Skessuhorn - 16.11.2005, Síða 4
4
MIÐVIKUDAGUR 16. NÓVEMBER 2005
§1íéSS'ÍÍMÖ12M
Of kalt snjó-
bræðslukerfi
DALIR: Byggðaráð Dala-
byggðar hefur falið sveitar-
stjóra að kanna frekar snjó-
bræðslukerfi sparkvallarins sem
nú er í byggingu við grunnskól-
ann í Búðardal. Frárennsli frá
grunnskólanum og félagsheim-
ilinu var ætlað að bræða snjó á
vellinum en vamið í ffárennsl-
inu hefur reynst of kalt. Þá hef-
ur byggðaráð einnig óskað eftir
því að verklokum við völlinn
verði flýtt en þau voru í upphafi
áætluð þann 30. nóvember nk.
-hj
Spurt um
eftiistöku
H VALFJ ÖRÐUR: Guðjón
Arnar Kristjánsson, þingmaður
Frjálslynda flokksins hefur lagt
fram á Alþingi fyrirspurn til
iðnaðarráðherra um efhistöku
úr bomi Hvalfjarðar. Vill þing-
maðurinn vita hversu miklu af
jarðefnum hafi verið dælt upp
síðan efnistaka var þar leyfð. Þá
vill hann vita hvort efnistaka sé
svæða- eða tímabilaskipt og
einnig hvort veruleg breyting
hafi orðið á einstökum boms-
væðum í firðinum. Einnig
hvort áfram verði leyfð efn-
istaka án skoðunar í firðinum.
-hj
/
Utlærður kafari
AKRANES: Á dögunum útskrif-
uðust fyrsm köfunarkennaramir
á Islandi. Þetta var fjögurra
manna hópur en í honum var ein
stúlka af Akranesi, Birna Bjöms-
dóttir, en hún hefur starfað með
Björgunarfélagi Akraness um
árabil og starfaði meðal annars í
köfunarhópi félagsins. -þgb
Dalabyggð hafii-
ar launakröfii
DALIR: Byggðaráð Dalabyggð-
ar hefur hafnað launakröfu fyrr-
um aðstoðarmanns sveitarstjóra
Dalabyggðar. Hann sagði upp
störfum sínum fyrir nokkm og
með bréfi þann 7. nóvember
krafði hann sveitarfélagið um
laun í uppsagnarffesti. I bókun
byggðaráðs segir að umræddur
maður hafi verið ráðinn til ann-
arra starfa daginn áður en hann
sagði upp störfum hjá Dala-
byggð. I því ljósi samþykkti ráðið
að hafha launakröfunum. -hj
Vilja breyta
opnunartíma
Klettaborgar
BORGARBYGGÐ: Fræðslu-
nefnd Borgarbyggðar hefur
ákveðið að athuga möguleika á
breyttum opnunartíma leikskól-
ans Klettaborgar í Borgamesi. Er
það gert í kjölfar bréfs ffá for-
eldrum leikskólabarna þar sem
óskað var eftir að skólinn opni kl.
7.30 á morgnana í stað 7.45 eins
og nú er.
Skoða íþróttamamvirki á Akranesi
Sænska smdinefrdin ásamt Helgu Gunnarsdóttur sviðsstjóra.
Fimm manna sendinefnd
frá sænska sveitarfélaginu
Piteá kom í heimsókn á Akra-
nes til að kynna sér byggingu
fjölnota íþróttahúss. I Piteá
búa ríflega 40 þúsund manns
og er mikill áhugi meðal fót-
boltafélaganna í bæjarfélaginu
að byggja svipað íþróttahús
og nú er í byggingu á Jaðars-
bökkum. Sendinefndin upp-
lýsti að í Svíþjóð væru 4
íþróttahús af þessarri stærð
þar sem hægt er að spila á fót-
boltavelli í fullri stærð. Þótti
þeim mikið til koma hvernig Akra-
neskaupstaður hefur byggt upp að-
stöðu í samvinnu við íþróttafélögin.
Þeir lýstu líka hrifningu sinni á
gervigrasvöllunum við gmnnskól-
ana sem byggðir hafa verið með
stuðningi KSI.
