Skessuhorn


Skessuhorn - 19.04.2006, Blaðsíða 6

Skessuhorn - 19.04.2006, Blaðsíða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 19. APRIL 2006 Sam-Eining sunnan Skarðsheiðar Sam-Eining er listi áhugafólks um vöxt og viðgang hins nýja sam- einaða sveitarfélags sunnan Skarðs- heiðar. Listinn var kynntur í síð- ustu viku og hefur hann fengið listabókstafinn E. Kynningarbæk- lingur um helstu stefnumál E-Ust- ans verður gefinn út fljótlega, segir í tilkynningu frá framboðinu. E-listann skipa: 1. Hallfreður Vilhjálmsson, hóndi og oddviti Kambshóli, 2. Hlynur Sigurtyörnsson, stjómandi rannsóknarst. Islenska jámbl. Hagamel II, 3. Amheiður Hjörleifsdóttir, umhverfis- fræðingur, Bjarteyjarsandi, 4. Stefán Armannssm, hóndi ogfram- kvœmdastjóri, Skipanesi, Undir Búlands- höfða Það má með sanni seg/a að Búlands- hófðinn á Snœfellsnesi sé í vetrarham þessa dagana, hvítfryssandi fossinn í klakaböndum. Myndina tók nýr fréttaritari Skessuhoms á Snœfells- nesi;Jón Torfi Arasan fyrir sk'ömmu. I. Daníel Ottesen, húfræðtngm; Ytra- Hólmi, 6. Björgvin Helgason, búfræðingur og húsasmiður, Eystra-Súlunesi, 7. Asa Hólmarsdóttir, líffrœðingur, Hagamel 2, 8. Sigurgeir Þórðarson, sölumaður, Hagamel 10, 9. Hallgrímur Rögnvaldsson, bóndi og málari, Innra-Hólmi 10. Ragna Kristmundsdóttir, kennari, Vogatungu, II. Daniela Gross, búfræðingut; Eystri- Leirárgörðum 12. Ingibjórg Halldórsdóttir, nemi, Heynesi, 13. Guðmundur Gíslason, flokkstjóri, Hlíðarbæ 10, 14. Haraldur Benediktsson, bóndi og formaður Bændasamt. Islands, Vestri- Reyni Hallfreður Vilhjálmsson skipar efsta sæti sam-Einingarlistans í nýju sveitarfélagi sunnan Skarðsheiðar. N - listi nýrra tíma Nýr framboðslisti hefur litið,, dagsins ljós í sameinuðu sveitarfé- lagi Dalabyggðar og Saurbæjar- hrepps vegna sveitarstjómarkosn- inganna í vor. „Þessi listi sam- anstendur af áhugasömu fólki úr nýju sameinuðu sveitarfélagi okkar og mun nota bókstafinn N fyrir „lista nýrra tíma“. Eingöngu er tun nýja ftambjóðendur að ræða, þar sem engin þeirra tók þátt í pólitísk- um átökum sl. 4 ára hér í Dala- byggð. N-listinn vill gera Dala- byggð að eftdrsóknarverðum stað til að búa á fyrir fjölskyldu- og barna- fólk. Stjórnsýslan verði skilvísari og þjóni íbúunum með áherslu á at- vinnumál sem mikilvægustu mál sveitafélagsins. Ferðaþjónustan verði viðurkennd sem mikilvæg at- vinnugrein og uppbygging í kring- um hana efld,“ segir í tilkynningu frá N listanum. Listann leiðir Gunnólfur Lámsson framkvæmda- stjóri og fyrrum aðstoðarmaður sveitarstjóra í Dalabyggð. Listinn í heild sinni er svona: 1. Gunnólfur Lárusson, framkv.stjóri 2. Helga H. Agústsdóttir, kennari og bóndi í Dölum 3. Guðjón T. Sigurðsson, skólastjóri 4. Jón Egill Jóhannsson, bóndi I. Eyþórjón Gíslason, flokksstjóri 6. Guðbrandur Þorkelsson, bóndi 7. Jóhannes Haukur Hauksson, mjólkur- fræðingur 8. Guðrún Jóhannsdóttir, þjónustufulltrúi 9. Harpa Helgadóttir, lyfjatæknir 10. Asta S. Sigurðardóttir, hjúkrunarfor- stjóri II. Boga K Thorlacius, blómaskreytir 12. Þórunn Hilmarsdóttir, æðarbóndi 13. Baldur Þ. Gíslason, lögfræðinemi 14. Elísabet Svansdóttir, mjólkurfræðingur MM Þórður Ingólfcson leiðir lista Dalabyggðar í síðustu viku var kynntur fram- boðslistd Dalabyggðar, sem svo er nefndur. I dreifibréfi sem sent var íbúum sveitarfélagsins segir að list- inn sé skipaður öflugu fólki með ólíkan bakgrunn sem kemur víða úr sveitarfélaginu. „Það er öllum ljóst að framundan era spennandi tímar. Uppsveifla hefur verið síðustu ár og mörg skemmtileg og krefjandi verkefni sem bíða,“ segir orðrétt í bréfinu. Þá segir að frambjóðendur listans ætli í samstarfi við íbúa að leiða Dalabyggð upp á við á öllum sviðum „íbúum og hagsmunaaðil- um til ffamdráttar." Listann skipa eftirtaldir: 1. Þórður lngólfsson læknir 2. Ingveldur Guðmundsdóttir bóndi 3. Einarjón Geirsson íþróttakennari 4. Anna Berglind Halldórsdóttir bóndi 5. Sæmundur G. Jóhannsson flokkstjóri 6. Vilhjálmur H. Guðlaugsson verkamað- ur 7. Herdís Rósa Reynisdóttir húsmóðir 8. Skjöldur Orri Skjaldarson bóndi 9. Pálína Kristín Jóhannsdóttir bóndi 10. Haraldur O. Haraldsson bóndi 11. Bára H. Sigurðardóttir bóndi 12. Unnur