Skessuhorn


Skessuhorn - 22.02.2006, Qupperneq 2

Skessuhorn - 22.02.2006, Qupperneq 2
2 MIÐVIKUDAGUR 22. FEBRUAR 2006 ■■■.tv'l.i...: , Til minnU Við minnum alla íþróttaunn- endur á leik Skallagríms og Snæfells, í lceland Express deildinni í körfubolta, sem fer fram í Borgarnesi sunnudag- inn 26. febrúar og hefst kl. 19:15. Þetta ver&ur væntan- lega nágrannaslagur af bestu Næstu daga verbur fremur hæg breytileg átt og skýjað með köflum. Úrkoma öðru hverju þó einkum á sunnan- verðu Vesturlandi. Hitastig 0 til 5 stig að degi til en á stöku stað gæti hiti farið niður fyrir frostmark á nóttinni. SpMrniruj viR^nnar í tilefni af konudeginum síð- astliðinn sunnudag, spurbum vib inn á vef Skessuhorns: Gef- ur þú blóm á konudaginn? Niðurstöðurnar komu nokkuð á óvart þar sem 54% sögðust ekki gefa blóm á konudaginn. 38% þeirra sem svöruðu, sögðust gefa blóm og 8% voru ekki búnir að gera það upp við sig og sögbust ekki vita það. Skessuhorn ætlar að gefa sér það að margar konur hafi tekið þátt í spurningu vik- unnar og þar af leiðandi svar- að neitandi sem skýrír þessa niðurstöðu. í næstu viku spyrjum við: „Ertu fylgjandi því oð flett sé ofan af barnaníöingum eins og NFS hefur gert?" Svarabu án undanbragöa á www.skessuhorn.is VestlendirujMr vikwmar Að þessu sinni er Vilhjálmur Pétursson, fangelsisstjóri á Kvíabryggju Vestlendingur vikunnar. Hann hefur stýrt fangelsinu með farsælum ár- angri sl. aldarfjór&ung. Stofiifundur Snæfrosts í Grundarfirði Síðastliðinn laugardag var hald- inn í Sögumiðstöðinni í Grundar- firði stofnfundur hlutafélags um byggingu og rekstur frystihótels (frystigeymslu) í Grundarfirði. Fé- lagið gengur undir vinnuheitinu Snæfrost en nokkrir aðilar hafa unnið að undirbúningi félagsins, eins og fram hefur komið í fféttum Skessuhorns. Framhaldsaðalfund- ur verður haldinn eftir tvær vikur, en á þeim tíma verður mögulegt fyrir þá sem vilja að gerast hluthaf- ar og skrá sig fyrir hlutafé í félag- inu. Starfsemi frystigeymslu er með þeim hætti að hún tekur við fryst- um afurðum til geymslu, gegn gjaldi, um lengri eða skemmri tíma, fyrir þá sem þess óska. Getur þá verið um að ræða t.d. beitu, frystar sjávarafurðir hvers konar og jafnvel frystar landbúnaðaraf- urðir. Ætlun undirbúningsnefndar er að geymslan rísi á nýrri landfyll- ingu við stóru bryggju, en væntan- legar byggingarlóðir á því svæði (ca. 7500 m2 byggingarlands) verða innan skamms auglýstar lausar til umsóknar. Undirbúningsstjórn var skipuð á fundinum en í henni sitja Þórður Magnússon, Kristján Guðmunds- son, Gísli Olafsson og Hafsteinn V. Asgeirsson. Einnig er í undir- búning að stofna olíuhótel á þessarri sömu uppfýllingu en sú vinna er skemmra á veg komin. Eldur í sldðalyftunni í Olafsvík Síðastliðinn laugardagsmorgun kom upp eldur í skíðalyftunni við Engihlíð í Olafsvík. Var slökkvilið Snæfellsbæjar kallað á staðinn og réði fljótt niðurlögum eldsins. Veðrið var mjög gott í Olafsvík þegar eldurinn kom upp og gekk því slökkvistarf mjög vel. Lyftuhús- ið er gömul skipsbrú og er mann- virkið ónýtt eftir eldinn. Ekki fékkst staðfest um eldsupptök en grunur leikur á að börn hafi