Skessuhorn - 22.02.2006, Síða 26
26
MIÐVIKUDAGUR 22. FEBRUAR 2006
Frá vinstri: Sigmundur Amundason, gjaldkeri knattspymufélags ÍA, Eirikur Guðmundsson, formadur Rekstrarfélags meistarflokks
karla, Svanborg Þórdís Frostadóttir, útibússtjóri KB banka á Akranesi og Ingólfur Helgason, forstjóri KB banka.
KB bankí aðalstyrktaraðili
fóboltans á Akranesi til 2010
í gær var undirritaður nýr sam-
starfssamningur milli KB banka og
Knattspymufélags IA. KB banki,
áður Búnaðarbankinn, hefur ffá ár-
inu 1991 verið stærsti styrktaraðili
félagsins. Samkomulag náðist milli
félagsins og bankans um að fyrri
samningur, sem var í gildi út árið
2007 yrði framlengdur til ársins
2010.
Ingólfur Helgason, forstjóri KB
banka segir að mikill áhugi hafi ver-
ið meðal bankans að halda þessu
góða samstarfi áfram og geta
þannig hjálpað Skagamönnum að
raða inn titlum á komandi leiktíð-
um. Eirfkur Guðmundsson, for-
maður Rekstrarfélags meistarflokks
karla, er ekki í vafa um að stuðning-
ur KB banka hjálpi mikið til við
rekstur félagsins og eru félagsmenn
afar þakkláttir KB banka og ánægð-
ir með nýja samninginn.
KÓÓ
Allir sem einn verða
að styðja íþróttafólkið
Sigrún Ríkharðsdóttir.
„Gulir og glaðir Akurnesingar
eru líka nauðsynlegir utan vallar,"
segir nýkjörinn formaður Knatt-
spymufélags IA, Sigrún Ríkharðs-
dóttir sem segir mikilvægt að
stuðningsmenn láti hvarvetna til sín
taka, utan sem innan vallar. Hún
liggur engan vegin á liði sínu við
stuðninginn og fræg er háreisti
hennar og raunar fleiri skyldmenna
hennar á leikjum IA liðsins heima
og heiman. „Stuðningur áhorfenda
á leikjum hefur mikið að segja. Son-
ur minn elsti sagði reyndar ein-
hvemtíman eftir leik þegar vora um
1200 manns á vellinum að það hefði
aðeins heyrst í mér, en ekkert í hin-
um 1199.“
Sigrún er dóttir Ríkharðs Jóns-
sonar sem er landsþekktur knatt-
spyrnumaður og þjálfari IA.“Það
má eiginlega segja að ég hafi dvahð
við knattspyrnuvöllinn alla mína
ævi meira eða minna, fyrst sem
áhorfandi og síðan að fylgja þremur
sonum mínum á leiki eftir því sem
þeir hafa vaxið úr grasi.“ Sigrún
brosir þegar henni er hugsað til
knattspyrnuáhugans: „Þeim þykir
stundum nóg um drengjunum þeg-
ar ég æsi mig upp fyrir ffaman sjón-
varpið og við erum að horfa á leiki.
Það er stundum heitt í kolunum og
tilfinningarnar fá útrás, það er
hollt. Haustið 1990 þegar IA féll í
2. deild, þá t.d. grét ég á vellinum,
ég gat ekki annað.“
Spurð um uppbyggingu meist-
araflokks og peningalega stöðu fé-
lagsins, voru skoðanir Sigrúnar al-
Ollum ljóst að rekstur
metnaðarfulls íþrótta-
starfs kostar peninga
„KB banki vill af
krafti styðja við þá
starfsemi sem fram
fer á hverjum stað“,
segir útibússtjóri KB
banka á Akranesi,
Svanborg Þórdís
Frostadóttir. Hún
segir samstarf KB
banka (fyrrum Bún-
aðarbanka) og IA
hafi í raun staðið
samfellt í 15 ár.
„Bankinn hefur stutt
rösklega við bæði
meistaraflokk og unglinga- og
barnastarfið. Hér á Akranesi hefur
fyrirtækjum fækkað og því færri að-
ilar hér í bæ fyrir IA að leita til. Það
er því mikilvægt að þau fyrirtæki
sem geta veitt stuðning geri það.“
Með endurnýjuðum samningi
sem skrifað var undir í gær heldur
KB banki áffam að vera aðalstuðn-
ingsaðili Knattspyrnufélags IA.
„Þar er mestur fjöldi iðkenda og
stuðningsmanna og því er eðlilegt
að styðja myndarlega við samtök
þar sem flestir njóta starfsins sem
byggir á merkri sögu knattspyrn-
unnar hér á Akranesi og flestir liðs-
menn eru heimamerm. Ollum ætti
að vera ljóst að rekstur öflugs
íþróttastarfs og þátttaka í meistara-
keppninni þar sem uppfylla þarf al-
þjóðlega staðla er fjárfrekt og xun-
fangsmikið verkefni en umbunin,
ef vel gengur, er hinn sæti sigur,“
segir Svanborg. Aðspurð um tölur í
þessu sambandi, segist Svanborg
vilja hafa það á milli bankans og IA
en bendir þó á að viðskiptavinir KB
banka fái 50% afslátt á ársmiða á
leiki félagsins.
