Skessuhorn


Skessuhorn - 11.04.2006, Síða 6

Skessuhorn - 11.04.2006, Síða 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 11. APRIL 2006 SSESsUliiOEM Fæðingum fjölgar á ný á Vesturlandi Vilja skýringar á skipulagsskrá Stjórn Dvalarheimilisins Höfða á Akranesi hefar óskað eftir nánari upplýsingum um nýja skipulagsskrá fyrir stofaun- ina, sem nú er til umræðu í bæj- arstjóm Akraness. Eins og ffam hefar komið í fféttum Skessu- homs er ágreiningur uppi í bæj- arstjórn um skipulagsskrána. Bæjarfalltrúar minnihlutans hafa uppi efasemdir um að rétt sé að málum staðið og ekki hafi komið ffam hver markmiðin em með formbreytdngu á stoffnm- inni. Bæjarfalltrúar meirihlutans hafa vísað athugasemdunum á bug. Guðjón Guðmundsson fram- kvæmdastjóri Dvalarheimilisins Höfða segir stjórnina hafa feng- ið skipulagsskrána til umfjöllun- ar og hún telji nauðsynlegt að ræða tdltekin atriði við bæjaryfir- völd áður en tekin verði afstaða til breytinganna. HJ Á síðasta ári fæddust 208 böm þar sem foreldri/ar áttu lögheimili á Vesturlandi og fjölgaði þeim úr 192 frá árinu á undan. Á undanförnum ámm hefar fjöldi fæddra barna ver- ið annað árið um ogyfir 180 en hitt árið rúmlega 200. Á áranum eftir 1990 vom fæðingar þó í kringum 250 á ári og hefar því fækkað nokk- uð. Sem dæmi má nefha að meðal- fjöldi fæddra barna síðustu 15 árin er 211 börn en meðaltal síðustu 11 ára er hins vegar aðeins 199. Af einstökum sveitarfélögum má nefha að börn foreldra búsettdr á Akranesi vom 88 í fyrra en árið áður vom þau 78 talsins. Borgfirð- ingar vora ekki eins frískir á síðasta ári því þar fæddust einungis 28 börn en árið áður vora þau 42 tals- ins, sem reyndar var mesti fjöldi ffá árinu 1992. í Snæfellsbæ fæddust í fyrra 33 böm og í Grandarfirði fæddust 13 börn. Hér að neðan má sjá þróunina ffá árinu 1991: HJ 1991 1992 1993 1994 1995 1996 1997 1998 1999 2000 2001 2002 2003 2004 2005 Akranes 94 79 94 81 73 65 73 86 92 61 85 80 76 78 88 Hvalfj arðarstrandarhr. 3 4 2 5 0 2 1 1 4 0 1 2 0 3 3 Skilmannahreppur 3 3 2 1 0 0 3 1 1 2 0 1 1 0 2 Innri-Akraneshreppur 1 2 3 1 0 5 1 1 3 0 5 1 2 0 1 Leirár- og Melahreppur 0 2 3 0 3 1 3 3 1 0 2 2 2 3 1 Skorradalshreppur 0 0 0 1 0 0 0 2 0 1 1 0 2 0 2 Borgarfjarðarsveit 15 11 13 13 15 5 5 6 15 9 1 8 10 5 14 Hvítársíðuhreppur 0 3 3 1 1 4 3 2 1 0 1 0 1 0 2 Borgarbyggð 42 46 39 34 31 36 29 31 35 29 30 22 33 42 28 Kolbeinsstaðahreppur 1 5 3 5 1 1 2 1 3 2 1 1 0 0 0 Grandarfjarðarbær 26 20 20 10 26 14 17 14 10 15 8 15 12 8 13 Helgafellssveit 3 2 0 0 1 0 0 0 1 0 0 0 0 2 1 Stykkishólmur 19 21 20 25 14 18 22 14 15 14 23 15 23 13 10 Eyja- og Miklaholtshreppur 4 3 1 0 0 1 0 0 2 2 0 1 0 3 1 Snæfellsbær 36 29 37 26 25 27 31 21 24 34 45 25 39 29 33 Saurbæjarhreppur 2 4 1 1 0 2 1 1 2 0 3 0 0 1 1 Dalabyggð 9 15 18 8 8 12 11 9 9 12 6 7 11 5 8 Samtals 258 249 259 212 198 193 202 193 218 181 212 180 212 192 208 Fréttir af Sparisjóði Ólafsvíkur Meirihlutinn fallinn samkvæmt skoðanakönnun Sparisjóður Ólafsvíkur var rekinn með 22,6 milljóna króna hagnaði árið 2005. Er það nokkra minni hagnaður en árið á undan þegar hann nam 25,3 milljónum króna. Vaxtatekjur