Skessuhorn - 14.06.2006, Síða 16
16
MIÐVIKUDAGUR 14. JUNI 2006
jkOsvnuKi:
Hvað á sveitarfélagið að heita?
Alkunna er hér í Borgarfirði (og
víðar) að í nýafstöðnum sveitar-
stjórnarkosningum var fram-
kvæmd skoðanakönnun um nafii á
nýsameinað sveitarfélag. Nokkuð
afgerandi niðurstaða fékkst í könn-
uninni, en þó ekki. Til allrar
óhamingju varð nafnið Borgar-
byggð ofaná, en það nafn sem
langeðlilegast má telja, varð undir
- Sveitarfélagið Borgarfjörður.
Líkast til hafa það verið mistök að
láta kjósa aðeins um eitt af gömlu
nöftiunum og það aðeins um nafn-
ið á fjölmennasta sveitarfélaginu.
Hafa íbúar Borgarbyggðar því að
líkindum neytt aflsmunar þarna.
Þetta er sosum ákveðin niðurstaða,
en er engu að síður nokkuð
óheppilegt mál og vil ég rökstyðja
mál mitt frekar.
Það er ekki gott að nýtt sveitar-
félag leggi upp með nafnið á stóra
sveitarfélaginu í sameiningunni
þegar miðstöð stjórnsýslu nýs
sveitarfélags er aukin heldur í
Borgarbyggð, nánar tiltekið í
Borgarnesi. Þetta yrði óheppileg
byrjun á nýju sveitarfélagi og lítur
mjög út eins og um yfirtöku Borg-
arbyggðar á nágrannahreppunum
sé að ræða - þó að svo sé nú
kannski ekki raunin. En þetta er
engu að síður hálf haltrandi byrj-
un. Reynslan af sameiningu sveit-
arfélaga hefur nefnilega sýnt að
heppilegast er að vegferðin hefjist
með sem mestri samstöðu, en ekki
deilum. I öðru lagi er það víst að
sveitarfélagsnafn sem er það sama
og það sem héraðið er kallað í dag-
legu tali - þ.e. Borgarfjörður - mun
auðvelda og efla alla markaðssetn-
ingu svæðisins, til lengri og
skemmri tíma. Undir það hljóta
margir að geta tekið.
Það getur varla legið mörgum
þétt við hjartarætur að halda fast í
Borgarbyggðarnafnið, það er ekki
svo gamalt og fyrir því er lítil hefð.
Því er hér með skorað á nýja sveit-
arstjórn að forða slysi og velja nýju
sveitarfélagi nafnið Sveitarfélagið
Borgarfjörður eða til vara Borgar-
fjarðarhérað.
Grétar Þór Eyþórsson
Byggðastoftiun fundaði í Ólafsvík
í skoðanakönnun sem frarn-
kvæmd var samhliða sveitar-
stjórnarkosningum í sameinuðu
sveitarfélagi norðan Skarðsheið-
ar, kom fram eindreginn vilji íbúa
hins nýja sveitarfélags hvað varð-
ar nafn á sveitarfélagið. Nafnið
„Borgarbyggð“ fékk 1034 at-
kvæði en nafnið „Sveitarfélagið
Borgarfjörður“ fékk 628 atkvæði.
Þrátt fyrir þessa eindregnu nið-
urstöðu virðist enn unnið gegn
því að vilji íbúanna nái frarn að
ganga. Það er ekki einfalt að skil-
greina íbúalýðræði og sjálfsagt
enn erfiðar að framfylgja því. Það
má þó fullyrða að ef hin nýja
sveitarstjórn velur annað nafn en
Borgarbyggð
sveitarfé-
lagið, hefur
tekist að skapa skólabókardæmi
um hvernig á að sniðganga íbúa-
lýðræði.
En hvað nú? Hvernig eigum
við sem völdum nafnið Borgar-
byggð að tryggja ffamgang þess?
Þarf undirskrifrir með kröfú um
almenna bindandi kosningu milli
þeirra tveggja nafna sem flest at-
kvæði hlutu? Þessar spumingar
þarf að ræða.
