Skessuhorn


Skessuhorn - 19.04.2006, Blaðsíða 8

Skessuhorn - 19.04.2006, Blaðsíða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 19. APRIL 2006 SÍ£E$SUlí&Eæ! Það birtir alltaf aftur til Rætt við Kolbrúnu Ingvarsdóttur um sjúkdóm sinn; þunglyndi Kslbrún við fónduraðstöðu stna í jnwttahúsinu heima; „Fimdurkofa Kollu.“ Kolbnín Ingvarsdóttir er ein af hetjum hvunndagsins. Hún greind- ist með alvarlegt þunglyndi, kvíða- röskun og félagsfælni fyrir átta árum síðan og á hverjum degi berst hún við þennan erfiða sjúkdóm og þrátt fyrir erfiðar stundir síðustu ár lætur hún hvergi bugast. Kolbrún er dótt- ir þeirra hjóna Ingvars Sigmunds- sonar og Steinunnar Kolbeinsdóttir, er fædd og uppalin á Akranesi og á tvær systur og einn fósturbróðir. Ingvar Steinar Vilbergsson eignaðist Kolbrún árið 1985 með þáverandi sambýlismanni sínum. Saman búa þau mæðgin í notalegu húsi við Suð- urgötu á Akranesi. Þó Kolbrún starfi hvergi situr hún ekki iðjulaus. Heimavið hefur hún komið upp að- stöðu til timburföndurs og hnífa- brýninga þar sem hún getur sinnt hinum ýmsu verkefhum sér til dund- urs og má glöggt sjá á verkum henn- ar að þar er hagleikskona á ferð. Kolbrún er tilbúin að veita blaða- manni Skessuhoms viðtal, leggja öll sín spil á borð varðandi líf sitt og til- vem. „Fyrr í vetur var stórt viðtal í Skessuhorni um þunglyndi og kvíðaröskun sem braut ísinn gríðar- lega hvað varðar umfjöllun og út- skýringar á geðsjúkdómum og vil ég leggja mitt að mörkum til að halda því áfram, þess er virkilega þörf,“ segir Kolbrún. Það er viss ró sem færist yfir þegar sest er niður við eld- húsborðið yfir kaffibolla og páskanammi og þar er staldrað við í góðan tíma því tíminn flýgur hratt þegar mikið er um að spjalla. Brýnir hnífa og föndrar „Við Ingvar höfum búið hér í þessu húsi síðan 1985, en keyptd það af dánarbúi ömmu minnar heitinnar. Hér hefur okkur ætíð Hðið vel enda yndislegt hús með góðum anda,“ segir Kolbrún um hið gamla og vinalega hús sem hún býr í. „I ein- hverju bríeríi var aðstaðan mín hér fram í þvottahúsi skýrð Föndurkofi Kollu og hér hefur ýmislegt verið smíðað,“ útskýrir hún og dregur fram myndaalbúm með myndum af fallegum tréhlutum sem hún hefúr unnið að í gegnum tíðina og fært ættingjum og vinum að gjöf á hátíð- arstundum. „Einnig er ég með að- stöðu hér til að brýna hnífa og hef verið að auglýsa þá þjónustu. Það gengur ljómandi vel en er ekkert sem skilar af sér hagnaði, hef þetta svona til að skapa mér verkefni. Svo komst ég að því í janúar að öryrkjar eiga rétt á því að föndra með eldri borgurum svo nú fer ég tvisvar í vik- ur og föndra með þeim. Það er alveg ómetanlegt að hafa komist í það.“ Veikist harkalega „Ég var farin að átta mig á því að eitthvað var ekki í lagi snemma árs 1998 og leitaði mér aðstoðar hjá sál- fræðingi, yndislegri konu, sem þá starfaði við Sjúkrahús Akraness. Við hófumst handa við að vinna í mínum málum en fljótlega tekur hún upp og flytur í burtu þar sem henni bauðst annað starf. I hennar stað kom eldri maður sem staldraði mjög stutt við og þegar hann að lokum fór þá missti ég alveg þetta htla haldreipi sem ég hafði í því að fá aðstoð fag- fólks og veröldin hreinlega hrundi í kringum mig. Það varð til þess að ég var lögð inn á geðdeild Landspítal- ans þarna um haustið 1998. Þar dvaldi ég í góðra mann höndum í um tvo mánuði á meðan ég kom undir mig fótunum aftur.