verið að fykta með skotelda á svæðinu áður en eldurinn blossaði upp. MM Sandblástur Sigurjóns hættir Sandblásturs Sigurjóns, sem var til húsa í iðnaðarhverfinu á Höfða- seli á Akranesi, hætti starfsemi sinni um sl. áramót og er húsnæði fýrir- tækisins og lóð nú til sölu hjá Fast- eignamiðlun Vesturlands. A lóð- inni, sem er um 5000 fermetrar að stærð, eru tvö stálgrindahús hvert um 200 fermetrar, sem byggð voru árið 1997. „Eg ætla að selja allt saman nema tvær gröfur og einn vörubíl, því gröfuþjónustunni mun ég halda áffam,“ segir Sigurjón Runólfeson í samtali við Skessu- horn. „Eg var orðinn svolítið leiður á þessari skrifstofuvinnu. Eg vil helst vera í meira ati eða „drullu- vinnu“ og því hentar gröfuþjónust- an mér vel, en ég mun einnig vinna einhverja vélavinnu fyrir Gámu.“ Aðspurður um ástæðu sölunnar segist hann hafa viljað breyta tdl, en bendir jafnffamt á að þetta sé árs- tíðabundin starfsemi þó verkefni hafi verið næg ffamundan. „Það hafa þónokkrir sýnt þessu áhuga og er ég því ekki í vafa um að ég nái að selja fýrir sanngjamt verð,“ segir Sigurjón að lokum. KÓÓ --------------------------------------3*- Stjómarsldpti í stúdentaráði LBHI Á dögunum tók við ný stjórn í Stúdentaráði LBHI á Hvanneyri. Talsverðar breytingar hafa orðið undanfarið ár á starfsumhverfi Stúd- entaráðsins þar sem aukning nemenda í skól- anum var mikil við stofnun Landbúnaðar- háskóla Islands, en nem- endafjöldi í skólanum fór úr 109 í 235 og verð- ur það að teljast talsverð aukning. Mikil hags- munabarátta nemenda fór fram á ýmsum vett- vangi og meðal annars mótmælm nemendur harðlega hækkun á skólagjöldum í byrjun skólaársins. Stúdentaráð LBHI er nú orðið fullgildur með- limur í Bandalagi íslenskra náms- manna og er það mikilvægt fyrir lítinn skóla eins og LBHI að taka þátt í þessu sameiginlega baráttu- Ný stjóm Stúdentaráðs LBHI, frá vinstri: Helgi Einarsson, formaSur, Benjamín Öm Davíðsson, rit- ari, Svanhildur Ósk Ketilsdóttir, gjaldkeri, Vigfús Friðriksson, fulltrúi í kennslunefnd, Vignir Þór Siggeirsson, fúlltrúi í kennslunefnd, og Asta Kristín Guðmundsdóttir, fulltrúi í stjóm Nemendagarða. Lidu landað á vertíðinni AKRANES: í gær var búið að landa um 3.500 tonnum af loðnu til slldarbræðslunnar á Akranesi. Það verður að teljast lítdð miðað við að loðnuvertfðinni fer senn að ljúka. Helsta skýring á því hversu lidu hefur verið landað á Akranesi er efalaust sú hversu hdum kvóta hefur verið úthlutað. Þá hefur lítið veiðst fýrir sunnan land af loðnunni ef undan er skil- ið skot sem kom í veiðar þar í lið- inni viku. -mm tæki stúdenta á íslandi. Aðstaða Stúdentaráðsins hefur stórbatnað þar sem það hefur nú tíl umráða heila álmu í kjallara Nýja skóla fýr- ir starfsemi sína og ritstjórn skóla- blaðsins. Einnig var opnuð í byrj- un ársins líkamsræktaraðstaða í kjallara skólans sem hefur verið vel sótt og fengið góðar viðtökur nemenda og staðarbúa. Félagslífið hefur verið öflugt að vanda með tílheyrandi grillveislum, árshátíð, þorrablóti, fyrirlestrum, búfjár- ræktarferðum og n.k. fimmtudag 23. febrúar verður Viskukýrin haldin, sem er spurningakeppni milli nemenda