Skessuhorn


Skessuhorn - 28.06.2006, Blaðsíða 22

Skessuhorn - 28.06.2006, Blaðsíða 22
22 MIÐVIKUDAGUR 28. JÚNÍ 2006 SBISSIÍHÖEK Fótbolti, söngur og söngvatn gegn fordómum Stuðningsmenn IA, Skagamörkin, skemmtu sér vel í Eyjum þrátt fyrir tap Blaðamaður Skessuhorns fylgdi með liði Skagamanna og stuðnings- mönnum þess í ferð til Vestmanna- eyja í síðustu viku. Eins og vera ber snerist ferðin fyrst og fr emst um leik IA og IBV í Landsbankadeildinni, en stuðningsmennirnir gerðu þó meira en að horfa bara á leikinn. Þeir létu úrsbt hans heldur ekki á sig fá heldur hvöttu sína menn áfram. Þegar blaðamaður kom á Reykja- víkurflugvöll voru liðsmenn IA mættir á svæðið. Eklá fór ffamhjá neinum að um samhent Hð var að ræða, alHr eins klæddir í svört, tein- ótt jakkaföt og hvítar skyrtur. Þeir voru reffilegir á að H'ta í salntun, gel- greiddir og glæsilegir. Stemningin var lágstemmd en góð engu að síður og ljóst að menn þekktust vel og höfðu gert lengi. Þannig fengu ýmis skot að fljúga en allt þó á vinalegum nótum og minntd stemningin helst á hópferð einhvers fyrirtækis út á land - þó með þeim áberandi mun að hér var ekkert drukkið. Eftir stutta bið kom forsvarsmaður flugfélagsins og tilkynnti að vélin væri tilbúin og menn gætu gengið um borð. Það var því ekki eftir neinu að bíða - og þó, stuðningsmennirnir voru ekki komnir. Það kom í ljós að Skaga- mörkin höfðu lent í rútuvandræðum og voru því með seinni skipunum en þó rétt ókomin. Með það var gengið til borðs og skömmu sfðar birtust smðningsmennirnir, gulklæddir og skreyttir ffá hvirfli til ilja og vel birgðir af nauðsynjum. Vel má vera að sú staðreynd að stuðningsmenn- irnir létu bíða eftir sér hafi dregið úr mesta æsingnum. I það minnsta höfðu þeir sig lítt í ffammi í fluginu og heyrðist hvíslað hvort liðið væri nokkuð fult út af biðinni. Það var hinsvegar ekki að sjá og var aðdáun- arvert hvernig Olafur Þórðarson og félagar sinntu stuðningsmönnunum í þessari ferð. Menn náðu sér þó fljótt, gáfu flugffeyjtmni bol og buðu henni húfu. Eitthvað dró úr stemn- ingunni þegar hún spurði í hvaða sæti IA væri í deildinni, en menn gerðu þó gott úr því. Leikur gegn fordómum Þegar komið var til Eyja var eins og stíflan hefði brostið, bæði í hjörttun og bjórdósum stuðnings- manna. Gulir og glaðir streymdu þeir úr vélinni, hófu þegar í stað upp raust sína og áköf köll liðinu tdl stuðnings. Skagamörkin fengu að fljóta með rútu Hðsins niður í bæ, en þar skildu leiðir. Fótboltaliðið hélt upp á hótel til undir- búnings, fótboltaáhangend- umir á barinn til hins sama. Þar tók við glaumur og gleði, hróp og köll. Þegar ,1* VIKING Landsbankinn Útihátíð Irskra daga á Akranesi mHBD MlDDSeDQ sá? DÖDDD 6d@(í1P8®[I1|J) Cío TMfflíiMfa ®@ [SapaEHBDP DoaDcík) oopipD (Pftoni frm á ffiSEB Inngangur Veitinga- sala iftEimcmiuui • SEMENTSSKEMMA INNISVÆÐI ' lí J' ■■ . ■ : Veitinqasala 18. ára aldurstakmark IRSKIR DAGAR AkHmMi7.