Skessuhorn - 14.06.2006, Blaðsíða 4
4
MIÐVIKUDAGUR 14.JÚNÍ2006
caiisaU'íiöEiKI
Laun bæjarstjómar á Akranesi
hækka umtalsvert
Fleirí umsóknir
aðFVA
AKJRANES: Heldur fleiri
umsóknir hafa borist Fjöl-
brautaskóla Vesturlands en á
sama tíma í fyrra en í gær rann
umsóknarfrestur út. Hörður
Helgason skólameistari segir of
snemmt að spá um nemenda-
fjölda næsta vetrar þar sem svo
stutt er liðið síðan umsóknar-
frestur rann út en umsóknir séu
heldur fleiri en á sama tíma í
fyrra. Nú þegar hefur verið tek-
ið við um 630 umsóknum og eru
um 200 þeirra nýjar og um 145
frá nemum sem koma beint úr
grunnskóla. Hörður segir stefht
að því að senda umsækjendum
svör við umsóknum sínum strax
eftir næstu helgi. -hj
Grasspretta góð
LANDIÐ: Fyrstu mælingar
sumarsins á þroska túngrasa eru
komnar og má sjá niðurstöðurn-
ar á vef Bí. Eins og við er að bú-
ast mælist orkugildi ennþá í
hæstu hæðum, sérstaklega á nýj-
um túnum en eldri tún liggja að-
eins neðar. Veðurspá næstu daga
er mjög hagstæð fyrir sprettu og
síðustu daga hafa skilyrði einnig
verið mjög góð því þokkalega
hlýtt hefur verið í veðri og mik-
il úrkoma en vætuna var einmitt
farið að vanta. Gera má ráð fyr-
ir að fyrstu bændur hefji slátt
innan skamms. -mm
Afekráningúr
Kauphöll
samþykkt
LANDIÐ: Kauphöll íslands
hf. hefúr samþykkt beiðni um
afskráningu hlutabréfa Fisk-
markaðs Islands hf. af aðallista
Kauphallarinnar. Eins og ffam
hefúr komið í fréttum Skessu-
horns uppfyllir félagið ekki
lengur skilyrði skráningar í kjöl-
far yfirtökutilboðs sem gert var í
hlutafé félagsins. Félagið verður
því afskráð úr Kauphölhnni eftir
lokun viðskipta föstudaginn 9.
júní. -hj
Jón Baldvin
stundakennari
BIFRÖST: Jón Baldvin
Hannibalsson, fyrrverandi
sendiherra, hefúr verið ráðinn
stundakeimari við Viðskiptahá-
skólann á Bifröst. I haust mun
hann kenna í nýju meistaranámi
í Evrópuffæðum en frá sumri
2006 býður Viðskiptaháskólinn
á Bifröst í fyrsta sinn á Islandi
upp á nám tdl MA gráðu í Evr-
ópufræðum (e. MA in European
Studies). Jón Baldvin mun ásamt
Eiríki Bergmann Einarssyni,
dósent kexma námskeiðið Island
í evrópsku samstarfi og mun þar
meðal annars ræða reynsluna af
því að semja við Evrópusam-
bandið um hið evrópska efúa-
hagssvæði. -mm
Bæjarstjórn Akraness samþykkti á
fúndi sínum í síðustu viku umtals-
verða hækkun launa bæjarfulltrúa.
Tillagan var borin upp af bæjarfull-
trúum Sjálfstæðisflokksins sem tók
sæti í meirihluta í gær. Fulltrúar nú-
verandi meirihluta sátu hjá við at-
kvæðagreiðsluna og telja að skoða
hefði þurft málið betur.
Fundur bæjarstjómar var sá síðastá
á kjörtímabilinu. I gær tók ný bæjar-
stjórn við völdum og eins og fram
hefur komið í fréttum hafa bæjarfull-
trúar Sjálfstæðisflokksins og Frjáls-
lyndra og óháðra myndað meirihluta.
Það vom bæjarfulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins, þau Gunnar Sigurðsson,
Jón Gunnlaugsson, Guðrún Elsa
Gunnarsdóttir og Þórður Þ. Þórðar-
son, sem lögðu fram tillögu um
breytingar á kjömm bæjarfulltrúa og
nefndarmanna. í grunninn miðast
launin sem áður við þingfararkaup al-
þingismanna en hlutfallið hækkar.
