Skessuhorn - 12.10.2005, Page 2
2
MIÐVIKUDAGUR 12. OKTOBER 2005
Alvarlegt
uniferðar-
slys í
Borgamesi
Alvarlegt umferðarslys varð á
þjóðvegi 1 í Borgarnesi á tíunda
tímanum á þriðjudagskvöld í
liðinni viku. Fólksbíll og jeppi
skullu saman við afleggjarann að
Hraínakletti og slasaðist tvennt
sem í fólksbílnum var alvarlega.
Fólkið var flutt með sjúkrabílum
áleiðis til Reykjavíkur, en þyrla
Landhelgisgæslunnar TF-LIF,
kom til móts við sjúkrabílana og
flutti annan hinna slösuðu frá
norðanverðum Hvalfjarðar-
göngum til Reykjavíkur. Oku-
mann og farþega jeppabifreiðar-
innar sakaði ekki. Líðan unga
fólksins sem í fólksbílnum var er
efdr atvikum, en stúlkan sem ók
bílnum er komin af gjörgæslu-
deild. MM
Tíl minnis
Við minnum á haustfagnað
sauðfjárbænda sem ráðgert er
að halda laugardaginn 22. októ-
ber í Dalabúð. Þar veröur grill-
veisla, skemmtiatriði, jeppa- og
dráttarvélakynning, fjöldasöngur
og sveitaball. Kynnir er Júlíus
Brjánsson, leikari og kaffibrúsa-
kall.
Veðwrhorfw
Það er gert ráö fyrir hægri norð-
austlægri eða breytilegri átt víð-
ast hvar á landinu frá miöviku-
degi til föstudags og fremur
svölu veðri. Flesta daga mun þó
hanga þurrt á Vesturlandi. Útlit
er fyrir ákveðna suðaustanátt
með slyddu, en síðar rigningu
um næstu helgi og heldur hlýn-
andi vebri.
Spwrnintj vtKtinnar
Á Skessuhomsvefnum í liðinni
viku var spurt: „Hefur þú orðiö
fyrir einelti á vinnustab eða í
skóla?" Niburstaban var sláandi
en fram kemur í þeim 295 svör-
um sem bárust aö 21,1% höfbu
oröið fyrir því oft og mörgum
sinnum og 32,7% nokkrum
sinnum. Minnihlutinn, eba
46,2% hafði veriö laus við ein-
elti. Þessi niöurstaöa endurspegl-
ar það að foreldrar, forráða-
menn, skólafólki, vinnufélagar
og aðrir þurfa að fræba börn og
aðra sem stunda einelti um al-
varleika þess þegar því er beitt,
bæði andlegu og Ifkamlegu,
hvort sem það er í skóla, í vinnu
eða á öbrum vettvangi.
I næstu viku spyrjum við:
„Eru sveitarfélög í
landinu oröin
nógu fá?"
Lítib á svarmöguleikana á
www.skessuhorn.is
Vestlendin^wr
viknnnetr
Að þessu sinni eru þeir tveir sem
fyrir valinu urðu; Sauðamessu-
stjórarnir Gísli Einarsson og Bjarki
Þorsteinsson í Borgarnesi. Fáum
öðrum hefði dottið það í hug að
hægt væri að slá upp hátíb seint
um haust þar sem 5000 manns
fóru heim, sælir og ánægbir meb
bros (reyndar frosib) á vör.
Hugsanlega kosið að nýju í
Reykhólahreppi 5. nóvember
í kjölfar úrslita sameiningakosn-
inganna um sameiningu Reykhóla-
hrepps, Saurbæjarhrepps og Dala-
byggðar þurfa íbúar Reykhóla-
hrepps að ganga að nýju að kjör-
borðinu innan 6 vikna. Sem kunn-
ugt er kolfelldu íbúar Reykhóla-
hrepps tillöguna því tæp 69% kjós-
enda lýstu sig andvíga sameiningu.
Þar sem íbúar Dalabyggðar og
Saurbæjarhrepps samþykktu sam-
eininguna og meirihluti þeirra íbúa
sem tók þátt í kosningunum í sveit-
arfélögunum þremur samþykkti
sameiningu verður íbúum Reyk-
hólasveitar gefinn kostur á því að
segja hug sinn til hugsanlegrar
sameiningar að nýju. Að sögn Ein-
ars Arnar Thorlaciusar, sveitar-
stjóra Reyhólahrepps og formanns
samstarfsnendar um sameiningu, er
ekki endanlega ákveðið hvenær
kosningin fer ffam. Hann segir þó
rætt um að hún fari fram þann 5.
nóvember en endanleg ákvörðun
verður væntanlega tekin fyrir viku-
lok. Einar vildi engu spá um hvort
íbúum hreppsins myndi snúast
hugur en benti á þá staðreynd að
andstaða við sameiningu hefði auk-
ist í hreppnum.
