Skessuhorn


Skessuhorn - 16.11.2005, Page 1

Skessuhorn - 16.11.2005, Page 1
VIKUBLAÐ Á VESTURLANDI 45. tbl. 8. árg. 16. nóvember 2005 - Kr. 300 í lausasölu Akært í þremur nauðgunarmálum Á árunum 1995 til 2004 bárust lögreglustjórum á Vesturlandi ellefu nauðgunarkærur og af þeim leiddu þrjár þeirra til ákæru. Á sama tíma kom eitt slíkt mál til kasta Héraðsdóms Vesturlands og var sakfellt í því máli. Þetta kemur fram í svari Bjöms Bjamasonar dómsmálaráðherra við fyrirspurn Guðrúnar Og- mundsdóttur á Alþingi. Spurði Guðrún um fjölda þeirra nauðgunarmála sem farið hafa fyrir dómstóla landsins á síðustu 10 ámm. Einnig spurði þingmaður- inn um fjölda nauðgunarkæra sem lögregluyfirvöldum bámst á sama árabili. I svari ráðherra kemur fram að alls bámst 370 kærar á þessum tíu ámm og var ákært í 61 þeirra eða í rúm- lega 16% tilfella. Til lögreglustjórans á Akranesi kom ein kæra en ekki var ákært í því máli. Til sama embætt- is í Borgarnesi bámst þrjár kæmr en aðeins var ákært í einni. Til sýslumannsins í Stykkishólmi bámst sjö kær- ur og var ákært í tveimur þeirra. Engin kæra barst lög- reglustjóranum í Búðardal á þessum ámm. Eins og áður sagði vom á þessum ámm ákært í 61 nauðgunarmálum. Af þeim kom ein til kasta Héraðs- dóms Vesturlands og var sakfellt í því máli. HJ Gert ráð fyrir jákvæðri rekstrar- niðustöðu Fjárhagsáædun Akraneskaupstaðar og stofhana hans fyrir árið 2006 var lögð fram tíl fyrri umræðu á fundi bæjarstjómar í gær. I henni er gert ráð fyrir að tekjur verði rúmar 2.340 milljónir króna. Stærstur hluti tekna kemur af skatttekjum eða rúmar 1.548 milljónir króna, ffamlög jöfnunarsjóðs sveitarfélaga em áætluð rúmar 196 milljónir króna og aðrar tekjur em áætlaðar rúmar 595 milljónir króna. Stærsti einstaki gjaldaliður bæjar- ins em laun, launatengd gjöld og hækkun lífeyrisskuld- bindinga eða tæpar 1.306 milljónir króna. Annar rekstrarkosmaður er áætlaður rúmar 897 milljónir króna og afskriftir rúmar 104 milljónir króna. Þá em fjármunatekjur áædaðar rúmar 23 milljónir króna. Niðurstaða rekstrar er því áætluð jákvæð um rúmar 56 milljónir króna. Bæjarráð hefur samþykkt gjaldstofha bæjarins fyrir næsta ár og er þar gert ráð fyrir óbreyttri útsvarspró- senm, eða 13,03%. Álagningarstofn fasteignaskatts íbúðarhúsa lækkar úr 0,431% í 0,394% en álagningar- stofh annarra fasteigna er óbreytmr. Holræsagjald verður óbreytt eða 0,2% af fasteignamati. Þá hækkar vamsgjald um ríflega 6% og einnig hækka leikskóla- gjöld og þjónusmgjöld í gmnnskólum um 5% um næstu áramót. Gunnar Sigurðsson fúlltrúi minnihlut- ans í bæjarráði samþykkti álagningu gjalda með fyrir- vara en ekki kom ffam í fundargerð hver sá fyrirvari væri. Nánar verður gerð grein fyrir fjárhagsáætlun Akra- neskaupstaðar síðar. HJ Þegar Vökudagar voru settir ífyrri viku á Akranesi var vií athófn í tilefni þess veittar viöurkenningar til aðilafyrir framlag þeirra til tónlistarmála á Akra- nesi. Annars vegarfe'kk Fríöa Lárusdóttir tó?ilistarkennari viöurkenningu fyrir framlag sitt og binsvegar fengu félagamir úr hljómsveitinni góíkunnu Dúmbó og Steina viöurkenningufyrir framlag þein-a til tónlistar á Akranesi. Hér eru þeirfélagar saman komnir síungir og gUesilegir. Ljósm. HJ Rætt um að setja lokunarbúnað á hættulegustu vegarkaflana Vegagerðin í Borgarnesi hef- ur nú til athugunar að setja upp lokunarbúnað á nokkra staði á Vesturlandi þar sem vegfarend- ur hafa lent í vandræðum í óveðrum. Með þessum búnaði verður vegum lokað alfarið þegar efhi standa tdl. Þá er einnig rætt um að fjölga raf- rænum upplýsingaskiltum fyrir vegfarendur þrátt fyrir að margir vegfarendur virði í raun ekki þær upplýsingar sem ffam koma ffam í dag. Yfirlögreglu- þjónninn í Borgarnesi segir ökumenn í töluverðum mæli hundsa þær upplýsingar og komi því sjálfum sér og öðmm í stórhættu. Hann segir