Skessuhorn - 22.02.2006, Qupperneq 12
12
MIÐVIKUDAGUR 22. FEBRÚAR 2006
Sj álfstæðismenn í Borgarfirði
með fyrsta íramboðslistann
Björn Bjarki Þorsteinsson, sölu- listans er Þórvör Embla Guð-
stjóri en hann situr nú í bæjarstjórn
Borgarbyggðar. Tvö næstu sæti
listans skipar fólk sem ekki hefur
tekið þátt í stjómmálum á þessu
svæði áður, þau Torfi Jóhannesson,
ráðunautur og Ingunn Alexanders-
dóttir, leikskólastjóri. I fjórða sæti
mundsdóttir, en hún situr í sveitar-
stjórn Borgarfjarðarsveitar og
fimmta sætið skipar Bernharð Þór
Bemharðsson, deildarstjóri á Bif-
röst. Listinn er eftdrfarandi í heild
sinni:
MM
Bjöm Bjarki Þorsteinsson skipar jýrsta
sœti listans.
Framboðslisti Sjálfstæðisflokks-
ins fyrir sveitarstjórnarkosningarn-
ar í vor í sameinuðu sveitarfélagi í
Borgarfirði ásamt Kolbeinsstaða-
hreppi var kynntur í gærkvöldi.
Þetta er fyrsti ffamboðslistinn sem
Skessuhorn hefur vimeskju um að
lagður hafi verið ffam á Vesmr-
landi. Oddvitasæti listans skipar
1. Björn Bjarki Þorsteinsson........................sölustjóri
2. Torfi Jóhannesson.................................ráðunautur
3. Ingunn Alexandersdóttir.....................leikskólastjóri
4. Þórvör Embla Guðmundsdóttir...................verslunarmaður
5. Bernhard Þór Bernhardsson.................viðskiptafræðingur
6. Jónína Erna Arnardóttir.....................tónlistarkennari
7. Kristján Agúst Magnússon..............................bóndi
8. Heiðveig María Einarsdóttir...........nemi/ffamkvæmdastjóri
9. Dóra Erna Asbjörnsdóttir....................tónlistarkennari
10. Magnús B. Jónsson.................................prófessor
11. J óhanna Erla Jónsdóttir..........................verkstj óri
12. Sigurður Rúnar Gunnarsson.............................bóndi
13. Guðmundur Skúli Halldórsson......................verkstjóri
14. Guðrún Hulda Pálmadóttdr.....................versltmarmaður
15. Hjörtur Arnason.............................ffamkvæmdastjóri
16. Bergþór Kristleifsson.....................ferðaþjónustubóndi
17. Ari Bjömsson..............................rafvirkjameistari
18. Helga Halldórsdóttdr.....................forseti bæjarstjórnar
Arshátíð
Laugargerðisskóla
Nemendur Laugargerðisskóla í
Eyja- og Miklaholtshreppi héldu
árshátíð sína sl. laugardag. Ekki var
ráðist á garðinn þar sem hann var
lægstur því flutt voru atriði úr
rokksöngleiknum Jesús Kristur
Súperstar. Sýningin tókst mjög vel
en nemendur höfðu aðeins haft
tvær vikur til æfinga. Leikstjóri var
Finnur M Gunnlaugsson kennari
við skólann. Tónlistarstjóri var
Steinunn Pálsdóttir, kennari og í
hljómsveitinni voru auk hennar
Sigurður Jónsson kennari, Svan-
berg Hjelm, Þorleifur Halldórsson
og Þórður Gíslason en þeir þrír em
nemendur við skólann. Um bún-
inga sáu svo Helga Jóhannsdóttir
og Margrét Ragnarsdóttir. Allir
nemendur skólans tóku þátt í sýn-
inguni en þetta er fjórða árið í röð
sem þeir flytja þekkt leikrit sem all-
ir nemendur taka þátt í, en áður
hafa þau flutt brot úr Dýrunum í
Hálsaskógi, Kardemommubænum
og í fyrra tóku þau Avaxtakörfuna.
Spennandi verður að vita hvaða
leikrit verður tekið fyrir á næsta ári
hjá þessum hæfileikaríku krökkum.
ÞSK
Smellinn stækkar framleiðsluiýmið
...V.' -
: ' ■
Nýjasta húsið er nxst á myndinni.
Halldór Geir Þorgeirsson, ji-amkvœmdastjóri Smellinn.
Innan úr nýja steypuskálanum.
Smellinn á Akranesi, sem fram-
leiðir forsteyptar húseiningar, hef-
ur nýlega tekið í notkun nýtt 1250
fermetra húsnæði sem hýsir nýtt
járnsmíðaverkstæði, timburverk-
stæði, lager og loftplötuverk-
smiðju. Stækkunin, sem kostaði
um 100 milljónir með tækjum og
tólum, hefur það í för með sér að
allt framleiðsluferli verksmiðjunn-
ar fer nú fram á einum stað en áður
þurfti að senda ýmsa hluti í fram-
leiðslu annarsstaðar.
„Með þessu verður hliðarfram-
leiðslan virk og þannig er hægt að
byggja upp allar stoðdeildir fyrir-
tækisins," segir Halldór Geir Þor-
geirsson, framkvæmdarstjóri
Smellins í samtali við Skessuhorn.
„Markniiðið með viðbótinni var að
straumlínulaga allt framleiðsluferl-
ið og þar sem framleiðslugeta okk-
ar hefur aukist um 70 til 80% á
seinustu 12 mánuðum, var hún
löngu orðin tímabær. Við höfum
síðan snemma árs 2005 verið að
steypa alla daga vikunnar sem kall-
ar óhjákvæmilega á meira vinnuafl
og í dag eru um 60 manns á launa-
skrá.“
Næstu mánuði mun starfsmönn-
um Smellinn fjölga enn frekar því
fyrirhugað er að ráða 5 til 10 menn
til viðbótar. Halldór nefnir að
erfitt sé að fá fólk af svæðinu til
vinnu.
Aðspurður um hvar helstd mark-
aður Smellins sé, segir Halldór
fyrirtækið vera að afhenda hús út
um allt land en þó einna helst á
svæðinu frá Snæfellsnesi og austur
fyrir Selfoss. „Dagana 16. - 19.
mars munum við taka þátt í vöru-
kynningu sem fram fer í Laugar-
dalshöllinni undir heitinu Verk og
Vit, þar sem fyrirtækið, með alla
sína möguleika, verður kynnt
á§samt hinu góða vöruúrvali sem
við höfum upp á að bjóða. Fram-
tíðaráform okkar eru stór en ég vil
síður greina frá þeim að svo
stöddu, en verkefni okkar til næstu
10 mánaða er að stoppa í allar gluf-
ur í framleiðsluferlinu svo afköst
geti orðið enn meiri,“ segir Hall-
dór að lokum.
KÓÓ