Skessuhorn


Skessuhorn - 14.06.2006, Qupperneq 22

Skessuhorn - 14.06.2006, Qupperneq 22
22 MIÐVIKUDAGUR 14. JÚNÍ 2006 SgaSSHSBfíBSl Hæglætis Borgfirðingahátíð Sjöunda Borgfirðingahátíðin fór fram um liðna helgi með dagskrá vítt og breitt um héraðið. Þetta er í fyrsta skipti sem Ungmennasam- band Borgarfjarðar annast hátíðina og komu margir ungmennafélagar úr héraðinu að undirbúningi og ffamkvæmd hennar. Að sögn Mar- grétar Friðjónsdóttur, fram- kvæmdastjóra gekk mótshaldið mjög vel fyrir sig og góð þátttaka var í alla dagskrárliði. „Gestir komu víða að og nutu vandaðrar dagskrár í ákaflega mildu og góðu veðri. Fólk var afslappað, stemning var góð og afskaplega yfirvegað andrúmsloft sem gerði hátíðina notalega og góða. Mikil þátttaka var í hinn árlega morgunverð í Skallagrímsgarðinum í Borgarnesi þar sem um 600 manns mættu og hlýddu síðan á messu í kjölfarið. Þá var mjög góð þátttaka á tónleika Baggalúts á gamla íþróttavellinum, baðstofukvöld á Indriðastöðum og bændamarkaðinn á Hvanneyri svo ég nefni einhver dæmi. Við vorum heppin með veðrið þó að það hafi farið að rigna eftir hádegi á sunnu- deginum á bændamarkaðinum þá kom það ekki að sök, einnig var smávægileg úrkoma í lok tónleika Baggalúts, en það lét heldur enginn það á sig fá - það voru allir í svo góðu skapi og veðrið í það heila tekið okkur mjög hliðhollt," sagði Margrét í samtali við Skessuhorn. MM Þœr stöllur Jóhanna Erla Jónsdóttir, firmaður UMSB og Margrét Friðjónsdóttir, framkvœmdasljóri höföu í nœgu a5 snúast um helgina, en þeim fórst starfið vel úr hendi. Candyflos og andlitsmálning er meóalfastra liða á háttðum sem þessum. Gestirfylgjast með fjölskyldudagskránni t Borgamesi á laugardaginn. í mildu veðri Söngvarar úr Tónlistarskóla Borgarffarðar fluttu atriði úr sóngleiknum Litlu stúlkunni með eldspýtumar sem sýnt varfýrir nokkrum mánuðum. Hoppukastalar ogýmis leiktæki voru í miðbænum, bömum til ánægju. Þessar hressu stúlkur biðu í röð eftir að að þeim kæmi. INGI TRYGG VASON hdl. tögg. fasteigna- og shipasali / ÁNAHLÍÐ 14 íbúð í parhúsi 69 ferm. Forstofa, gangur, stofa og eitt herbergi með kork á gólfi. Eldhús með kork á gólfi, ljós viðar-innrétting. Baðherbergi allt flísalagt. Geymsla inn af forstofu og útigeymsla við enda hússins. Verð: 15.000.000 BORGARBRAUT 2 2ja herb., 62,3 ferm., íbúð á neðri hæð í fjölbýlishúsi. Ibúðin er nýlega standsett. Forstofa og gangur flísalagt. Samliggjandi stofa og eldhús flísalagt, ljós viðarinnr. í eldhúsi. Eitt herbergi flísalagt. Baðherbergi allt flísalagt. Sér geymsla á sömu hæð. Til afhendingar strax. Verð: 11.500.000 BORGARBRAUT 31 íbúð, 50,7 ferm., á neðri hæð í tvíbýlishúsi. Stöfa og eitt herbergi teppalagt. Eldhús dúklagt, eldri viðarinnrétting. Baðherbergi dúklagt. Sameiginl. þvottahús og geymsla. Til afhendingar strax. Verð: 6.600.000 BORGARVÍK 1 Einbýlishús, íbúð 138,9 ferm. og bílskúr 40,7 ferm. Forstofa flísalögð. Hol og stofa parketlagt. Fimm herbergi, þrjú parketlögð, eitt dúklagt og eitt með kork. Eldhús dúklagt, Ijós viðarinnr. Gestasnyrting með flísum á gólfi en veggir málaðir. Þvottahús. Stór sólpallur með skjólveggjum. Til afheridingar strax. Verð: 30.000.000 Allar nánari upplýsingar á skrifstofu Ingi Tryggvason hdl. löggiltur fasteigna- og skipasali Borgarbraut 61, 310 Borgarnes, s. 4371700, 860 2181, fax 4371017, netfang: lit@simnet.is - veffang: www.lit.is Hátíð hafcins á Akranesi Hátíð hafsins var haldin á Akra- nesi síðastliðinn laugardag í ágætis- veðri. Mikið var um að vera á hafn- arsvæðinu, leik- og tívolítæki voru á staðnum, smábílaklúbburinn sýndi tilþrif með fjarstýrða bíla sína, tón- list ómaði um svæðið sem flutt var m.a. af Skólahlómsveit Akraness, Björgunarfélag Akraness bauð upp á ýmsar þrautir eins og kassaklifúr þar sem nýtt Akranesmet í kassaklifri var sett. Pilturin sem setti metið gat raðað undir sig 27 kössum sem eru um 30 sentimetrar á hæð hver um sig og því var hann kominn í um 8 metra hæð með kassastæðu undir sér er hann féll niður, en tryggilega festur í sigbún- að. Slökkvilið Akraness var á svæð- inu, sýndi búnað sinn og bauð fólki í útsýnisferð í háloftin með körfubíl slökkviliðsins. Guffi banani og Palla pera úr Ávaxtakörfunni komu og skemmtu yngstu kynslóðinni með glensi og söng. Kappróður var háður og mættu þar sveitir Björg- unarfélagsins, Norðuráls, Akranes- kaupstaðar og karla- og kvennasveit HB Granda. Keppni í koddaslag var á milli frambjóðenda úr flokk- unum fimm er buðu fram á Akra- Reyntfyrir sér í kassaklifri. Sigurverarar kappróðursms, róðrarsveit Björgunarfélags Akraness í gulum vestum, með appelsínugula sjóhatta er róðrarsveit Akraneskaupstaðar. nesi í nýliðnum sveitarstjórnar- kosningum. Þyrla Landhelgisgæsl- unnar TF-Rán kom og sýndi björg- un úr sjó í Akraneshöfn. Mark- aðstjald var á hafnarsvæðinu þar sem fólk gat verslað ýmislegt sjáv- arfang og rann allur ágóði af þeirri sölu til góðra málefna og síðast en ekki síst þá mætti gamla Akraborg- in, nú Sæbjörg, til hafnar á Akra- nesi og var vel tekið á móti henni með lúðrablæstri Brass- bandsins. Var gest- um hátíðarinnar boðið um borð að skoða hana en einnig kom með henni hópur fólks ffá Reykjavík til há- tíðarinnar. Er hún hélt aftur til Reykjavíkur frá Akraneshöfn kvaddi hún Skagann með blæstri sinna eig- in lúðra. Fiskiveisla var síðan hald- in á Safnasvæðinu að Görðum á laugardagskvöld en þátttaka í henni var fremur dræm. Ekki var annað að sjá en allir gestir hátíðarinnar hefðu gaman af enda mikið um að vera og líf og fjör á Akranesi þenn- an dag fyrir alla aldurshópa. Brassbandið tók á móti Stebjörgu er hún kom að höfn á Akranesi.

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.