Skessuhorn


Skessuhorn - 22.02.2006, Side 18

Skessuhorn - 22.02.2006, Side 18
18 MIÐVIKUDAGUR 22. FEBRÚAR 2006 Vaktmaður í stóriðju o g bakari til skiptis Hvað ætli sé líkt með starfandi bakara og verkamanni í stóriðju á Grundartanga? Sennilega fátt enda störfin afar ólík. Engu að síður finnst sá maður sem starfar jöfnum höndum við bæði. Hann heitir Ingimar Garðarsson og er bakari að mennt, lærði iðnina á Akranesi á ní- unda áratugnum og keypti síðan bakaríið í Búðardal árið 1989 og rak það þar til hann taldi fullsannað að grundvöllur fyrir slíkum rekstri væri ekki lengur til staðar. Þá söðl- aði hann um og gerðist vaktmaður hjá Norðuráli árið 2001. En Ingi- mar hefur ekki lagt bakarastarfið al- farið á hilluna þrátt fyrir það. I svoköllöðum vaktafríum á Grtmd- artanga leggur hann land undir fót, fer vestur í Búðardal og bakar þar formkökur og selur þær síðan milli- liðalaust eftir pöntunum. Bakaríið og tækin eru enn óseld og ffemur en láta þau standa og rykfalla fer Ingimar nokkrar ferðir í Búðardal í hverjum mánuði og bakar og held- ur tnn leið nokkrum tengslum við fyrrum sveitunga sína. Skessuhorn hitti farandbakarann í Búðardal að máli og fræddist lítillega um störf hans. Vildi aftur á heimaslóðir „Eg vann hjá Herði Pálssyni bak- ara á Akranesi í 11 ár og lærði iðn- ina hjá honum. Mig langaði aftur á heimaslóðir eftir námið; er bónda- sonur, fæddur og alinn upp á Hrís- hóli í Reykhólasveit þar sem ég vann við almenn landbúnaðarstörf í uppvextinum. Bakaríið í Búðardal keypti ég síðan af Kaupfélagi Hvammsfjarðar árið 1989. Þá voru íbúar á svæðinu, þ.e í Reykhóla- sveitinni og í Dölum 16-17 hund- ruð en þeim hefur fækkað verulega síðan. Fyrstu árin gekk reksturinn þokkalega, þetta varð reyndar strax mikil vinna og launin oft lág, sér- staklega ef miðað var við þær stund- ir sem ég var í vinnunni. Þá sætti maður sig samt við að vinnuvikan væri tvöföld og jafnvel upp í 100 tímar á viku, maður var jú að eign- ast fyrirtækið með því að leggja mikið á sig. Það var ekki óalgengt að það kæmu tarnir þar sem maður vann 14-16 tíma á dag og auk þess flestar helgar einnig, við tertugerð og veislur ýmis konar,“ segir Ingi- mar. Greiddi skatt af ógreiddum launum Hann kveðst alltaf hafa stillt latrnin efrir afkomu fyrirtækisins, ekki tekið út úr rekstrinum það sem ekki var til. „Skatturinn ákvað hins- vegar að ég ætti að hafa ákveðin lágmarkslaun og þau varð ég að reikna mér og borga af því stað- greiðslu og skatta, þó að oftast gæti ég alls ekki greitt mér þessi laun. Mér fannst það stundum svolítið harkalegt. Svo kom að því að íbúum fækkaði í Dölunum og forsendur fyrir rekstrinum urðu sífellt veikari; ég hætti alveg að geta greitt mér laun fyrir vinnuna. Akvað því árið 2001 að loka bakaríinu og auglýsti að ég væri hættur. Eg var svo hepp- inn að þá var bakaríið skuldlaust og gat ég því hætt jafhvel þó enginn vildi kaupa reksturinn eða tækin.“ Sama ár flyst Ingimar með fjöl- skyldu sína á Akranes og fær starf sem vaktmaður í Norðuráli þar sem hann hefur unnið að mestu leyti síðan. Hann segist þó hafa flutt tæki bakarísins og reynt fyrir sér sem bakari í Skagaveri árið 2003. „Þær forsendur gengu ekki eftir og varð ég að flytja tækin aftur vestur í Búðar- dal nokkru síðar og byrjaði þá aftur að vinna hjá Norðuráli þar sem ég hef verið síðan.