Skessuhorn


Skessuhorn - 12.10.2005, Page 22

Skessuhorn - 12.10.2005, Page 22
22 MIÐVIKUDAGUR 12. OKTOBER 2005 ^u£»svnu>. i' Lög Theodórs á disk AKRANES: Um næstu mán- aðamót kemur út hljómdiskur- inn Kata rokkar með lögum og textum Theodórs Einarssonar. Akaneskaupstaður styrkti út- gáfuna veglega eins og fram hefur komið f Skessuhorni. Theodór var afkastamikill höfundur á sinni tíð og eru margir hans textar og lög lands- þekkt. -mm Fræðsla um vímuvamir BORGARNES: Fimmmdaginn 13. október verður nemendum 8.-10. bekkja Grunnskólans í Borgarnesi boðið upp á fyrir- lestra um vímuefni og afleið- ingar neyslu þeirra. Er þessi fræðsla á vegum Marita samtak- anna er láta sig þetta málefni miklu varða. Um kvöldið verð- ur fundur fyrir forráðamenn og starfsfólk skólans í Oðali og hefst hann kl. 20. A fundinn mæta einnig fulltrúar frá lög- reglu og félagsmálayfirvöldum Borgarbyggðar. Eru allir hvatt- ir til þess að fjölmenna. -mm Landskeppni smalahunda AUSTURLAND: Dagana 29. og 30. október verður hin ár- lega Landskeppni Smalahunda- félags Islands, haldin á Eyrar- landi í Fljótsdal. Dómari í keppninni kemur að þessu sinni frá Wales. Hann heitir Colin Gordon og er sauðfjárbóndi en vel þekktur af störfum sínum sem dómari í fjárhundakeppn- um og einnig fyrir ræktun fjár- hunda. Þátttakendum í fjár- hundakeppnum hér á landi hef- ur fjölgað verulega síðustu árin. Markmiðið með tamningu hunds er að sjálfsögðu að þjálfa upp góðan fjárhund og því bet- ur sem hundurinn er taminn því betri fjárhundur. Fjár- hundakeppni er besta mælistik- an á hversu vel hundurinn er taminn en er jafnframt skemmtileg afþreying fyrir smalaleiða bændur að hausti. -mm Natalia Sirenko BORGARNES: Natalia Siren- ko frá Rússlandi er mætt í Brák- arey og verður þar til 28. októ- ber. Hún vinnur með rússnesk- ar, óhefðbundnar lækningar og hefur meðal annars gert Park- insonsjúklingum mjög gott. Þeir sem hafa áhuga á að hitta hana eru beðnir að hringja í síma 437-2002. -mm Dóp og byssur BORGARNES: Tvö fíkni- efnamál komu upp síðastliðinn föstudag hjá lögreglunni í Borgarnesi. I báðum tilvikum voru bifreiðar stöðvaðar í hefð- bundnu eftirliti. Smáræði af kannabisefhum fundust í öðr- um bílnum en tæplega 10 gr. í hinum. Farið var í húsleit í framhaldi af síðarnefnda tilvik- inu og voru þar óskráð skot- vopn gerð upptæk. -bg Fundað um sldpulagsmál íþróttahreyfingarmnar Fyrsti kynningarfundur vinnu- hóps um skipulagsmál íþrótta- hreyfingarinnar á Vesturlandi var haldirm að Hótel Hamar í Borgar- nesi í liðinni viku. Fulltrúar frá IA, UMSB, HSH og UDN mættu á fundinn. Framkvæmdastjórn I- þróttasambands Islands skipaði vinnuhópinn til að skoða skiptingu landsins í íþróttahéruð og ýmis mál þeim tengdum. Á fundinum í Borgarnesi kynnti Gísli Páll Pállsson starf vinnuhóps- ins og áhersluatriði. Fram kom í máli hans að skipulagsmál og þró- un þeirra tæki langan tíma. Fjár- hagslegar-, skipulagslegar- og fé- lagslegar ástæður yrðu að vera fyr- ir hendi ef gera ætti breytingar á skipulagi. Akvörðun um skipulags- breytingar ætti ekki að koma að ofan heldur yrði grasrótin sjálf að skynja þann vitjunartíma sem þyrfti í þessu máli. Hins vegar væru ýmis teikn á lofti um að samstarf og sameining væri fýsilegur kostur á ýmsum stöðum á landinu. Þess vegna væri vinnuhópurinn að safna saman viðhorfum um hugmyndirí málinu. Líflegar umræður urðu um skipulagsmál íþróttahreyfingarinn- ar almennt. Fram kom að héraðs- samböndin á Vesturlandi hafa þeg- ar hafið athyglisvert samstarf og hyggja á frekara samstarf á ýmsum sviðum. Vinnuhópurinn fékk fram margar góðar hugmyndir til að vinna áffam með og mun hann halda fundi með sambandsaðilum á næstunni. I vinnuhópnum sitja Lárus