Afdkranes.is
Ottast að sýslumenn hverfi í
kjölfar lögreglustjóra
Jón Bjarnason alþingismaður
Vinstri-Grænna í Norðvesturkjör-
dæmi er efins um tillögur þær sem
lagðar hafa verið ffam til breytinga á
skipan lögreglumála. Víða hefur
gætt nokkurra efasemda um tillög-
urnar og má þar nefiida skoðanir O-
lafs Þórs Haukssonar sýslumanns á
Akranesi sem telur að embættdð á
Akranesi eigi að vera svokallað
lykilembætti. Eins og fram hefur
komið í Skessuhomi verður lög-
reglustjóm tekin undan nokkmm
sýslumannsembættum og má í því
sambandi nefna sýslumannsembætt-
ið í Dölum. Jón segist óttast að í
kjölfarið verði sýslumannsembættin
lögð niður. Hann telur að nær hefði
verið að styrkja löggæslu í Dölum og
fela því lögregluliði löggæslu í Reyk-
hólahreppi. Með því hefði verið
hægt að fjölga lögreglumönnum á
svæðinu og styrkja embætti sýslu-
manns í stað þess að veikja það. HJ
Vinnsla
hefst í
Klumbu
Tilraunavinnsla hófst í nýju húsnæði fisk-
verkunarinnar Klumhu í Olafsvík í gær,
þriðjudag. Húsið er byggt á nýjum stað og
leysir afhólmi gömlu húsm sem urðu eldi
að bráð í september ífytra. Ekki er búið
að Ijúka endanlegum frágangi við húsið
og verður formleg vígsla þess afþeim sök-
um síðar. Ljósm: ÓG
Yfirgnæfandi fjöldi sveitarfélaga
hefiir enga innkaupastefiiu
Yfirgnæfandi fjöldi sveitarfélaga
á Islandi, eða um 84% þeirra, hefur
enga innkaupastefhu þrátt fyrir að
talið sé að skýr innkaupastefna geti
skilað sveitarfélögum nokkram
sparnaði. Þetta kom ffam á fjár-
málaráðstefnu sveitarfélaga í
Reykjavík í síðustu viku. Þetta kom
fram í fyrirlestri Eyjólfs Bjarnason-
ar fyrrverandi bæjartækniffæðings
og starfsmanns samtaka iðnaðarins
og Kristrúnar Heimisdóttur lög-
fræðings hjá sömu samtökum.
Eyjólfur flutti fyrirlestur sinn á
þinginu og fyrirlestur Kristrúnar
var lagður ffam.
I máli Kristrúnar kom ffam að
það varði venjuleg íslensk smáfyrir-
tæki í öllum landsfjórðungum mjög
miklu hvernig sveitarfélög beita
markaðsstöðu sinni. Við hverja þau
semja, hvemig og um hvað. Kemur
ffam hjá Kristrúnu að of margir
viðskiptavinir sveitarfélaga þori
aldrei að kæra eða kvarta þótt á
þeim sé brotið. Hún telur að of
margir trúi því að sérgæskusjónar-
mið ráði en ekki gæði vörannar eða
þjónustu fyrirtækisins. Nefhir hún
dæmi erlendis frá þar sem talið er
að skýrar innkaupareglur hafi spar-
að umtalsverða fjármuni. Þrátt fyr-
ir það höfðu 27 af 32 stærstu sveit-
arfélögum á landinu enga útboðs-
stefnu á árinu 2003 ef marka má
könnun sem gerð var það ár.
Áætlað er að innkaup sveitarfé-
laga á Islandi hafi numið 28-34
milljörðum króna á árinu 2004.
Sparnaður um fimm prósent hefði
því skilað 1,5 milljarði króna á því
ári. HJ
Veðurskilti sett upp í tilefiii
afinælis veðurathugana
Lionsklúbbur Stykkishólms er
þessa dagana að hefja uppsetningu
á veðurskilti í Stykkishólmi. Á skilt-
inu, sem staðsett verður við íþrótta-
völlinn, mun sjást vindátt, vind-
styrkur og hitastig. Með þessu
framtaki vilja lionsmenn minnast
þess að í ár eru 160 ár liðin ffá því
að Árni Thorlacius hóf veðurat-
huganir í Stykkishólmi. Þær hafa
staðið samfellt síðan og hafa veður-
athuganir hvergi á Islandi staðið
jafhlengi samfellt.
Gunnlaugur Árnason lionsmaður
segir að skiltið verði tekið í notkun
26. nóvember en þá verður 160 ára
afmælis veðurathugana í Stykkis-
hólmi minnst. Gunnlaugur segir að
klúbburinn njóti stuðnings víða að
við ffamkvæmdina og má í því sam-
bandi geta þess að nú nýverið sam-
þykkti bæjarráð að styrkja ffam-
kvæmdina um 100 þúsund krónur.
