bæjarstjóra Borgarbyggðar jókst það tíl muna á síðasta ári að nemendur Viðskiptaháskól- ans skráðu lögheimili sitt á Bif- röst og var það meðal annars á- stæða mikillar íbúafjölgunar í sveitarfélaginu. Hann sagðist ekki vita hver staðan væri nú en 1. desember 2003 voru skráðir íbúar á Bifföst 290 talsins. GE Á busaballi er sá siður viðhafður að nemendur kjósa kóng og drottningu ballsins. Nú voru það þau Björn og Alexandra. Ljósm.: Valgarður Lyngdal Busaball grunnskól- anna á Akranesi Arlegt busaball elstu deilda grunnskólanna á Akranesi var haldið sl. föstudagskvöld en á því koma saman nemendur 8., 9. og 10. bekkja beggja skólarma. Að þessu sinni var dansleikurinn haldinn í Grundaskóla og var bæði mikil og góð stemning meðal viðstaddra. Það var DJ Páll Oskar sem sá um músíkina. Sú nýbreymi var tekin upp að þessu sinni að nemendur í 10. bekk buðu með sér á ballið gest- um af gagnstæðu kyni úr 8. bekk og sóttu viðkomandi heim. Þannig voru með táknrænum hætti nýliðar í deildinni boðnir velkomnir. MM Sparkvöllurinn við Brekkubæjarskóla Þessir vösku piltar fóru fim- lega með knöttinn á sparkvellin- um sem nýlega var tekinn í notkun við Brekkubæjarskóla. Völlurinn er byggður sem sam- starfsverkefni KSI og Akranes- kaupstaðar, en á undanfömum misserum hefur KSI úthlutað 60 sparkvöllum til 48 sveitarfélaga víðsvegar um landið. KSI leggur tíl gervigrasið á völlinn en Akra- neskaupstaður sér um byggingu hans, rekstur og viðhald. Völlur- inn við Brekkubæjarskóla er lagður fyrsta flokks gervigrasi og lýstur upp sem gerir boltaáhuga- mönnum á Skaga kleift að spila á honum allan ársins hring. ALS 3n M j | PW|| wz&m feyj g J t\í*m Fyrstir með rafræna launaseðla Stjórnendur Sjúkrahússins og og heilsugæslustöðvarinnar á Akranesi eru nú að hrinda í ffamkvæmd merkilegri nýjung sem felur í sér að launaseðlar starfsfólks verða framvegis sendir á rafrænu formi til þeirra starfsmanna sem hafa heima- banka og eru nettengdir. SHA er fyrsta fyrirtækið hér á landi til að framkvæma þetta, en vitað er að t.d. Hagar, eignarhaldsfé- lag tengt Bónus er með sam- bærilegt mál í undirbúningi. Guðjón Brjánsson, fram- kvæmdastjóri SHA sagði í sam- tali við Skessuhorn að um næstu mánaðamót verði fýrsta útsending rafrænna launaseðla reynd. „Við vinnum þetta verk- efni í samráði við Landsbank- ann. Við vinnum launavinnsl- una áfram sjálf en sendum launagögn þvínæst í bankann sem sér um að senda seðlana inn á heimabanka viðkomandi starfsmanna, en það skiptír ekki máli í hvaða banka viðkomandi eru í viðskiptum. Meðan við erum að prófa okkur áfram munum við þó áfram prenta og senda út launaseðla til allra. Hjá SHA eru 240-270 starfsmenn. Guðjón segir að ávinningur stofnunarinnar verði umtals- verður þegar breytingin verður að fullu yfirstaðin. „Það kostar okkur um 110 krónur að pakka og senda hverjum starfsmanna launaseðil á blaði hvern mánuð en við munum spara 70 krónur við hverja sendingu því bankinn tekur 40 krónur í þóknun. Við gerum að vísu ekki ráð fýrir að nema um 70% starfsmanna þiggi að fá launaseðla senda einungis á rafrænu formi,“ seg- ir Guðjón sem bætir við að á- vinningur SHA að breyting- unni verða m.a. sá að draga úr pappírskostnaði, tæknin verði nýtt betur og sparnaður verði umtalsverður. MM Sveinn I ItílfeUinarson Starfsmenntun - Símenntun Vika símenntunar er hald- in dagana 12.-18. september í ár og er þetta í fimmta sinn sem þetta átak er gert til efl- ingar símenntun hér á landi. Það er launafólki mjög brýnt að viðhalda og efla sína menntun því það er staðreynd að launa- og kjar- aumhverfi mótast mikið af kunnáttu og hæfni hvers og eins. Því hefur verkalýðs- hreyfingin lagt aukna á- herslu á starfs- og símennt- un og aðlögun að nýjum kröfum á vinnumarkaði. I síðustu samningum tókst að tryggja framtíð starfs- menntasjóðanna sem við teljum afar mikilvægan þátt í allri símenntun launafólks. Verkalýðsfélag Borgarness er aðili að starfsmennta- sjóðnum Landsmennt, sem aðildarfélög Starfsgreina- sambandsins á landsbyggð- irini standa að. Landsmennt veitir m.a. almenna starfs- menntastyrki til einstaklinga vegna ýmiskonar náms. Má þar nefna tölvunám, tunga- málanám, aukin ökuréttindi, vinnuvélanámskeið og margt fleira. Félagið er einnig aðili að Starfsmenntasjóði verslun- ar- og skrifstofufólks, sem Landssamband íslenskra verslunarmanna stendur að. Sá sjóður veitir ýmis konar starfsmenntastyrki svipað og Landsmennt en einnig tóm- stundastyrki. Nú í þessum mánuði er Starfsmennta- sjóður verslunar og skrif- stofufólks einmitt að stór- auka sína styrki sem félagar verslunarmannadeildar eru hvattir til að kynna sér. Ennfremur er Verkalýðs- félagið aðili að Fræðsluráði málmiðnaðarins og Mennta- félagi byggingariðnaðarins, sem halda námskeið fýrir iðnaðarmenn og félagsmenn Iðnsveinadeildar félagsins eiga aðgengi að. Símenntunarmiðstöðin á Vesturlandi varð fimm ára gömul á þessu ári. Hún býð- ur nú á haustönn upp á ýmis konar fræðslu að vanda sem ég hvet fólk til að kynna sér vel og nota sér það sem þar er á boðstólum. Fimmtudag- inn 16. september, kl. 17- 18:30, verður námsframboð- ið kynnt í Félagsbæ. Eg vil hvetja fólk til að mæta þar og skoða vel það sem í boði er, ræða við kennara og afla sér nauðsynlegra upplýs- inga. Þá vil ég eindregið hvetja félagsfólk Verkalýðsfélags Borgarness til að nýta sér menntastyrkina sem það á rétt á. Við hjá félaginu veit- um allar upplýsingar, tökum við umsóknum og greiðum út styrkina. Sveinn G. Hálfdánnrson, formaður Verkalýðsfélags Borgamess.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.