Skessuhorn - 11.04.2006, Page 1
VIKUBLAÐ Á VESTURLANDI 15. tbl. 9. árg. 11. apríl 2006 - Kr. 300 í lausasölu
Innbrotahrina
á Akranesi
I vikunni hefur verið brotist inn
í nokkrar verslanir og þjónustufyr-
irtæki á Akranesi. Málin eru óupp-
lýst en rannsókn stendur yfir. Það
var aðfararnótt miðvikudagsins
sem brotist var inn í bifreiðaverk-
stæði og þaðan stoUð um tíu þús-
und krónum. Einnig var brotist
inni matvörubúð sömu nótt.
Starfsmaður sem var við störf fyrir
hreína tilviljun varð þjófsins var og
fældi bann burtu. Aðfaramótt
fimmtudags var síðan brotist inn í
hárgreiðslustofh og tískuvöruversl-
un. Töluvert var rótað til og
nokkram verðmætum stobð. Sam-
kvæmt upplýsingum frá lögregl-
unni eru öll mnbrotin í rannsókn
og þeir sem veitt geta upplýsingar
eru hvattir til að hafa samband við
lögregluna á Akranesi.
HJ
Vilja fresta
gildistöku laga
A aðalfundi Þjónustu-, flutn-
inga- og mannvirkjadeildar
Verkalýðsfélags Borgamess 2006,
sem er lang stærsta deild félagsins,
kom fram verulegur ótti við af-
leiðingar opnunar fyrir frjálst
flæði launafólks frá nýjum aðildar-
ríkjum ESB á þessu ári. Töldu
fundarmenn íslensk stjórnvöld
enn ekki í stakk búin til þess að
takast á við þau vandamál sem því
myndi fylgja. Var það skoðun
fúndarins að fresta bæri slíkri opn-
un og nota tímann, sem með því
myndi vinnast, til enn frekari und-
irbúnings. Eftirfarandi tillaga var
einróma samþykkt: „Aðalfundur
Þjónustu-, flutninga- og marrn-
virkjadeildar Verkalýðsfélags
Borgarness, haldinn 6. apríl 2006,
skorar á stjórnvöld að fresta gild-
istöku reglna um frjálst flæði
launafólks frá nýjum aðildarríkj-
um ESB. Fundurinn bendir á að
íslensk stjórnvöld eru illa í stakk
búin til að taka á vandamálum sem
án vafa munu fylgja þessari opnun
nú. Aukið flæði launafólks frá lág-
launasvæðum Austur - Evrópu
kemur einnig til með að lækka
markaðslaun í landinu og grafa
undan íslensku velferðarkerfi."
MM
ATLANTSOLIA
Dísel *Faxabraut 9.
Ryknemar settír upp
í HvaUjarðargöngum í vor
í vor verða settir upp nemar í
Hvalfjarðargöngum sem vonir
standa til að bæti andrúmsloftið
þar inni til muna. Eins og vegfar-
endur um göngin hafa orðið varir
við á þurrum dögum að undan-
förnum hefur myndast töluvert
rykský í göngunum. Þegar verst
lætur daprast skyggni mjög. Mar-
ínó Tryggvason, starfsmaður Spal-
ar segir rykmengun ávallt hafa ver-
ið nokkra og verst sé ástandið á
þurrum vetrardögum þegar notk-
un nagladekkja er í hámarki. Við
þessari mengun hefur verið brugð-
ist með því að sópa göngin reglu-
lega og einnig hafa þau verið þrif-
in hátt og lágt á hverju vori. Með
vaxandi umferð hafi hins vegar
verið leitað annarra leiða.
I loftræstikerfi ganganna í dag
eru 32 öflugir blásarar. Við þá eru
tengdir nemar sem ræsa blásarana
þegar mengun af völdum eldsneyt-
isbruna fer yfir ákveðin mörk. Þeir
nema hins vegar ekki rykmengun.
Ur því verður nú bætt með nem-
um sem Marínó segir hafa verið í
notkun erlendis með góðum ár-
angri. Sér því vonandi fyrir end-
ann á þessari hvimleiðu rykmeng-
un.
HJ
A þriðja hundrað kannabis-
plöntur fundust á sveitabæ
siðustu helei lagði löuredan í
Um siðustu helgi lagði lögregl:
Borgarnesi hald á 228 kannabisplöntur á
sveitabæ á Mýrum. Þá fundust einnig
þurrkuð kannabislauf og stönglar ásamt
ýmsum búnaði til ræktunar, svo sem
lampar, hitagjafar, viftur og loftræstibún-
aður. Að sögn lögreglunnar í Borgarnesi
var ræktunin á ýmsum stigum og því
ljóst að hún hafði staðið yfir í þónokkurn
tíma. Einn maður var handtekinn vegna
málsins og hann færður til yfirheyrslu en
var sleppt að þeim loknum.
Þrjú önnur fíkniefhamál komu upp á
borð lögreglunnar í Borgarnesi um helg-
ina og var lagt hald á h'tifræði af hassi og
amfetamíni. Málin tengjast ekki inn-
byrðis. KÓÓ
Gríðarlegt viagn kannabisplantna
Rakel
Olsen
heiðruð
Menningarverðlaun DV
voru veitt í 28. skipti við hátíð-
lega athöfh á Hótel Borg sl.
fimmtudag. Verðlaun voru
veitt í 8 flokkum auk heið-
ursverðlauna, en það var
Hólmarinn Rakel Olsen sem
fékk þau að þessu sinni fyrir
einstakt framlag við varðveíslu
gamalla húsa í Stykkishólmi.
Það voru dætur Rakelar, Selma
og Ragnhildur Ágústsdætur
sem tóku við verðlaununum
fyrir hönd móður sinnar en
þau voru veitt af menntamála-
ráðherra, Þorgerði Katrínu
Gunnarsdóttir. „Ég hef unnið
að þessu málefni í 20 ár en
starftð hófst þegar ég gerði upp
hús frá árinu 1874 sem ég sjálf
bjó í,“ sagði Rakel í samtali við
Skessuhorn. „Ég keypti svo tvö
hús sem ég gerði upp og kom
einnig að endurbótum á gömlu
kirkjunni.“
Aðspurð um hvort tílnefn-
ingin hafi komið sér á óvart
sagði hún margt koma sér á
óvart í h'finu og þarf þá oft
mjög lítið tíl. „Það var haft
samband við mig og mér til-
kynnt þessi tilnefning en verð-
launin skipta mig alls engu
máli,“ sagði Rakel. „Ég er að
gera þetta fyrir sjálfa mig og af
því mér finnst það gaman og
samfélagið nýtur góðs af því.
Ég er heldur ekki ein í þessari
vinnu, við erum fullt af fólki
sem deilum þessum áhuga og
vinnum þetta saman,“ sagði
Rakel hógvær.
KÓÓ
Missti
fingur
Vinnuslys varð á Akranesi í
síðustu viku þegar kona sem
vann við hreingerningar missti
framan af fingri. Hafði hún
verið að vinda skúringarmoppu
í þar til gerðu áhaldi. Vindan
stóð á sér og hrökk svo laus og
á fingur konunnar.
MM
Fliigger
Hörpuskin, Hörpusilki
og Utitex
fást nú hjá KB Búrekstrardeild
BUREKSTRARDEILD
BORGARNiSI
Egilsholt 1-310 Borgarnes
Afgreiðsla sími: 430-5505 Fax: 430-5501
Opið frá kl. 8-12 og 13-18 alla virka daga
I