“ Meðan á dvöl Kolbrúnar á geðdeild Landspít- alans stóð fékk hún staðfestingu á veikindum sínum og var greind með alvarlegt þtmglyndi, félagsfælni og kvíðaröskun svo það helsta sé nefnt. A þeim tíma segist Kolbrún hafa upplifað sig sem „ekkert“. „Staðan var hundfúl og mjög slæm. Líðan mín var ömm-leg, það var ekkert nema svartnætti. Hvergi ljósglæta sama hvert ég leit. Greiningin var viss léttir því þá hafði ég eitthvað í höndunum og vissi við hvað ég var að kljást og hvað var um að vera en það var líka þungt að átta sig á hver niðurstaðan var. Getur birst hjá hverjum sem er Aðspurð um einkenni sjúkdóms síns og hvenær hann hafi fyrst látið á sér kræla segir Kolbrún að ýmis áföll um ævina vegi vafalaust þungt en telur að sjálfsagt hafi einhver ein- kenni látið á sér kræla strax á ung- lingsárum. „Þessi sjúkdómur getur birst hjá hverjum sem er, hvenær sem er,“ útskýrir hún. I áðumefiidu viðtali hér í Skessuhomi sem birtist fyrr á líðandi vetri var greint nánar ffá því hvemig viss boðefnabrenglun á sér stað í heilanum sem lýsir sér í umræddu þunglyndi, kvíða og van- líðan. Tilgangur lyfja er því að koma jafnvægi á boðefhaframleiðslu og nýtni heilans á þeim svo eðlileg starfsemi komist á. „Það em margir sem átta sig ekki á því að þeir séu orðnir lasnir og em jafnvel fluttir nauðugir viljugir inná geðdeild. En þau einkenni sem koma fyrst ffam hjá flestum em depurð sem virðist ekki eiga sér neinn sýnilegan bak- grann, félagsvælni, kvíði og þess háttar. Þannig var því háttað með mig. Ég forðaðist það að fara út og á tímabili dró ég varla ffá gluggunum. Annars þá era gríðarlega mörg önn- ur einkenni sem birtast seinna meir líkt og minnisbrestur og einbeitn- ingarskortur. Ég get t.d. ekki lesið bók og get bara rétt flett í gegnum blöðin,“ útskýrir Kolbrún. Orðin heimavön Síðan 1998 hefur Kolbrún níu sinnum lagst inn á geðdeild vegna veikinda sinna, nú síðast yfir síðast- liðin jól og áramót. „Það vom rosa- lega þung spor að fara í fyrsta sinn inná geðdeild. Ég vissi fordómana, var sjálf með fordóma. En þarna inni þurfd ég að stokka upp líf mitt og tilveru upp á nýtt, losa mig við bæði eigin fordóma í minn garð og for- dóma í garð annarra. Við sem dvöld- um þarna á deildinni vomm öll á svipuðu róli, þó mismikið veik. Það gerði mér rosalega gott að dvelja þama. Bæði sá ég aðrar hliðar sjúk- dómsins og hina ýmsu hluti sem ég hafði ekki græna glóra að væm til,“ segir Kolbrún um h'ðan sína og upp- lifún á þeim tíma sem hún fær grein- inguna og leggst inn á Landspítal- ann í fyrsta skipti. „Þegar einstak- lingur leggst inn þarf hann að gefa skýrslu, eða segja ffá því hvernig honum líður þá stundina og hvað honum finnst um lífið og tilvemna. Svo vinna læknamir útffá því og setja saman plan fyrir einstaklinginn. A hverjum morgni er svokallað rapport þar sem hver og einn er spurður hvemig deginum áður hafi háttað, hvað gert var og hvemig líð- anin var, hugsanir og þess háttar sem og líðan þann morguninn. Þá er spurt hvemig staðan væri þá stund- ina. Svona er fylgst vel með einstak- lingnum og hvernig ffamgangi hans háttar." Fordómar enn til staðar Aðspurð hvernig hún upphfi fólk taka sjúkdómi hennar og hvort hún finni fyrir fordómum í hans garð segir Kolbrún: „Fordómar em vissu- lega til staðar þó svo að sjúkdómur- inn sér opinberari og viðurkenndari en áður fyrr. Almenningur er upp- lýstari sökum opnari umræðu og það er eingöngu af hinu góða. En helst finn ég fyrir fordómum sem lýsa sér þannig að fólk telur þetta aumingja- skap, að einstaklingurinn nenni ekki að vinna og líki bara vel að vera á bótum. Þessi sjúkdómur er ekki sjá- anlengur og því auðvelt að dæma á þennan hátt. Slugshátt og leti er á engan hátt hægt að líkja saman við þennan sjúkdóm, því fer fjarri. En þar af leiðandi er erfitt að viður- kenna sjúkdóminn og oft em ein- staklingar með mikla fordóma gagn- vart sjálfum sér löngu eftir að veik- indin era orðin alvarleg.“ Kolbrún útskýrir einnig að enn era ekki allir sem vita hvemig þeir eigi að bregðast við þegar hún segir þeim að hún sé þynglyndissjúkling- ur. „Það era ekki allir sem kunna að tala um sjúkdóminn eða við einstak- ling með sjúkdóminn. Sumir fara hreinlega allir í hnút og forða sér þegar talið berst að ástandi mínu eins og þeir haldi að það sé smitandi. Það er best ef hlutunum er tekið eins og þeir em og mér eins og ég er. Að spjalla bara um daginn og veginn, hvemig dagurinn í dag er og svo ffamvegis er eðhlegast og best. Ég er óhrædd að tala opinskátt um hlutina og því ætti fólk að vera það líka.