Skessuhorn - 16.11.2005, Qupperneq 14
14
MIÐVIKUDAGUR 16. NÓVEMBER 2005
..rvilim,.
✓
Urslit í frumkvöðlanámskeiði í Dalabyggð
Hestaskjól, tölvufyrirtæki, ferða-
þjónusta og gróðurhús voru meðal
þeirra hugmynda sem níu frum-
kvöðlar úr Dalabyggð kynntu fyrir
gestum og væntanlegum ljárfestum í
Félagsheimilinu Dalabúð í Búðardal
sl. laugardag. Það voru tíu ffum-
kvöðlar sem voru að ljúka námskeiði
sem haldið hafði verið í Dalabyggð
af tilstuðlan Þrekvirkis og styrkt af
KB-banka og Framleiðnisjóði land-
búnaðarins.
Það voru tíu aðilar sem hófu nám-
skeiðið sem skiluðu af sér átta við-
skiptahugmyndum sem hægt væri að
hrinda í ffamkvæmd í Dalabyggð.
Hugmyndir þessar voru í senn
skemmtilegar og spennandi og
greinilegt að tækifærin til atvinnu-
sköpunar í Dalabyggð eru fjölmörg
og fjölbreytileg. „Það var Þrekvirki
sem stendur fyrir verkefnum í at-
vinnusköpum sem stóð fyrir þessu
námskeiði og er að vinna feiknargott
starf sem sldlar alveg einstökum ár-
angri til atvinnusköpunar," sagði G.
Agúst Pétursson verkefnastjóri hjá
Frumkvöðlaffæðslunni þegar harm
opnaði kynningu þátttakenda. Sér-
stök dómnefhd valdi bestu viðskipta-
áætlunina og veitti KB-banki og
Framleiðnisjóður verðlaun. Dóm-
nefhdin gat að lokum ekki gert upp á
milli tveggja áædana. Það var því
niðurstaðan að veita tveimur áædun-
um fyrsm verðlatm en þau voru:
Gallerí gyðja, viðskiptahugmynd
Guðbjargar Björnsdóttur og Æsku-
fjör - ferðaþjónustan Arbliki, við-
skipahugmynd Þorgríms Guðbjarts-
7^mnin/i~^
Æskufjör
- ferðaþjónustan Arbliki
Þorgrímur Guðbjartsson frá Erps-
stöðum kynntí hugmynd sína að
koma upp starfssemi í Félagsheimil-
inu að Arbliki. Sagði hann að mark-
mið fyrirtækis hans að koma upp
ferðaþjónustu fyrir fjölskyldufólk þar
sem fyrst og fremst væri lögð áhersla
á afþreyingu fyrir börn og barnafjöl-
skyldur því mikill skortur er á barn-
vænum ferðamannastöðum hér í
Dalabyggð. „Þama á að vera pláss
fyrir 80 tjöld auk húsbíla með þeirri
þjónusm sem fylgir slíkum stöðum,"
sagði Þorgrímur. Þama verða einnig
ýmis afþreying fyrir böm s.s. útileik-
tæki, heitir pottar, húsdýr og barna-
smiðja svo eitthvað sé nefnt. Göngu-
leiðir verða fyrir fullorðna, fyrirlestr-
ar sem og sögukynning á svæðinu.
Aðalstarfsemin er að sumri en Þor-
grímur sér fyrir sér að hægt sé að
nýta svæðið yfir vetrartímann í sam-
vinnu við Ungmennabúðirnar að
Laugum í Sæhngsdal sem og Eiríks-
staði. „Þetta er fyrst og ffemst til
þess að sjá bömin blómstra því minn
markhópur er bamafólk. Þetta á að
vera skemmtilegur skammtímastað-
ur sniðinn að þörfum barnafjöl-
skyldna með öryggi í öndvegi."
Gallerý Gyðjan
Guðbjörg Björnsdóttir ffá Sæl-
ingsdalstungu kynntí hugmynd sína
að koma upp leirverkstæði og gall-
erýi í samvinnu við það. Sagði hún
markmið fyrirtækis síns að ffamleiða
handunna minjagripi ásamt annarri
leirvöru þar sem efrirspurn eftir slíku
Frá Hollvinasamtökum Þárðar
Halldórssonar frá Dagverðará
Þann 25. nóvember 2004 kom
traustur hópur saman í Lýsuhóls-
skóla og ræddi þá hugmynd að
stofna Hollvinasamtök Þórðar
Halldórssonar ffá Dagverðará, en
þann dag hefði Þórður orðið 99
ára, hefði hann lifað. Nú er brátt ár
liðið - samtökin orðin að veraleika
og ýmislegt verið aðhafst.