Fari svo að íbúar Reykhóla-
hrepps segir nei að nýju verður ekki
af sameiningu hreppsins að þessu
sinni. Þar sem íbúar Saurbæjar-
hrepps og Dalabyggðar samþykktu
sameiningu geta sveitarstjórnir
sveitarfélaganna hins vegar ákveðið
að sameina sveitarfélögin án þess að
afstaða íbúanna verði könnuð ffek-
ar.
HJ
Verkfalli STAK ffestað úl
fimmtudagskvölds
Skrifað var undir nýjan kjarasamn-
ing Starfsmannafélags Akraness og
Launanefndar sveitarfélaga sl. laug-
ardagskvöld og var verkfalli, sem átti
að hefjast á miðnætti á sunnudags-
kvöld því ffestað til miðnættis 13.
október nk. Trúnaðarmönnum inn-
an STAK var kynnt sl. mánudag
hvað felst í samningnum en atkvæða-
greiðsla mun hafa farið ffam meðal
félagsmanna STAK í gær og í dag.
Niðurstaða atkvæðagreiðslunnar
mun síðan hggja fyrir fljótlega efdr
klukkan 18 í dag, miðvikudag.
„Það sem við náðum umffam síð-
asta samning var að starfsmat verður
klárað á þeim störfum sem ekki var
búið að meta á þessu ári. Ef eitthvað
verður effir og ekki verður sátt um
framhaldið, þá er samningurinn
uppsegjanlegur með gildistöku 1.
apríl enda verði það tilkynnt fyrir
lok janúar 2006. Þetta atriði var
númer eitt hjá trúnaðarmönnum
enda vilja menn að vinnunni við
starfsmatsgerðina, sem tekið hefúr
alltof langan tíma, Ijúki sem fyrst.
Starfsmatinu átti upphaflega að vera
lokið fyrir 1. desember 2002 og því
er eðlilegt að menn séu orðnir lang-
þreyttir á biðinni. Einrúg náðum við
ffam flýtingu á launaflokkahækkun
vegna tengingar við starfsmat sem
átti að koma 1. júní. Sú hækkun
verður 1. janúar samkvæmt þessum
samningi. Auk þess felast í samn-
ingnum nokkur önnur atriði, svo
sem eingreiðslur tvisvar á samnings-
tímanum að upphæð 90 þúsund
krónur,“ sagði Valdimar Þorvalds-
son, formaður STAK í samtali við
Skessuhom. MM
'rí y i JS
n * 'fjlí ;. T ísitáMÉÆs?’’
Þúsundasti fundur
bæjarstjómar Akraness
í gær, þriðjudag, var haldinn eitt-
þúsundasti fundur bæjarstjórnar
Akraness en sá fyrsti var haldinn 26.
janúar árið 1942 þegar Ytri Akra-
neshreppur fékk kaupstaðarrétt-
indi.
Af þessu tilefni var fundurinn
með hátíðlegasta móti en auk hefð-
bundinna liða á slíkum fundum
vora þrjár tillögur lagðar fyrir og
samþykktar.
Þær tillögur sem samþykktar
voru fjölluðu um eftirfarandi: Til-
laga starfshóps að uppbyggingu í-
þróttamannvirkjanna á Jaðarsbökk-
um og yfirbygging sundlaugarinn-
ar, en í tillögunni er stefnt að því að
þeim ffamkvæmdum ljúki á næstu
fjóram til sex árum.
Þá var samþykkt yfirtaka á skóg-
ræktarsvæðinu við Klapparholt sem
verið hefur í umsjón hjónanna
Guðmundar Guðjónssonar og
Rafnhildar Arnadóttur frá árinu
1988. Þar hafa þau hjón unnið ötul-
lega að uppgræðslu og gróðursetn-
ingu en telja tíma kominn til að
skila svæðinu aftur í hendur kaup-
staðarins og undirritaði bæjarstjóri
gjafabréf þeirra og afsal þar af lút-
andi.
Að lokum var samþykkt fjöl-
skyldustefha fyrir Akraneskaupstað.
Stefna þessi mun þjóna sem leiðar-
ljós í þeim markvissu aðgerðum
bæjarins að auka lífsgæði þeirra sem
á Akranesi búa og styrkja almennt
skilyrði til búsetu í bæjarfélaginu.
Að fundi loknum var boðið til mót-
töku í Safnaskálanum að Görðum
þar sem öllum núverandi og fyrr-
verandi bæjarstjórnarmönnum, á-
samt öllum þeim sem gegnt hafa
stöðu bæjarstjóra á Akranesi, var
boðið. Þar bauð Guðmtmdur Páll
Jónsson, forseti bæjarstjórnar gestd
velkomna, nemar frá Tónlistar-
skóla Akraness léku fyrir gesti og
skjöl um áðurnefindar tdllögur voru
undirrituð. BG
Sjá einnig á bls. 17
Bændur óttast skyttur
Um næstu helgi, nánar tdltekið
laugardaginn 15. október hefst
rjúpnaveiði að nýju eftir tveggja ára
hlé. Búast má við að rjúpnaskyttur
landsins bíði ekki boðanna enda
lengi staðnar margar hverjar og
sjálfsagt verður fjölmennt á vinsæl-
usm þúfunum fyrsm dagana.