Asta Hilmarsdóttir bóndi 13. Víðir Jónasson nemi 14. Ólafur Gunnarsson bóndi HJ Reiðhöll eða reiðskemma byggð í Grundarfirði Bæjarráð Grundafjarðar sam- þykkti samhljóða í síðustu viku að styrkja Hestamannafélagið Snæ- felling til byggingar reiðhallar eða reiðskemmu í Grundarfirði. Félag- ið hefur að undanförnu undirbúið bygginguna og lagði fýrir fund bæj- arráðs útreikninga vegna tveggja valkosta. Annars vegar byggingu reiðskemmu og hins vegar bygg- ingu reiðhallar. Aður hafði bæjar- stjórn Grundarfjarðar lýst yfir stuðningi við verkefnið. Samkvæmt samþykkt bæjarráðs mun bæjarfélagið styrkja byggingu reiðhallar um allt að 16,7 milljónir króna að gatnagerðargjöldum meðtöldum. Bæjarráð setur nokkur skilyrði sem fullnægja þarf. Þau em meðal annars að stofnað verði sér- stakt hlutafélag um byggingu og rekstur hússins og mun framlag bæjarins mynda eignarhlut í félag- inu. Þá er gert skilyrði að fjár- mögnun samkvæmt framlagðri áætlun gangi eftir. Einnig verði gerður samningur um afnot bæjar- ins af húsinu óski bærinn eftir slíku. Greiðslur bæjarins til framkvæmd- arinnar munu skiptast jafnt á fimm ár og verður fyrsta greiðslan innt af hendi árið 2007. Verði niðurstaða Hestamannafé- lagsins sú að byggja reiðskemmu mun Grundarfjarðarbær styrkja þá ffamkvæmd um 7 milljónir króna að meðtöldum gamagerðargjöld- um. Svipuð skilyrði era sett og fyrr er sagt frá. HJ PISTILL GISLA Sport Þótt ég flaggi því ekki op- inberlega þá get ég sagt það hér í trúnaði að árangur minn í íþróttum hefúr ekki verið á heimsmælikvarða. Raunar hefur íþróttaferill minn verið eins og gengi krónunnar að undanförnu, á stöðugri niðurleið. Það sem kannski er þó sínu verra er að umræddur ferill hefur þrátt fyrir það aldrei náð neinu risi. Skortur á árangri í íþrótt- um stafar alls ekki af áhuga- leysi síður en svo. Iþróttaá- hugi minn er eins og best gerist þannig að í raun hefur aldrei verið neitt sem hamlar íþróttaafrekum af minni hálfu nema skortur á hæfi- leikum. Því hef ég orðið, eins og reyndar margir aðrir, að láta mér nægja að hrífast með yfir afrekum annarra. Gallinn er reyndar sá að ég hef hneigst til að styðja íþróttamenn, og íþróttalið sem ekki hafa náð mikið meiri árangri en ég. Þar á meðal er hið hugumprúða lið Halifax krepps í engilsax- nesku knattspyrnunni, Minardi liðið í Formúlunni og ýmsir íslenskir frjálsí- þróttamenn sem ég ætla ekki að nefna. Undantekning frá þessu er reyndar IA í knatt- spyrnunni. Hinsvegar ber líka að geta þess að uppá- halds handboltaliðið mitt er líka IA sem er slæmt að því leiti að þar hefur ekki verið leikinn handbolti síðan ein- hverntíma á síðustu öld. Alltaf er von á betri tíð með blómum í haga og nú er svo komið að maður er hættur að hvísla þegar maður segist vera félagi í Skallagrími. Astæðan er að sjálfsögðu all- verulega bærilegur árangur liðsins í körfuknattleik það sem af er vetri. Að vísu eru enn í það minnsta tveir leikir eftir á þessu Islandsmóti en ég er þegar orðinn nokkuð sáttur. Eftir Skallagrímur skákaði höfuðborg hrokans, Keflavík, þá er allt sem á eft- ir kann að koma ágætis bón- us. Eg tek þó fram að alla jafna hef ég ekkert á móti Keflvíkingum nema síður sé og ummælin hér að framan eiga fyrst og fremst við um hegðunarmynstur þeirra í tengslum við körfuboltann. Þannig að því sé nú haldið til haga. Það er ekki leiðinlegt að vera Borgnesingur í dag og meira að segja skaðbrunnar Mýrarnar lifna við þessa dag- ana. Þetta er tilfmning sem menn þekkja á Skaganum, í Stykkishólmi og víðar. Það er oft kvartað yfir því að verið sé að ausa peningum í afreks- íþróttir í stað þess að leggja meiri áherslu á almenningsí- þróttir og þá ekki síst ung- lingastarf. Staðreyndin er hinsvegar sú og það vita sjálf- sagt flestir að góður árangur meistaraflokka hjá félögun- um er besta vítamínið fyrir barna- og unglingastarfið. Það sem þó skiptir meira máli er að góður árangur íþróttaliðs, ekki síst í litlum bæjarfélögum, hefur áhrif langt út fyrir íþróttavöllinn. Hann hefur jákvæð áhrif á allt samfélagið og virkar bet- ur en nokkuð þunglyndislyf. Gtsli Einarsson, hægrt varamaður.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.