Skessuhorn - 16.11.2005, Síða 15
giHÉSSHJHOEM
MIÐVIKUDAGUR 16. NÓVEMBER 2005
15
Afmœli
Sturla Böðvarsson
samgönguráðherra
verður sextugur 23. nóvember n.k.
Afþví tilefni bjóða þau Sturla
Hallgerður kona hans
og börn til móttöku laugardagin
19. nóvember í
Hótel Stykkishólmi
kl. 17:00-19:00.
Þau vonast til að sjá sem flesta.
Hljómsveitin Irafár.
írafár til styrktar
Einstökum bömum
írafár og íslandsbanki standa um
þessar mundir fyrir 11 tónleikum
víðsvegar um landið ril styrktar Ein-
stökum bömum. Nú er röðin kom-
in að Vesturlandi en í Ólafsvík verð-
ur hljómsveitin 17. nóvember og
daginn efrir, 18. nóvember í Bíó-
höllinni á Akranesi.
KARFAN
Góð ferð í
gúrkubæinn
Skallagrímsmenn gerðu góða
ferð í garðyrkjubæinn Hveragerði
á þriðjudag og urðu ekki fyrir nein-
um gróðurhúsaáhrifum þegar þeir
mættu heimamönnum í
Hamri/Selfossi. Gestirnir sýndu
stórleik, sérstaklega í síðari hálf-
leik og uppskáru einhvern stærsta
sigur sinn í langan tíma. Lokatölur
urðu 75 - 109 og hefði sigurinn
hæglega getað orðið stærri. Þess
má geta að fyrrverandi leikmaður
Skallagríms, Clifton Cook var í liði
heimamanna og þeirra atvkvæða-
mestur þótt það hrykki skammt.
Bandaríkjamaðurinn í liði Skalla-
gríms, Christopher Manker, átti
stórleik en þetta var hans kveðju-
leikur þar sem hann er horfinn af
landi brott en í hans stað kemur
George Byrd sem átti góðan leik
með Sköllunum í fyrra. Dimitar
Karadzovoski átti einnig toppleik,
sömuleiðis Axel Kárason og þá er
Finnur Jónsson að koma sterkur
inn eftir nokkuð hlé
Stórsigur
á Akureyringum
Skallagrímsmenn fengu Þór á
Akureyri í heimsókn síðastliðinn
fimmtudag og sýndu enga gest-
risni heldur léku gestina fremur
grátt. í hálfleik munaði reyndar
ekki nema 10 stigum á liðunum en
niðurstaðan var stórsigur, 91 - 65.
Jovan Zdravevski átti stórleik líkt
og oft áður, skoraði þriðjung stig-
anna en þeir Þétur Sigurðsson og
Christoper Manker voru einnig í
góðum gfr.
Máttu ekki við
margnum
Snæfellingar sóttu ekki gull í
greipar Grindvíkinga sem verma
sem stendur annað sæti lceland
Express deildarinnar í körfuknatt-
leik. Grindvíkingar eru með einn
stærsta og sterkasta leikmanna-
hóp deildarinnar á meðan Snæ-
fellingar eru fremur fámennir
þannig að segja má að þeir hafi
ekki mátt við margnum. Heima-
menn í Grindavík höfðu yfirhönd-
ina frá upphafi og leiddu lengst af
með 10 stiga mun. í lok þriðja leik-
hluta náðu Snæfellingar hinsvegar
að minnka muninn og hleypa
verulegri spennu í leikinn en
Grindvíkingar hleyptu þeim aldrei
fram úr sér og uppskáru sigur þótt
ekki væri hann afgerandi. Lokatöl-
ur urðu 95 - 90 en staðan í leikhléi
var 54 - 46. Nate Brown og Igvald-
ur Magni Hafsteinsson voru bestu
menn Snæfellinga í leiknum.
GE
Skák og mát í Olafsvík
Gestir og gangandi eru boðnir
velkomnir á dagskrá á sal Grunn-
skóla Snæfellsbæjar í Ólafsvík, n.k.
föstudag, 18. nóvember. Merkir
gestir heimsækja þar nemendur 5. -
10. bekkjar og kynna þeim skák-
íþróttina en hún er ein valgreina á
þessu skólaári. Félagar Taflfélags
Snæfellsbæjar skiptast á að kenna
skák á hverjum föstudegi. Félagið
stendur einnig að dagskránni í skól-
anum sem hefst klukkan 11:15 á sal
skólans í Ólafsvík. Þar mun Guð-
ffíður Lilja Grétarsdóttir, formaður
Skáksambands Islands og Norður-
landa ræða við nemendur, Lenka
Ptácnikova, Norðurlandameistari
kvenna og annar hvor þeirra; Helgi
Ass Grétarsson eða Helgi Ólafsson,
stórmeistarar, munu bjóða nemend-
um og gestum í tjöltefli.
Skólafólk í GS þakkar félags-
mörmum TS fyrir komu þessara
gesta svo og frábæran stuðning við
skólastarfið með kennslu skákíþrótt-
arinnar í skólanum en eins og marg-
ir vita þá stendur félagið fyrir afar
sterku skákmóti, hinu árlega minn-
ingarmóti um Ottó Amason, í fé-
lagsheimilinu á Klifi nú um helgina.
Við bjóðum alla velkomna á skák-
dagskrána í skólanum á föstudaginn
og því ekki að taka eina skák við
meistarana í hópi gestanna!
Nemendur og starfsfólk GS
Taflfélag Snæfellsbæjar
íslandstúr írafárs og íslandsbanka
hefur það markmið að safina fé til
styrktar Einstökum bömum. Allur
aðgangseyrir mtm renna óskiptur til
Einstakra bama, sem er stuðningsfé-
lag fjölskyldna barna með sjaldgæfa
og alvarlega sjúkdóma. Þeir sem
vilja styrkja Einstök börn ættu nú að
skella sér á tónleika; hlusta á góða
tónlist um leið og gott málefni er
smtt. Frekari upplýsingar er að finna
á www.einstok.com,www.irafar.is og
www.isb.is. MM
Utsala
hjá Olís h.f. Suðurgötu 10
laugardaginn 19. til sunnudagsins 27. nóvember
afsláttur á öllum
vörum frá Elllngsen
í tilefni af útsöluni veröur öllum börnum gefin ævintýrafspinni
sunnudaginn 20. nóvember. Einnig verður
10 krónu afsláttur afbensíni og gasolíu þann dag.
ELLiN
0115
<iíf3!Hf@9aTdi i I Rt'yk.javfV j Stmi V*0’4$00 \ f« 8S0I
SvtiSwrtjati! | tvjífúfftur \ Vmt 4
OltvtffsWH fviancís hf SundaíjardaT 2.. lAg#*ðarv«mw«h>ttd
nmt SI5 13h7, fa*S1S t1»0