Aðspurð um hennar eigin áhuga
og þátttöku í íþróttum segist hún
hafa stundað handbolta, frjálsar
íþróttir og golf. „Einhvemtíman
fyrir löngu kom ég hingað á Akra-
nes til að spila handbolta þegar ég
var í HK. Eg er fædd og uppalin
við íþróttaiðkun í fjölskyldunni.
Bræður mínir þrír stunduðu allir
knattspyrnu og golf og Bjarni sá
yngsti var einnig í handbolta, var
markmaður hjá Haukum og í
landsliðinu. Synir mínir tveir,
Frosti og Aron, hafa iðkað knatt-
spyrnu frá barnæsku. Fyrst í
Breiðabliki, síðan Hvöt á Blöndu-
ósi þegar við áttum heima þar og
einnig hafa þeir leikið með Fram.
Aron yngri sonur minn komst í
unglingalandsliðið um tíma. Þeir
hafa einnig verið liðtækir í golf-
inu,“ segir útibússtjóri KB banka á
Akranesi, Svanborg Þórdís Frosta-
dóttir að lokum.
MM
veg skýrar. „Það á að byggja meist-
araflokksliðið á heimamönnum,
það sýndi sig á liðnu sumri þegar
svo margir góðir, reyndir menn yf-
irgáfú liðið að ungu mennirnir sem
komu þá inn á stóðu sig vel, langt
umffam væntingar. Hér heima á
Skaganum eru margir ungir efni-
legir strákar og þeir þurfa að fá að
njóta sín og læra af þeim reyndari,
ekki bara á æfingum, heldur einnig
í leikjum. Það má ekki gleyma því
að það eru úrvals knattspyrnugen í
Akurnesingum! “
Sigrún segir að það verði að
tryggja fjárhagsstöðu félagsins. „Þó
ég sé nýdottin inn í stjóm félagsins
þá veit ég að vinna við það verkefni
er hafin. Þegar senn kemur nýtt
fjölnota íþróttahús í gagnið, ætti að
minnka aðeins álagið á hinum
tveimur húsunum sem núna em
fúllnýtt, ffá því snemma á morgn-
ana og fram effir öllum kvöldum.
Nýting íþróttamannvirkja er ekki
hugsuð aðeins fyrir keppnisfólk
heldur allan almenning og þeir sem
hafa hom í síðu knattspymu og fár-
ast yfir byggingu fjölnotahússins
verða að sýna umburðarlyndi því
þessi mannvirki öll em öllum íbú-
um Akraness meira eða minna til
góðs þegar grannt er skoðað. Akur-
nesingar þurfa að standa heilshugar,
allir sem einn, á bak við liðsmenn
sína, á hvaða sviði sem er,“ sagði
Sigrún Ríkharðsdóttir, fyrsta konan
sem kosin er formaður knatt-
spymufélags IA.
ÓG
Bjartsýnn - þrátt fyrir miklar breytingar á liðinu
segir Ólafur Þórðarson þjálfari sem er nú að byrja sjöunda árið með meistaraflokk IA
„Síðastliðið sumar í deildinni
endaði miklu betur en manni
sýndist þegar ljóst var að sjö
menn færu úr liðinu. Ungu
mennirnir komu eiginlega dálítið
á óvart,“ segir Olafur Þórðarson,
þjálfari.
Hvernig líst Þórði á endur-
komu þeirra Amars Gunnlaugs-
sonar og Þórðar Guðjónssonar til
liðsins? „Það er frábært að fá þá
aftur. Þeir yngri læra af þeim,
bæði tækni og að spila og þeir
tveir náðu fínt saman í deildarbik-
amum á Akureyri nú um helgina.
Nú er reyndar skelfilegt áfall að
missa báða „haffsentana," sérstak-
lega í Islandsmótinu, þetta em
lykilstöður. Við finnum eitthvað
út úr þeim vanda eins og öðru.“
Það var létt hljóðið í þjálfaranum.
En hvemig líst honum á nýja fjöl-
nota íþróttahúsið og hvemig það
breyti aðstöðunni til æfinga liðs-
ins svarar Oli: „Það á effir að
mótast þegar notkun hefst, hvern-
ig æfingar kunna að breytast við
tilkomu þessa nýja húss. Við fáum
í því þann tíma sem þarf, væntan-
lega nánast eftir okkar þörfum.
Reynslan annarsstaðar sýnir að
þessi aðstaða er gulls ígildi. Eg er
bjartsýnn á framhaldið fyrir IA,
með ungt lið og í bland frábærir
reynsluboltar og aðstaðan sem
okkur er búin er að verða með því
besta sem gerist," sagði Olafúr
Þórðarson, þegar hann var grip-
inn af flutningabílnum á leið á æf-
ingu og tekinn tali nú í upphafi
vikunnar.
ÓG
Olafur Þórðarson í grunni nýja íþróttahússins á Akranesi. „ Viðfáum hérþann tíma sem við þurfum til œfinga -þetta verður frábær aðstaða. “