Skessuhorn


Skessuhorn - 22.02.2006, Qupperneq 21

Skessuhorn - 22.02.2006, Qupperneq 21
SSiSSIiHOBKI MIÐVIKUDAGUR 22. FEBRÚAR 2006 21 Brekkubæjarskóli fær andKtslyftingu i Hrafnkell og Ólöf Guðný hanna breytingamar. í sumar stendur til að ráðast í umtalsverðar framkvæmdir á húsi og lóð Brekkubæjarskóla á Akra- nesi. Framkvæmdirnar snúa að endurskipulagi skólalóðar, við- byggingu við anddyri og endurnýj- un á klæðningu hússins. I fjárhags- áætlun er gert ráð fyrir 15 milljón- um í hvern þessara verkþátta. Þetta kom fram á málstofu í skól- anum sem haldin var fyrir foreldra og áhugasama síðastliðinn mið- vikudag. Samið var við Hrafnkell A. Proppé, hjá Almennu verk- fræðistofunni, og Plan 21 ehf. arkitekta- og skipulagsráðgjöf um hönnun verksins. I greinagerð þeirra um lóðar- skipulag kemur fram að vandamál sem skapast hafa vegna fjölgunar íbúa og bíla á svæðinu eru höfð að leiðarljósi í tillögum að breyting- um. I dag liggja bílastæði upp að anddyri skólans þar sem börn stunda leik í ffímínútum og það getur skapað hættu á árekstrum milli hagsmuna barna og bíleig- enda. Einnig þykja leiksvæðin samhengislaus á víð og dreif á skólalóðinni og bjóða upp á frem- ur einhæfan leik. í þriðja lagi vísar núverandi aðalinngangur á bak- lóðina og því erfitt fyrir ókunnuga að átta sig á aðstæðum. I skipulagstillögunni er meðal annars gert ráð fyrir torgi milli skólans og íþróttahússins, sem yrði að sögn Hrafnkels kjörinn staður fyrir grillveislur eða aðrar skemmtanir á vegum skólans. Þá verða sett upp leiktæki, bílastæð- um breytt, sleppistæði stækkað, tré og runnar gróðursettir og sleða- brekka hækkuð. Allt þetta mun gera skólalóðina meira aðlaðandi og líflegri og skipulögð á þann hátt að hún styrki jafnt félags- og hreyfiþroska barnanna, segir Hrafnkell. Góðir hlutir gerast hægt „Tillaga að yfirbyggingu og sameiningu tveggja innganga, sem snúa að Vesturgötunni, liggur fyr- ir en markmiðið með breytingunni er að skilgreina anddyri og að- komu að skólanum á nýjan hátt,“ segir Olöf Guðný Valdimarsdóttir, hjá Plani 21. „Hugmyndin er að gera þetta nýja aðalanddyri að ein- hvers konar hráu innitorgi með miklum gróðri og náttúrueinkenn- um.“ Aætlað er að framkvæmdum við anddyri skólans verði lokið í haust þó allir verkþættirnir séu hluti af þriggja ára áætlun skólans. Auður Hrólfsdóttir, skólastjóri Brekkubæjarskóla vill benda for- eldrum á að „góðir hlutir gerist hægt,“ en sjálf er hún himinlifandi að loks skuli vera komið að því að eitthvað verði gert fyrir skólann og hvatti hún alla foreldra og að- standendur barna að snúa bökum saman og krefjast fjármagns til úr- bóta á þessum annars ágæta skóla. KÓÓ Nýttfyrirtæki í Stykkishólnii Fyrirtækið BM- ráðgjöf ætlar að opna starfsstöð í Stykkishólmi og mun hefja starfsemi sína á næst- unni. Fyrirtækið, sem mun hafa þörf fyrir 14 til 16 manns í vinnu, hefur mikið verið að vinna fyrir fé- lagssamtök og líknarfélög við fjár- aflanir gegnum símasölu, meðal annars fyrir SAA. Þetta verður fimmta starfsstöð fyrirtækisins á landinu en hinar fjórar eru stað- settar í Reykjavík, Vestmannaeyj- um, Reykjanesbæ og Blönduósi. Starfsstöðin kemur til með