Þingfararkaup er í dag 471.427 krón-
Orkuveita Reykjavíkur og Borgar-
fjarðarsveit hafa komist að samkomu-
lagi um kaup OR á á fjórum vatns-
veitum í héraðinu. Um er að ræða
vatnsveiturnar á Hvanneyri, í Bæjar-
sveit, á Kleppjámsreykjum og í Reyk-
holti. í stað greiðslu fyrir veitumar
skuldbindur Orkuveitan sig til ffam-
kvæmda við nýja aðveitu fyrir vatns-
veitumar á Kleppjámsreykjum og í
Reykholti en áædað er að sú ffam-
kvæmd muni kosta um 150 milljónir.
Orkuveitan mun yfirtaka rekstur
og eigur vatnsveitnanna frá og með 1.
september næstkomandi en skrifað
var undir samning þessa efnis sl.
föstudag við athöfii í Snorrastofu. Við
það tækifæri afhenti forstjóri Orku-
veitu Reykjavíkur Snorrastofú styrk
til uppbyggingar Minjagarðs.
Hr. Ólafur Ragnar Grímsson,
forseti Islands opnaði formlega
sögusýningu um starf St.
Franciskussystra í Stykkishólmi á
sl. laugardag. Sýningin er haldin í
sal Tónlistarskólans og er það
safúa- og menningarnefúd Stykkis-
hólmsbæjar sem efúdi til hennar í
tilefúi þeirra tímamóta að 70 ár eru
liðin síðan St. Franciskusspítalinn í
Stykkishólmi tók til starfa, árið
1936.
Sýningin sem hönnuð er af
Steinþóri Sigurðssyni, er þeim
systrum til heiðurs og þakklætis-
vottur bæjarins fyrir það mikla og
óeigingjarna starf er þær hafa unn-
ið fyrir samfélagið í Stykkishólmi.
Síðan sysmrnar settust að í Stykkis-
hólmi hafa þær veitt bæjarbúum og
öðrum á Snæfellsnesi mikið öryggi
og það að fá sjúkrahús á svæðið á
þeim tíma var þjónusta sem víða
þekktist ekki og fyrir þann tíma
ekki á Snæfellsnesi. I dag þykir ekki
ur á mánuði. Sem dæmi má nefúa að
bæjarfulltrúa hækkar úr 13,5% á
mánuði í 16,5% á mánuði og nemur
því launahækkunin rúmum 22%.
Laun forseta bæjarstjórnar hækka úr
19% á mánuði í 25% eða um 24% og
laun formanns bæjarráðs hækka úr
18,5% í 24,4% eða um rúm 24%.
Gtmnar Sigurðsson bæjarfulltrúi
segir að með tillögunni sé verið að
færa laun bæjarfulltrúa í bæjarstjóm
Akraness til samræmis við laun bæjar-
fulltrúa í Borgarbyggð en bæjarfélög-
in hafi reynt að fylgjast að í launakjör-
um. Aðspurður hvort ekki sé um
óeðlilega mikla hækkun að ræða segir
Gunnar að tímabært hafi verið að
endurskoða launakjörin sem ekki hafi
tekið breytingum um langt skeið.
Eins og áður kom firam var fundurinn
í síðustu viku síðasti fundur sitjandi
bæjarstjórnar. Aðspurður hvort ekki
hefði verið eðlilegra að ný bæjarstjóm
tæki ákvörðun í þessu máli sagði
Gunnar það svo ekki vera. „Bæjarfull-
Þegar í haust munu framkvæmdir
fara af stað við undirbúning vams-
veitunnar sem lögð verður upp með
Rauðsgili og í vatnsból uppundir
Okjökli.
í tilkynningu ffá Orkuveitunni seg-
ir, að með aðkomu fyrirtækisins að
rekstri vatnsveitna Borgarfjarðar-
sveitar skapist tækifæri til að kanna
heildar- og framtíðarsýn vamsveim-
mála Borgfirðinga með tilliti til
samnýtingar vamsbóla og vatnslagna
í vaxandi byggð Borgarfjarðar.
