Skessuhorn - 14.06.2006, Síða 13
^StasííHÖBK
MIÐVIKUDAGUR 14. JUNI 2006
13
Söngfugl úr Hólminum
Elísa Sigríður Vilbergsdóttir er
fædd og uppalin í Stykkishólmi.
Hún hélt til Reykjavíkur ung að
árum til að leyfa Reykjavíkurliðum
í körfubolta að njóta hæfileika sinna
sem körfuknattleikskonu og um
leið skellti hún sér í söngnám.
Söngur hafði alltaf blundað í henni
og ákvað hún að prófa söngnámið.
„Mér hefur alltaf þótt svo gaman að
syngja, alveg frá því ég var bara lít-
il stelpa og ég fór í Söngskólann af
hálfgerðri forvitni um hvort þetta
væri eitthvað fyrr mig,“ sagði hún
aðspurð um ástæðu þess að hún
lagði söng fyrir sig. Þar hitti hún
heldur betur í mark og hélt í fram-
haldinu til Þýskalands í enn frekara
nám í þeim fræðum haustið 1999.
Frá Þýskalandi lá leið hennar til
Bandaríkjanna, þar sem hún hefur
lokið masternámi í söng og
kennsluff æðum.
Þessa dagana hefur hún verið hér
heima á Islandi að syngja í óper-
unni Galdraskyttunni, sumaróperu
sem sýnd var í Þjóðleikhúsinu á
dögunum. „Þetta er mjög skemmtd-
leg, ung sýning, þar sem ungt fólk
hefur komið svotil að öllu er sýn-
ingunni við kemur, ung hljómsveit,
flestir söngvararnir ungir, ungur
leikstjóri en svo leynast þarna inn á
milli reynsluboltar sem miðla
reynslu sinni til okkar hinna
óreyndari," sagði Elísa.
Frá því hún útskrifaðist frá skól-
anum í Bandaríkjunum hefur hún
verið að vinna í því að koma sér á
ffamfæri sem söngkonu, tekið þátt í
söngkeppnum, unnið með kennur-
um sínum og þjálfara og verið í
hlutastarfi til að halda sér á floti
fjárhagslega. „Það tekur alltaf svo-
lítinn tíma að koma sér í fast starf á
vettvangi söngsins og þar spilar
heppni kannski líka inní, að hitta á
réttan stað á réttum tíma.“ Elísa
stefnir á að flytja til Þýskalands nú
þegar líða tekur á sumarið og setj-
ast þar að um sinn og koma sér á
ffamfæri þar ytra. „Eg sendí út á
undan mér upplýsingar um mig og
söngprufú til umboðsskrifstofa og
umboðsmanna í von um að mér
verði boðin fyrirsöngur, nú og ef
þeim líst eitthvað á það sem ég er
að gera þá taka þeir mig upp á sína
hönd og leiða mig áffam í átt að
verkefnum og svo taka þeir auðvit-
að góðar prósentur af mér fyrir.“
Aður en Elísa heldur til Þýska-
lands ætlar hún að skella sér í frí
með fjölskyldu sinni og svo fer hún
til Bandaríkjanna á þriggja vikna
söngnámskeið, því eins og Elísa
sagði má alltaf læra meira; „það er
alltaf hægt að bæta sig.“
SO
Kvennahlaupið á Akranesi
Kvennahlaup ÍSÍ fór ffam hér á
Akranesi um helgina og tókst mjög
vel. Alls tóku rúmlega 280 konur á
öllum aldri þátt í hlaupinu og fer
þeim fjölgandi ár ffá ári. Að þessu
sinni var hlaupið í tengslum við
Hátíð hafsins sem ffam fór á hafn-
arsvæðinu sama dag. Létt upphitun
var við sviðið á hafnarsvæðinu og
síðan ræsti Ragnheiður Runólfs-
dóttir hlaupið. Hlaupnir voru 2,3
km eða 4,0 km hringir, sumar kon-
ur hlupu meira að segja aðeins
lengra en það. Að loknu hlaupinu
fengu allir þátttakendur verðlauna-
pening ásamt því að boðið var uppá
ávaxtaveislu og Egils Kristal.
Þess má geta að myndin sem
Vallarselskonur mættu eldhressar og fjölmenntu í hlaupið.
fylgir þessari ffétt er fyrsta ljós- gæðin eru því af þeim sökum vafa-
myndin sem tekin er með farsíma laust ekki góð.
og fer á síður Skessuhoms. Mynd- JÞÞ
GLUGGITIL FRAMTIÐAR
ENGIN MALNINGAVINNA
HVORKI FUI NE RVÐ
FRÁBÆR HITA 0G HUÓÐEINANGRUN
FALLEGT UTLIT
MARGIR OPNUNARMOGULEIKAR
ORUGG VIND- 0G VATNSÞETTING
PGV ehf. sérhæfir sig í smíði glugga,
hurða. sólstofa og svalalokanna úr
PVC-u
Öllum framleiðsluvörum PGV fylgir
10 ára ábyrgð
Gluggarnir eru viðhaldsfríir og á
sambærilegum verðum og gluggar
sem stöðugt þarfnast viðhalds
Umferð um Hval-
íjarðargöng eykst -
en tekjur minnka
Umferð í Hvalfjarðargöngum
var 15% meiri fyrstu átta mánuði
yfirstandandi rekstrarárs Spalar en
á sama tíma í fyrra. Þá fóra tæplega
900.000 bílar um göngin á tímabil-
inu en nú vel yfir 1 milljón bíla.
Þetta kemur ffam á vefsíðu Spalar.
Rekstrarár Spalar stendur frá
októberbyrjun til septemberloka.
Nokkra athygli vekur að umferðin
jókst verulega á tímabilinu nóvem-
ber til febrúar í vetur eða um 21-
28%. Hinsvegar jókst umferð lítið í
nýliðnum maímánuði. Nærtæk
skýring á þeirri breytingu er sú að
hvítasunnan var um miðjan maí í
fyrra en í júní í ár. Hvítasunnan er
jafnan mikil ferðahelgi lands-
manna. Þá má ætla að slæm veðr-
átta á Norðurlandi í ár hafi orðið til
þess að draga úr umferð um göng-
in.
Nettótekjur Spalar af umferðinni
minnkuðu um 8,5% fyrstu átta
mánuði rekstrarársins miðað við
sama tímabil í fyrra þrátt fyrir að
umferðin hafi aukist verulega. Þar
birtast skýrt áhrif gjaldskrárlækk-
unar 1. apríl 2005. Nettótekjur af
hverri ferð um göngin voru 516
krónur mánuðina október 2005 til
maí 2006 en 650 krónur á ferð
sömu mánuði 2004 og 2005. Tekju-
samdráttur á ferð á tímabilinu er
því 20,5%.
Alls eru nú um 11.500 áskriftar-
samningar um ferðir í gildi hjá
Speli og veglyklar í notkun eru um
25.000 talsins.
HJ
PGV ehf. i Bæjarhrauni 6 i 220 Hafnafjörður i Sími: 564 6080 i Fax: 564 60811 www.pgv.is
Flugger
Hörpuskin, Hörpusilki
og Utitex
fást nú hjá KB Búrekstrardeild
BÚREKSTRARDEILD
sömAKmsi
Egilsholt 1-310 Borgarnes
Afgreiðsla sími: 430-5505 Fax: 430-5501
Opið frá kl. 8-12 og 13-18 alla virka daga