Skessuhorn - 14.06.2006, Blaðsíða 19
§SESiöH©EK!
MIÐVIKUDAGUR 14. JÚNÍ 2006
19
Umhverfi Hj arðarholtskirkju
í Döhun bætt
Ifi « LÍFEYRISSfÓÐUR SUÐURLANDS
þjóna tilgangi sínum því engin salernisaðstaða
hefur verið í kirkjunni sem byggð var árið
1904. Engin aðstaða fyrir prest til að skrýðast,
né fermingarbörnin að hafa fataskipti hefur
heldur verið til staðar fram að þessu.
Margir ferðamenn kom árlega til að skoða
kirkjuna í Hjarðarholti og skoða staðinn sem
þekktur er frá fornu fari og er ánægulegt til
þess að vita hversu aðkoman og umhverfið allt
er að verða glæsilegt.
MM/ Ijósm. MB
Miklar ffamkvæmdir standa nú yfir á um-
hverfi Hjarðarholtskirkju í Dölum. KOLUR
ehf sem Gunnbjörn Jóhannsson ffamkvæmda-
stjóri stýrir, tók verkið að sér skv. útboði. I því
felst malbikun, hellulagning og grasþekja ásamt
fleiru sem fylgir ffágangi á lóð kirkjunnar.
Bílaplanið var malbikað 7. júní sl. og er það
rúmlega 1700 m2 að grunnfleti. Hellulögn á
svæðinu er rúmlega 400 m2.
Þjónustuhús fyrir kirkjuna var byggt árið
2005. I því er safnaðarsalur, salerni með góðu
aðgengi fyrir fatlaða og geymsla fyrir ýmsar
eigur kirkjunnar. Húsið er nú þegar farið að
Vélbátar í hundrað ár
Aukaársfundur 2006
Stjóm Lífeyrissjóðs Suðurlands boðar til aukaársfundar sjóðsins
mánudaginn 19. júní n.k. að Bámgötu 8-10, Akranesi (fimdarsalur
HB Granda). Fundurinn er jafnframt stofnfundur sameinaðs
sjóðs Lífeyrissjóðs Suðurlands og Lífeyrissjóðs Vesturlands.
Fundarstörf hefjast kl: 18:00.
Dagskrá
1. Fundur settur og kosning starfsmanna fundarins
2. Kynning á nýju nafni sameinaðs sjóðs
3. Kynning á samþykktum sameinaðs sjóðs
4. Kynning á stofhefnahagsreikningi sameinaðs sjóðs
5. Kynning tryggingafxæðings á réttindatöflum sameinaðs sjóðs
6. Kosning stjómar og varamanna
7. Önnur mál.
Auk kjörinna fulltrúa eiga allir sjóðfélagar sjóðsins og rétthafar
rétt til setu á fundinum.
Reykjanesbœ, 12. júní 2006
Stjórn lífeyrissjóðs Suðurlands.
V_______________________________________________________J
Á sjómannadaginn var opnuð
sýning í Sögumiðstöðinni Grund-
arfirði sem kynnir á nýstárlegan
hátt sögu vélbátaútgerðar í Grund-
arfirði sem hófst árið 1906 með
komu fyrsta vélknúna bátsins til
Kvíabryggju. Ingi Hans Jónsson
forstöðumaður Sögmiðstöðvarinn-
ar á veg og vanda að uppsetningu
sýningarinnar. Á grundvelli þeirra
heimilda sem hann hefur aflað sér
er saga vélbátanna rakin í máli og
myndum en sá sem hlýðir á stjórn-
ar ferðinni á snertiskjá. Á sama skjá
má fræðast um skipstjóra þá sem
koma við sögu í þessari umfjöllun.
Eyrbyggja - Sögumiðstöð hefur nú
verið starfrækt í 3 ár en fyrsti áfangi
miðstöðvarinnar var tekinn í notk-
un árið 2003 með opnun Bærings-
stofu og síðan Gestastofu.
Uppbygging og reksmr Sögu-
Ingi Hans Jónsson forstöðumaður styíiur sig
við leyfar bátsvélar semfannst niðurgrafm
við Lá í Eyrarsveit og mun vera frá fyrstu
ámm vélbátaútgerðar í Grundatfirði. I
glugga stýrishússins birtast myndir afköll-
unum í brúnni í gegnum tíðina.
miðstöðvarinnar er í höndum sjálf-
eignarstofnunar og er slíkt fyrir-
komulag að sögn Inga Hans fátítt
hér á landi. Ingi Hans sagði næstu
þróunarskref muni snúast um
tæknilegu hlið safnsins þar sem
byggt verður upp svokallað staf-
rænt sýningarhald en nýverið veitti
Menningarráð Vesturlands Sögu-
miðstöðinni styrk vegna þess verk-
efnis.