12.6. 2006,
Þórólfur Sveinsson,
Ferjubakka II
A móti sól á Akranesi
Stjóm og framvœmdastjóri Byggóastofmmarfylgjast meó umfjöllun um Snœfellsnes sem
vistvtent feróamannasvceói. F.v. Guójón Guómundsson, Þorvaldur T. Jónsson, Aöalsteinn
Þorsteinsson framkvcemdastjóri, Herdís A Sæmundardóttir, Gunnlaugur Stefánsson og
Orlygur Hnefill Jónsson.
Aðalfundur Byggðastofnunar var Þar flutti fráfarandi iðnaðarráð-
haldinn á Klifi í Olafsvík 9. júní sl. herra, Valgerður Sverrisdóttir
ávarp og formaður og fram-
kvæmdastjóri Byggðastofnunar,
þau Herdís A. Sæmundardóttir og
Aðalsteinn Þorsteinsson fluttu
skýrslur um starfsemi stofnunar-
innar. I ffamhaldi þar af voru um-
ræður og fyrirspurnir. Þá var á
fundinum fjallað um tvö málefni
sem snerta Snæfellsbæ sérstaklega.
I fýrsta lagi fyrirhugaðan vatosút-
flutning frá Rifi og kynnti Birgir V
Halldórsson frá Icelandia hug-
myndir fyrirtækisins. Þá fjallaði
Róbert Arnar Stefánsson, forstöðu-
maður Náttúrustofu Vesturlands
um Snæfellsnes sem vistvænt ferða-
mannasvæði. Nokkuð fjölmenni
var á fúndinum en honum stýrði
Krisinn Jónasson, bæjarstjóri í
Snæfellsbæ. MM
Borgfirðingabók er komin út:
Miðlun sögulegs fróðleiks úr héraði
Borgfirðingabók 2006 - ársrit
Sögufélags Borgarfjarðar, er komin
út. Þetta er 7. árgangur ritsins og er
það að þessu sinni 210 blaðsíður í
meðalstóru broti og ágætlega
myndskreytt. I ritinu er fjöldi rit-
gerða um sagnfræðileg og bók-
menntaleg efni og frásagnir af
störfum ýmissa félaga og stofnana í
Borgarfirði. Frásagnir í Borgfirð-
ingabók teigja anga sína vítt um
héraðið enda Borgarfjörður land-
stórt svæði og sagnfræðilegra fanga
víða að leita ffá blómlegri tíð.
Efúi Borgfirðingabókar að þessu
sinni er fjölbreytt og víða komið
við. Þannig má segja að ritið hafi
vaxið ágætlega og ekki laust við að
lesandanum finnist útgefendum
hafa töluvert vaxið ásmegin. I ritinu
rifjar t.d. Helgi Jónas Olafsson upp
minningar frá síldveiðum árið
1944, Guðmundur Gunnarsson frá
Gestsstöðum ritar minningar sínar
ffá sama ári sem margar tengjast
vegagerð um héraðið og Vífill á
Ferstiklu segir frá hernámsárunum
í Hvalfirði svo dæmi séu tekin.
Hvítsíðtmgum er gerð býsna góð
skil í þessu hefri. I ritinu er m.a. að
finna áður óbirt kvæði efrir Guð-
mund Böðvarsson skáld frá Kirkju-
bóli, Hvítárvísur. Þá fjallar nýlega
látinn öðlingsmaður; Páll Jónsson
ffá Hóli, um Hvítá og samskipti sín
og bernskuminningar við ána sem
liðaðist um bæjarfótinn á Bjarna-
stöðum. Böðvar Guðmundsson
skáld fjallar um Þuríði Jónsdóttur
Forsíöa Borgfiröingabókar, ársrits Sögufé-
lags Borgarfjaröar 2006. Ljósmynd áfor-
síöu tók Aslaug Þorvaldsdóttir. Umbrot
var t höndum Uppheima á Akranesi og
prentaö var hjá Bookwell Ltd.
fóstru móður hans og konuna sem
hafði þá rausn hjartans sem ekki er
öllum gefin. Bókmenntalega mætti
segja að eitt merkasta efni þessara
árgangs ritsins sé ritgerð eftir
Helgu Kress prófessor sem nefnis;
„En eg er hér ef einhver til mín
spyrði“ og fjallar um borgfirskar
skáldkonur í íslenskri bókmennta-
hefð. Þá fjallar Elísabet Haralds-
dóttir um Andakílsskóla; skapandi
skóla í grænni sveit og Asdís Ein-
arsdóttir segir frá 40 ára sögu
Heiðarskóla. Fjölmargir fleiri rita
minningarbrot og ffásagnir ýmsar
sem ffóðlegt verður að teljast og
mikilsvert að fært sé á prent til að
forða glötun. Hér hefur einungis
fátt eitt verið nefnt til sögunnar.
