Skessuhorn - 19.04.2006, Qupperneq 7
aBfissunuu.1
MIÐVIKUDAGUR 19. APRIL 2006
7
Sautján ára rokkari
og kárkjuorganisti
Kristján Ingi Arnarsson.
Kristján Ingi Arnarsson er í fljótu
bragði ósköp venjulegur sautján ára
framhaldsskólanemi. A daginn
stundar hann nám í Fjölbrautaskóla
Vesturlands en þegar námi lýkur
taka áhugamálin við eins og hjá öðr-
um. Ahugamál Kristjáns Inga er
hljóðfæraleikur. Hann spilar á
hljómborð í skólahljómsveitinni
Black sheep sem nýverið tók þátt í
Músíktilraunum Tónabæjar og
Hins hússins í Reykjavík. Sú hljóm-
sveit spilar ýmsa tórdist sem höfðar
til unga fólksins. Var það í annað
sinn sem Kristján tekur þátt í Mús-
íktilratmum. Og þá hafa ekki allar
hljómsveitir sem Kristján er í verið
neíindar því hann hefur þrisvar sinn-
tnn farið með Nikkólínu, harmon-
ikkuhljómsveit Dalamanna, á harm-
onikkulandsmót.
Krislján spilar undir hjá kómum íjólamessu í Garpsdalsktrkju.
stjóra í Staðarhólssókn. í sókninni
eru tvær kirkjur, Garpsdalskirkja og
Staðarhólskirkja.
Kristján byrjaði að læra á orgel í
grunnskólanum lærði hann ein-
göngu á harmorúkku. Síðastliðinn
vetur fór hann svo í Tónlistarskóla
Akraness í harmonikkunám hjá Juri
Fedorov. I vetur hefur hann einu
sinni í viku hitt Svein Arnar org-
anista í Akraneskirkju og hann hefur
leiðbeint Kristjáni í kirkjutónlist.
Kristján segir að síðastliðið vor
hafi Sigurður Þórólfsson látið af
störfum sem organisti í Staðarhóls-
kirkju efirir nær 50 ára starf. „Það
vantaði því einhvem til að spila og
til mín var leitað. Mér fannst spenn-
andi að pmfa þetta og foreldrar
mínir hvöttu mig líka til þess.“ Ekki
er að efa að Kristján Ingi er með
yngstu organistum sem um getur en
ekki vildi hann staðfesta að hann
væri sá yngsti. Hann sagðist ekki
neita því að það hefði verið dálítið
skrítið að taka að sér stjórn
kirkjukórsins því hann væri mun
Um helgar dvelur Kristján Ingi
heima hjá sér í Dölunum. Þar sinnir
hann starfi sem ekki er algengt að
menn á hans aldri sinni. Frá því
skömmu fyrir síðustu áramót hefur
hann gegnt stöðu organista og kór-
Tónlistarskóla Dalasýslu þegar
hann var 7-8 ára og kennari hans var
Halldór Þórðarson. Þegar hann var
9 ára hóf hann nám á harmonikku
og lærði því í nokkur ár bæði á org-
el og harmonikku. Síðustu árin í
yngri en kórfólkið. „Þau tóku mér
mjög vel og það auðveldaði mér
starfið enda hefur samstarfið gengið
með ágætum."
Nú er það ekki algengt að ung-
menni á hans aldri stjórni kór hvað
þá heldur að þau séu kirkjuorganist-
ar. Kristján segir skólafélaga sína og
vini eflaust þykja aukastarfið hans
sérstakt en hafi í sjálfu sér ekki orð á
því.,JVfínir vinir taka mér eins og ég
er og einnig því sem ég tek mér fyr-
ir hendur.“
Framtíðin er h'tt skipulögð hjá
Kristjáni. Hann segist ekki hafa
ákveðið sig hvort hann leggur tón-
listina fyrir sig í alvöru efrir að námi
í ffamhaldsskóla lýkur enda sé tölu-
vert langt í þau tímamót.
HJ
Hljómsveitin Black Sheepf.v., Kristján, Tómas, Steinar, Jakoh og Baldvin.
