Skessuhorn - 28.06.2006, Síða 24
mss mmmmmmmmssmsm mm \sm mmmm . i mm s
Láttu ekki vandræðin
verða til vandræða
íbúðalánasjóður
www.iis.is
FJÁRHAGSLEG GLITNIR,
VELGENGNI ÞÍN
ER 0KKAR VERKEFNI
Daglegar ferðir
Opnunartímar virka daga 8-12 og 13-17.
Engjaás 2 • 310 Borgarnes • Sími: 458 8880
landflutningar@landflutningar.is • www.landfl
Landflutningar
ar.is " SÁMSKIP
Ekki er allt sem
sýnist í símakostnaði
A undanförnum árum hefur skipu-
lag fjarskiptamarkaðarins tekið mikl-
um stakkaskiptum eins og allir vita.
Ekki eru mörg ár liðin síðan gömlu
góðu heimasímarnir voru einu fjar-
skiptatæki flestra landsmanna. Aðeins
eitt símafyrirtæki var til staðar og sím-
reikningar bárust á þriggja mánaða
fresti. Með aukinni tækni hafa lands-
menn varið æ stærri hluta dagsins í
símanum. GSM símar eru nú flestra
eign og svo virðist sem lífsnauðsynlegt
sé að tala í þá lungann úr deginum. Að
ekki sé nú talað um blessað Internetið.
Fyrirtækjum hefur farið fjölgandi sem
selja fjarskiptaþjónustu og hvert gylli-
boðið rekur annað til almennings. En
hvað kostar að tala í síma? Skyldu
margir fylgjast með því hvernig sím-
reikningurinn, sem nú kemur ekki
sjaldnar en mánaðarlega, skiptist?
Flestir hafa ennþá í sinni þjónustu
heimilissíma sem tengdur er við fast-
línukerfið. Hann er ekki dýr í notkun
ef hringt er í annan heimilissíma.
Hver mínúta í slíku símtali kostar vel
innan við tvær krónur hjá símafyrir-
tækjunum sé hringt innan sama síma-
fyrirtækis. Upphæðin hækkar uppund-
ir tvær krónur ef hringt er milli síma-
fyrirtækja. Sé hins vegar hringt úr
heimasíma í GSM síma breytast tölur
fljótt. Skyldu margir gera sér ljóst að
við það margfaldast kostnaðurinn eða
níu til tólffaldast. Upphæðin sem var
1,65 krónur á mínútuna getur því far-
ið í tæpar 20 krónur við það eitt að
hringja í GSM síma hjá öðru símafyr-
irtæki.
Að hringja úr GSM síma í annan
slíkan hjá sama símafyrirtæki er ódýr-
ast en þó margfalt dýrara en milli
heimasíma. Skyldu margir vita að dýr-
ara er að hringja úr GSM síma í
heimasíma en milli GSM síma? Við
það að hringja úr GSM síma í annan
slíkan hjá öðru símafyrirtæki þá tvö-
faldast kostnaðurinn. Hann er þá í
sumum tilfellum orðinn 22 krónur á
mínútu.
Fjölskrúðugar sparnaðarleiðir eru
síðan í boði sem án efa nýtast mörg-
um. Lykilatriði er þó í þessu efni að
vita hvenær hringt er milli fastlínu-
kerfis og GSM kerfis og hvenær
hringt er milli símafyrirtækja. Með því
móti er hægt að spara umtalsverðar
upphæðir. En fyrst og fremst má segja
að ástæða sé fyrir almenning og
stjórnendur fyrirtækja að kaupa sund-
urliðun á símtalanotkun og fylgjast
þannig með því hvernig kostnaður við
þessa leið fjarskipta skiptist. Oðruvísi
en að vita það er ekki hægt að stýra
símakostnaði hafi menn áhuga á að
spara á því sviði. HJ
Sláttur hófst í liðimii viku
Sláttur hófst á Vesturlandi sl.
miðvikudagsmorgun m.a. þegar
bústjórar á Hvanneyri og Hesti í
Borgarfirði slógu fyrstu 20-30
hektarana. Sama dag hófst slátt-
ur m.a. á Ystu Görðum í Kol-
beinsstaðarhreppi, á Ytri Hólmi
í Hvalfjarðarsveit og vafalaust
víðar.
Snorri Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri búrekstrarsviðs
Lbhí sagði í samtali við Skessu-
horn að sprettan væri ágæt bæði
á Hvanneyri og á Hesti og alveg
ljóst að heygæði í þessum fyrsta
slætti yrðu góð. Þá sagði hann
einnig gott útlit vera með korn-
Ljósm: Þórunn Edda Bjamadóttir.
spretta víðast hvar góð þrátt fyr-
ir fremur kalt veður í vor og fyrri
hluta sumars og þá sérstaklega í
innsveitum. „Blaðvöxtur er góð-
ur og útlit fyrir heyfeng yfir
meðallagi," sagði Torfi í samtali
við Skessuhorn. Hann sagðist
gera ráð fyrir því að margir
bændur, þá sérstaklega kúabænd-
ur sem slá tún sín tvisvar eða
jafnvel oftar, myndu reyna að
flýta fyrsta slætti.
A þeirri viku sem liðin er ffá
því fyrstu bændur hófu slátt hafa
allmargir bændur náð ágætum
heyjum, enda var þurrkur góður
fram á sunnudag. MM
sprettu. Aö sogn lorta jonann- ^ ^ degjn . HvanneyrL
essonar, ráðanautar hjá BV er
Sama dag hófst sláttur á Ystu Görðum í Kolbeinsstaðarhreppi.
Ljósm: Þóra Sif Kópsdóttir.
W . ------- -
Grill og ostur
- Ijúffengur kostur!