að auka á fjölbreytni í atvinnulífinu á staðnum því störfin sem um er að ræða henta nánast öllum aldurs- hópum, frá krökkum á framhalds- skólaaldri og upp úr. Ekki hefur verið gengið endanlega frá hugsan- legu húsnæði fyrir starfsemina. Ferðablaðið Vesttirland í vor Líkt og undanfarin 7 ár mun Skessuhorn ehf. gefa út ferðablað fyrir Vesturland í vor. Aætlað er að blaðið komi út um mánaðamótin apríl/maí. Blaðið verður prentað í 20 þúsund eintökum og dreift til allra eigenda sumarhúsa á Vestur- landi auk þess sem það mun liggja ffamrni á upplýsinga- miðstöðvum og fjöl- fömum áningarstöð- um ferðafólks jafht á Vesturlandi sem utan þess. Um dreifingu blaðsins sér Upplýs- inga- og kynningarmiðstöð Vestur- lands (UKV). Blaðið verður með nokkuð hefð- btmdnu sniði, en líklega nokkm stærra í síðum talið en undanfarin ár þar sem ráðgert er að fjölga myndum í því og gera aðrar breyt- ingar í samráði við ferðaþjónustu- aðila á svæðinu. Blaðið er prentað í A5 broti og allt lit- prentað. Meðal hefðbundins efnis verður þjónustuskrá fyrirtækja, viðburða- skrá sumarsins, hér- aðslýsingar (Snæ- fellsnes, Dalir, Borgarfjörður og sunnan Skarðsheið- ar / Akranes), at- burðadagatal (sem forsvarsmenn við- burða í sumar skrá sjálfir inn á „A döfinni“ á vefslóð- inni: www.skessuhorn.is), ffásagnir af nýjungum í vestlenskri ferða- þjónustu, fjöldi mynda og m.m. fleira. MM Vegna stækkunar álvers Norðuráls getum við enn bætt við nokkrum starfsmönnum til almennra starfa við álframleiðsluna. í boði eru tímabundin störf og framtíðarstörf. Til hvers ætlumst við af þér? Við leitum að áhugasömu fólki sem vill vinna að krefjandi verkefnum og vaxa í starfi. Lipurð í samskiptum, metnaður til að ná árangri og vilji til að axla nýja ábyrgð eru skilyrði. Hvað veitum við þér? Við bjóðum þér gott og gefandi starf hjá nú- tímalegu fyrirtæki í miklum vexti. Þú vinnur mikilvæg verk með góðu samstarfsfólki og við tökum vel á móti þér. Sérstök áhersla er lögð á starfsþjálfun. Atvinnu- öryggi er mikið, tekjur traustar og laun þín eru að hluta árangurstengd. Ennfremur greiðir fyrirtækið þér aukið framlag í séréignasjóð. . jgP': Hvenær þurfum við að fá umsókn þína? Vinsamlega sendu okkur umsókn þína fyrir 1. mars n.k. Þú getur sótt um á vef fyrirtækisins, www.nordural.is, sent umsókn þína á netfangið umsokn@nordural.is. eða póstlagt umsóknina, merkta: Atvinna Norðurál á Grundartanga er einn af stærstu vinnustöðum á Vesturlandi og fyrirtækið skipar öflugan sess í samfétaginu. Norðurál leggur ríka áherslu á öryggismál og er ströngum öryggisreglum fylgt á öllum sviðum starfseminnar. Um þessar mundir er unnið að stækkun Norðuráls sem felurí sérmeira en tvöföldun á framleiðslugetu álversins. Áætlað erað gangsetning hins nýja hluta álversins hefjist um miðjan febrúar 2006. Jafnrétti Áhersla er lögð á jafna möguleika karla og kvenna til starfa hjá Norðuráli. Trúnaður Við förum með umsókn þína og allar persónu- legar upplýsingar sem trúnaðarmál. NORÐURÁL CenturyALUMiNUM Grundartanga • 301 Akranesi • Sími 430 1000 ■ Fax 430 1001 • nordural@nordural.is • www.nordural.is

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.