vegfar- endur í auknum mæli fara van- búna af stað í ferðalög og slíkt kalli á hættu. Flestum er í fersku minni ó- happ sem varð í Leirársveit fyr- ir nokkra þegar tengivagn valt yfir fólksbíl sem lent hafði utan vegar skömmu áður. Okumað- ur fólksbílsins slapp á ótrúlegan hátt án meiðsla og þykir það mikil mildi. Atvik þetta átti sér stað á þekktum óveðursstað á leiðinni um Leirársveit. I kjöl- farið hefur nokkur umræða skapast um öryggi vegfarenda um þennan vegarkafla sem og aðra þar sem vegur liggur um þekkt óveðurssvæði. Theodór Þórðarson yfirlög- regluþjónn í Borgarnesi segir upplýsingagjöf til vegfarenda aldrei hafa verið betri en í dag. Birtar em reglulega upplýsing- ar tun færð og veður í fjölmiðl- um og einnig á ýmsum upplýs- ingasíðum á Internetinu. Einnig séu upplýsingaskilti við vegi sem gefi nákvæmar upp- lýsingar um stöðu mála. Þrátt fyrir þetta leggi fólk á þá vegi sem í raun em ófærir sökum óveðurs. Hann segir hluta vandans megi rekja til þess að vegfarendur trúi í raun ekki að ástandið sé jafn alvarlegt og raun ber vimi. Nefnir hann sem dæmi þann vegarkafla sem óhappið varð á í Leirársveit á dögunum. Beggja vegna þess kafla geti verið sól og því aki menn ótrauðir áfram uns kom- ið er skyndilega í fárviðri þar sem fátt er hægt að gera annað en að vona það besta. Theodór segir að með batnandi sam- göngum og styttri ferðatíma fari fólk verr búið af stað í ferðalög. Því verði ástandið fljótt mjög alvarlegt festist fólk í ófærð. Lögreglan hafi því þurft að grípa til þess ráðs að reyna að vakta vegi og leggja lögreglubifreiðum við vegina og með því reynt að loka þeim. Shkt hafi því miður ekki dugað til auk þess sem þessi aðferð sé mannafls- og tækjaffek í veðri þegar oft sé þörf á mannskap og tækjum við önnur störf. Þegar vegfarendur hafa lent í vand- ræðum sem lögregla hefur ekki haft mannafla til að sinna hafa björgunarsveitir verið kallaðar út og segir Theodór samstarf við þær hafa gengið mjög vel. Vegfarendur á suðurleið aka ffamhjá upplýsingaskilti sunn- an brúarinnar yfir Borgarfjörð og vegfarendur á norðurleið aka ffamhjá skilti í Mosfellsbæ eða við Akranes. Þau skilti sýna stöðu mála, það er vindstyrk og hitastig. Þar em einnig texta- upplýsingar þannig að komið hefur fyrir að þar sé tilkynnt um að vegur undir Hafnarfjalli sé lokaður. Þar sem skiltin em á öðm veðursvæði ffeistast öku- menn til þess að halda för sinni áffam eins og áðvn sagði. Því er nú ræddur sá möguleiki að fjölga þessum upplýsingaskilt- um og setja þau upp nær þekkt- um óveðursstöðum ef það mætti verða til þess að vekja vegfarendur til umhugsunar. Þá er einnig rætt um að setja upp lokunarbúnað á nokkmm stöð- um. Em það slár sem settar em yfir vegina og fer þá vart á milli mála að viðkomandi vegur er lokaður. Slíkur búnaður hefur verið settur upp á snjóflóða- stöðum á Vestfjörðum og einnig á Mýrdalssandi. Magnús Valur Jóhannesson, umdæmis- stjóri Vegagerðarinnar á Vest- urlandi staðfestir að uppsetning slíks búnaðar sé í umræðunni. Samkvæmt lögum er það ein- ungis lögregla sem lokar vegum og yrði það því í hennar verka- hring að ákveða hvenær slíkur búnaður yrði notaður. Theodór segir að ef af upp- setningu slíks búnaðar komi verði hann að sjálfsögðu aðeins notaður þegar hætmástand skapast. Rætt er um að slíkur búnaður verði settur upp í það minnsta undir Hafharfjalli og á Holtavörðuheiði. Fleiri staðir koma þó til greina. Hann teltu að með því yrði stdgið ffamfara- spor á tímum breytts veðurfars og aukins hraða þar sem erfitt hefur reynst að sannfæra veg- farendur með öðrum hætti hví- líkur óveðurskafli sé ffamundan á leið þeirra úr sólskini á auð- um vegi, í jakkafötum og á blankskóm. HJ ATLANTSOLIA Dísel ‘Faxabraut 9. Rófur íslenskar Samkaup |w.r\/«L Austurlenskt hakkabuff i kókos

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.