HJ
Haftiardýpkanir
SNÆFELLSBÆR: Siglinga-
stofnun hefur auglýst eftir til-
boðum í dýpkun hafnanna í
Olafsvík og Rifi. Um er að ræða
26.000 rúmmetra dýpkun í
Olafsvík en 20.000 rúmmetrar í
Rifshöfn. Verkinu skal lokið
eigi síðar en 1. apríl 2006. Til-
boðsfrestur rennur út þann 23.
nóvember. -hj
Rúmmeter
byggir fjölbýli
AKRANES: Bygginganefnd
Akraness hefur samþykkt að
heimila Rúmmeter ehf. í Reykja-
vík að reisa 19 íbúða fjölbýlishús
á fimm hæðum á lóðinni Holts-
flöt 6. Húsið verður samtals
rúmir 2.000 fermetrar. Það er
Kristinn Ragnarsson arkitekt
sem teiknaði bygginguna. -hj
Jólamarkaður
HVANNEYRI: Nú hefhr verið
ákveðið að hinn árlegi jólamark-
aður Ullarselsins á Hvanneyri
verður 1. desember og hefst
hann klukkan 16 og stendur til kl
19. Á jólamarkaðinn era allir vel-
komnir með smávörar sem þeir
hafa verið að bauka við að gera
og langar að reyna að selja. Svo
er líka upplagt að kíkja við og at-
huga hvað er í boði. Sölufólki er
bent á að láta vita í síma 437-
0077 eða 437-1664 (Rita) ætli
það að vera með. -mm
Aukið samstarf
slökkvifiða
REYKHÓLAR: Brunamála-
nefnd Reykhólahrepps hefur
falið sveitarstjóra að koma á
fundi með forsvarsmönnum
Slökkviliðs Dalasýslu til að
kanna möguleika á víðtækara
samstarfi slökkviliðanna í sveit-
arfélögunum tveimur. Þessi á-
kvörðun kemur í kjölfar um-
fjöllunar í nefndinni um reglur
Brunamálastofnunar um út-
hlutun tímabundins fjárstuðn-
ings til sveitarfélaga sem sam-
einast um rekstur eldvarnareft-
irlits eða slökkviliðs.
-hj
Smalað á
mótorhjólum
REYKHÓLAR: Umhverfis-
og náttúruvarnarnefnd Reyk-
hólahrepps bárust fyrir
skömmu kvartanir vegna smala-
mennsku á mótorhjólum nú í
haust á svæðinu frá Músará út
að Kinnarstöðum í Þorskafirði.
Er talið að nokkrar skemmdir
hafi orðið á gróðri og einnig
fældust hestar. Nefndin bendir
á að samkvæmt reglugerð um
takmarkanir á umferð í náttúru
Islands sé heimilt að aka utan
vega vegna starfa við landbúnað
ef ekki hljótast af því náttúru-
spjöll. Nefndin beinir því til
mótorhjólamanna að taka tillit
til aðstæðna og níðast ekki á
landi. Einnig bendir nefndin á
að mikilvægt sé að taka tillit til
ríðandi smala. -hj
WWW.SKESSUHORN.IS
Bjarnarbraut 8 - Borqarnesi Sími: 433 5500
Kirkjubraut 54-56 - Ákranesi Fax: 433 5501
Skessuhorn kemur út alla mi&vikudaga. Skilafrestur auglýsinga
er kl. 14:00 á þri&judögum. Auglýsendum er bent á aö panta
auglýsingapláss tímanlega. Skilafrestur smáauglýsinga er til
12:00 á þri&judögum.
Blaðiö er gefið út í 3.000 eintökum og selt til áskrifenda og í
lausasölu.
Áskriftarverð er 1000 krónur með vsk. á mánuði en krónur 900
sé greitt með greiðslukorti. Verð f lausasölu er 300 kr.
SKRIFSTOFUR BLAÐSINS ERU OPNAR KL. 9-14 alla virka daga
Útgefandi: Skessuhorn ehf. - 433 5500 skessuhorn@skessuhorn.is
Ritstj. og ábm. Magnús Magnúss. 894 8998 magnus@skessuhorn.is
Blabamenn: Halldór Jónsson 892 2132 hj@skessuhorn.is
Magnús Magnúss. 894 8998 magnus@skessuhorn.is
Fréttaritarar: Gísli Einarsson 899 4098 gisli@skessuhorn.is
Ófeigur Gestsson 892 4383 sf@simnet.is
Augl. og dreifing: Iris Arthúrsd. iris@skessuhorn.is
Umbrot: Gubrún Björk Friöriksd. 437 1677 gudrun@skessuhorn.is