Framundan er föstudagurinn 25.
nóvember 2005 og þá ædum við að
fagna hundrað áram ffá fæðingu
Þórðar í Bjarnarfosskoti forðum.
Hvernig fömm við að því?
Málþing um ölkeldur
og heilsulindir
Þórður var óþreytandi að vekja
athygli á heilsugildi ölkelduvams-
ins og hélt því fram að á Snæfells-
nesi myndu rísa heilsulindir sem
nýttu sér ölkelduvatnið. Þess vegna
var ákveðið að á affnælisdeginum
yrði haldið Málþing um ölkeldur
og heilsulindir á Snæfellsnesi. Mál-
þingið verður á Lýsuhóli, þar sem
heitt ölkelduvatnið streymir upp úr
lauginni. Það hefst kl. 15 og áform-
að er að ljúka því kl. 18. Stjórnandi
málþingsins er heimamaðurinn;
Ragnhildur Sigurðardóttír. Dags-
skráin er í heild á www.refaskytta.is
Það er ástæða til að hvetja sem
allra flesta að koma á þetta málþing
ef aðstæður leyfa, þar sem miklum
ffóðleik verður miðlað og vonandi
fjörmikið pallborð á eftír.
Þórðargleði
Um kvöldið klukkan hálf níu
mun gleðin taka við af ölkelduvatn-
inu og gestír skemmta sér við sög-
ur, myndir, söng og dans a.m.k. til
miðnættis. Þessu öllu mun Jón B.
Guðlaugsson stýra, gamall vinur
Þórðar, en Jón er vísast mestur sér-
fræðingur í hinum mörgu vistar-
vemm sem bjuggu í Þórði ffá Dag-
verðará. Um söng og spil munu
þau sjá: Olína Gunnlaugsdóttir á
Ökrum, Dagverðarársystur, Keli
og Valintína og svo Sukkat og
Puntstráin. Jón Svanur Pétursson
mun svo slá botninn með harmon-
ikkuna.
Þá mun afmælisbarnið birtast á
tjaldi og segja sögur og fleiri era
líklegir að ausa úr sagnabrunninum
að Lýsuhóli. Myndskotum úr vænt-
anlegri heimildarkvikmynd verðtu
svo skotíð inn á milli.
Ekki þarf að hafa áhyggjur af
húsaskjóli og uppihaldi því Gistí-
heimilið að Langaholtí býður upp á
gistingu í tveggja manna herbergj-
um með baði á kr. 7000 herbergið
og eins er hægt að fá svefnpoka-
pláss. Þá er í boði Doddalegur
kvöldverður eftir málþingið á
krónur 2.000 fyrir manninn og
gistingu og mat þarf að panta í síma
435-6789 eða 435-6719 í Langa-
holtí með fyrirvara.
Þeir sem vilja klæðast við hæfi á
staðnum og í leiðinni styrkja holl-
vinasamtökin, geta keypt sér boli á
Lýsuhóli sem kosta kr. 1.000.- bol-
urinn. Þar verður einnig upp á
veggjum, ljósmyndasýningin um
Þórð sem opnuð var sl. sumar og
góða athygli hefur vakið.
Sameinust um að gera þennan
dag, 25. nóvember n.k. að eftir-
minnilegum og gjöfulum degi og
minnt á málþingið sem hefst kl.
15.00 og Þórðargleðina sem hefst
kl. 20.30.
F.h. Hollvinasamtakanna
Reynir Ingibjartsson, formaður.
er mikil. „Ég hef þegar fengið út-
hlutað aðstöðu í safnahúsi Leifs Ei-
ríkssonar hér í Búðardal og ég ætla
að nýta Búðardalsleirinn sem hér er í
jörðu í glerjung gripanna. Engu að
síður verð ég að nota erlendan leir í
gripina þar sem ekki er ffamleiddur
leir á Islandi til leirmunasmíði,"
sagði Guðbjörg. Það er einnig á
áætlun hjá henni að halda námskeið
bæði fyrir börn og fullorðna í leir-
munagerð ásamt því að hafa
leirsmiðju í safhahúsinu. Aðal fram-
leiðslan verður minjagripafram-
leiðsla þar sem lögð verður áhersla á
gripi tengda sögu Dalasýslu, svo sem
Laxdælu og Sögu Eiríks rauða.
