Skessuhorn - 22.02.2006, Side 1
VIKUBLAÐ ÁVESTURLANDI 8. tbl. 9. árg. 22. febrúar 2006 - Kr. 300 í lausasölu
Fyrsti fram-
boðslistánn
kynntur
Framboðslisti Sjálfstæðisflokksins í
sameinuðu sveitarfélagi í Borgarfirði
ásamt Kolbeinsstaðarhreppi fyrir sveit-
arstjórnarkosningamar í vor var kynnt-
ur í gærkvöldi. Þetta mun vera fyrsti
framboðslistinn sem lagður er ffam á
Vesturlandi fyrir kosningamar. Odd-
vitasæti listans skipar Björn Bjarki Þor-
steinsson, sölustjóri en hann situr nú í
bæjarstjórn Borgarbyggðar. Tvö næstu
sæti listans skipar fólk sem ekki hefur
tekið þátt í sveitarstjórnarmálum á
þessu svæði áður, þau Torfi Jóhannesson
ráðunautur og Ingunn Alexandersdóttir
leikskólastjóri. I fjórða sæti hstans er
Þórvör Embla Guðmundsdóttir, en hún
situr í sveitarstjórn Borgarfjarðarsveitar
og fimmta sætið skipar Bernharð Þór
Bernharðsson, deildarstjóri á Bifröst.
Heiðurssæti listans skipar Helga Hall-
dórsdóttir, núverandi oddviti sjálfstæð-
ismanna í Borgarbyggð. Sjá listann í
heild sinni á bls. 12.
A næstu dögum fer að draga til tíð-
inda hjá fleiri stjórnmálaöflum á Vestur-
landi, enda einungis 3 mánuðir til kosn-
inga.
MM
Fjölgunin mest
údendingar
Eins og ffam hefur komið í fréttum
Skessuhoms fluttu 267 fleiri íbúar til
Vesturlands en ffá því á síðasta ári. Alls
fluttu 391 íbúi til svæðisins en 124 ffá
því. Þegar samsetning þeirra sem fluttu
til og frá Vesturlandi í fyrra er skoðuð
kemur athyglisverð staðreynd í ljós. Að-
eins 9 fleiri íslenskir ríkisborgarar fluttu
til Vesturlands en frá því eða 102 að-
fluttir en 93 brottfluttir. Hins vegar
fluttu 258 fleiri erlendir ríkisborgarar til
Vesturlands en ffá því. 289 fluttu á Vest-
urland en 31 frá landshlutanum.
HJ
ATLANTSOLIA
Disel ‘Faxabraut 9.
Arshátíð Fjölbrautaskóla Snœfeltinga í Grundarftríi var haldin með pompi og pragt þann 10. febrúar sl. Bar hátíðin keim af því að stutt var í Vatintínusardaginn og var
salurinn skreyttwr hátt og lágt með hjartalaga blöðrum og rósablöðum. Um 130 manns mœttu og skemmti sér konunglega. Steinunn og Olafur í mötuneytinu töfruðufram
dýrindis krásir og Gunni í Strákunum var veislustjóri. Að lokum var haldið á ball í Samkomuhúsi Grundarfjarðar þar sem hljómsveitin I sv 'örtum fótum lékfyrir dansi
fram á rauða nótt. Ljósm. Sverrir
Sumarbústöðum á Vesturlandi
fjölgar um 7% milli ára
Sumarbústöðum á Vesturlandi fjölgaði um 189 á sl. ári.
Samkvæmt upplýsingum frá voruskráðirbústaðir2872 áVest-
Fasteignamati ríkisins fjölgaði urlandi, en í árslok 2004 vom þeir
skráðum sumarbústöðum á Vest- 2683 talsins, þannig að alls hafa
urlandi um 7% milli áranna 2004 189 bústaðir verið byggðir á ár-
og 2005. Þann 31. desember sl. inu. Af einstökum sveitarfélögum
í landshlutanum era flestdr bú-
staðir nú skráðir í Borgarbyggð,
eða 1049 og hafði þeim fjölgað
um 52 á árinu. I Skorradalshreppi
eru nú 597 sumarbústaðir og
fjölgaði um 39 árið 2005. í Hval-
fjarðarstrandarhreppi fjölgaði bú-
stöðum um 42 á liðnu ári, era nú
419 talsins og í Borgarfjarðarsveit
era nú 312 bústaðir, fjölgaði um
27 á liðnu ári.
Fasteignamat sumarbústaða á
Vesturlandi var árið 2004 9,6
milljarðar króna og hefur það
hækkað um hvorki meira né
minna en 45,8% milli ára, er nú
rétt tæpir 14 milljarðar króna.
Eins og áður hefur verið sagt frá í
Skessuhomi hækkaði fasteigna-
mat sumarbústaða á Vesturlandi
mikið sl. haust. Miðað við að
bæði komi til hækkað fasteigna-
mat sumarbústaða og mikil fjölg-
un bygginga geta sveitarfélög þar
sem flestir sumarbústaðir era til
staðar því reiknað með gríðarleg-
um tekjuauka af fasteignagjöldum
á þessu ári. Sem dæmi hækka fast-
eignagjaldatekjur Borgarbyggðar
um 4,9 milljónir króna milh ára,
en þar er álagningarprósenta fast-
eigna af sumarbústöðum óbreytt
ffá fyrra ári eða 0,41% af fast-
eignamati.
MM
Laukur
—
Saltkjöt fyrir Sprengidaginn
Mikið úrval - Tilboðsverð
Samkaup I úrva L
%
Gular baunir
500 gr.
Akureyri • Blönduós • Bolungarvík • Borgarnes • Dalvík • Egilsstaðir • Hafnarfjöröur • Húsavík • ísafjöröur • Neskaupsstaður • Njarðvík • Ólafsfjörður • Selfoss • Siglufjörður • Skagaströnd
Verð birt með fyrírvara um prentvillur • Tilboðin gilda 23. - 26 . feb.