Skessuhorn


Skessuhorn - 28.06.2006, Qupperneq 8

Skessuhorn - 28.06.2006, Qupperneq 8
8 MIÐVIKUDAGUR 28. JÚNÍ 2006 ...Kllllh,,. Atvinnutekjur í landbúnaði lækka enn Á árinu 2005 voru meðalatvinnu- tekjur í aðalstarfi á Vesturlandi rúmar 2,7 milljónir króna og höfðu þá hækkað um 9,35% frá árinu 2004. A sama tíma voru meðalat- vinnutekjur á landinu öllu rúmar 2,9 milljónir króna og höfðu þá hækkað um 8,17% á milli ára. Af einstökum starfsgreinum á Vesturlandi má nefha að meðal at- vinnutekjur voru langlægstar í landbúnaði á síðasta ári eða aðeins 684 þúsund krónur og höfðu þá lækkað ffá árinu á undan úr 811 þúsund krónum eða um tæp 16%. Hæstar eru meðal atvinnutekjurnar í fiskveiðum eða rúmar 3,8 milljón- ir króna. Eru meðal atvinnutekjur í landbúnaði því aðeins tæplega 18% af tekjum í fiskveiðum. Næstlægst- ar voru atvinnutekjurnar í hótel- og veitingahúsarekstri eða tæplega 1,6 milljónir króna. HJ Brunarvamaráætlun samþykkt fyrir Borgarbyggð I lok síðasta kjörtímabils sam- þykkti bæjarstjórn Borgarbyggðar brunavarnaráætlun fyrir slökkvilið Borgarbyggðar. Markmið áætlun- arinnar er að tryggja að slökkvilið sé þannig mannað, skipulagt, út- búið tækjum, menntað og þjálfað að það ráði við þau verkefni sem því erum falin. Björn Karlsson brunamálastjóri heimsótti ráðhús Borgarbyggðar sl. fimmtudag og staðfesti nýja brunarvarnaáætlun. Því liggja fyrir í dag staðfestar burnavarnaráætlanir fyrir bæði slökkviliðin í Borgarbyggð. MM/ljósm. IJ Bjarni Þorsteinsson slökkviliðsstjóri, Páll S. Brynjarsson sveitarstjóri og Bjöm Karlsson b-unamálastjóri staðfesta áætlunina. Sjóstangveiðimót á Akranesi Aðalmót Sjóskip, sem er hluti af Islandsmeistarkeppninni í sjóstang- veiði, fór fram á Akranesi um síð- ustu helgi. Keppendur voru 42 tals- ins og róið var á miðin á 11 bátum. Afli var ágæmr og veður með ein- dæmum gott. A mótinu veiddust 13 tegundir, sem er í meira lagi, þar á meðal var 1,67 kílóa skötuselur sem Rögnvaldur Heimisson f SjóAk dróg og 9 gramma síli sem Arnþór Sigurðsson í SjóVe veiddi. Afla- hæsta kona mótsins var Anna Jó- hannesdóttir í SjóAk með rúm 363 kíló og hjá körlunum Sævar Guð- jónsson í SjóSigl aflahæstur en hann veiddi rétt rúmlega 540 kíló. Aflahæsti heimamaðurinn var Hjalti Kristófersson í SjóSkip og veiddi hann rúmlega 205 kíló og veiddi Hjalti einnig 3. stærsta fisk- inn í mótinu og var það þorskur. Aflahæsti skipstjórinn var Jóhannes Eyleifsson á Leifa AK 2. A Leifa var fjögurra manna áhöfn og veiddust 430,495 kíló að meðaltali á stöng eða samtals tæplega 1.722 kíló. SO Ungir firamsóknamienn vilja huga meira að umhverfismálum Stjórn FUF í Mýra- og Borgar- fjarðarsýslu hélt fund sl. sunnudag og samþykkti þá ályktun þar sem m.a. er hörmuð sú ákvörðun að leyfa stækkun iðnaðarhverfisins við Engjaás f átt að þeim söguffæga stað, Borg á Mýrum. Fundurinn lýsti yfir áhyggjum af stöðu um- hverfismála í Borgarbyggð í upp- hafi nýs kjörtímabils. I ályktuninni segir m.a.: „Sú ákvörðun sveitar- stjórnar að heimila stækkun iðnað- arhverfis að Engjaási í átt að Borg á Mýrum er hörmuð. Það er gleði- legt að sjá þann vöxt í atvinnulífi þjóðarinnar sem orðið hefur eftir að