Skessuhorn


Skessuhorn - 22.02.2006, Side 31

Skessuhorn - 22.02.2006, Side 31
 MIÐVIKUDAGUR 22. FEBRUAR 2006 31 Þrjátíu UMSB met á Gullmóti KR Sundlið UMSB gerði góða ferð á Gullmót KR sem fór fram í Laugardagslaug 17.-19. febrúar. Fjórtán sundmenn kepptu á mót- inu undir merkjum UMSB og settu yfir þrjátíu UMSB aldurs- flokkamet en keppt var í 50 m laug. Þegar aldur keppenda er nefndur er miðað við aldur á alm- anaksárinu. Sigurður Þórarins- son, 15 ára setti UMSB met í 50 m flugsundi sem jafnframt er piltamet. Lilja Rún Jónsdóttir,15 ára setti UMSB met í 50 m baksundi sem einnig er stúlkna- met. Þórkatla Dagný Þórarins- dóttir, 13 ára setti UMSB met í 50 m skriðsundi, 50 m bringusundi og 50 m flugsundi sem jafnframt er stúlkna- og telpnamet. Hún setti einnig telpnamet í 200 m skriðsundi, 100 m bringusundi og 200 m bringusundi. Ottó Hlíðar Gunnarsson, 12 ára setti sveinamet í 100 m skrið- sundi og 400 m skriðsundi. Haf- steinn Fannar Ragnarsson, 12 ára, setti sveinamet í 200 m skrið- sundi sem Jón Ingi Sigurðsson, 11 ára bætti í næsta riðli á eftir. Hann setti einnig met í 100 m bringusundi og 100 m baksundi. Jóhanna Karen Guðbrands- dóttir, 12 ára setti meyjamet í 100 m skriðsundi, 200 m skriðsundi, 100 m bringusundi, 200 m bringusundi og 200 m fjórsundi. En ísfold Grétarsdóttir bætti met hennar í skriðsundsgreinum og fjórsundinu og setti met í 100 m baksundi. Angantýr Ernir Guðmundsson, 10 ára setti hnokkamet í 50 m skriðsundi og 50 m bringusundi og Sólveig Gunnarsdóttir setti hnátumet í 50 m bringusundi. Ef metin í öllum aldursflokkum eru talin setti liðið yfir þrjátíu aldurs- flokkamet. Ingimundur Ingimundarson Frá Bridsfélagi Akraness Aðalsveitakeppni Bridsfélags Akraness er nú lokið. Úrslit urðu þau að sveit Karls Ó Alfreðssonar sigraði með 94 stigum. Með jafn mörg stig, en þó í öðru sæti, varð sveit Tryggva Bjarnasonar. Úrslitin réðust af niðurstöðu úr innbyrðis viðureign sveitanna en þar sigraði sveit Karls með einungis tveggja impa mun, svo ekki gat hann orð- ið minni. í þriðja sæti varð sveit Magnúsar Magnússonar með 74 stig. í sigursveitinni voru auk Karls, þeir Alfreð Þór Alfreðsson, Jón A Þorsteinsson og Björn Þor- valdsson. Einnig spiluðu þeir Hörður Jóhannesson og Kjartan Guðmundsson með sveitinni. í sveit Tryggva voru þeir Þorgeir Jósepsson, Karl Alfreðsson og Bjarni Guðmundsson. Gamla kempan Alfreð Viktorsson leysti af tvö kvöld með sveitinni. Síðastliðinn fimmtudag var eins kvölds tvímenningur hjá félaginu og er óhætt að segja að úrslit hafi verið fremur óvenjuleg. Þeir Bjarni Guðmundsson og Karl Alfreðsson unnu með 132 stigum. Miðlungur á mótinu var 84 stig sem þýðir að þeir félagar höfðu 78,6% skor. [ öðru sæti urðu Jón H Einarsson og Alfreð Kristjánsson með 83 stig eða 49,4% skor. Þeir Bjarni og Karl hirtu því allan plús sem í boði var þetta kvöld, en samtals spil- uðu 8 pör. Fimmtudaginn 2. mars byrjar Akranestvímenningur hjá félaginu. Spilaður verður barómeter með forgefnum spilum. Allir eru vel- komnir. MM Kennir Rope yoga á Hvanneyri Emma Bjarnadóttir yogakenn- ari er fædd og uppalin á Ásgarði í Dölum. Hún hefur aflað sér menntunar og góðrar reynslu í svokölluðu Rope Yoga, en eins og nafnið ber með sér er notast við bönd við iðkun þess og er greinin stundum kölluð banda- jóga þó íslenska þýðingin hafi ekki enn náð fótfestu. Emma hyggst bjóða Borgfirðingum upp á helgarnámskeið í þessari teg- und Yoga um næstu helgi, ef næg þátttaka verður. Hún segir Rope yoga vera teg- und yoga í eins konar líkams- ræktarkerfi þar sem reynt er að sameina hug, líkama og sál með því að beina orkunni í jákvæðan farveg bæði andlega og líkam- lega. Þessi tegund yoga segir hún styrkja alla vöðvahópa líkamans