Sveinbjörn Eyjólfsson, oddviti
Borgarfjarðarsveitar hefur stýrt við-
ræðum við OR fyrir hönd sveitarfé-
lagsins. í samtali við Skessuhorn
kvaðst hann fagna þessum samningi
nú og telur hann hagstæðan fyrir íbúa
og byggð í uppsveitunum og nauð-
mikið tiltökumál að skjótast til höf-
uðborgarsvæðisins af Snæfellsnesi
en fyrir 70 ámm síðan var það stór-
mál og jafúvel margra daga ferðalag
og því erfitt sérstaklega ef flytja
þurfti veikt fólk.
A lifandi hátt sýnir sýningin það
fjölbreytta starf sem systurnar hafa
staðið fyrir í Stykkishólmi í gegn-
um árin með myndum af starfi
þeirra og munum og minjum af
trúar eru í erfiðri aðstöðu því þeir
þurfa í raun sjálfir að ákveða sín laun.
Því er ekki óeðlilegt að fráfarandi
bæjarstjórn búi í haginn fyrir þá
næsm. Við töldum nauðsynlegt að
bæta kjörin til þess að gera fólki bet-
ur kleift að sinna þessum nauðsynlegu
störfúm. Því er ekki að neita að í þess-
um félagsstörfúm sem öðrum hefur
verið erfiðara að fá fólk til starfa og
vonandi mun þessi breyting því verða
til góðs,“ segir Gunnar.
Bæjarfulltrúar fráfarandi meiri-
hluta bæjarstjómar sátu hjá við at-
kvæðagreiðsluna. Guðmundur Páll
Jónsson fráfarandi bæjarstjóri segir
hjásetuna ekki merki þess að meiri-
hlutinn hafi verið ósátmr við málið
eða andvígur því. „Það er ávallt vand-
meðfarið þegar fólk er sett í þá stöðu
að ákveða sín eigin laun. Málið bar
brátt að og við hefðum viljað skoða
það bemr. Því ákváðum við að sitja
hjá,“ sagði Guðmundur Páll. HJ
synlegt að koma grunnþáttum eins og
neysluvatnsmálum í gott horf. „Við
höfum nú unnið að þessu nokkuð
ákveðið í 2 ár og hafa menn gefið sér
góðan tíma í að meta alla möguleika
og forsendur fyrir endurnýjun vams-
veima á svæðinu. Við höfðum val um
að gera þetta sjálf eða fela verkið
Orkuveimnni sem reyndist besti
kosmrinn f stöðunni. Menn mega
heldur ekki gleyma því að Orkuveita
Reykjavíkur er, saman með Reykja-
víkurborg og Akraneskaupstað, í eigu
sveitarfélaganna Borgarfjarðarsveitar
og Borgarbyggðar og því má líta á
fyrirtækið sem eigið fyrirtæki þó
eignarhluturinn sé ekki stór.“
MM/ljósm: BHS
spítalanum. Ekki hafa þær einungis
rekið sjúkrahúsið, heldur hafa þær
lagt mikið til atvinnu- og menning-
armála, rekið leikskóla, sumarbúðir
og prentsmiðju. Flestar hafa þær
sysmr verið sextán í Hólminum og
komið frá mörgum löndum, en nú
eru þær sjö á staðnum og flestar
komnar vel á efri ár.
SO/ Ijósm. Gunnlaugur Amason.