Sem Borgfirðingur hrífst ég af
dugnaði þess fólks sem tekur að sér
söfnun, varðveislu og útgáfu slíkra
heimilda sem félagar í Sögufélagi
Borgarfjarðar gera. I erli hvers-
dagsins finnst e.t.v. mörgum núlif-
andi slík heimildasöfnun lítt merk,
en verðmætin og gildi slíkrar vinnu
sem að baki liggur, verða seint of-
metin og eykst þegar ffam líða
stundir. Með slíkum ritum er forð-
að ffá eilíffi gleymsku ýmsu sem
vert er að varðveita og snertir alla
Borgfirðinga.
Formaður Sögufélags Borgar-
fjarðar er Snorri Þorsteinsson ffá
Hvassafelli. Með honum í ritnefnd
Borgfirðingabókar sitja sem fýrr
Snjólaug Guðmundsdóttir á Brúar-
landi og Þóra Magnúsdóttir kenn-
ari á Kleppjámsreykjum sem ættuð
er ffá Hallkelsstaðahlíð. Ritstjóri
Borgarfirðingabókar er Finnur
Torfi Hjörleifsson.
Líkt og áskrift að héraðsfrétta-
blöðum ætti að vera skylda hvers
heimilis sem hefur metoað til að
fylgjast með næmmhverfi sínu, er
ekki síður mikilvægt að íbúar styðji
við bakið á útgáfu Sögufélagsins
með áskrift að ritverkinu sem sýni-
lega er komið til að vera. Borgfirð-
ingar geta verið stoltir af útgáfu
sem þessari.
Magnús Magnússon
Hljómsveitin A móti sól með
Borgfirðinginn Magna Asgeirsson í
broddi fylkingar verður á ferð og
flugi á 17.júní. Magni Asgeirsson
sem eins og kunnugt er dvelur í
Bandaríkjunum þessa dagana vegna
þátttöku sinnar í alþjóðlegri söng-
keppni tekur sér frí ffá því amstri
öllu til að halda þjóðhátíðardaginn
hátíðlegan ásamt félögum sínum.
Hljómsveitin mun spila í íþrótta-
húsinu á Akranesi að kvöldi þjóð-
hátíðardagsins en færir sig síðan
um set og spilar á Breiðinni frá
miðnætti og ffam á rauða nótt.
MM
Sossa sýnir í Kirkjuhvoli
Á þjóðhátíðardaginn, laugardag-
inn 17. júní n.k. kl. 16 opnar í lista-
setrinu Kirkjuhvoli á Akranesi sýn-
ing á verkum eftir Sossu Björns-
dóttur.
Sossa er fædd á Akranesi árið
1954 og stundaði hún nám við
Myndlista- og handíðaskóla Islands
1977-79, Skolen for brugskunst í
Kaupmannahöfn 1979-1984 og
MFA í málun frá School of the
Museum of Fine Arts í Boston /
Tuffs Univeristy 1992. Sossa hefnr
sýnt víða í Evrópu síðastliðin ár og
er með vinnustofu í Keflavík og í
Kaupmannahöfn.
íumálverk unnin síðastliðið ár og
flest öll á vinnustofu hennar í
Kaupmannahöfn. Sýningin stendur
til 2. júlí. Listasetrið er opið alla
daga nema mánudaga frá kl. 15-18.
(fréttatilkynning)
Bláfáninn í Hólminn í
fjórða sldpti
Síðastliðinn föstudag afhenti
Landvernd í fjórða sinn bláfánann
til Stykkishólmshafnar. Það var
Rannveig Thoroddsen ffá Land-
vernd sem afhenti Erlu Friðriks-
dóttur, bæjarstjóra fánann en hann
er alþjóðlegt merki sem hefúr þann
tilgang að stoðla að verndun um-
hverfis hafna og baðstranda. Blá-
fánann hljóta þeir einir sem leggja
sig ffam um að bæta gæði og þjón-
ustu stranda og smábátahafna og
stuðla að verndun umhverfis.
MM/ Ijósm. ÍHS