Skessuhorn - 19.04.2006, Blaðsíða 9
MIÐVIKUDAGUR 19. APRÍL 2006
9
Glæsilegir tónleikar á vordagskrá Tónlistarfélags Borgarfjarðar
Útlendingahersveitin
á Bifiröst
Fjórðu tónleikar Tónlistarfélags
Borgarfjarðar á yfirstandandi starfs-
ári verða haldnir á Bifröst miðviku-
dagskvöldið 26. apríl nk. Að þessu
sinni er það Utlendingahersveitin
sem skemmtir gestum Tónlistarfé-
lagsins með dynjandi djasssveiflu.
Utlendingahersveitin sam-
anstendur af Arna Egilssyni bassa-
leikara, Arna Scheving, víbrafón-
og bassaleikara, Jóni Páli Bjarnasyni
gítarleikara, Pétri Ostlund
trommuleikara og Þórarni Olafs-
syni píanóleikara. Telja má að hér sé
stórviðburður á ferðinni því það er
ekki hlaupið að því að ná Utlend-
ingahersveitinni saman. Þrír sveit-
arliðar eru búsettir erlendis, Arni
Egilsson í Bandaríkjunum, Pétur í
Svíþjóð og Þórarinn á Spáni.
Utlendingahersveitin var stoíhuð
árið 1992 á RúRek jazzhátíðinni og
kom síðan aftur saman árið 2000 á
Jazzhátíð Reykjavíkur. Geisladisk-
ur, samnefhdur hljómsveitinni, kom
út sama ár. Sveitin kemur nú saman
í þriðja skipti og leikur á sex tón-
leikum víða um land. Allir tónleik-
arnir verða hljóðritaðir og efni
þeirra gefið út á geisladisk sem
kemur út í haust.
Þjóðlaga-
sveit
TOSKA
æfir nýtt
verk
Þjóðlagasveit Tónlistarskólans á
Akranesi æfir þessa dagana, undir
stjórn Skúla Ragnars Skúlasonar,
nýtt verk sem ber nafnið „Húsið -
Milli tveggja heima“. Þetta er
fjórða verkefni sveitarinnar, en þau
fyrri hafa vakið mikla athygli og
þótt nýstárleg og skemmtileg.
I þessu nýja verki er eins og í
þeim fyrri blandað saman ljóðum
og lögum þannig að útkoman
verður heilsteypt verk ekki ósvipað
leikhúsverkum. Sveitina skipa 17
stúlkur sem leika á fiðlur, syngja og
flytja texta í talkór. Sem kunnugt
er hefur sveitin komið fram bæði í
sjónvarpi og útvarpi, og auk
heimabyggðarinnar haldið tón-
leika í Reykjavík og á landsbyggð-
inni. Einnig hefur sveitin haldið í
víking erlendis. Árið 2003 var
Skodand fyrir valinu og í fyrra
voru það íbúar Kaupmannahafnar
sem fengu að hlýða á sveitina.
Nýverið hlaut sveitin styrk úr
tónlistarsjóði Menntamálaráðu-
neytisins fyrir nýjungar í tónlistar-
kennslu og tónlistarflutningi og
segir Skúli Ragnar þá styrkveitingu
mikla og kærkomna viðurkenn-
ingu á starfsemi sveitarinnar. Slfk-
ar styrkveitingar séu afar kær-
komnar en besti stuðningurinn sé
ávallt að sjá sem flesta sækja sýn-
ingar sveitarinnar. Að þessu sinni
verða meðleikarar sveitarinnar þau
Bryndís Bragadóttir, Ragnar
Knútsson og Eiríkur Guðmunds-
son.
Hið nýja verk sveitarinnar verð-
ur flutt í Bíóhöllinni á Akranesi 26.
og 27. apríl og verður forsala að-
göngumiða í Pennanum auk þess
sem hægt verður að nálgast miða í
T ónlistarskólanum.
HJ
Tónleikarnir á Bifföst verða í
Hrifhi, hátíðasal Viðskiptaháskól-
ans, og hefjast kl. 20.30.