með áherslu á kvið-, bak- og lær- vöðva. Brennslu í líkamanum aukist og um leið lini á t.d. bakverkj- um. „Með því að stunda Rope yoga eykur maður and- lega meðvitund og jafnvægi. Flæðið um líkamann eykst og um leið losar maður sig við ýmis streitueinkenni," segir Emma. Nám- skeiðið verður á Hvanneyri helgina 25. til 26. febrúar í Nýjaskóla. „Á helg- arnámskeiði sem þessu er allt Rope yoga kerfið kynnt og farið í æfingar með böndum. Einnig verður farið í flæðis- og önd- unaræfingar sem Emma Bjarnadóttir. Rope yoga æfingar. eru gerðar án bandanna. Góð slökun verður á milli og loks mun 7 þrepa heimspeki Rope yoga verða rædd.“ Nánari upplýsingar um námskeiðið gefur Emma í síma 860 2173 eða á: info@egER.is MM Landsbankamót ÍA í badminton Landsbankamót ÍA í Badmint- on fór fram helgina 11. og 12. febrúar í íþróttahúsinu við Vestur- götu á Akranesi. 91 keppandi mætti á mótið og voru 24 frá ÍA og frá öðrum félögum mættu 67. Keppt var í U13 og U15 á laugar- deginum og U17 og U19 á sunnudeginum. Róbert Þór Henn og Egill Guðlaugsson unnu báðir þrefalt á mótinu sem er glæsileg- ur árangur hjá þeim drengjum. Alls vann ÍA gull í 17. leikjum og silfur í 9. leikjum. U13. Hnokkar - Tátur. Einliðaleikur. 1. sæti. Valdís Jónsdóttir ÍA. 1. sæti aukafl. Marvin Þrastarson ÍA. 1. sæti aukafl. Alexandra Stefánsd. ÍA. Tvíliðaleikur. 2. sæti. Steinn Þorkeisson ÍA og Jóhannes Þorkelsson ÍA. 2. sæti. Valdís Jónsdóttir ÍA og Ragnheiður Brynjólfsdóttir ÍA. Tvenndarleikur. 1. sæti. Magnús Sigurðsson UMSB og Valdís Jónsdóttir ÍA. 2. sæti. Steinn Þorkeisson ÍA og Ragnheiður Brynjólfsdóttir ÍA. U15. Sveinar - Meyjar. Einliðaleikur. 1. sæti. Egill Guðlaugsson ÍA. 1. sæti aukaf. Erla Þétursdóttir ÍA. Tvíliðaleikur. Róbert Þór Henn sem vann allt í U-17 flokknum. 1. sæti. Egill Guðlaugsson IA og Viktor Elíasson ÍA. Tvenndarleikur. 1. sæti. Egill Guðiaugsson ÍA og Karitas Jónsdóttir ÍA. U17. Drengir - Telpur. 1. sæti. Róbert Þ. Henn ÍA. 1. sæti. Una Harðardóttir ÍA. 1. sæti aukafl. Kristján Aðalsteinss. ÍA 2. sæti aukafl. Ragnar Harðarson ÍA. 1. sæti aukafl. Hulda Einarsdóttir ÍA. Tvíliðaleikur. 1. sæti. Róbert Þ. Henn ÍA og Heiðar Sigurjónsson BH. 2. sæti. Kristján Aðalsteinsson ÍA og Ragnar Harðarson ÍA. I.sæti. Una Harðardóttir ÍA og Hulda Einarsdóttir ÍA. Egill Guðlaugsson sem vann allt í U -15 flokknum. Tvenndarleikur. 1. sæti. Róbert Þ. Henn ÍA og Hulda Einarsdóttir ÍA. 2. sæti. Ragnar Harðarsson ÍA og Una Harðardóttir ÍA. U19 Piltar - Stúlkur. Einliðaleikur. 1. sæti. Karitas Ó. Ólafsdóttir ÍA. 2. sæti. Hanna M. Guðbjartsdóttir ÍA. Tvíliðaleikur. 1. sæti. Karitas Ó. Ólafsdóttir ÍA og Birgitta R. Ásgeirsdóttir ÍA. 2. sæti. Hanna M. Guðbjartsdóttir ÍA. og Þorgerður Jóhannsdóttir TBR. Tvenndarleikur. 2. sæti. Daníel Thomsen TBR og Hanna M. Guðbjartsdóttir ÍA. r Aðalfundur N Boltafélagsins Bruna Aðalfundur Boltafélagsins Bruna verður haldinn þriðjudaginn 28. febrúar kl. 20:00 að Jaðarsbökkum. Venjuleg aðalfundarstörf. Á fundinum verða teknar fyrir lagabreytingar og m.a. nafni félagsins breytt í Knattspyrnufélagið Kári. Félagið mun senda lið í 3. deild karla nk. sumar. Hvetjum alla áhugamenn um knattspyrnu til að mæta. Kaffi og kökur á boöstólnum. . Undirbúningsnefndin. . Ræsting Stykkishólmi Vantar fólk til að ræsta verslun 2 daga í viku fyrir hádegi. Uppl. í síma 533 6020 eða raestir@raestir.is -fclRABAKA#*. HANDVERKSBAKARÍ # Digranesgötu 6 - Borgitrnesi - sími: 4372020 BOLLA - BOLLA Fimmtudag - föstudag - laugardag - sunnudag - mánudag Opnunartfmi: Mánudaga til föstudaga kl. 9:00 -18:00 Laugardaga og sunnudaga 9:00 -16:00 Opnum á mánudag (bolludag) kl. 07:00 BOLLUKÁFFI “ ásunnudag Mikið úrval!

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.