Ingi kvað ótrúlegt hvernig hægt
hefði með útsjónarsemi og aðhaldi
að framkvæma ótrúlega mikið fyrir
upphæðir sem dæmi væm um að
dygðu rétt fyrir hönnunarkostnaði.
Ingi sagði Sögumiðstöðina vera að
hrinda af stað frekari fjáröflun með
því að bjóða Grundfirðingum og
öðrum velunnurum að gerast vinir
Sögumiðstöðvar þar sem greitt væri
ákveðið árgjald en í staðinn væru
ýmsir viðburðir og ívilnanir. Upp-
lýsingamiðstöð og netkaffi verður
starfrækt í Sögumiðstöðinni í sum-
ar og er opið frá kl. 10 - 18 alla
daga.
GK
Rjalamesrokið landsfræga
Kári blés hressilega síðasta
mánudag og mikið rok var á Kjalar-
nesi. Hjólhýsið á þessari mynd
tókst á loft í veðurhamnum, fauk og
lagðist yfir miðjan veginn í lend-
ingunni við Kollafjörðinn. Atvikið
átti sér stað um klukkan fimm síð-
degis. Hjólhýsið er mikið skemmt,
ef ekki ónýtt.
SO
Fór með Gullaldarliðs taktana til Færeyja
Kappi á fjórtánda ári, er sleit
bamsskónum á Akranesi og æfði
þar knattspyrnu frá sex ára aldri
með IA, er aldeilis að gera góða
hluti með liði sínu í Færeyjum, þar
sem hann er nú búsettur ásamt fjöl-
skyldu sinni. Hjörtur Björgvinsson
heitir kappinn knái og leikur með
aldursflokknum smádrengjum með
liðinu TB á Suðurey í Færeyjum.
Smádrengir era strákar á aldrinum
tólf til fjórtán ára og samsvara þeir
fjórða flokki hér heima.
Á dögunum unnu hann og félag-
ar hans bikarkeppni þar ytra sem
nefhist Cadburysteyp. Liðið er með
þeim betri í þessum aldursflokki á
eyjunum og var Hjörtur að vonum
ánægður með árangurinn hjá sér og
sínum félögum. Knattspyrnu taldi
hann voða svipaða þar úti og hér
heima og sér fyndist þetta alltaf jafh
gaman enda búinn að vera með fót-
bolta á tánum frá sex ára aldri.
SO
www.skessuhorn.is
Digranesgötu h - Borgarnesi - simi: 43-2020
Athugid
breyttan opnunartíma í sumar
Opnunartími:
Mánudaga til fimmtudaga kl. 8:00 -18:00
Föstudaga kl. 8:00 -19:00
Laugardaga kl. 8:00 -1 7:00
Sunnudaga kl. 9:00 -16:00
Auglýsing um deiliskipulag í
Hvalfjarðarstrandarhreppi
Borgarfjarðarsýslu.
Samkvæmt ákvæðum 25 gr. skipulags-og byggingarlaga
nr.73/1997 er hér með lýst eftir athugasemdum við nýtt
deiliskipulag fyrir frístundabyggð í landi Brekku
Hvalfjarðarstrandarhreppi.
Deilskipulagstillagan er í samræmi við aðalskipulag
Hvalfjarðarstrandarhrepps 2002-2014.
SkipulagstiIlagan gerir ráð fyrir 60 frístundahúsalóðum
í landi Brekku norðan þjóðvegar
Tillagan ásamt byggingar og skipulagsskilmálum liggur
frammi á skrifstofu sveitarfélagsins að Hlöðum frá 08.júní
2006 til 06.júlí 2006 á venjulegum skrifstofutíma.
f Athugasemdum ef einhverjar eru skal skila fyrir 20.júlí
l 2006 og skulu þær vera skriflegar.
I Þeir sem ekki gera athugasemd innan tilgreinds frests
s teljast samþykkir tillögunni.
Skipulags og byggingarfulltrúi.
Ólafur K. Guðmundsson