og kennara skólans. Logi Bergmann Eiðsson er spyrill í þeirri keppni. GB/ Ijósm. Bragi Bergsson Síðasti sperrubitínn BORGARNES: í gær var lokið við að hífa síðasta sperrubitann í ný- byggingu við verksmiðjuhús Loftorku í Borgarnesi. Bitamir er með þeim stærstu sinnar tegundar hér á landi og eru í byggingunni fimmtán slíkir bitar. Lokafrágangur uppsettur við þak hússins stendur nú yfir ásamt annarri vinnu innandyra. Nýja húsið er um 3000 fermetrar að grunnfleti. Þegar það verður tilbúið stóreykst ffamleiðslugeta fýrirtækis- ins en ekki veitir af þar sem verkefhi eru mikil um þessar mundir. -mm Idol heimsókn eykur nyt HVANNEYRI: Á liðnum Þorraþræl komu í heimsókn í Búvélasafnið á Hvanneyri þau sem nú standa eftir í Idol - keppni Stöðvar 2. Það var Guð- mundur Hallgrímsson ráðsmað- ur sem leiddi þau í allan sannleik um leyndardóma safnsins og var unga söngfólkið hið áhuga- samasta. Gestirnir brugðu sér einnig í Fitness - keppni undir stjóm ráðsmannsins og sungu fagurlega fyrir Hvanneyrarkýrn- ar, sem skiluðu óvenju mikilh mjólk næsta málið. Idol - ung- mennin unnu hug og hjörtu ungra Hvanneyringa, sem eftir sátu með áritanir og aðrar minjar góðrar gestakomu. -buvelasafn.is / Akæra AKRANES: Ríkissaksóknari gaf í vikunni út ákæra á hendur manni vegna sérstaklega hættu- legrar líkamsárásar sem áttí sér stað á Akranesi í október sl. Akærði kom að heimahúsi þar í bæ vopnaður stálkylfu og var er- indið að sækja muni sem hann taldi sið eiga hjá húsráðanda. Agreiningur varð um málið sem endaði á því að komumaður réðst á húsráðandann og barði hann 5 sinnum með kylfunni þannig að talsverðir áverkar hlutust af. -mm Slys á Langjökli BORGARFJÖRÐUR: Maður slasaðist síðasdiðinn laugardag í vélsleðaslysi á Langjökli. Var hann ffuttur til móts við þyrlu Landhelgisgæslunnar, sem lenti skammt frá Reykholti og flutti hann á bráðamóttökuna í Foss- vogi. Maðurinn hlaut rifbrot og innvortis mar en er ekki í h'fs- hættu. -kóó Grunur um ölv- un í göngunum HVALFJORDUR: Sl. surmu- dag var bifreið ekið utan í vegg Hvalfjarðarganganna. Granur vaknaði tun að ökumaður væri ekki allsgáður og var hann færð- ur umsvifalaust á lögreglustöð þar sem læknir tók úr honum blóðsýni. Maðurinn bar því við að hann hefði eldd ekið biffeið- inni þrátt fýrir að vitni staðfestu að hann hafi verið einn í bílnum. Sagði hann annan mann sem hann þekkti hafa ekið biffeiðinni og að sá hefði horfið effir óhapp- ið. Huldumaðurinn fannst hins- vegar ekld. -mm Lækka verð skólamáltíða SNÆFELLSBÆR: Jákvæð rekstramiðurstaða fyrstu mánaða hins nýja skólamötuneytis í Grunnskóla Snæfellsbæjar gerir það að verkum að skóhnn hefur nú séð sér fært að lækka verð skólamáltíða úr 400 kr niður í 295 kr frá og með 1. mars n.k. Foreldrar og forráðamenn nem- enda era af skólanum hvattir til að skrá böm sín í heitan hádegis- mat í skólanum sem allra fyrst. Oumdeildir era kostir þess fýrir nemendur að fá heita hádegis- máltíð í erli langra skóladaga. Vinnudagur nemenda er langur ekki síst þegar við taka íþróttaæf- ingar, tónhstamám og aðrir leik- ir og störf. -mm

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.