Framsóknarflokkurinn settist í ríkisstjórn 1995. Grundvallar for- senda öflugs velferðarkerfis er öfl- ugt atvinnulíf. Engu að síður má ekki ganga of nærri umhverfinu og merkum stöðum í uppbyggingu at- vinnulífsins. Fá sveitarfélög geta státað af jafh merkum sögustöðum og Borgarbyggð. Það er því synd að svo merkum stað skuli sýnd lítils- virðing sem þessi. Það væri miður ef loka þyrfti fyrir aðgengi ferðamana að staðnum vegna þessa. Löngum hefur Borgames verið talið eitt af fallegri bæjarstæðum á landinu. Ljóst er að þeirri ímynd verðvu- teflt í hætm ef verður af flumingi þjóðvegar 1 út í Borgar- fjörð meðfram Borgarnesi. Niður- bromir klettar og uppfylltar víkur og vogar era hugmyndir frá 20. öld sem ekkert erindi eiga inn á 21. öldina þar sem meiri virðing er borin fyrir umhverfinu. Ungir Framsóknarmenn leggja áherslu á að tryggja öryggi vegfarenda hvar sem er í sveitarfélaginu. Víða er potmr brotinn í viðhaldi gatna og vega sem bæta þarf úr. Skorað er á sveitastjórn að hefja nú þegar vinnu við mótun þess hvernig fylgja eigi eftir staðardag- skrá 21 í sveitarfélaginu. Staðardag- skrá 21 á ekki að vera plagg sem liggur óhreiff ofan í skúffu en dreg- ið upp á tyllidögum.“ MM Meðlimir bjómsveitarinnar Narodna Musika erufimm mei Hauk Gröndal ífarar- broddi. sveit á tónleikaferðalagi um Borgarfjörð Á laugardaginn næstkomandi verða óvenjulegir tónleikar að Fossatúni í Borgarfirði en þá stíg- ur á stokk fjölþjóðleg þjóðlaga- sveit, Narodna Musika, sem spilar eldfjöruga búlgarska, gríska og tyrkneska þjóðlagatónlist. Með- limir sveitarinnar, sem eru frá Is- landi, Danmörku, Tyrklandi og Búlgaríu, eru allir vel þekktir í sín- um heimalöndum og gefst gesmm tækifæri til að kynna sér heimstón- list og upplifa afraksmr samstarfs tónlistarmanna frá ólíkum menn- ingarheimum. Tónleikarnir, sem verða haldnir í veitingahúsinu Tímanum og vatninu hefjast klukkan 22 og er miðaverð 1.200 kr. Hátt í sex hundruð manns mættu til að hlýða á útgáfutón- leika plötunnar Islensk ástarlög á sunnudaginn var, en tónleikahald fór fram utandyra í einstöku um- hverfi á bökkum Grímsár við Fossatún. A tónleikunum komu fram fjórar af fimm söngkonum plötunnar, þær Ragnheiður Grön- dal, Hildur Vala, Sigríður Eyþórs- dóttir og Ellen Kristjánsdóttir en Andrea Gylfadóttir var upptekin við sýningar á Litlu hryllingsbúð- inni. Með þeim var hljómsveit skipuð nokkrum færustu hljóð- færaleikurum landsins undir stjórn Jóns Olafssonar. Tónleikarnir marka upphaf tón- leikaraðar íslenskra ástarlaga sem haldnir verða árlega að Fossatúni um Jónsmessuna. Tónleikarnir, sem voru sendir út beint á Rás 2, voru haldnir með stuðningi Orku- veitu Reykjavíkur og Menningar- ráðs Vesturlands. KOO Spumingakeppni héraða haldin á Hóhnavík Sauðfjársetur á Ströndum stendur og höfundur spurninga er Arnar S. fyrir spurningakeppni milli fjögurra héraða fimmtudaginn 29. júní í Fé- lagsheimilinu á Hólmavík. Keppnin hefst kl. 20:00 stundvíslega. Hún er sú fyrsta sinnar tegundar á Strönd- um, en undanfarin ár hafa heima- menn keppt sín á milli við góðar rmdirtektir líkt og Vestlendingar hafa gert, t.d. Borgfirðingar, Dala- menn og Snæfellingar. Keppnin