Blön- dal, formaður, Gísli Páll Pálsson formaður HSK, Vignir Pálsson formaður HSS, Anna Rúna Mika- elsdóttir fyrrverandi formaður HSÞ og Sturlaugur Sturlaugsson formaður IA. Anna Rúna er í veik- indaleyfi og í hennar stað starfar Arnór Benónýsson formaður HSÞ með vinnuhópnum. Stefán Kon- ráðsson framkvæmdastjóri ISI starfar jafnframt með vinnuhópn- um. MM Golfldúbburínn Leynir 40 ára María Nolan rekrtraraðili t Golfklúbbnum og Heimir Fannar Gunnlaugsson, formaður Leynis. Laugardaginn 8. október efndi Golfklúbburinn Leynir til afmælis- hófs fyrir helstu styrktaraðila golf- klúbbsins, velunnara og samstarfs- aðila. Heimir Fannar Gunnlaugs- son, formaður Leynis, fór yfir sögu félagsins undanfarin 40 ár og kynnti áform og vænt- ingar þess í nánustu framtíð, svo sem áframhaldandi upp- byggingu Garðavallar, nýjan æfingavöll fyrir börn og unglinga, hugmyndir að nýju klúbbhúsi, áhalda- og tækjahúsi og áherslu á öfl- ugra og betra unglingastarf. Afmælisblað Leynis var kynnt á fundinum og verður því dreift í öll hús á Akranesi á næstu dögum. Þá var ný heimasíða Leynis kynnt þar sem hægt verður að sjá yfir- flugsmyndir af hverri golf- braut fyrir sig þegar heim- síðan verður fullbúin. Undirritaður var þriggja ára samningur milli Leynis og Nolan ehf um reksmr veitinga- sölu á Garðavelli. María Nolan, rekstraraðili Nolan ehf, rak veit- ingasöluna í sumar með miklum á- gætum og vildi stjórn Leynis gera sitt til að njóta áfram hæfileika hennar með gerð samningsins. Golfsamband íslands heiðraði Hannes Þorsteinsson, golfvallar- arkitekt með gullkrossi sambands- ins fyrir þátttöku hans í uppbygg- ingu og framþróun golfíþróttarinn- ar á Islandi til margra ára. MM/BS. Hannes Þorsteinsson var sœmdur gullkrossi Golf- sambands Islands Dans ársins Hin árlega ráðstefna danskenn- ara í grunnskólum landsins var haldin 10. september síðastliðinn. Síðustu fimm ár hafa nokkrir kennarar sýnt og keppt á ráðstefn- unni um dans ársins. Að þessu sinni vann keppnina danskennari af Akranesi, Jóhanna Arnadóttir, í sinni fyrstu tilraun með dansinn Negra við lagið La negra. Þetta er annað árið í röð sem sigurdansinn kemur frá Akranesi en í fyrra sigr- aði Asrún Kristjánsdóttir með dans sinn Funky. Blaðamaður bankaði uppá hjá Jóhönnu til að óska henni til ham- ingju og forvitnast nánar um dans- saminn af Jóhönnu í Brekkubæjarskóla Jóhanna Arnadóttir, danskennari. inn og þennan skemmtilega titil. „Dansinn á að höfða til allra, frá leikskóla og uppúr,“ segir Jóhanna. „Markmið með dansi ársins er það að hann falli vel inn í grunnskóla- starfið og að allir geti lært hann og tekið þátt. La negra lagið er einmitt mjög vinsælt meðal ungu kynslóðarinnar núna,“ bætir hún við. Jóhanna er þaulvanur dansari og danskennari. Hún útskrifaðist frá Dansskóla Heiðars Astvaldssonar árið 1987 og rak síðan dansskóla Jóhönnu Arnadóttur í um 8 ár. Það var svo fyrir fjórum árum að hún var ráðin sem danskennari í Brekkubæjarskóla og hefur kennt þar síðan. „Dans er nú hluti af námsskrá 1.-6. bekkjar og valá- fangi hjá 9. bekk.“ Jóhanna segir danskennsluna hafa gengið mjög vel og sé mikilvægur hluti í námi barnanna. „Krökkunum finnst þetta æði, þau eru mjög stolt af dansi ársins og finnst hann skemmtilegur. Hreyfingin er mikil í tíma og tek ég því ekkert eftir því ef einhver börn geta síður verið kjur en önnur. Börnin fá aukið sjálfstraust, þau læra að virða hvort annað og það er lítið mál fyrir þau að bjóða upp í dans. Svo er mest- ur spenningurinn að æfa fyrir sýn- ingar og koma fram á þeim. Vor- sýning skólans hefur einmitt verið gífurlega vinsæl og svo vel sótt að salur skólans er ekki lengur nógu stór,“ segir Jóhanna að lokum. BG

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.