Tónleikar Kirkjukórs Akraness
Eins og sjá má ríkir gleði á icfingum Kirkjukórs Akraness. Sveinn Amar Sæmundsson í
hópi „stúlkna“ úr altrödd kórsins.
Nú standa fyrir dyrum vortón-
leikar Kirkjukórs Akraness og verða
þeir haldnir föstudagskvöldið 21.
apríl í safnaðarheimilinu Vina-
minni, Akranesi. Akveðið hefur
verið að bjóða upp á tvenna tón-
leika þetta kvöld, fyrri tónleikarnir
hefjast kl. 19:30 og hinir síðari kl.
22:00. Efnisskráin verður mjög
fjölbreytt. Flutt verða íslensk ætt-
jarðar- og þjóðlög, einsöngur,
dúettar og óperukórar, m.a. úr Car-
men, La Traviata, Sígaunabarónin-
um og fleira. Stórsöngvararnir Sig-
rún Hjálmtýsdóttir, Oskar Péturs-
son og Auður Guðjohnsen, ásamt
hinum bráðflinka píanista Jónasi
Þóri, koma fram með kórnum.
Stjórnandi er Sveinn Arnar Sæ-
mundsson. Hægt er að lofa mikilli
gleði og fagurri tónlist þetta kvöld
og í lok beggja tónleikanna mun
verða fjöldasöngur og einstök, eft-
irminnileg uppákoma.
Forsala aðgöngumiða verður í
versluninni Bjargi, Stillholti 14
Akranesi, dagana 18. og 19. apríl.
Miðaverð er kr. 1500.
('fréttatilkynningj
Sundskólinn Fjörfiskar
Sundnámskeið hefst sunnudaginn
23. apríl - 21. maf 2006 í Bjarnalaug
Verð kr. 3000 greiðist í fyrsta tíma
Eftirfarandi hópar verða í boði:
Ungbarnasund 9:00-10:00
Framhald 1 10:00-10:45
Framhald 2 + börn fædd 2003 10:45-11:00
Börn fædd 2002 11:30-12:15
Skráning í síma 868 4613 eða
raggarun@simnet.is
Sumarnámskeið fyrir börn fædd 2001 + 2000
verður haldið á Jaðarsbökkum í júní og júlí,
nánar auglýst síðar.
™ 7 Opið
kaffihusakvöld
með Kalla
Kvennanefnd Golfklúbbsins Leynis efnir til
kaffihúsakvölds fyrir konur í golfskálanum við
golfvöllinn á Akranesi
þriðjudaginn 25. apríl kl. 20:00.
Karl Ómar Karlsson golfkennari mun koma og
fræða okkur um ýmislegt varðandi golfið. Kynning
verður á golfnámskeiðum, fimmtudagsgolfi kvenna,
þriðjudagsmótaröð fyrir konur o.fl.
María Nolan verður með heitt á könnunni
og kræsingar á hóflegu verði.
Mætum allar og tökum með okkur gesti.
Konur á Akranesi eru sérstaklega velkomnar
á fundinn þar sem þær geta kynnt sér hvað
golfíþróttin hefur uppá að bjóða.
Kvennanefnd GL
Akraneskaupstaður
Laust starf hjá
Akraneskaupstað
Starf umsjónarmanns fasteigna hjá tækni- og
umhverfissviði Akraneskaupstaðar er laust tii umsóknar.
Verkefni umsjónarmanns eru m.a. eftirlit og umsjón
með fasteignum Eignasjóðs og vinna við minni
viðhaldsverkefni. Útgáfu verkbeiðna í samráði við
verkefnisstjóra og daglegt eftirlit með viðhaldsverkum.
Hann vinnur við endurskoðun og uppfærslu
viðhaldsáætlana og gerir tillögur til verkefnisstjóra um
ný verkefni.
Gerð er krafa um iðnmenntun í byggingargreinum og
meistararéttindi og verulega starfsreynslu.
Laun samkvæmt kjarasamningi milli STAK og
Akraneskaupstaðar.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Umsóknarfrestur er t.o.m. 28. apríl n.k.
Nánari upplýsingar um starfið veitir sviðsstjóri tækni-
og umhverfissviðs.
Sviðsstjóri