Einnig verður boðið upp á námskeið
í fyrstu fyrir heimafólk en hugmynd-
in er að færa námskeiðin síðar út á
fleiri staði á Vesturlandi. „Minjagrip-
imir verða seldir bæði hér og á Ei-
ríksstöðum en þar koma um 12 þús-
und ferðamenn á ári. Samkeppnin er
ekki mikil en það er mín skoðun að
þeir samkeppnisaðilar sem em hér í
sveit muni ffekar sameinast um að
ffamleiða og selja þessa hlutí.“ Guð-
björg hyggst opna heimasíðu þar
sem framleiðslunni verður gerð skil
einnig ætlar hún að vera í samvinnu
við aðra staði á landinu sem hafa vík-
ingaþema á dagskrá sinni.
Skúmi ehf
Ragnar Gísh Ólafsson og Sigurdís
Elísa Lilja Sigursteinsdóttir úr
Hundadal kynntu hugmynd sína að
koma upp tölvufyrirtæki sem myndi
þjónusta einstaklinga og fyrirtæki á
Vesturlandi ásamt því að halda tölvu-
námskeið fyrir einstaklinga.
„Fyrirtækið verður staðsett í
Hundadal og mun viðskiptavinurinn
koma með tölvumar til okkar þar
sem það er ódýrast fyrir viðkomandi
ef ekki er hægt að sinna þjónustunni
í gegnum síma,“ sagði Ragnar.
Helstu verkefni þeirra verða að sjá
run uppfærslur fyrir fyrirtæki og ein-
staklinga ásamt því að sjá um við-
gerðir, halda námskeið, heimasíðu-
gerð, óvæmlosanir og -varnir. Aðal
markaðssvæði þeirra em Dalir og
Snæfellsnes þó með möguleika á
stækkun. Samkeppni er nokkur á
Vesmrlandi en forskot þeirra er mikil
þekking og reynsla sem og nálægð
við markað.
Marbakki
- lúxusdvöl í sveit
Kristjana Dröfh Haraldsdóttír úr
Búðardal, kynntí hugmynd sína að
stofna og reka sumarhús fyrir fatlaða
og eldri borgara. „Hugmyndin
kviknaði þegar ég var að fara með
vini mína sem vom fatlaðir í sumar-
bústað en það var mikið mál þar sem
bústaðimir vom ekki hannaðir með
þarfir fatlaðra í huga.“ Hún sagði að
það væri einnig hugmyndin að koma
samfara þessu á fót kúabúi sem rekið
yrði í samvinnu við sumarhúsin þar
sem gestir gæm kynnt sér starfsemi
kúabús og haft bæði gagn og gaman
af.
ingu. „Ég rek sauðfjárbú og hef
reynslu af ferðaþjónustu og veit að
efrirspurn er til staðar og einnig vant-
ar afþreyingu hér í sveitirnar," sagði
Jón. Staðsetning sumarhúsanna er í
mjög fallegu umhverfi við sjóinn sem
gerir það að verkum að hægt er að
hafa ýmis konar afþreyingu sem kem-
ur tíl með að laða ferðamenn að. Til
Verðlaunahafar þau Guðbjörg Bjömsdóttir og Þorgrímur Guðhjartsson ásamt Stefáni Jóns-
syni útihústjóra KB-hanka í Buðardal ogjóni GuShjömssyni fi-amkvœmdastjóra Fram-
leiðnijóðs landbúnaðarins.
Hestaskjól
Halldís Hallsdóttir frá Bíldhóli
kynnti fyrirtæki sitt sem rekur
saumastofu þar sem ffamleidd era á-
breiður fyrir hesta. „Efrirspum er
vaxandi og því er greinilega mikil
þörf fyrir þessar ábreiður,“ sagði
Halldís. Hún hefur rekið saumstofú
heima hjá sér í 5 ár og hefur því bæði
reynslu af ffamleiðslu og sölu. Þessar
ábreiður gera það að verkum að auð-
veldara er að ríða út í köldum veðr-
um því þær veita gott skjól. Einnig
haldast hestarnir ffekar hreinir og
þeim líður bemr við flutning oft í
köldum hestakerram.
Rati
Finnbogi Harðarson ffá Sauðafelli,
kynnti hugmynd sína um byggingu
og rekstur sumarhúsa á landi sínu.