Vor í Vín og Reykholti
Seinni vortónleikar Tónlistarfé-
lags Borgarfjarðar verða síðan í
Reykholtskirkju föstudagskvöldið
12. maí og hefjast kl. 20.00. Á tón-
leikunum sem bera yfirskriftina
Vor í Vín koma fram þau Sigrún
Hjálmtýsdóttir, sópransöngkona
og Salonsveit Sigurðar I. Snorra-
sonar. Sveitina skipa, auk Sigurðar
sem leikur á klarinett, þau Sigrún
Eðvaldsdóttir og Pálína Árnadótt-
ir, fiðlur; Bryndís
Halla Gylfadóttir,
selló; Hávarður
Tryggvason, kontra-
bassi; Martial Nar-
deau, flauta; Anna
Guðný Guðmunds-
dóttir, píanó og Pétur
Grétarsson, slagverk.
Vínarvalsar, óper-
ettuaríur og tónlist
innblásin af sígaun-
um verða á meðal
efnis sem þar gleður
hlustir.
('fréttatilkynning)
Útlendingahersveitin.
K
Lífeyrissjóður Vesturlands
Meginniðurstöður
ársreikninas lífevrissióðsins
Yfirlit um breytingu á hreinni eign til greiðslu lífeyris
, 2005
í þús. kr. f
Fjárfestingartekjur, nettó
Iðgjöld ..................
Lífeyrir .................
Fjárfestingargjöld .......
Rekstrarkostnaður ........
1.708.753
707.752
(363.965)
(20.366)
(18.730)
Hækkun á hreinni eign á árinu: 2.013.444
Hrein eign frá fyrra ári: 11.295.059
Hrein eign í árslok til greiðslu lífeyris:
13.308.503
Efnahagsreikningur
Annað:
Kröfur á viðskiptamenn..
Aðrar eignir...........
Viðskiptaskuldir.......
1.221
.............. 313.732
Fjárfestingar: 13.180.647
136.707
30.891
(39.742)
Annað:
Hrein eign til greiðslu lífeyris:
127.856
13.308.503
Ýmsar kennitölur
Nafnávöxtun..........................................
Raunávöxtun..........................................
Hrein raunávöxtun (að teknu tilliti til rekstrarkostnaðar).
Hrein raunávöxtun, meðaltal síðustu fimm ára.........
Hrein raunávöxtun, meðaltal síðustu tíu ára..........
Hrein eign umfram heildarskuldbindingar..............
Hrein eign umfram áfallnar skuldbindingar............
Lífeyrir sem hlutfall af iðgjöldum...................
Kostnaður sem hlutfall af eignum.....................
Stöðugildi...........................................
Nafnávöxtun séreignardeildar.........................
Raunávöxtun séreignardeildar.........................
Hrein raunávöxtun séreignardeildar...................
Akranesi, 13. mars 2005
Stjórn Lífeyrissjóðs Vesturlands:
Áslaug Þorvaldsdóttir Einar Karlsson
Kristján Jóhannsson Þórarinn Helgason
Gylfi Jónasson
framkvæmdastjóri
2004
1 þús. kr.
1.514.372
555.001
(324.806)
(17.242)
(15.567)
1.711.758
9.583.301
11.295.059
Fjárfestingar:
Verðbréf með breytilegum tekjum ...................................................... 4.043.732
Verðbréf með föstum tekjum............................................................. 8.821.962
Veðlán................................................................................
Bundin innlán.........................................................................
2.816.359
7.970.393
4.384
302.224
11.093.360
159.623
44.870
(2.794)
201.699
11.295.059
14,76% 15,48%
10,19% 11,13%
10,03% 10,97%
5,82% 3,26%
6,51% 6,29%
2,00% -2,10%
8,70% 7,10%
51,43% 58,52%
0,15% 0,15%
3,3 2,9
11,22% 9,79%
6,80% 5,66%
6,63% 5,23%
Ellert Kristinsson
Bergþór Guðmundsson
Ársfundur Lífeyrissjóðs Vesturlands verður haldinn þriðjudaginn
16. maí nk. kl: 17:00 á Hótel Ólafsvík, Ólafsbraut 20, Ólafsvík.
Kirkjubraut 40 • 300 Akranes • Sími: 431-1577 • Fax: 431-2841 • www.lifvest.is