Að sögn Onnu Bimu Þórarins-
dótmr, sýslumanns í Búðardal óttast
bændur í Suðurdölum að hætta
kunni að stafa af vígreifúm rjúpna-
skytmm fyrsta daginn. Astæðan er
sú að Suðurdalabændur eru að fara í
þriðju fjárleit þennan dag og smala
frá þjóðveginum á Bröttubrekku og
suður- og vesmrum en þetta er
einmitt með vinsælli rjúpnalöndum.
,„Menn óttast að slys kunni að verða
ef menn fara ekki að öllu með gát og
ekki laust við að það sé beygur í
mönnum enda eru fordæmi fyrir því
að rjúpnaskyttur hafi skotið smölum
skelk í bringu og rúmlega það,“ seg-
ir sýslumaður. „Það eina sem við
getum gert er að hvetja rjúpnaskytt-
ur til að geyma sér þetta svæði þar til
síðar og leyfa smölunum að athafna
sig í friði þennan dag.“
GE
Framsögnin æfð
BORGARFJÖRÐUR: Með-
limir Freyjukórsins í Borgarfirði
fóru á heldur en ekki skemmti-
legt námskeið um daginn þegar
kórinn fékk til sín talmeinafræð-
inginn Valdísi I. Jónsdótmr. Þar
sem þetta spurðist út hafa ýmsir
velt því fyrir sér (sérstaklega þó
eiginmenn kórfélaga) hvort ver-
ið sé að taka á raunverulega
vandamáli. Telja menn líklegast
að hér hafi framsögn aðallega
verið æfð, ekki það að sérstak-
lega þurfi að fá konurnar til að
tala meira! I framhaldi nám-
skeiðsins tók Freyjukórinn þátt í
Sauðamessu í Borgarnesi um
síðastliðna helgi þar sem boðið
var upp á söng, hlýjar ullarvörur
og margskonar glingur. Mikil og
góð þátttaka var í messunni og
vakti kórinn verðskuldaða
athygli. -mm
Leiðrétting
HVANNEYRI: í síðasta tölu-
blaði Skessuhorns var fjallað um
hvað þéttbýli þyrfti að vera stórt
til að fá þá þjónusm sem tíðkast
á flestum þéttbýlisstöðum. I
greininni voru verulegar stað-
reyndarvillur sem beðist er vel-
virðingar á. Þar var sagt að
póstur væri ekki borinn út á
Hvanneyri og að þangað kæmi
Morgunblaðið ekki nema þrjá
daga vikunnar. Hið rétta er að
síðastliðin tvö ár hefúr póstur
verið borinn í öll hús og fyrir-
tæki á Hvanneyri. Morgunblað-
inu er dreift með pósti 5 daga
vikunnar en umboðsmaður
blaðisns annast dreifingu aðra
daga. Hlutaðeigandi eru beðnir
innilega velvirðingar á þessum
mistökum. -ge
Enn ekið of
hratt
AKRANES: Tveir ungir öku-
menn voru í vikunni staðnir að
því að aka á 116 km hraða á
klukkustund innanbæjar á Akra-
nesi. Báðir ökumennirnir geta
reiknað með að missa ökurétt-
indin í einhverja mánuði og
þeim bíður einnig sú sekt að
greiða 60.000 krónur. Þar fyrir
utan var ökumaður stöðvaður á
óskoðuðum og ótryggðum bíl
sínum á 130 km hraða þar sem
90 km / klst er hámarkshraði.
Þeim ökumanni ber því að
greiða 30.000 króna sekt.
-bg
Beðið eftir
gangbraut
BORGARNES: Haustið 2001
var gerður samningur milli
Vegagerðarinna og Borgar-
byggðar um endurbætur á þjóð-
vegi 1 í gegnum Borgarnes með
það að markmiðið að auka um-
ferðaröryggi. Fyrsti liðurinn var
gerð hringtorgs við Snæfellsnes-
vegamót og næsta skref átti að
verða annað hringtorg við Dval-
arheimlið. Það átti að koma í
sumar en fjárveitingin var flutt,
með samþykki Borgarbyggðar, í
vegteningu við hina nýju Digra-
nesgötu en það verk kostar um
60 milljónir króna. I sumar átti
hinsvegar að koma ný upphleypt
gangbraut með sérstakri lýsingu
við leikskólann Klettaborg.
Samkvæmt upplýsingum frá
Vegagerðinni hefur verkið verið
boðið út en beðið er eftir að
verktakinn ráðist í fram-
kvæmdir. -ge