“ Ingimar farandbakari meí formkökumar góSu. Milliliðalaus viðskipti Ingimar segist ekki hafa getað selt tæki bakarísins og fór hann því að nýta vaktafríin á Grundartanga til að fara vestur í Búðardal og baka lítilsháttar. „Fyrirkomulagið í vinnunni er þannig að maður vinnur fjóra daga og á síðan fjóra daga ffí. Mér hund- leiðist að gera ekki neitt í þessum ffíum og hef því nýtt þau undanfarið og baka nokkrar gerðir af formkökum sem ég sel effir pöntunum. Mark- aðssetningin er í raun engin önnur en sú að þetta spyrst smám saman út. Eg legg mikinn metnað í að gera kökurnar eins góðar og ég get, ann- ars myndi fólk ekki kaupa aftur og aftur. Aður en ég fer vestur tek ég pantanir hjá fólki og keyri síðan sjálfur út til kaupendanna og kúnn- arnir mínir eru allir á akstursleið- inni frá Búðardal til Akraness. Þannig er enginn milliliðakosmað- ur, en starfsemin bæri ekki slíkt.“ Aðspurður segist Ingimar helst vilja starfa alfarið við baksturinn. „Auðvitað blundar það alltaf í mér að fara aftur í bakstur og vinna við iðnina. Eg verð hinsvegar að líta raunhæff á aðstæður og læt fyrir- vinnuna, þ.e. starfið hjá Norðuráli ganga fyrir. Með því að skreppa vesmr held ég hinsvegar ákveðnum tengslum við fólkið þar og núna er það þannig að þegar íbúamir sjá bílinn minn standa utan við bakarí- ið við Vesturbrautina, þá koma þeir við og kaupa eina og eina köku. Þetta er vissulega ósköp lítril þjón- usta, en fólki finnst hún þó betri en engin,“ sagði Ingimar bakari og formkökukall að lokum. MM l/iinMte'rfui} Batna mein og breytast kjör - brennheit þoma tárin samlegt. Jóhann í Miðhúsum orti um synd- ina: Það er einkenni- legt með þessa Bandaríkjamenn, þeir þurfa alltaf að vera að skjóta eitt- hvað, hver á annan ef ekki vrill betur tril. Georg á Kjörs- eyri ffétti eins og fleiri af hremm- ingum varaforseta Bandaríkjanna sem tók feil á vini sínum og kornhænu. Þótti honum sem kannske fleir- um að varaforsetanum hefði verið nær að beina byssunni eitthvað annað fyrst hann á annað borð var á skytteríi: Varaforsetans veiöistúss veldur álitshnekki. Ab hann skildi ekki skjóta Bush, ég skil þab bara ekki. Eins og þjóðinni er kunnugt lenti Stein- grímur J. Sigfússon í hremmingum á dögun- um og hafa af því spunnist nokkrar umræður um hvort Steingrímur hafi jafhmörg rif og annað fólk. Af því tilefni orti Hermann Jó- hanneson frá Kleifum: Þótt sögurnar séu á kreiki og sumt í þeim talsvert á reiki, þá stabfestist hér ab Steingrímur er stórbrotinn persónuleiki. Það er ýmislegt sem mannskepnunni ferst misjafhlega úr hendi og stundum er talað um handarbakavinnubrögð í sambandi við eitt- hvað sem tekst frekar klaufalega. Sigurður Jónsson frá Brún orti af einhverju tilefni: Eybist vakan, fribur fer, firrist stakan þarfa, skreibist lakur hingab her handarbaka starfa. Ekki veit ég um tilefhi þessarar vísu Krist- jáns Samsonarsonar en góð er hún eigi að síður og gæti vel átt við þá sem breyta um starf án þess að kunna full skil á því nýja: Svo ég nefni orsök í illa gefnum störfum, vibfangsefni og vibhorf ný valda stefnuhvörfum. Höfundur eftirfarandi vísu hefur tæplega verið mjög þjakaður af sjálfsálitinu sem er þó hverjum marrni hollt og heilsusamlegt, sé því haldið innan skynsamlegra marka: Um eitt ég frœba þyrfti þig, þú ef vildir sinna. Vitlausari mann en mig muntu hvergi finna. Það hefur lengi tíðkast að