markar einnig upphaf bæjarhátíðar- innar Hamingjudaga á Hólmavík ásamt fleiri atburðum á fimmtudeg- Liðin sem taka þátt eru: Stranda- menn sem ætla sér væntanlega stóra hluti á heimavelh, Dalabúar sem mæta með ffækið lið vaskra manna, Húnvetningar renna með gáfumar norður á Strandir og Borgfirðingar úr UMSB mæta með ungmennafé- lags- og barátmanda í brjósti. Spyrill Jónsson frá Steinadal á Ströndum, en hann hefur getið sér gott orð fyr- ir slíkt hlutverk í fyrri keppnum á Ströndum. Arnar lofar léttri, skemmtilegri og áhorfendavænni keppni sem mun þó einnig reyna ör- lítið á þrautreynda huga keppend- anna. Dregið verður í viðureignir á staðnum og sigurlið keppninnar fær vegleg verðlaun. Líklegt er að tapliðin fái að taka eitthvað með sér heim líka. Aðgangseyrir að spurn- ingakeppninni er aðeins kr. 1.500 fyrir sextán ára og yngri og er kaffi og kökudiskur þar innifalinn. Spurningakeppni héraðanna verður haldin í Félagsheimilinu á Hólmavík fimmtudaginn 29. júní kl. 20:00. Aðgangseyrir er kr. 1.500 fyr- ir 16 ára og eldri, kaffi og kökudisk- ur er innifalið í aðgangseyri. MM Þjóðgarðurinn Snæfellsjökull fimm ára Þjóðgarðurinn Snæfellsjökull er fimm ára í dag, þann 28. júní. Haldið verður upp á afmælið í grunnskólanum á Hellissandi og hefst hátíðin kl. 14. Þar mun m.a. umhverfisráðherra Jónína Bjart- marz flytja ávarp og saga þjóð- garðsins verða rakin í máli og myndum. Háptmktur afmælisins er að verðlaun verða afhent í sam- keppni um hönnun á þjóð- garðsmiðstöð sem rísa mun á Hell- issandi. Alls bárust 17 tillögur í keppnina og verða þær til sýnis í skólanum fram á laugardag. Allir eru velkomnir í afmælisveisluna sem lýkur með afmæliskaffi og gönguferð að svæðinu þar sem þjóðgarðsmiðstöðin verður reist. MM \%stri grænir birta reikninga sína Vinstri h reyfingm-grænt fram- boð hefur birt bráðabirgðauppgjör vegna kosningabaráttu flokksins fyrir bæjarstjórnarkosninganna á Akranesi í vor. Samkvæmt uppgjör- inu var heildarkostnaður við kosn- ingarnar rúmar 1,1 milljón króna og tekjurnar tæpar 793 þúsund krónur. Af einstökum tekjuliðum má nefna að frá höfuðstöðvum flokksins á landsvísu bárust 300 þúsund krónur, Akraneskaupstaður styrkti hvert framboð um 200 þús- und krónur, auglýsingatekjur voru 237 þúsund krónur, framlög ein- staklinga voru rúmlega 31 þúsund krónur og aðrar tekjur voru rúmar 24 þúsund krónur. Af einstökum gjaldaliðum má nefna húsaleigu að íjárhæð rúmar 31 þúsund krónur, skrifstofukostn- aður var rúmlega 41 þúsund krón- ur, kosningastjóri framboðsins fékk greiddar 250 þúsund krónur, myndatökur kostuðu rúmlega 60 þúsund krónur, hönnunarkostnað- ur var tæpar 63 þúsund krónur, prentunarkostnaður var rúmar 484 þúsund krónur, póstkostnaður var tæpar 50 þúsund krónur, auglýs- ingakostnaður var rúmar 81 þúsund krónur og ýmis útgjöld vora rúmar 41 þúsund krónur. Eins og áður sagði vantar því rúmar 309 þúsund krónur til þess að endar nái saman hjá framboðinu. Eins og kunnugt er hlaut framboð- ið einn mann kjörinn í bæjarstjórn Akraness. Skessuhorni er ekki kunnugt um að önnur framboð hafi birt reikn- inga sína. HJ

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.