Skessuhorn - 22.02.2006, Page 27
I
cÍEsSUKöBí
MIÐVIKUDAGUR 22. FEBRÚAR 2006
27
__ Einn fremsti stuðningsmaður
IA hefur aldrei á Skaganum búið
Þegar forráðamenn knatt-
spyrnufélags IA voru spurðir hvern
þeir vildu nefna sem heitasta
stuðningsmann liðsins er óhætt að
segja að svarið hafi komið á óvart.
„Það er enginn vafi, hann heitir
Stefán Þormar Guðmundsson, og
hann finnur þú í Litlu kaffistof-
unni í Svínahrauni. Hann hefur að
vísu aldrei búið hér en tók ástfóstri
við IA fyrir mörgum áratugum síð-
an,“ sagði Guðlaugur K Gunnars-
son, framkvæmdastjóri meistara-
flokks og 2. flokks IA. Það var því
sest upp í vélfákinn og Stefán
Þormar heimsóttur á Litlu kaffi-
stofuna þar sem myndir og gripir
sem minna á IA og prýða veggina.
Tilviljun að hann
sá leik liðsins
Það var sumarið 1956 að tíu ára
snáði frá Vík í Mýrdal fór í heim-
sókn til frænku sinnar á Hofsvalla-
götu í Reykjavík. Hann fékk að
fara á Melavöllinn að sjá fótbolta-
leik. Þann dag kepptu Fram og IA.
„Eg segi það satt, ég man þennan
leik eins og hann hafi gerst í gær.
Ríkharður Jónsson leiddi lið sitt
inn á völlinn og liðið hneigði sig
kurteislega og virðulega fyrir
áhorfendum. Úrslit leiksins urðu
2-0 fyrir IA. Þórður Þ skoraði ann-
að og Þórður Jónsson hitt. Mér
fannst IA búningurinn, gulu treyj-
urnar og svörtu buxurnar, afar fal-
legur og alla tíð síðan hef ég fylgst
náið með IA. Ekki bara leikjum
meistaraflokksins, líka þeim yngri.
Eg hef fylgst náið með þeim leik-
mönnum af Skaganum sem keppt
hafa í öðrum liðum og dvalið er-
lendis, hvort sem þeir hafa verið að
keppa eða þjálfa."
í Litlu kaffistofunni yfir
kaffibolla
Svo mælir Stefán Þormar Guð-
mundsson, í Litlu kaffistofunni,
sem er við sunnanverða Hellis-
heiðina við Suðurlandsveginn. Þar
innandyra er allt fullt af ljósmynd-
um og skjölum úr sögu knattspyrn-
unnar á Islandi og þá sérstaklega
IA enda fá lið sem koma þar jafn-
sterklega við sögu.
„Helgi Daníelsson, sá ljúfi
drengur, hefur verið
mér innan handar að
koma upp þessu safhi
hérna á Kaffistof-
unni,“ segir Stefán og
bætir því við að þetta
sé hluti af áhuganum
og því að lifa og hrær-
ast fyrir boltann.
„Eg reyni að sjá
sjálfur með eigin aug-
um sem allra flesta
leiki IA og hef farið og
fylgst með leikjum
sem háðir eru erlendis.
Eg upplifi feikna
spennu og get rakið
fyrir þig, að því er ég
held, flest úrslit hér
heima og erlendis,
hverjir skoruðu,
hvernig veðrið var,
hvar var keppt og svo
frv.“
Stefán segir að með
aldrinum sé venjan að
menn róist dáiitið í
fótboltadellu sinni.
„Því er ekki þannig
varið með mig. Hver
einn og einasti leikur
er æsispennandi og tekur meira og
meira í. Konan mín sér á mér þeg-
ar ég kem af leik hvernig úrslitin
hafa orðið og mér er meira í mun
nú í dag að vita nákvæmlega þróun
hvers leiks og niðurstöðu en
kannski var fyrstu árin. Ef ég er
staddur erlendis þegar leikur fer
fram hér heima er ég í stöðugu
símasambandi. Ef ég á þess ekki
kost að fara og sjá einhvern leik,
hef ég í versta falli haft samband
við lögreglumenn á viðkomandi
stöðum og fengið upplýsingar um
stöðu mála.“ Stefán segir að sér sé
svo mikilvægt að sjá leikina að eitt
sinn hafi hann keyrt frá Kirkjubæj-
arklaustri norður á Akurejtri til að
sjá leik í meistaraflokki.
Festa og virðing gagn-
vart andstæðingnum
Aðspurður um hans skoðun á því
hversvegna knattspyrnan hafi átt
svo sterk ítök á Akranesi og marg-
ir góðir leikmenn komið þaðan og
árangur góður, segir Stefán: „Það
hlýtur nú bara að vera í genum Ak-
Stefán Þoiinar Guömundsson með myndir afÍAá veggjwm Litlu kaffistofunnar.
urnesinga, það er þó tvennt sem
þar kemur til viðbótar. Leiðtogar
Skagaliðsins bæði inni á vellinum
sjálfum og utan hans, þeir sem sjá
um félagslega þáttinn, hafa oftast
verið sérlega sterkir karakterar. A
vellinum hafa þeir náð að mynda
einlæga samhenta liðsheild,
feiknalega duglega sem borið hef-
ur virðingu fyrir andstæðingnum
hverju sinni. Utan vallar hefur for-
usta IA haldið vel um liðið og þar
einnig verið áberandi. Festa og
virðing gagnvart andstæðingnum
hverju sinni. Stóryrði og illt umtal
skaðar alltaf alla en hófsemi, virð-
ing og festa bætir.“
Tók 31 árað
ná fram heftidum
Stefán segir að það verði sárara
með aldrinum þegar stuðningslið-
ið tapar leik og minnist þá sérstak-
lega á ferð sem hann fór þegar IA
keppti við Red Rover í Skotlandi.
