Skessuhorn - 16.11.2005, Page 10
10
MIÐVIKUDAGUR 16. NOVEMBER 2005
,■^1.111.. ]
Gestir troðjýlltu félagsheimiliS Heiðarborg.
Á laugardaginn var þess minnst
að fjörtíu ár eru liðin frá stofnun
Heiðarskóla í Leirársveit. I tilefni
dagsins var opið hús í skólanum þar
sem gestir gátu skoðað húsnæðið og
fylgst með nemendum við leik og
störf. Síðdegis hófst svo afmælis-
Heiðarskóli.
samkoma í félagsheimilinu Heiðar-
borg að viðstöddu miklu fjölmenni.
Eftir að ný ffæðslulög tóku gildi
árið 1946 hófst víða uppbygging
barnaskóla. Má þar nefha að bygg-
ing skóla á Kleppjárnsreykjum
hófst árið 1956 en að honum stóðu
fimm sveitarfélög í Borgarfirði.
Nokkur umræða fór þá fram ofan
Skarðsheiðar um að sveitarfélög
sunnan heiðar ættu einnig að standa
að byggingu skólans en af því varð
ekki. Skriður komst þó ekki á skóla-
mál sunnan Skarðsheiðar fyrr en á
fundi kvenfélagsins Bjarkar í Skil-
mannahreppi 29. janúar 1956. Þá
vakti Svandís Haraldsdóttir, Stóra-
Lambhaga II, máls á því að senda
áskorun til hreppsnefndar Skil-
mannahrepps þess efnis að hrepp-
urinn léti skólamál til sín taka.
Ymsar hugmyndir komu fram um
hugsanlega staðsemingu skólans en
í kjölfar borana eftir heim vami við
Leirárlaug var ákveðið að skólinn
skyldi rísa þar. Hófst bygging
Heiðarskóla árið 1962.
Það var svo 9. nóvember 1965
sem skólabíll ók fyrst í hlað Heiðar-
skóla með börn úr Strandahreppi
og Leirár- og Melasveit. Daginn
Ungar blómarósir tóku á móti gestum í aruídyri skólans.
eftír kom bíllinn svo með börn úr
Innri-Akraneshreppi og Skil-
mannahreppi. I fyrsm var nemend-
um ekið samdægurs á milli heimilis
og skóla en í mars árið 1966 hófst
rekstur heimavistar og var aksmr þá
lagður niður um tíma. Síðar var
hann aftur tekinn upp fyrir börn
sem bjuggu í kringum Akrafjall en
börn af öðrum svæðum bjuggu á
heimavist. Skólinn hefúr alla tíð
státað af fjölbreyttu félagslífi og
íþróttastarf innan skólans hefur
löngum verið rómað. Nokkuð er
um liðið síðan heimavist var lögð
niður og er nemendum í dag ekið
daglega milli heimilis og skóla.
A opna deginum á laugardaginn
voru gamlir nemendur skólans
áberandi enda hafa þeir sýnt skól-
anum mikla ræktarsemi í gegnum
árin. Mátti heyra margar sögur úr
skólahaldi rifjaðar upp og ekki síður
af heimavistunum.
Helga Stefanía Magnúsdóttir,
skólastjóri segist afar ánægð með
þátttöku almennings í affnælisdag-
skránni. A afmælissamkomunni í
Félagsheimilinu Heiðarbæ er talið
að hafi verið hátt í 300 manns. Auk
dagskrár nutu gestír veitinga og þar
bar hæst stór og fagurlega skreytt
rjómaterta sem bökuð var á staðn-
um. Helga Stefanía segir skólanum
hafa borist margar veglegar gjafir
sem grein verði gerð fyrir síðar.
Hún segir að almenningur hafi með
mikilli þátttöku sinni sýnt skólan-
um mikinn stuðning í verki.
HJ
Sveinn Agústfterir Elínu Helgu matráðskonu feng dagsins.
Fiskurinn firá pabba
A heimasíðu Stykkishólmsbæjar
hefur komið fram að þema leikskól-
ans Bangsabæjar í vetur er „Hafið.“
Síðastliðinn mánudagsmorgun lét
ungur leikskólapilmr, Sveinn Agúst,
draum sinn rætast, nefnilega þann
að færa leikskólanum fisk sem Osk-
ar pabbi hans hafði veitt. Fékk
Sveinn Agúst sjálfur að hjálpa til við
að flaka fiskinn. Það var Elín Helga
matráðskona í Bangsabæ sem tók
með mikilli ánægju á mótí fiskinum
og að sjálfsögðu var það ný ýsa sem
var á boðstólnum í leikskólanum í
hádeginu þennan dag.
Af stykkisholmur.is
Jólakort
Blindrafélagsins
Blindrafélagið hefur um árabil
gefið út jólakort og merkisspjöld tíl
styrktar starfseminni. I ár verða 3
týpur af jólakortum. Jólakort
myndskreytt með myndinni ,Jóla-
skór“ eftír myndlistakonuna Línu
Rut Wilberg. Jólakort með mynd-
um af jólasveinunum 13 eftir lista-
manninn Erlu Sigurðardóttur. Inni
í þeim kortum eru ljóð um jóla-
sveinana 13 eftír Jóhannes úr Kötl-
um. Og kort með ljósmynd af
Skaftafelli eftir Sigurgeir Sigur-
jónsson ljósmyndara.
Hægt er að nálgast kortín hjá
Blindrafélaginu, Hamrahlíð 17 í
Reykjavík, sími 525-0000 eða
senda tölvupóst á blind@blind.is.
Blindrafélagið vill biðja landsmenn
að styrkja félagið með kaupum á
þessum fallegu jólakortum.
Sölumenn frá Blindrafélaginu
munu ganga í hús í nóvember og
bjóða kortin til sölu. Aðstoð þeirra
sem vilja gerast sölumenn fyrir fé-
lagið er vel þegin. Upplýsingar í
síma 525 0000.
BOftG,
mjF: y
iIÍBPí J 4»w. ■ ■ i
Fjölmenm á Æskulýðsballinu
í Borgamesi
Á föstudaginn var mættu unglingar úr
14 skólum af vestur og miðvesmrlandi á
árlegt æskulýðsball í Borgamesi. Það em
Félagsmiðstöðin Oðal og Nemendafélag
Grunnskóla Borgarness sem hafði veg og
vanda af undirbúningi þessarar hátíðar.
Unglingamir sjálfir ákváðu áróðursþema
sem að þessu sinni beindist gegn reyking-
um. Áhersla var lögð á að benda á hættu
sem reykingar geta valdið svo sem aukn-
tun líkum á krabbameini. Allir ungling-
arnir sem mættu fengu barmmerki sem á
stóð „Ég hugsa... ég reyki ekki,“ frá
vímuvamanefnd Borgarbyggðar.
Til að minna rækilega á þetta var kirkj-
an í Borgarnesi, kirkjan á Borg á Mýrum
og íþróttamiðstöðin upplýst með bleik-
um lit þetta kvöld. Um þrjátíu unglingar
úr Oðali tóku þátt í að undirbúa og
skreyta íþróttamiðstöðina um daginn og
þegar svo um 450 unglingar mættu á há-
tíðina var íþróttamiðstöðin næsta óþekkj-
anleg.
Dagskrá hófst klukkan 20 með dans,
söng- og tónlistaratriðum frá nemendafé-
lögum skólanna. Þar á eftír lék ein vin-
sælasta hljómsveit landsins; I svörtum
fömm fyrir dansi tíl miðnættis.
MM/IJ /Ljósm: Óðal.