sjóðsins vora á síðasta ári rúmar 173 milljónir króna og höfðu aukist um tæp 23% á milli ára. Vaxtagjöld sjóðsins vora tæpar 88 milljónir króna og höfðu aukist um rúmlega 34% á milli ára. Aðrar rekstrartekjur sjóðsins vora tæpar 31 milljón krónur og önnur rekstrar- gjöld voru túmar 65 milljónir króna. Framlag í afskriftarreikning nam tæpum 28 milljónum króna og hækkuðu um tæp 49% á milli ára. Utlán sjóðsins í árslok 2005 vora rúmlega 1.221 milljón króna í stað 1.187 milljónir króna árið áður. Inn- lán sjóðsins vora rúmar 943 milljón- ir króna og höfðu hækkað úr tæpum 939 milljónum króna. Eiginfjárhlut- fall sjóðsins í árslok samkvæmt ákvæðum laga um fjármálafyrirtæki var 23,7% en það hlutfall má ekki vera lægra en 8%. Á aðalfundi sjóðsins fyrir skömmu var stjóm hans endurkjörin en hana skipa: Helgi Kristjánsson, formaðtu-, Björn Arnaldsson, varaformaður, Bergmundur Ogmundsson, Jenný Guðmundsdóttir og Snorri Böðvars- son. Sparisjóðsstjóri er Helga Valdís Guðjónsdóttir. Á aðalfundi sparisjóðsins var til- kynnt um úthlutun úr Menningar- sjóði Sparisjóðins en honum er ætl- að að styrkja hvers konar menning- ar- og ffamfaramál á starfssvæðinu. Eru styrkir veittir til einstaklinga, fé- laga eða stofaana að jafhaði einu sinni á ári fýrir aðalfund sjóðsins. Þeir sem nú fengu styrki era: Umf. Víkingur, Félagsmiðstöðin Afdrep, Leikfélag Olafsvíkur, Kirkjukór Hellna,- Búða- og Staðarstaðar- sóknar, Aðalsteina Sumarliðadóttir, Taflfélag Snæfellsbæjar, Framfarafé- lag Snæfellsbæjar Olafsvík og Holl- vinasamtök Þórðar Halldórssonar. Alls numu styrkimir 870 þúsund krónum. HJ Meirihluti sá sem stjórnað hefar Akraneskaupstað á yfirstandandi kjörtímabili fellur í sveitarstjórnar- kosningunum í vor, ef marka má skoðanakönnun sem Félagsvísinda- stofaun gerði fyrir sjónvarpsstöðina NFS. Könnunin var kynnt á ffam- boðsfandi sem stöðin stóð fyrir á Akranesi á þriðjudag í liðinni viku. Samkvæmt könnuninni fengi Sam- fylkingin 28,9% atkvæða og þrjá menn kjörna. Flokkurinn tapar 3,5 prósentustigum ffá síðustu kosn- ingum en heldur falltrúafjölda sín- um. Framsóknarflokkurinn fengi 12,3% greiddra atkvæða og einn mann kjörinn. Flokkurinn tapar 13,7 prósentustigum og öðrum bæjarfalltrúa sínum. Sjálfstæði- flokkurinn fengi 42,6% greiddra atkvæða og fjóra menn kjörna. Hann bætir við sig 7,6 prósentu- stigum ffá síðustu kosningum en nær ekki að bæta við sig manni. Vinstri hreyfingin-grænt ffamboð fær 10,8% greiddra atkvæða og einn mann kjörinn. Hreyfingin bætir við sig 4,1 prósentustigi og einum manni. Þá fengi Frjálslyndi flokkurinn 5,4% greiddra atkvæða en flokkurinn bauð ekki fram í síð- ustu kosningum. Könnunin fór ffam dagana 31. mars og 1. apríl og stuðst var við 600 manna úrtak Akurnesinga 18 ára og eldri. Svarhlutfall í könnun- inni var rúmlega 60%. Eins og áður sagði félli núverandi meirihluti ef þetta yrðu kosningaúrslit. Könnun- in er gerð þegar einungis era tvö ffamboð komin ffam, listar Sjálf- stæðisflokks og Framsóknarflokks. Framboðslisti Samfylkingarinnar var samþykktur að kvöldi 31. mars og hafði því nánast enga kynningu hlotið er könnunin fór