“ Stuðningur aðstandenda mildlvægastur Kolbrún segir breytinguna hafa verið mikla hvað varðar tengsl við vini og vandamenn þegar hún veikt- ist. „Ég ákvað að líta þannig á máhn að þeir sem meðtóku mína sjúk- dómsgreiningu og viðurkenndu hana yrðu átakalaust áffam til staðar en hinir, sem því miður var stærstur hluti hópsins, myndu láta sig sjálf- krafa hverfa. Sú var raunin. En það skrifast á minn reikning líka því þessi innilokun og fælni einangraði mig og fældi fólk ffá. En svona er gangur sjúkdómsins. Því miður þá bitnar þessi sjúkdómur á öllum þeim sem í kringum einstaklinginn em hvort sem það em foreldrar, systkini, mak- ar eða böm. Það fá allir sinn skammt af leiðindum og öðm slíku. Þetta er þannig sjúkdómm að maður getur ekki haft hann með sér sjálfúm. Ein- kenni hans bima á öðmm þó það sé alls ekki ætlunin. En ég hef verið svo lánsöm að stærsmr hluti fjölskyld- unnar minnar hefúr staðið við bakið á mér í gegnum allan þennan tíma og það er dýrmætt. Mikilvægast af öllu er einmitt að aðstandendur gef- ist ekki upp hversu slæmt sem á- standið verður,“ segir Kolbrún og bætir við: „Stunir einstaklingar veikjast bara einu sinni og svo ekki aftur en aðrir veikjast aftur og aftur og era jafnvel inná sjúkrahúsi linnu- laust í ffamhaldi af því. Ættingjar þurfa í raun og vem smðning líka. Að þeir hafi einhvern sem þeir geti sótt styrk og leitað tdl. Hér á Akra- nesi var tengslanet starfandi í 2 ár þar sem aðstandendur hittust í Hvíta húsinu og ræddu málin. Því miður er sú starfsemi í lægð núna en verið er að vinna í því að koma henni á kopp- inn affur.“ Hvað varðar þjónustu fyrir al- menning sem leita þurfa aðstoðar sökum sálrænna erfiðleika segir Kol- brún lítið um að slíka þjónusm hafa verið til staðar á Akranesi síðan 1998. Nýverið hóf sálffæðingur störf við Sjúkrahús Akraness og er þar einn dag í viku. „Ég fagna mjög til- komu nýja sálffæðingsins. Af eigin reynslu get ég sagt að best væri að hver einstaklingur sem þjáist af þungfyndi, kvíða eða þess konar vanlíðan geti leitað til síns heimihs- læknis sem vísar svo áfram til sál- ffæðings sem til staðar er á svæðinu. Fyrsm skrefin í leit að hjálp em mörgum erfið og því nauðsynlegt að brautin sé greið. En einn dagur í viku er ekki nóg fyrir bæjarfélag af þessari stærð og yrði ég ekki hissa ef fljótt myndist biðlistar,“ segir Kol- brún. Bjart þessa dagana Þá er Kolbrún spurð hvernig lífið gangi fyrir sig þessa dagana. „Lífið gengur bara ljómandi fi'nt í dag. Ég er komin með ný lyf sem virka bara vel. Ég hef hitt minn sálffæðing nokkuð reglulega, síðan 2002. Sú er alveg ffábær og hefur verið mín stoð og stytta. Fyrstu tímamir vom vissu- lega gríðarlega erfiðir þar sem farið var mjög ýtarlega í alla líðan, tilfinn- ingar og hugsanir. Ég var nærri hætt við en sé svo ekki efdr því í dag að hafa harkað af mér.“ En það er hið daglega líf sem Kolbrún segir vera stærsm baráttuna og þó að litlir bar- dagar tapist öðm hvora þá ædi hún sér að vinna orrustuna. „Fyrst efrir að komið er heim af geðdeildinni þá gengur allt vel en svo fer smátt og smátt að halla vmdan fæti. Þannig gengur sjúkdómurinn fyrir sig hjá mörgum, svona í sveiflum. Þá er ekkert annað að gera en að fara affur inn. A þessum átta árum síðan ég fór fyrst átti ég þrjú mjög góð ár sem ég lagðist ekki inn. En efrir m'u heim- sóknir er ég orðin nokkuð heimavön þama. En það dugar ekld að láta undan og hef ég ákveðið það ég æda að standa uppi sem sigurvegari og sigrast á þessu stóra verkefni sem mér er ætiað að takast á við í þessu lífi,“ segir Kobrún fúll ákveðni og bætir við að lokum; „ég kalla þetta lida púkann minn, hann ræðst til at- lögu öðm hverju og hversu mikið sem hann ræðst að mér skal ég ráð- ast tvíefld til baka.“ BG Kolhrún og Ingvar kampakát og með bros á vör. Bestu vinir sem hafa gengið í gegnum súrt og sætt saman.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.