Leikurinn úti fór 3-1 fyrir Skotana
en 1-0 hér heima og segir Stefán
að það hafi sjaldan verið eins mikil
spenna og þegar Alli Högna skaut
rétt jtfir þverslánna. „Ef við hefð-
um unnið leikinn 2-0, hefðum við
sennilega fengið eitt frægasta
þýska liðið sem andstæðing og þá
hefðum við fengið marga áhorf-
endur og vel í kassann."
Einnig er Stefáni minnisstætt
tap gegn KR á Laugardalsvellinum
árið 1965. „2-1 tap var þungbært
og hugsaðu þér að það er ekki fyr-
ir en þrjátfu og einu ári síðar, eða
1996 sem þess taps er hefht þegar
IA vann KR 4-1,“ segir Stefán og
andlit hans geislar af áhuga. Artöl,
einstök úrslit, hverjir skoruðu og
hverjum mistóks, kemur viðstöðu-
laust, ótrúlegt minni og áhugi.
Bæjarstjórinn
raddsterkust
Aðspurður um hvort það séu
ekki einhverjar konur sem hafi ver-
ið áberandi á áhorfendabekkjunum
í gegnum árin segir Stefán svo ekki
vera. „Það er þó ljóst að um tíma
var einhver sú alraddsterkasta kona
sem til er á íslandi, ákafur stuðn-
ingsmaður. Ragnheiður Ríkharðs-
dóttir, nú bæjarstjóri í Mosfells-
sveit, dóttir Ríkharðs Jónssonar,.
hefur sterkustu rödd sem ég hef
heyrt í á áhorfendasvæði við knatt-
spyrnuvöll. En þegar sonur henn-
ar, Ríkharður Dáðason fór að spila
með Fram, varð hún að fylgja hon-
um,“ segir Stefán að lokum.
ÓG
Ungir leikmenn fylla þau skörð
sem mynduðust í fyrra
Þrír Skagamenn
í landsliðið
Eyjólfur Sverrisson landsliðs-
þjálfari hefur valið fyrsta landsliðs-
hópinn sem leika mun undir hans
stjórn. I þessu fyrsta vali sínu valdi
hann þrjá fyrrum leikmenn IA. Það
eru þeir Árni Gautur Arason, Jó-
hannes Karl Guðjónsson og Grétar
Rafn Steinsson. Liðið mun leika
gegn landsliði Trinidad & Tobago
þann 28. febrúar. Leikurinn fer
fram á Loftus Road í London.
HJ
„Starfið hjá IA er viðameira en
margur hyggur,“ segir Guðlaugur
K Gunnarsson sem verið hefur
framkvæmdastjóri meistaraflokks
og 2. fl. IA í knattspyrnu frá árinu
2004. Hann segir það skyldu ÍA að
hafa framkvæmdastjóra í fullu
starfi. „Sú skylda varð til með sam-
þykkt UEFA frá maí 2003 og nær
til allra félaga í Evrópu sem eru
með lið í meistaradeildunum. IA
varð fyrst til þess hér á landi að
uppfylla allar kröfur sem UEFA
gerir til meistaraliðanna," segir
Guðlaugur.
,Á síðasta ári var tap á rekstri
meistaraflokks og 2. flokks um átta
milljónir króna. Rekstrartekjur
voru um 38,6 milljónir en útgjöldin
rnn 46,7 milljónir. Það er því brýnt
að laga fjárhagsstöðuna. Það er von
mín að m.a. nýr samningur við að-
alstyrktaraðila félagsins, KB banka,
muni hjálpa til við að laga fjárhags-
stöðuna á næstu ártun. Það er líka
nauðsynlegt að nefna að öflugt og
gott unglingastarf skiptir miklu
máli. A síðasta ári fékk unglinga-
nefnd félagsins heiðursviðurkenn-
ingu frá ISI sem fyrirmyndarfélag.
Við erum að sjálfsögðu stolt af
slíkri viðurkenningu því framtíð
eldri flokkanna byggist á öflugu
yngri flokka starfi."
Guðlaugur segir að meistara-
flokkur ÍA hafi á síðasta ári orðið
fyrir blóðtöku þegar öflugir leik-
menn fóru í ýmsar áttir og í haust
fór fyrirliðinn, Gunnlaugur Jóns-
son einnig. „Ungir menn hafa
komið inn í liðið, fyllt í skörðin og
staðið sig mjög vel. Nú eru þeir
Arnar Gunnlaugsson og Þórður
Guðjónsson komnir heim aftur og
Guðlaugur K Gunnarsson, framkvœmda-
stjóri meistaraflokks og 2. flokks IA.
það munar um minna. Það er því
full ástæða til þess að vera bjartsýnn
um að gengi liðsins verði gott á
komandi leiktíð,“ sagði Guðlaugur
að lokum.
ÓG
Fjórði flokkur IA
Islandsmeistarar
4. flokkur karla í Knattspymufélagi IA vann um helgina lslandsmeistatitilinn í
knattspymu innanhúss efiir glæsilegan sigur á Fram 6-0. Leikurinn fórfram í
Iþróttahúsinu vió Vesturgötu. BG/ Ljósm. Hilmar
n
/