fram. Aðrir framboðslistar hafa ekki komið ffam. I frétt ffá Félagsvísindastofa- un kemur fram að hlutfall óákveð- inna hefði verið 22% og 13% hefðu neitað að svara og fjölmargir við- mælendur í könnuninni höfðu á orði að þeir gætu ekki gert upp hug sinn eða væra ekki tilbúnir að gefa upp afstöðu sína fyrr en framboðs- mál á Akranesi skýrast betur. HJ PISTILL GISLA Sport Þótt ég flaggi því ekki opinberlega þá get ég sagt það hér í trúnaði að árangur minn í íþróttum hefur ekki verið á heimsmælikvarða. Raunar hefur íþróttaferill minn verið eins og gengi krónunnar að undanförnu, á stöðugri niðurleið. Það sem kannski er þó sínu verra er að umræddur ferill hefur þrátt fyrir það aldrei náð neinu risi. Skortur á árangri í íþrótt- um stafar alls ekki af áhuga- leysi síður en svo. Iþrótta- áhugi minn er eins og best gerist þannig að í raun hefur aldrei verið neitt sem hamlar íþróttaafrekum af minni hálfu nema skortur á hæfi- leikum. Því hef ég orðið, eins og reyndar margir aðrir, að láta mér nægja að hrífast með yfir afrekum annarra. Gallinn er reyndar sá að ég hef hneigst til að styðja íþróttamenn, og íþróttalið sem ekki hafa náð mikið meiri árangri en ég. Þar á meðal er hið hugumprúða lið Halifax krepps í engilsax- nesku knattspyrnunni, Minardi liðið í Formúlunni og ýmsir íslenskir frjáls- íþróttamenn sem ég ætla ekki að nefna. Undantekning frá þessu er reyndar IA í knatt- spyrnunni. Hinsvegar ber líka að geta þess að upp- áhalds handboltaliðið mitt er líka IA sem er slæmt að því leiti að þar hefur ekki verið leikinn handbolti síðan ein- hverntíma á síðustu öld. Alltaf er von á betri tíð með blómum í haga og nú er svo komið að maður er hættur að hvísla þegar maður segist vera félagi í Skallagrími. Astæðan er að sjálfsögðu all- verulega bærilegur árangur liðsins í körfuknattleik það sem af er vetri. Að vísu eru enn í það minnsta tveir leikir eftir á þessu Islandsmóti en ég er þegar orðinn nokkuð sáttur. Eftir Skallagrímur skákaði höfuðborg hrokans, Keflavík, þá er allt sem á eft- ir kann að koma ágætis bón- us. Eg tek þó fram að alla jafna hef ég ekkert á móti Keflvíkingum nema síður sé og ummælin hér að framan eiga fyrst og fremst við um hegðunarmynstur þeirra í tengslum við körfuboltann. Þannig að því sé nú haldið til haga. Það er ekki leiðinlegt að vera Borgnesingur í dag og meira að segja skaðbrunnar Mýrarnar lifna við þessa dag- ana. Þetta er tilfinning sem menn þekkja á Skaganum, í Stykkishólmi og víðar. Það er oft kvartað yfir því að verið sé að ausa peningum í afreks- íþróttir í stað þess að leggja meiri áherslu á almennings- íþróttir og þá ekki síst unglingastarf. Staðreyndin er hinsvegar sú og það vita sjálf- sagt flestir að góður árangur meistaraflokka hjá félögun- um er besta vítamínið fyrir barna- og unglingastarfið. Það sem þó skiptir meira máli er að góður árangur íþróttaliðs, ekki síst í litlum bæjarfélögum, hefur áhrif langt út fyrir íþróttavöllinn. Hann hefur jákvæð áhrif á allt samfélagið og virkar bet- ur en nokkuð þunglyndislyf. Gísli Einarsson, hægri varamaður.

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.