„Það er markmið mitt að koma upp
tveimur sumarhúsum og 6 smáhýsum
á jörð minrú fyrir 2007,“ sagði Finn-
bogi. Nafnið á verkefhi hans er feng-
ið af kennileiti á jörð hans. Hugmynd
hans er að tengja húsin við hesta-
mannaþjónustu og hafa mikla sam-
vinnu við hestamenn. Einnig ætlar
harm að safna sögu staðarins og hafa
hana aðgengilega fyrir gesti og telur
hann að það muni draga fleiri að.
Staðsetning þeirra er á fornum kross-
götum og þar em víða fornar sögu-
slóðir sem og einnig em reiðleiðir
mjög góðar í nágrenninu.
Sumarhús við sæinn
Jón Egill Jóhannsson ffá Skerð-
ingsstöðum II kynnti hugmynd sína
um sumarbústaðaleigu við sæinn þar
sem boðið verður upp á ýmsa afþrey-
dæmis er hægt að bjóða upp á fjöru-
ferðir, smalamennsku, gæsaveiði og
vera við sauðburð svo að eitthvað sé
nefht.
Gróska ehf
Snæbjörg Bjartmarsdóttir frá
Fremri - Htmdadal kynntí hugmynd
sína um að koma á lífrænni ræktun í
gróðurhúsum staðsettum í Hunda-
dal. „Þörfin er til staðar í heimi hraða
og streitu þar sem skyndiréttir era
mishollir og er þetta gert til þess að
gera bitann hollari,“ sagði Snæbjörg.
Það er ætlun mín að koma upp
tveimur gróðurhúsum þar sem á að
fara ffam líf'ræn ræktun á grænmeti
með áherslu á tómata-, gúrku- og
paprikuræktun. Hún hefúr verið með
tílraunaræktun á þessum tegundum
og gengið vel. Að sögn Snæbjargar þá
er stefnt á að gróðurhúsin verði tvö
350 fermetrar hvort og þau himð upp
með heitu vatni sem nóg er af í Döl-
um.
Tvö verkefini verðlaunuð
Stefán Jónsson, útibústjóri KB-
banka í Búðardal, afhenti verðlaun
bankans og sagði einnig ffá að Jón
Guðbjörnsson framkvæmdarstjóri
Framleiðnisjóðs landbúnaðarins hafi
ákveðið að gefa sömu verðlaun þar
sem sigurvegarar vom tveir. Það kom
ffam í máli Stefáns að hann væri
mjög ánægður með þá grósku sem
væri í atvinnumálum héraðsins og
væri það mikil ánægja hjá KB-banka
að styðja við bakið á þeim ffumkvöðl-
um sem augljóslega vilja styðja
heimabyggð sína með því að auka
fjölbreytni í atvinnumálum.
ÞC
Þjóðhátíðardagur Pólverja í Snæfellsbæ
Þann 11. nóvember var þjóðhá-
tíðardagur Pólverja. Að því tilefni
héldu Pólverjar í Snæfellsbæ upp á
daginn með ýmsu móti í félags-
heimilinu Klifi þann 12. nóvember
sl. Pólverjar sem era um 100 í bæj-
arfélaginu tóku sig saman og æfðu
dansa, söngva og útbjuggu ýmis-
konar mat að hætti Pólverja. Þá var
flutt erindi um samskipti Pólverja
við einstaklinga og fyrirtæki í Snæ-
fellsbæ sem eiga sér rúmlega tutt-
ugu ára sögu en þau hófust þegar
Utgerðarfyrirtækið Hrói í Olafsvík
lét byggja fiskiskipið Jökul í
Gdansk 1984.
A hátíðinni, eftir að þjóðsöngur-
inn hafði verið sunginn, byrjuðu
Pólverjar á að dansa polonez en það
er þjóðdans ffá 17. öld en allar sam-
komur þeirra byrjuðu á þessum
dansi en hann er uppranin úr sveit-
um Póllands og er eins konar
Nejhdin sem stóð að pólska fjóðhátðíðardeginum. Frá vinstri: Katarzyna Mijal, Zofta
Mijal og Ursula Zyskowska.
göngudans. Á næstu áratugum varð
hann svo dans heldri manna og svo
seinna þjóðdans. Fjöldi manns
mættu á hátíðina og horfðu á
dansana og hlýddu á hið flutta efhi
og einnig til að gæða sér á góðum
mat. Dansað var ffam eftir nóttu
eftir pólskri og íslenskri tónlist og
pólverjar kunna svo sannarlega að
skemmta sér. Þessi hátíð Pólverj-
anna var skemmtileg nýbreytni í
bæjarlífið í Snæfellsbæ og vonandi
komin til að vera á næstum áram.
PSJ