Samningur sam-
þykktur formlega
BORGARBYGGÐ: Bæjar-
stjóm Borgarbyggðar samþykkti
í síðustu viku með fimm atkvæð-
um samning við Hjallastefúuna
ehf. um rekstur leikskólans
Hraunborgar á Bifröst. Aður
hafði bæjarráð samþykkt samn-
inginn. Skiptar skoðanir vora
um málið í kosningabaráttunni
og höfðu frambjóðendur Fram-
sóknarflokksins lýst sig and-
snúna honum. Það vora bæjar-
fulltrúar hans sem sátu hjá við
afgreiðslu málsins. Leikskólinn
Hraunborg er þriggja deilda
leikskóli sem rúmar allt að 60
börn. Flest barnanna eru börn
nemenda Viðskiptaháskólans á
Bifröst. -hj
Eldur við Sem-
entsverksmiðju
AKRANES: Um klukkan 18
síðastliðinn föstudag var til-
kynnt um eld í stæðu af vöru-
brettum sem stóðu við Sements-
verksmiðjuna á Akranesi. Tals-
verður eldur logaði er að var
komið og var slökkvilið kallað út
auk þess sem lóðsbáturinn
Magni dældi sjó á eldinn en bát-
urinn er búinn mjög öflugri
dælu. Starfsmenn Sementsverk-
smiðjunnar rifu brettastæðima í
sundur með gaffallyftara til að
auðvelda slökkvistarf sem tók
um það bil hálftima. Skemmdir
urðu af brunanum og meðal
annars sviðnaði húsveggur og
einar sex rúður sprungu vegna
hitans. Talið er að um íkveikju
hafi verið að ræða. -so
Dalabyggð og
Debet/Kredit
DALIR: Sveitarstjórn Dala-
byggðar hefur samþykkt sam-
hljóða kaupsaming milli sveitar-
félagsins Dalabyggar og fyrir-
tækisins Debet/Kredit ehf. ann-
ars vegar og VIS hins vegar um
kaup þeirra fyrmefndu á hlut
VIS í stjómsýsluhúsinu í Búðar-
dal. Kaupverðið er 4 milljónir
króna þar af er hlutur sveitarfé-
lagsins 58,16%. -hj
Aðeins tvær út-
strikanir
DALABYGGÐ: Aðeins tveir
kjósendur nýttu sér rétt sinn til
þess að strika út einstaka
frambjóðendur við sveitar-
stjórnarkosningarnar í
sameinuðu sveitarfélagi Dala-
byggðar og Saurbæjarhrepps en
í ffamboði að þessu sinni voru
þrír listar. -hj
Brunnlok reif bíl
AKRANES: Bifreið
skemmdist talsvert þegar henni
var eldð yfir brunnlok á Akurs-
brautinni á Akranesi. Svo virðist
sem lokið hafi verið laust á
brunninum og það sporreist
með þeim afleiðingum að um
það bil 40 sentimetra gat rifúaði
á botn bifreiðarinnar. -so
Orkuveita Reykjavíkiir kaupir
vatnsveitur í Borgarfirði
Hátíðleg stund þegar sýning um
St. Frandskussystur var opnuð
Með systrunum á myndinni eru Herra Ólafwr Skúlason, biskup, Erla Friðriksdóttir, bœj-
arstjóri, Ólafur Ragnar Grímsson, forseti, Jóhannes Gijsen, biskup kaþólskra á Islandi og
Steinþór Sigurðsson, hönnuður sýningarinnar.
WWW.SKESSUHORN.IS
Bjarnarbraut 8 - Borgarnesi Sími: 433 5500
Kirkjubraut 54-56 - Akranesi Fax: 433 5501
Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga
er kl. 14:00 á þriðjudögum. Auglýsendum er bent á að panta
auglýsingapláss tímanlega. Skilafrestur smáauglýsinga er til
12:00 á þriðjudögum.
Blaðið er gefið út í 3.000 eintökum og selt til áskrifenda og í
lausasölu.
Áskriftarverð er 1300 krónur með vsk á mánuði en krónur 1200
sé greitt með greiðslukorti. Elli- og örorkulíf.þ. greiða kr. 950.
Verð í lausasölu er 400 kr.
SKRIFSTOFUR BLAÐSINS ERU OPNAR KL. 9-16 ALLA VIRKA DAGA
Útgefandi: Skessuhorn ehf. - 433 5500 skessuhorn@skessuhorn.is
Ritstj. og ábm. Magnús Magnúss. 894 8998 magnus@skessuhorn.is
Blaðamenn: Halldór jónsson 892 2132 hj@skessuhorn.is
Magnús Magnúss. 894 8998 magnus@skessuhorn.is
Fréttaritari: Bryndís Gylfadóttir 866 5809 bryndis@skessuhorn.is
Augl. og dreifing: íris Arthúrsd. iris@skessuhorn.is
Umbrot: Olgeir Helgi Ragnarsson. 437 1677 gudrun@skessuhorn.is