Skessuhorn


Skessuhorn - 14.06.2006, Page 9

Skessuhorn - 14.06.2006, Page 9
Þjóðhátíð á Akranesi 2006 Dagskrá hátíðarhalda á 17. júní á Akranesi Stelpurnar í Nylon verða á Skaganum! Dagskráin á 17. júní miðar að þvi að fjölskyldan finni öll eitthvað við sitt hæfi, allt frá þjóðhátíðar- morgni á Safnasvæðinu, skemmtilegum fjölskylduþrautum á Jaðarsbökkum til glæsilegrar fjölskylduhátíðar í iþróttahúsinu að Jaðarsbökkum um kvöldið. Kynntu þér dagskrána vel og taktu virkan þátt í skemmtilegri þjóðhátíð! Öll börn sem mæta i skrúðgönguna fá flottan 17. júní fána! Fyrir þá sem vilja fylgjast með HM eða handboltanum verður hægt að horfa á það allt á staðnum í HM horninu í iþróttamiðstöðinni. Sjáumst hress! Stelpurnar í Nylon hafa svo sannarlega verið að gera það gott undanfarna mánuði m.a. verið á tónleikaferð með hinni heimsfrægu hljómsveit Westlife og einnig Girls Aloud, eins og flestum er eflaust kunnugt. Stelpurnar verða á landinu á þjóðhátíðardaginn, eins og fram hefur komið í fréttum og troða m.a. upp á fjölskylduskemmtuninni í íþróttahúsinu á Jaðarsbökkum að kvöldi þjóðhátíðardagsins. Ekki missa af stelpunum í Nylon - þær hafa aldrei verið betri en einmitt nú! Þjóðhátíðardagurinn verður viðburðaríkur á Akranesi í ár og sérstaklega tileinkaður 60 ára afmæli íþróttabandalags Akraness. Þess vegna er ÍA- fólk hvatt til að taka virkan þátt í hátíðarhöldum dagsins svo að gulir og glaðir Skagamenn verði áberandi um allan bæ á laugardaginn. Hátíðin fer fram með hefðbundnu sniði en í tilefni afmælisins verður aðalhátíðin haldin á Jaðarsbökkum. Kynntu þér dagskrána og taktu virkan þátt í þessum skemmtilegasta degi ársins! Dagskrá dagsins er sem hér segir: 10:00-12:00 Þjóðlegur morgun á Safnasvæðinu Byrjaðu þjóðhátíðardaginn með fjölskyldunni á Safnasvæðinu i léttri og þjóðlegri stemningu. Stundum er erfitt að bíða eftir því að allt fjörið hefjist á 17. júní og því tilvalið að taka forskot á skemmtilegan dag og mæta á Safnasvæðið! • Andlitsmálun, blöðrur, fánar og ekta þjóðhátíðarnammi! • Hestamannafélagið Dreyri teymir hesta undir börnum • Skemmtilegur ratleikur fyrir börn á öllum aldri • (slenskar sögur og ævintýri fyrir börnin í Garðahúsinu • Þjóðlegt morgunkaffi - sannkallaður "Þjóðhátíðarbröns" í Garðakaffi • Opið og ókeypis á öll söfnin • Allir hvattir til að mæta í þjóðbúningum - þeir sem mæta í þjóðbúningi fá sérstakan glaðning! • Þjóðleg tónlist, harmónikuspil og ættjarðarlögin sungin af félögum úr Kirkjukór Akraneskirkju. 13:00 Hátíðarguðsþjónusta í Akraneskirkju Sr. Björn Jónsson messar í fjarveru sóknarprests. Kári Harðarson flytur hátíðarræðu nýstúdents. 14:00 Hátíðardagskrá á Akratorgi Fánahylling á Akratorgi Ávarp bæjarstjóra, Gísla S. Einarssonar. Ávarp fjallkonu Hátíðarræða dagsins Kirkjukór Akraneskirkju syngur við athöfnina Skrúðganga að lokinni dagskrá upp á Jaðarsbakka með fánaborg skáta í fararbroddi og með öflugri þátttöku ÍA-fólks. Allir krakkar sem mæta í skrúðgönguna fá fána að gjöf! 14:00 -18:00 Safnasvæðið að Görðum Kökuhlaðborð í Garðakaffi að hætti hússins. Skipulagðar skoðunarferðir um söfnin, kl. 16:30 í Safnaskálanum og kl. 17:30 í Byggðasafninu. Einstakt tækifæri til að kynnast þessum frábæru söfnum og lifa sig inn í sögu Akraness um leið. 14.30 -17.00 Kaffisala í safnaðarheimilinu Vinaminni á vegum Kirkjunefndar Akraneskirkju 15:00-17:00 “Húllumhæ” á Jaðarsbökkum Skrúðgangan frá Akratorgi endar við íþróttavöllinn þar sem nokkrir hópar frá ÍA verða með sýningu. Dótadagur I sundi og fritt í sund allan daginn, leýfilegt að hafa með sér smádót í laugina Þrautabraut fyrir 2 - 5 ára í íþróttahúsinu og kassaklifrið vinsæla verður á sínum stað! Ýmsar íþróttaþrautir, glens og gaman á svæðinu á vegum hinna ýmsu félaga ÍA Leikjaprógramm í umsjón skátanna - gömlu góðu leikírnir í bland við nýja Andlitsmálun og grill Frábærir fjöllistamenn sýna sirkuslistir víða um svæðið! Trampólín, hringekjur og hoppkastalar 16:00 Listasetrið Kirkjuhvoll - "Sossa sýnir" Opnun sýningar á verkum eftir Sossu Björnsdóttur I listasetrinu Kirkjuhvoli. Sýningin stendur til 2. júlí. Listasetrið er opið alla daga nema mánudaga frá kl. 15-18. 17:30 Þjóðhátíðartónleíkar Söngdagskrá í nýjum sal að Vesturgötu 119 (Artichúsið-H/M Pípulagnir). Fram koma Kirkjukór Akraness, Söngdúettinn The Kiley Mavelles, Kammerkór Akraness og hinn "heimsfrægi" karlakór, Krummarnir. Aðgangseyrir er enginn og allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir. 20:30 Fjölskylduskemmtun á Jaðarsbökkum Frábær fjölskylduskemmtun í íþróttahúsinu á Jaðarsbökkum. Þú mátt ekki missa af þessu! Fram koma m.a.: • Kaffibrúsakarlarnir mæta eldhressir á svæðið! • Margrét Rán Magnúsdóttir, þátttakandi í Hátónsbarkanum 2006 • Ten Sing danshópurinn sýnir flottan dans • Helga Guðjónsdóttir, sigurvegari í Söngvakeppni framhaldsskólanna tekur lagið • Snorri og Bríet Sunna úr Idolinu taka nokkur lög og árita myndir • Nylon mætir á svæðið og tekur nokkur lög • Hljómsveitin Á móti sól ásamt leynigesti halda uppi stuðinu á frábæru fjölskylduballi Akraneskaupstaður óskar Skagamönnum og landsmönnum öllum gleðilegrar þjóðhátíðar! Akraneskaupstaður

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.