Skessuhorn


Skessuhorn - 16.11.2005, Page 16

Skessuhorn - 16.11.2005, Page 16
Nýtt og öflugt verkfæri til íbúðakaupa íbúðalán.is www.ibudalan.is PÓSTURINN Tillaga um að rétta af ^ uppsafiiaðan halla LBHI í breytingatillögum sem meiri- hluti fjárlaganefndar Alþingis hefur lagt fram við fjáraukalög fyrir árið 2005 eru lagðar til auknar fjárveit- ingar til Landbúnaðarháskóla Is- lands á Hvanneyri. Lögð er til 69,2 milljóna króna fjárveiting til að jafna út uppsafnaðan rekstrarhalla og er þá miðað við að stofhunin verði hallalaus í árslok 2005. Hall- inn skiptist þannig að 6,2 milljónir króna er áætlaður hallarekstur í ár vegna kostnaðar við sameiningu en 63 milljónir króna er óuppgerður uppsafnaður rekstrarhalli þeirra stofnana sem sameinuðust í Land- búnaðarháskóla Islands í árslok 2004. Tillagan kemur til viðbótar 38,5 milljóna króna framlagi sem gert er ráð fyrir í frumvarpinu og samtals er því gerð tillaga um 107,7 milljóna króna vegna hallareksturs og kostnaðar við sameiningu stofn- ananna. Þá er gerð tillaga um 30,5 millj- óna króna fjárveitingu til að gera upp halla á ffamkvæmdum við nýtt fjós á Hvanneyri. Er sú fjárhæð til viðbótar 22,3 milljóna króna ffam- lagi vegna virðisaukaskatts sem gert er ráð fyrir í frumvarpinu og sam- tals er því gerð tillaga um 52,8 milljónir króna vegna fjósbygging- arinnar. Samkvæmt upphaflegum áætlunum var gert ráð fyrir að kostnaður við fjósbygginguna yrði 132,6 milljónir króna. Til fram- kvæmdanna hafði skólinn 70 millj- ónir króna á fjárlögum og 25 millj- óna króna styrk frá Framleiðnisjóði landbúnaðarins, auk þess sem smærri styrkir og vaxtatekjur námu 5,9 milljónum króna. Alls hefur skólinn því haft 100,9 milljónir króna til ffamkvæmda við fjósið á móti 131,4 milljónum króna kostn- aði og nemur halli skólans af fram- kvæmdunum fyrir utan virðisauka- skatt því 30,5 milljónum króna. HJ Afram lánasjóður landsbyggðarinnar íbúðalánasjóður var á fyrstu níu mánuðum ársins með yfir 90% markaðshlutdeild í nýjum íbúða- lánveitingum á landsbyggðinni. A sama tíma var markaðshlutdeild sjóðsins á höfuðborgarsvæðinu vun 44%. Þetta kemur ffam í svari fé- lagsmálaráðherra á Alþingi við fyr- irspurn Jóhönnu Sigurðardóttur. I svari ráðherra kemur ffam að ekki hggi fyrir áreiðanlegar upplýsingar um markaðshlutdeild í nýjum íbúðalánum en með samanburði á fjölda þinglýstra kaupsamninga og fjölda nýrra lána Ibúðalánasjóðs á fyrstu níu mánuðum ársins megi lauslega áætla áðurnefnda markaðs- hlutdeild. Með sömu aðferðarffæði má finna út að á árinu 2004 hafi markaðshlutdeild Ibúðalánasjóðs á landsbyggðinni verið yfir 95% og um 65% á höfuðborgarsvæðinu. Má því segja að Ibúðalánasjóður haldi sinni hlutdeild þar sem mark- aðsverð hefur hækkað minnst og hámarkslán sjóðsins duga til kaupa á fasteign. A höfuðborgarsvæðinu er fasteignaverð komið í áður ókunnar hæðir og sú hækkun virð- ist að mestu fjármögnuð með lán- um frá öðrum fjármálastofhunum. Þá kemur ffam í svari ráðherra að áætluð markaðshlutdeild Ibúða- lánasjóðs á íbúðalánamarkaði hafi verið um 56% í lok fyrsta ársfjórð- ungs 2005, hlutdeild banka hafi verið 31 % og hlutdeild lífeyrissjóða hafi verið um 13 %. A sama tíma á árinu 2004 var hlutdeild Ibúðalána- sjóðs um 80%, hlutdeild bankanna um 5% og lífeyrissjóða um 15%. HJ r . Ibúum Vesturlands fjölgar lítillega Þann 30. júní voru íbúar á Vest- urlandi 14.500 talsins og hafði fjölgað úr 14.429 ffá því á sama tíma í fyrra eða um rúmlega hálft prósent. Þann 31. desember 2004 voru íbúarnir hins vegar 14.422 talsins þannig að fjölgunin á þessu ári er ívið meiri en síðasta árið. Til samanburðar má geta þess að á síð- ustu tólf mánuðum hefur íbúum á landinu öllu fjölgað um ríflega 1%. Af einstökum sveitarfélögum má nefha að síðasta árið hefur íbúum á Akranesi fjölgað úr 5.601 í 5.721 eða um rúmlega 2%. íbúttm Skil- mannahrepps hefur á sama tíma fjölgað úr 153 í 194 eða um tæp 27%, íbúum Grundarfjarðar fjölg- ar úr 934 í 952 eða um tæplega 2%. Af sveitarfélögum þar sem íbúum hefur fækkað má nefha að íbúum Snæfellsbæjar fækkar úr 1.744 í 1.705 eða um rúm 2,2%. Hér að neðan má sjá töflu með í- búafjölda í sveitarfélögum á Vest- urlandi um mitt ár í fyrra, í árslok og um mitt ár á þessu ári. HJ Mannfjöldi í sveitar- félögum á Vesturlandi Sveitarfélag Akranes Hvalfjarðarstrandahr. Skilmannahreppur Innri-Akraneshreppur Leirár- og Melahreppur Skorradalshreppur Borgarfjarðarsveit Hvítá rsíðuhreppur Borgarbyggð Kolbeinsstaðahreppur Grundarfjarðarbær Helgafellssveit Stykkishólmur Eyja- og Miklaholtshr. Snæfellsbær Saubæjarhreppur Dalabyggð Samtals 30.06 2004 5.601 151 153 122 135 55 684 85 2.590 104 934 55 1.136 132 1.744 88 660 14.429 31.12 2004 5.657 147 166 117 130 64 668 84 2.594 100 938 47 1.141 139 1.719 81 630 14.422 30.06 2005 5.721 148 194 116 130 64 685 84 2.580 98 952 50 1.136 146 1.705 78 613 14.500 ^ HóTeL ° Sími 431 4240 Jólahlaðborð io. og 17. des. Fordrykkur - Forréttir - Aðalréttir ~ Eftirréttir - Kaffi og konfekt Svarta nótan og frábæra söngkonan Rúna Stefánsdóttir leika undir borðhaldi og fram eftir kvöldi. Frítt inn eftir borðhald. Mikill matur og góð skemmtun ir lítinn peninj sieinetni - *» ‘‘HSffliwW SieiNa Wiw rt hesiamw Steine tnasiamoai mannesíuinto ðurtrtoHHH s,0n « »W 2S nein á BÚREKSTRARDEILD * ...O***®* Sólbakka 8 - 310 BorgarnesittiMiiilifiúiii'liiti'iXÍl Afgreiðsla sími 430 5620 - Fax 430 5621

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.