-9.il*, 2006 Kynnið ykkur nánar aðra dagskrárliði þessa helgi á www.irskirdagar.is GAMLA .a Ytaf'nn' 6\ AKRABORGAR- BRYGGJAN fJJjJ ^900 ^ 't° . s Leikmenn ÍAflottir á fluguellinum í Reykjavík. blaðamaður kíkti í heimsókn á bar- inn rak hann hins vegar upp stór augu. I staðinn fyrir gulsvarta breiðu glaðra Skagamanna gat að líta blandaðan hóp gulklæddra stuðn- ingsmanna IA og hvítklæddra smðn- ingsmanna IBV Við nánari efdr- grennslan kom í ljós að þetta var skipulagður fundur. Þórður Gylfa- son formaður Skagamarkanna: „Við höfðum samband við stuðnings- menn IBV fyrir leikinn og buðum þeim hingað og upp á hressingu. Hugsunin var sú að losna við þenn- an „FH-móral“ sem við höfum heyrt af. Þess vegna málum við okkur öll svört í ffaman til að sýna það að fót- boltinn er leikur án fordóma og að við gemm skemmt okkur saman.“ Ekki er annað hægt en að taka ofan fyrir þessu ffamtaki Skaga- markanna. Þetta sýndi vel ffam á þá staðreynd að fótboltinn er fyrst og fremst til skemmmnar. Þannig sungu stuðningsmenn IA og IBV saman, gítarinn var látinn ganga og menn skáluðu fyrir góðum leik. Ak- umesingar sem blaðamaður ræddi við vora vígreifir. „3-0,“ sagði einn aðspurður um úrslitin, „eða nei best að vera raunsær, þeir eiga eftír að skora. Hann fer 2-1 fyrir okkur, við eram ekki betri en það þó við höfum átt góða spretti.“ Eins og ffam kem- ur annarsstaðar í blaðinu fór leikur- inn vissulega 2-1, en reyndar fyrir ÍBV Garergarergarergarer röddin mín? Það var eðlilega ekki alveg jafn bjart yfir mönnum að leik loknum, enda hafði Hð þeirra beðið ósigur. Það varði þó aðeins skamma stund enda voru smðningsmennimir sam- mála um að ferðin hefði verið fin. Þótt Hðið væri ffekar niðurlútt og menn hugsuðu greinilega sinn gang, lém stuðningsmenn það ekki á sig fá. Fljótlega hófst söngurinn á ný; „Hver er Skagans eina von? Það er Olafur Þórðarson," endurómaði um rútuna og stuðningsmenn leimðu stemningarinnar í frægu lagi Guð- jóns Rúdólfs um húfuleit. Þó mátti heyra að ekki var sami kraftur í srnðningsmönnum og fyrir leik, enda hafði mikið verið sungið. „Garergarergarergarer stemningin? Garergarergarergarer röddin mín? Hún var hér í dag.“ Það af röddinni sem enn var fyrir hendi var nýtt til hins ýtrasta, sungið alla leiðina í rút- unni og einnig í flugvélinni á leið til Reykjavíkur. Flugffeyjan þnrfti að biðja um smáþögn svo hún gæti komið skilaboð á ffamfæri um kall- kerfi vélarinnar og urðu menn fús- lega við því, en tóku svo upp þráðinn að nýju. Skagamörkin sýndu af sér gleði og skemmtilegheit í allri ferðinni. Það er ljóst að fá Hð eiga jafntryggan smðningsmannahóp og þar á bæ láta menn smáatriði eins og tap í leik ekki á sig fá. Vissulega var „Smbbalagið“ farið að hljóma hálf- þreytandi í áttunda skipti í þröngri flugvélinni, en menn gáfu sig í það minnsta allan í stuðninginn. Von- andi halda menn því áffam og einnig því góða starfi sem Skagamörkin hafa sýnt í barátm gegn fordómum og fyrir sameiginlegri skemmtan. Það er virðingarvert. BRATTAGATA 4A, Borgarnesi íbúð á efri hæð í tvíbýlishúsi, 133,1 ferm. Forstofa flísalögð. Stofa, borðstofa og þrjú herbergi parketlagt. Baðherbergi með flísum á gólfi en flísaplötum á gólfi. Eldhús parketlagt, eldri innrétting. Búr. Geymsla og geymsluloft. Sameiginl. | þvottahús á neðri hæð. Geymsluskúr á lóð. Góður garður. I Verð: 22.000.000 Allar nánari upplýsingar á skrifstofu Ingi Tryggvason hdl. - löggiltur fasteigna- og skipasali Borgarbraut 61,310 Borgarnes, s. 437 1700, 860 2181 - fax 437 1017, netfang: lit@simnet.is - veffang: lit.is V__________________________________________________________J

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.