menn haldi verklega upp á stórafmæli með myndarleg- um veitingum í mat og drykk og ekki síst hafa gildir bændur í sveitum landsins haldið fast í þessa hefð. Merkisbóndi einn á Norð- urlandi hélt upp á sjötugsafmæli sitt fyrir skömmu. Um kvöldið þegar rausnarlegar veitingar leituðu útrásar á karlasalerninu heyrðist þessi gullvæga setning ffá afmælis- barninu: ,Jæja lilli minn, nú værir þú sjötug- ur í dag eins og ég ef þú værir ekki löngu dauður“. Það er nú bara þannig að lífsganga okkar er alltaf svolítið misjöfn en svo mikið er þó öruggt að öllu fer aftur sem er fullfar- ið ffam, hvað sem sú afturför er hröð. Ein- hverntíma bað kona Jóhann Olafsson í Mið- húsum um vísur í vísnaþátt Samvinnunnar. Jóhann svaraði: Ab bregbast þínum björtu vonum bölvab finnst mér dálítib, því gjarnan vil ég gagnast konum en get svo lítib nú orbib. Stefán Stefánsson ffá Móskógum hefur trúlega verið farinn að finna á sér ellimerki þegar hann orti: Út á hinsta ólgusjó ýti ég frá vörum. Fce mér nesti og nýja skó, nú er ég á förum. Bjöm Pétursson frá Sléttu leit yfir farinn veg með þessum orðum sem geta svo vel átt við marga: Þó ab fátt mér legbi lib lífs í styrjöldinni, hef ég stundum stympast vib steina í götu minni. Það getur oft verið gagnlegt í lífsbarátt- unni að hafa í huga þessa ágætu vísu eftir Guðlaug Guðmundsson: Þó sceri hjartab sorgar ör og sárra kennum nauba, látum brosib Ijúft á vör leika fram í dauba. Greinilega hefur minn góði vinur, Guð- mundur Kristjánsson verið farinn að finna til ellimarka þegar hann kvað: Tennur losna ein og ein, út úr nefi flœbir. Cigtin þjakar gömul bein. gegnum skinnib ncebir. Halldór Kristjánsson í Heynesi var ágætur hagyrðingur og greindur maður um margt þó honum væri ekki hátt hossað hér í heimi. Eftir hann er þessi ágæta vísa og mikill sarm- leikur í henni fólginn: Batna mein og breytast kjör, brennheit þorna tárin, en lengi verba einhver ör eftir dýpstu sárín. Þegar erfiðleikar steðja að getur verið gott að leita sér huggunar og þá jafnvel í ein- hverju sem einhverjir aðrir gætu talið synd- Oft er syndin svalalind sem frá hrindir trega. Hennar skyndi mörg er mynd, málub yndislega. Það hefnr stunduín verið deilt um hvort á- kveðin birtmgarform ástarinnar væm synd- samleg eða ekki og skal ég ekki ætla mér þá dul að skera þar úr. Unglingur utan orti þessa limru inn ást sína sem virðist hafa ver- ið mikil að vöxtum: Ég er ástfanginn upp fyrír haus, líb ei öbrum neitt kjaftcebi og raus; ég er kraminn og kvalinn og kannske alveg galinn, en kvensemin takmarkalaus. Benedikt Gíslason ffá Hofteigi var þekkt- ur maður á sinni tíð en ekki er mér svo kunn- ugt um hans persónulega hagi að ég treysti mér til að giska á tilefni eftirfarandi vísu: Þab er gler í gcefunni, glitib ber um hœbir, en oft svo fer á cevinni ab þab sker og blcebir. Við skulum svo ljúka þessum þætti með þessari ágætu vísu eftir Sveinbjörn heitinn Beinteinsson sem mún fela í sér ákveðna til- vísun í styrkjakerfi landbúnaðarins þó þeim styrkjum sem þar er minnst á sé ekki úthlut- að af þessa heims stjórnvöldum: Veburbarinn á villuslób vandkvcebi mín ég yrki. Caddur og hríb úr gildum sjób greiba mér sína styrki. Með þökk fyrir lesturinn, Dagbjartur Dagbjartsson Refsstöðum 320 Reykholt S. 435 1367 og 849 2713 dd@simnet.is

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.